Morgunblaðið - 21.10.1990, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 21.10.1990, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990 Jerúsalem og átökin á Musterishæð sem eru á góðri leið með að einangra Israel eftir Zeev Ofiri Þau mannskæðu átök sem fyrir nokkrum dög- um kostuðu 21 Araba lífið á Musterishæð í Jerúsalem og leiddu til þess að tugir Gyðinga og Araba særðust hafa enn einu sinni beint at- hygli alheims aó flókn- um vandamálum einnar elztu, helgustu, dular- fyllstu og óvægnustu borg veraldar - Jerú- salem. Grátmúrinn er vesturveggur Musterisins helga sem lagt var í rúst fyrir 2000 árum og var mesti helgidómur Gyðinga, og hefur fylgt þeim í minningunni hvert sem leið þeirra hefur legið um heimsbyggðina. Jerúsalem er allt í senn, opinber og lögleg höfuðborg ísraelsríkis, höf- uðborg þess „Palestínuríkis" sem Palestínumenn betjast fyrir að halda lífi í, og einn helgasti og merkasti staður kristinna manna, staðurinn þar sem kristin trú segir að faðirinn, Jesús Kristur, hafi gengið um götur og stræti fyrir um 2.000 árum og loks látið þar lífið. í dag eru íbúar Jerúsalemborgar um 450.000, þar af um 100.000 Arabar. Gyðingar búa í vesturhverf- um borgarinnar og í nýjum úthverf- um umhverfis hana. Arabamir búa innan múra „Gömlu Borgarinnar" og í austurhverfum Jerúsalem. Á fimmta áratug aldarinnar, í lok umboðsstjómar Breta í ísrael, hert- óku liðsmenn Jórdönsku herdeildar- innar austurhluta Jerúsalemborgar og Gömlu Borgina. Næstu 20 árin var Jerúsalem aðgreind í Vestur Jerúsalem undir stjóm ísraels og Austur Jerúsalém undir stjóm Jórd- ana. Musteri Gyðinga í Cömlu Borg- inni voru brennd og rænd. Gyðing- um var meinaður aðgangur að þeim stað sem milljónum Gyðinga um heim allan er helgastur - Grátmúm- Hundruð milljóna múslima um heim allan teljast A1 Aksa musterið í Jerúsalem þriðja mesta helgidóm trúar sinnar, næst á eftir Mekka og Medína. Hér sjást múslimar á bæn — en hermenn standa hjá með alvæpni. um. Grátmúrinn er vesturveggur Musterisins helga sem lagt var í rúst fyrir um 2.000 árum og einu minjar og minnisvarði þessa helgi- dóms sem Gyðingar, hvar sem þeir hafa verið í 2.000 ára sögu sinni, beindu bænum sínum til, dreymdi um og þráðu. í „Sex daga stríðinu" árið 1967 tókst fallhlífahermönnum Israels- hers að bijótast yfír múra og hlið Gömlu Borgarinnar, hrekja burt hermenn Jórdaníu, og eftir nokk- urra klukkustunda bardaga náðu þeir Gömlu Borginni á sitt vald og

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.