Morgunblaðið - 21.10.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 21.10.1990, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990 Æsilegir atburðir gerast í maí nk. Omar Ragnarsson fréttamaður og skemmtikraftur með meiru gengur enn lengra í þúsund- pjalasmíðinni og sendir frá sér sína fyrstu skáldsögu fyrir komandi iól. Fróði gefur ritið út og ber það heitið “ ... í einu höggi“. Morgun- olaðið spurði Ómar hvort' ekki mætti segja eitthvað frá bókinni. Hann tók því vel, en sagðist ekki myndu gefa upp endinn sem væri „margfaldur og pottþéttur“, þótt sögunni eigi ekki að ljúka fyrr en í maí á næsta ári. Það er sitthvað óvenjulegt við þessa bók, en við gefum Omari orðið: „Hugmyndin að þessu verki er fjögurra ára, en 12. september síðastliðinn laust því í höfuðið á mér hvernig ég ætti að setja þetta upp. Ég settist því niður og fór að skrifa og er að ljúka við þetta um þessar mundir. Þetta reyndist ekki vera svo erfitt þegar til kas- tanna kom því sagan er búin að malla í hausnum á mér svo lengi.“ Og Ómar heldur áfram,: „Sagan fjallar um fjóra gamla skólafélaga sem gengu í fóstbræðralag á menntaskólaárunum. Það stefnir í uppgjör þeirra og atburðarásin breytist í sakamálasögu. Um 40 prósent af bókinni er sannleikur þannig að ég hef sjálfur uplifað það eða frétt af því. í þeim hluta koma fram margir nafnkunnir menn og get ég nefnt Hemma Gunn, Hrafn Gunnlaugsson, Ingi- mar Eydal og fleiri, eins og til dæmis söngkonurnar Helgu Möller og Ellen Kristjánsdóttur sem eru oft að syngja ákveðin lög á meðan að atburðir gerast. Þess má geta, að lög þessi munu koma út á ka- settum og innan skamms fara þær Helga og Ellen að syngja þessi lög á skemmtistöðum. Hinn hluti bók- arinnar er skáldverk og ég get róað menn með því að það er eng- in fyrirmynd að helstu söguhetju bókarinnar. Sagan stigmagnast með þeim hætti, að i maí á næsta ári munu gerast æsilegustu hlutir sem gerst hafa hér á landi.“ — Hversvegna kaust þú að skrifa svo óvenjulega? „í bókinni eru þrír meginþræð- ir. í fyrsta lagi er það bilið á milli veruleika og skáldskapar, sem oft er óljóst og er svo í þessari bók á köflum— lesendur vita ekki endi- lega alltaf um hvort er að ræða. í öðru lagi bilið á milli gríns og alvöru sem einnig er oft óljóst. Loks, hvar endar hugsun og hvar hefst verknaður? Það er þriðji þráðurinn sem rennur í gegn um verkið." Og hvenær á svo bókin að koma út? „Fyrir nóvemberlok. Sögunnar vegna verður hún að gera það. Ég get ekki skýrt það nánar, en sagan öll verður raunverulegri ef bókin kemur út fyrir nóvember- lok,“ sagði rithöfundurinn Ómar Ragnarsson að lokum. Ómar kemur sjálfur við sögu í fyrstu skáldsögu sinni. FEGURÐARSAMKEPPNI Erfitt en ánægjulegt Sigrún Jónsdóttir, 21 árs há- greiðslustúlka úr Reykjavík, verður meðal þátttakenda um titil- inn „Drottning heimsins“ í Baden Baden í Þýskalandi 24. október næstkomandi. Þar verða 39 kepp- endur frá jafn mörgum löndum. Sigrún er ein þriggja keppenda sem SAM-útgáfan og Hollywood völdu til keppni erlendis í keppn- inni um titilinn Ungfrú Hollywood á síðasta vetri. I símviðtölum við Sigrúnu hefur MEÐ URVAL-UTSYN OG SAS TIL KAUPMANNAHAFNAR komið fram að undirbúningurinn fyrir keppnina hafi verið strangur en skemmtilegur. Stúlkurnar hafa komið fram á hveiju diskótekinu af öðru, sýnt alls konar föt allt frá sundbolum til síðra kjóla. Á diskó- tekunum séu biðstundirnar langar og oft löng ferðalög til þeirra þar sem þau eru í ýmsum borgum. Hvert kvöld hefur endað með krýn- ingu tveggja keppenda og er það eins konar undirbúnigur fyrir loka- keppnina þegar hver og ein getur átt von á kórónu og sprota. Þrátt fyrir þetta segir Sigrún að ekki sé yfir neinu að kvarta, um stúlkurnar sé vel hugsað og félagsskapurinn sé góður. Foreldr- ar og tengdaforeldrar Sigrúnar verða viðstödd keppnina í Baden Baden. Sigrún Jónsdóttir FRÆÐSLA Alltaf sprenging þegar á líður RITSTÖRF Einstakar helgarferðir á frábæru verði. Fáar borgir eru eins skemmtilegar og Kaupmannahöfn þegar fer að nálgast jól. Þú getur til dæmis farið að versla eftir að þú hefur innritað þig á hótelið á laugardaginn, komió við á Hvid’s Vinstue í bakaleiðinni, farið og borðað á G.eirþrúðarklaustri um kvöldið og að dansa á eftir. Á sunnúdeginum er tilvalið að hafa það huggulegt fram undir hádegi og njóta þess að búa á einu af frábærum hótelum SAS, fara í göngu um Strikið og miðborg- ina og borða kvöldmat á einhverjum af matsölustöðunum við Grábræðratorg. Mánudaginn er hægt að nota allan til að versla, því SAS-vélin fer ekki i loftið fyrr en kl. 20.35. Brottfarardagar eru: 3., 10., 17. og 24. nóvember 1., 8. og 15. desember. Verð pr. mann í tveggja manna her- bergi. Innifalið er flug, gisting í tvær „sí nætur og morgunverður. URVAL-UTSYN Álfabakka I6,sími60 3060 Pósihússlæli 13,.sími26690 SAS Vetrarstarfið er að hefjast hjá sértrúarfélaginu. Það er ró legt sem stendur, en það er venjan að það sé rólegt alveg fram eftir desember, en eftir áramótin verð- ur alltaf sprenging og þá getum við ekki sinnt nema brot af þeim sem til' okkar sækja, sagði Kol- beinn Ingólfsson hjá Stangveiðifé- laginu Armönnum, en kennsla félagsins í fluguköstum er hafin og er að vanda á gólfi íþróttahúss Kennaraháskólans á sunnudags- morgnum klukkan 10.30. Kolbeinn kallar félagið sértrú- arfélag í gamni vegna þeirrar stefnu félagsins að standa einung- is að fluguveiðiskap. Kolbeinn segir að í námskeiðun- um sé einungis hægt að taka sex nemendur út á gólfið í einu, kenn- ararar séu þrír, auk hans Kolbeinn Grímsson og Þorsteinn Þorsteins- son og ekki sé ráðlegt áð hver kennari sinni nema tveimur í einu. Svo sé gólfplássið líka takmarkað þótt þeir vildu ef til vill kenna fleir- um í einu. Sagði Kolbeinn að á einum morgni gætu þeir þremenn- ingarnir kennt 18 rnanns. Það væri ekki fullskipað sem stæði, en reynslunni samkvæmt myndi svo fara er á veturinn líður. Fluguköst....

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.