Morgunblaðið - 06.11.1990, Qupperneq 29
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓYEMBER 1990
29
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Deilur vegna
vaxtaákvarðana
Bankaráð íslandsbanka ákvað
í síðustu viku að hækka
vexti um 0,5-2% og urðu þá
helstu vextir hinir sömu og þeir
voru í sumar til 1. október, þeg-
ar þeir lækkuðu. Ragnar Önund-
arson, framkvæmdastjóri hjá ís-
landsbanka, sagði í samtali við
Morgunblaðið, þegar skýrt var
frá vaxtahækkuninni: „Það er
orðið ljóst núna, að vaxtalækk-
unin 1. október var ótímabær
vegna þess, að í októberbyijun
tók að gæta útlánsaukningar
umfram innlánsaukningu og það
leiddi þegar til versnandi lausa-
fjárstöðu innlánsstofnana í mán-
uðinum. Það er snögg og veruleg
breyting í átt til þenslu, vegna
þess að þegar bankar lána meira
en þeir fá inn, veldur það þenslu.
Fleiri þættir en vextir hafa þarna
áhrif, en þó er ljóst að vextir
hafa aðhaldshlutverki að gegna,
ekki síst þegar á miklu veltur
að komið sé í veg fyrir þenslu.“
Ákvörðun íslandsbanka kall-
aði fram harkaleg viðbrögð hjá
forystu Dagsbrúnar, sem fékk
síðan samþykkt á almennum fé-
lagsfundi um helgina, að félagið
hætti öllum viðskiptum sínum
við íslandsbanka og stefnir að
því að hlutur félagsins í bankan-
um verði seldur. Þá brást
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra einnig við með
neikvæðum hætti og lét að því
liggja, að ríkið myndi beita ís-
landsbanka einhvers konar við-
skiptaþvingunum vegna ákvörð-
unarinnar um vextina. Jafn-
framt ætlar ríkisstjórnin að beita
sér fyrir því að ríkisbankar feti
ekki í fótspor íslandsbanka.
Með stofnun íslandsbanka
sameinuðust öflugir aðilar í við-
skiptalífmu og verkalýðshreyf-
ingunni um að koma á fót einka-
banka, sem gæti staðið jafnfætis
ríkisbönkunum og veitt þeim
eðlilega samkeppni. Sömu kraft-
ar voru þar að verki og stóðu
að þjóðarsáttinni um launa- og
kjaramál en bæði forysta Dags-
brúnar og forsætisráðherra telja,
að með vaxtahækkuninni hafi
íslandsbanki gengið gegn þjóð-
arsáttinni. Menn þurfa ekki ann-
að en líta á skipan bankaráðs
íslaridsbanka til að fá efasemdir
um að það vinni markvisst að
því að brjóta þá sáttargerð, enda
segir Valur Valsson, bankastjóri
íslandsbanka, að vaxtabreyting-
in nú sé liður í því að standa við
fyrirheit sem bankarnir gáfu
aðilum vinnumarkaðarins við
gerð kjarasamninganna í febrú-
ar, það er þegar þjóðarsáttin var
gerð.
Við sjáum það í Austur-Evr-
ópu að erfitt er fyrir marga að
laga sig að breyttum aðstæðum
eftir að miðstýringarvald komm-
únistaflokksins hverfur. Um-
skipti frá ríkisrekstri til einka-
rekstrar eru sársaukafull fyrir
marga. Hér hefur það hvorki
gengið sársaukalaust fyrir sig
að byggja upp öflugan banka,
sem getur stundað samkeppni
við ríkisbankana, né afnema
miðstýringarvald ríkisstjórnar-
innar við vaxtaákvarðanir. Hvort
tveggja kann að vera í húfí núna
vegna aðfararinnar sem gerð er
að íslandsbanka. Vekur sérstak-
ar áhyggjur að fylgjast með við-
brögðum forsætisráðherra, sem
vill helst afnema fijálsræði í
vaxtaákvörðununum og grípa til
handafls stjórnmálamannanna
að nýju.
Ráðherrar tala hins vegar út
og suður í þessu máli eins og
öðrum sem hér koma til um-
ræðu. Á forsíðu Þjóðviljans á
laugardag er birt viðtal við Ólaf
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra sem ræðst annars vegar á
íslandsbanka fyrir frumkvæði
hans í vaxtamálum en segir hins
vegar, að ríkisstjórnin sé að festa
í sessi hagkerfi og hagstjórn á
íslandi, sem byggist ekki á því
að ríkisstjórnin grípi stöðugt inn
í hagkerfið. Grundvallarþættirn-
ir i hagkerfínu eigi að vera í
lagi og ganga af sjálfu sér eftir
ákveðnum brautum, en hvorki
miðstýrt né stöðugt gripið inn í
það af ríkisvaldinu. Fyrirtæki,
bankar og einstaklingar verði
að sýna að þau hafi þroska til
að starfa í vestrænu nútíma
hagkerfi. Það sé kannski stóra
spumingin sem íslandsbanki
standi frammi fyrir, hvort hann
hafi þroska til þess eða hvort
hann hagi sér eins og gömlu
fákeppnis- og einokunaraðilarnir
í hinu gamaldags íslenska kerfí,
þar sem menn treystu á að ríkið
ýmist bjargaði þeim eða segði
þeim hvað þeir ættu að gera.
Undir þessi orð Ijármálaráð-
herra má taka en hann beinir
þeim til rangs aðila, þegar hann
nefnir íslandsbanka. Hann á að
beina þeim til forsætisráðherra
og ríkisstjórnarinnar. Forsætis-
ráðherra sagði í fyrstu stefnu-
ræðu ríkisstjórnarinnar, að horf-
ið yrði frá nútmímalegum vest-
rænum hagstjórnaraðferðum hér
undir forystu stjórnarinnar. Við-
brögð ríkisstjórnarinnar við
ákvörðun Islandsbanka minna á
gamla tíma og benda til þess að
ráðherrarnir átti sig ekki á því
að einokun þeirra í bankakerfinu
er lokið.
Morgunblaðið/Júlíus
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins greinir frá niðurstöðum flokksráðs- og formannaráðstefn-
unnar. Honum á hægri hönd er Ólafur Arnarson, framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna, en á
vinstri hönd Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri flokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn:
Samþykkt að ganga í EDU
FLOKKSRÁÐS- og formanna ráðstefna Sjálfstæðisflokksins sam-
þykkti einróma um síðustu helgi inngöngu fiokksins í EDU, Evrópu-
samtök lýðræðisflokka.
Aðild að EDU eiga einkum kristi-
legir demókratar og íhaldsmenn,
auk annarra andsósíalískra flokka
í Evrópu. Til þessa hafa af eðlileg-
um orsökum aðeins verið flokkar
frá Vestur-Evrópu í samtökunum,
en á blaðamannafundi, sem haldinn
var í lok flokksráðsfundarins á
laugardag, greindi Þorsteinn Páls-
son formaður Sjálfstæðisflokksins
frá því að lýðræðisflokkar frá ný-
fijálsum ríkjum Austur- og Mið-
Evrópu flykktust nú í samtökin.
Þorsteinn lagði áherzlu á að EDU
byndi ekki neinn aðildarflokkanna.
„Hver þeirra heldur að sjálfsögðu
sjálfstæði sínu og er ekki á neinn
hátt bundinn meirihlutaákvörðun í
samtökunum. Þau eru miklu fremur
samstarfs- og samráðsvettvangur.
Við erum þeirrar skoðunar að það
samstarf hafí mjög mikla þýðingu,"
sagði Þorsteinn.
Aðild að EDU geta fengið þeir
stjórnmálaflokkar, sem taka undir
Klessheim-yfirlýsinguna, stofnyfir-
lýsingu EDU. Þar er lýst stuðningi
við ýmis grundvallaratriði vestræns
lýðræðis og mannréttinda. Þar kem-
ur einnig fram að aðildarflokkarnir
vilji vinna að „lýðræðislegu sam-
starfi allra þjóða í Evrópu er hvíli
á reynslu og afli samtaka þeirra
Evrópuríkja, sem hafa unnið að
þessum markmiðum, en viðurkenna
um leið rétt sérhverrar þjóðar til
að varðveita sérkenni sín og til að
verja mikilvægustu hagsmuni sína,“
eins og þar segir orðrétt.
I Klessheim-yfirlýsingunni kem-
ur einnig fram sú skoðun að „mann-
úðlegt markaðskerfí sé bezta tækið
til að skapa auðlegð og efnahags-
lega farsæld sem er nauðsynleg til
að koma til móts við lögmætar kröf-
ur þjóða Evrópu, og til að leysa
félagsleg vandamál eins og atvinnu-
leysi og verðbólgu." Þar segir að
aðildarflokkarnir telji félagslega
samstöðu og samhjálp mikilsverðari
til lausnar félagslegum vandamál-
um en stéttabaráttu og þeir leggi
áherzlu á siðferðilega undirstöðu
fijáls og opins þjóðfélags, fjölskyld-
una sem grunneiningu þjóðfélags-
ins og félagslega ábyrgð gagnvart
þeim, sem veikir eru og minna
mega sín.
Sjá sjórnmálaályktun á bls. 31.
Tenging íslands við evrópska myntsamstarfið:
Ómögulegt að segja núna
hvort það er skynsamlegt
- segir Þórður Friðjónsson.
„ÞETTA er einfaldlega efni sem
er ekki alveg hægt að svara uin
að svo stöddu, ef þá verður ein-
hvern tíma hægt að svara því, á
hvorn veginn er skynsamlegra að
haga málum, að tengjast mynt-
bandalaginu eða ekki. Það eru rök
bæði með því og á móti,“ sagði
Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar. Hann var spurður
álits á þeim ummælum Þorsteins
Pálssonar formanns Sjálfstæðis-
flokksins á fundi flokksráðs og
formanna sjálfstæðismanna
síðastliðinn laugardag. Þar sagði
Þorsteinn að hefja eigi athugun á
því hvort kostur sé fyrir Island
að tengjast á næstu árum evr-
ópska myntsamstarfinu.
Þórður sagði ríkisstjórnina hafa
falið Þjóðhagsstofnun að hafa for-
ystu um athugun á áhrifum innri
markaðar EB á íslenskt efnahagslíf
ásamt Seðlabanka íslands, fjármál-
ráðuneytinu og Byggðastofnun.
„Þetta er efni sem þarf að kanna
nánar og við erum að skoða bæði
hér í ákveðnum hagstjórnarhópi sem
er að vinna að því að skoða áhrif
innri markaðar EB á íslenskt efna-
hagslíf. Þessi hópur er að velta þessu
fyrir sér og eins hefur verið fenginn
til þessa verkefnis amerískur próf-
essor, Paul Krugman. Hann kemur
til með að segja skoðun sína á þessu
í byijun næsta árs,“ sagði Þórður.
Meðal þess sem hópurinn frá Þjóð-
hagsstofnun, Seðlabanka, fjármála-
ráðuneyti og Byggðastofnun er að
kanna, er hugsanlegt myntbandalag
Evrópu og sú spurning hvort íslend-
ingar ættu að taka þátt í því eða
ekki. Það sagði Þórður vera í skoðun
og enga niðúrstöðu komna.
Hann var spurður hvort jafnframt
væru athugaðir aðrir möguleikar,
eins og að tengjast dollara eða ein-
hverri annarri mynt. „Ég held í raun
og veru að hægt sé að segja að aðr-
ir möguleikar séu út úr myndinni.
Annað hvort erum við að tala um
tengingu við Evrópumyntina eða
hafa sveigjanlega gengisskráningu
áfram. Það eru nánast þessir tveir
möguleikar sem menn eru að velta
fyrir sér. Tenging við aðrar myntir
er ekki raunhæf að svo stöddu og
■ ekki fyrirsjáanlegt að það breytist,
Evrópulöndin eru einfaldlega svo
yfirgnæfandi í viðskiptum við okkur,
að það er alls ekki skynsamlegt að
tengjast dollaranum lengur," sagði
Þórður Friðjónsson.
Ráðstefna félagsmálasljóra:
Nýjungar í félags-
legri þjónustu
NÝJUNGAR í löggjöf um félags-
lega þjónustu eru til umfjöllunar
á ráðstefnu Samtaka félagsmála-
sljóra um velferðarsveitarfélagið.
Ræddar eru breytingar á lögum
um verkaskiptingu ríkis og sveit-
arfélaga frá ýmsum sjónarhorn-
um með tilliti til félagslegrar þjón-
ustu, breytinga á lögum um fé-
lagslegt húsnæði, um vernd barna
og ungmenna og barnalögum, ný
sjónarmið við endurskoðun laga
um málefni fatlaðra og breytingar
á lögum um málefni þeirra. Ráð-
stefnan stendur í tvo daga og
sækja hana rúmlega 200 manns
af öllu landinu.
Árni Sigfússon borgarfulltrúi fy'all-
aði í sínu framsöguerindi um velferð-
arsveitarfélagið frá sjónarhorni
sveitarstjómarmanns og líkti ein-
staklingum í samfélaginu við línu-
dansara í fjölleikahúsi. Hann benti á
að velferð væri afstætt hugtak og
þarfir hvers og eins misjafnar en
allir hefðu þó ákveðnar gmnnþarfir
sem þyrfti að uppfylla. Hann vék
síðan að hlutverki sveitarfélaganna
og sagði: „Ég trúi því staðfastlega
að því nær sem þjónustuveitandi er
þjónustuþega verði þjónustan betri
og hagkvæmari. Það er ekki sérís-
lensk staðreynd. Sveitarfélagið í
hlutverki hins opinbera er nær ein-
staklingnum en ríkið. Skattakerfið
er hins vegar almennt, að mestu háð
búsetu. Grundvöllur velferðarkerfis-
ins er dýr. Kröfur á hendur sveitarfé-
lögum eru miklar, hvað varðar fé-
lagslega þjónustu, menntun og heil-
brigðisþjónustu.
Að undanförnu hefur átt sér stað
uppstokkun sem hefur átt að miða
að því að ríkið tæki að sér þjónustu
sem er of dýr sveitarfélögunum, mið-
að við tekjur þeirra. Þetta hefur ver-
ið sett í marglitar umbúðir en oftast
fylgja því orðin að saman þurfí að
fara stjómunarleg og ljárhagsleg
ábyrgð, eins og sveitarfélögin geti
eins borið ábyrgð á skattpeningunum
eins og ríkið. I raun og vem er ver-
ið að dreifa fé í röngu hlutfalli við
skattheimtu í sveitarfélögum. Ef
slíkt væri gert í réttu hlutfalli, þyrfti
varla ríkið til. Þá sæi sveitarfélagið
um jnnheimtu og rekstur. Forsvars-
menn sveitarfélaga hafa þannig horft
á kostnaðarþætti fyrst og fremst og
prísað sig sæla yfír því að Iosna við
kostnað af rekstri heilbrigðisstofn-
ana, sjúkratryggingakerfís og svo
framvegis. Þannig hefur hið opinbera
velferðarkerfí litlu bæjanna um
landið byggt á því meira og minna
að ríkið standi undir kostnaði. Ef
kaupstöðunum væru skammtaðir
peningar til velferðarmála sam-
kvæmt höfðatölu, skapaðist um leið
enn meiri aðstöðumunur en nú er.
Þá uppgötvaðist, hversu tekjudreif-
ingin er misjöfn.
Þessu hefur verið öfugt farið með
Reykjavíkurborg. Ég held því fram
að ef við fengjum fjármagn ríkisins
til reksturs velferðarstofnana, aðeins
í réttu hlutfalli við íbúafjölda, eða
Jjölda þjónustuþega, hefðum við mun
meira fjármagn umleikis en ríkið
veitir Reykvíkingum nú til þessara
þátta.“
Frumvarp um félagslega
þjónustu
Bragi Guðbrandsson, félagsmála-
stjóri Kópavogsbæjar, kynnti frum-
v.arp um félagslega þjónustu, sem
lagt verður fram á Alþingi í vetur.
Rakti hann aðdraganda að frumvarp-
inu og benti á að ágreiningur hafi
orðið um dagvistarmál þegar frum-
varpið var kynnt í ríkisstjórninni.
Samkomulag hafí síðan tekist um
breytingar á fumvarpinu sem fela í
sér að leikskólar verði áfram undir
menntamálaráðuneytinu en félags-
málaráðuneytið taki yfir dagheimilin.
Bragi rakti síðan þá þætti í vel-
ferðarkerfínu sem löggjafinn ætlað-
ist til að væri sinnt og sagði að,
„Gagnstætt velferðarkerfí ríkisins,
sem byggist á almennum lögum, er
velferðarkerfi sveitarfélaganna rekið
á grundvelli sérhópalöggjafar. í
þessu felst að því er ætlað að fást
við afmörkuð vandamál tiltekinna
þjóðfélagshópa og sé því hálfgert
neyðarbrauð, sem vart verður hjá
komist. Þetta er ein megin skýring
þess að félagsleg þjónusta sveitarfé-
laga á íslandi er um flest vanþróaðri
en í nágrannalöndunum og telst tæp-
lega þess virði að henni sé sýndur
pólitískur áhugi hér á landi.“
Síðar benti hann á að dreifð yfír-
stjóm hafí átt verulegan þátt í að
stefnumótun á sviði félagsþjónustu
hafi átti erfítt uppdráttar. Éinstakir
málaflokar félagsþjónustunnar hafí
orðið að jaðarmálum margra ráðu-
neyta sem jafnvel hafa ekki haft á
að skipa sérstökum starfsmönnum
til _að sinna þeim.
í dag mun Björn Björnsson pró-
fessor fjalla um velferðarsveitarfé-
lagið, Margrét Margeirsdóttir um
málefni fatlaðra og Hrafn Pálsson
um málefni aldraðra. Ráðstefnunni
lýkur eftir hádegi með umfjöllun
þeirra Jóns Björnssonar félagsmála-
stjóra Akureyrar og Sigrúnar Svein-
björnsdóttur um velferðarsveitarfé-
lagið.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hróðný Einarsdóttir, ekkja Jóhannesar úr Kötlum, aflijúpar minnisvarðann. Hjá henni stendur
Skúli Jóhannsson.
Búðardalur:
Minnisvarði um Jóhannes
úr Kötlum afhjúpaður
Búðardal.
Síðastliðinn sunnudag var afhjúpaður minnisvarði um Jóhannes
úr Kötlum. Minnisvarðanum var valin staður við Grunnskólann í
Búðardal miðsvæðis í plássinu. Það var Ungmennafélagið Olafur
Pá sem beitti sér fyrir að reistur yrði minnisvarði um skáldið.
Undirbúningurinn hófst fyrir
nokkrum árum og var myndlistar-
manninum Guðmundi Elíassyni
falið að gera höggmynd af Jóhann-
esi. Guðmundur Hannesson lands-
lagsarkitekt hannaði umhverfí
minnisvarðans.
Athöfnin á sunnudaginn hófst
með því að formaður undirbún-
ingsnefndar Skúli H. Jóhannsson
lýsti aðdraganda og framkvæmd
að gerð minnisvarðans en margir
aðilar hafa lagt fram fé og vinnu
til þessa verks og færði Skúli þeim
öllum þakkir. Síðan bað hánn ekkju
skáldsins, Hróðnýju Einarsdóttur,
að afhjúpa minnisvarðann. Minnis-
varðinn er höfuðmynd úr bronsi
af Jóhannesi sem stendur á stein-
drangi er tekin var í Kötlum en
Katlar eru sérkennilegir klettaboll-
ar í nágrenni Ljárskóasels, þar sem
Jóhannes ólst upp fyrstu ár
bernskunnar. Hann kenndi sig æ
síðan við umrædda Katla.
Framan á steininum er plata
með áletrun með nafni skáldsins
og einu erindi úr kvæðinu Ég hylli.
Ég hylli hreystina og þorið
ég hylli æskuna og vorið
ég hylli allt sem vex og vakir
og vinnur óskipt að málum
ég hylli glaður hinn öra eld
í ungum leitandi sálum.
Að afhjúpuninni lokinni las
Þrúður Kristjánsdóttir kvæðið í
heild og var síðan öllum viðstödd-
um boðið til Dalabúðar, þar sem
beið veislukaffí UMF Ólafs Pá. Þar
fór fram dagskrá um skáldið í tali
og tónum. Þar rakti Einar Kristj-
ánsson fyrrverandi skólastjóri á
Laugum æviferil skáldsins. Áð því
búnu ávarpaði Guðmundur Éy-
þórsson formaður UMF Ólafs Pá
samkomuna og minntist Jóhannes-
ar sem eins af frömuðum ung-
mennafélagshreyfíngarinnar og
bauð alla velkomna til veislunnar.
Síðan söng félagið Vorboðinn und-
ir stjórn Kjartans Eggertssonar
þijú lög öll eftir Dalamenn við
texta skáldsins úr Kötlum. Síðasta
s lagið samdi Jón frá Ljárskógum
við kvæðið Laxárdalur og tileink-
uðu bæði skáldið og tónskáldið
UMF Ólafs Pá lag og ljóð. Síðan
var ljóðdagskrá með tónlist í sam-
antekt Þrúðar Kristjánsdóttur, en
lesarar með henni voru Bergþóra
Jónsdóttir, Elísabet Hildiþórsdóttir
og Svanhvít Sigvaldadóttir. Kjart-
an Eggertsson annaðist tónlistar-
flutning ásamt nemendum sínum,
þeim Sigrúnu Halldórsdóttur,
Svanhildi Kristjánsdóttur, Jenný
E. Jónsdóttur og Margréti Jóns-
dóttur.
Að lokinni ljóðdagskránni tóku
til máls oddviti Laxárdalshrepps
Guðrún K. Pálmadóttir, Svavar
Gestsson, menntamálaráðherra og
Svanur Jóhannesson sonur skálds-
ins sem þakkaði fyrir hönd að-
standenda. Færði hann formanni
undirbúningsnefndar Skúla H. Jó-
hannssyni til varðveislu kvikmynd-
aupptöku af Jóhannesi úr Kötlum.
Þá var frú Hróðnýju Einarsdóttur
afhentur fagur blómvöndur í
kveðjuskyni og sem þökk fyrir
komuna og hylltu gestir nánustu
ættingja skáldsins sem viðstaddir
voru og þar á meðal var 96 ára
gömul systir Jóhannesar, Guðrún
Jónasdóttir frá Homstöðum í Lax-
árdal.
Mikið fjölmenni var við athöfn-
ina eða hátt á þriðja hundrað
manns. Veislustjóri var Jón Egils-
son en hann var einnig í undirbún-
ingsnefndinni ásamt Skúla Jó-
hannssyni og Þrúði Kristjánsdótt-
ur. Undirbúningsnefnd þakkaði
öllum sem lögðu henni lið við gerð
minnisvarðans og dagskránna sl.
sunnudag.
Dalamenn geta verið stoltir af
þessu verki því eins og Einar Krist-
jánsson komst að orði í erindi sínu
þá telja Dalamenn sig allir eiga
eitthvað í skáldinu Jóhannesi úr
Kötlum.
— Kristjana.
Umfangsmikil leit að 9 tonna trillu við Látrabjarg:
Blys hefði afstýrt íunstanginu
- segir Hannes Þ. Hafstein, forstjóri Slysavarnafélagsins
MIKIL leit var gerð á sunnudaginn að níu tonna trillu, með einum
manni, sem fékk á sig brot í Látraröst við Látrabjarg á leiðinni frá
Tálknafirði til Ólafsvíkur. Báturinn, Sverrir BA-26, af gerðinni Gáski
1000, kom svo til Ólafsvíkur kl. 20.45 á sunnudagskvöld, en þá hafði
árangurslaus leit staðið yfir frá kl. 15.45 um daginn.
Það var um kl. 15.20 á sunnudag
að opinn vélbátur, Ingþór Helgi BA
103, háfði samband við tilkynninga-
skyldu íslenskra skipa og greindi frá
því að um hádegi hefðu hann og
Sverrir BA^ lagt upp frá Tálknafirði
áleiðis til Ólafsvíkur í samfloti. Að
sögn Hannesar Þ. Hafstein, forstjóra
Slysavarnafélagsins, tilkynnti Ingþór
að hann hefði siglt fram úr Sverri
út af Breiðivík áður en þeir komu í
Látraröstina í sæmilegasta sjóveðri.
Þegar Ingþór lenti í Röstinni um
þijúleytið hefði snúist til hins verra
og er hann var kominn suður fyrir
Röstina, kallaði hann í Sverri sem
svaraði að bragði og bað hann að
bíða. Eftir það heyrðust bara brestir
í talstöðinni. Ingþór reyndi að ná
sambandi á öllum tíðnum án árang-
urs í 20 mínútur. Lét hann þá til-
kynningaskylduna og Slysavamafé-
lagið vita. Veður var skaplegt,
skyggni gott en þokuslæðingur í
bjarginu, sunnan fjögur til fimm
vindstig en hið versta sjólag í Röst-
inni.
„Þegar við báðum hann um lýsing-
ar spurði ég hann hvort hann hefði
séð til ferða Sverris en hann sagði
það ekki vera, hann hefði haft nóg
með sjálfan sig í Röstinni," sagði
Hannes. Loftskeytastöðin í
Reykjavík kallaði strax á báta á þess-
um slóðum. Haft var samband við
Landhelgisgæsluna og hún beðin að
vera í viðbragðsstöðu og lögreglan á
Patreksfirði var látin vita ef báturinn
kynni að hafa snúið við.
Um kl. 15.45 var ákveðið að hefja
gagngera leit og Landhelgisgæslan
beðin að senda flugvél. Jafnframt
var búist við að varðskip yrði við
Bjarg eftir 1 til 2 tíma. Þá var
kallað strax í landhelgisþyrluna Sif.
„Um kl. 18 höfðum við samband við
björgunarsveitir slysavamafélagsins
á Tálknafírði og Patreksfírði og þær
beðnar um að hafa samband við alla
stærri báta á þessum stöðum og biðja
þá að fara út til leitar undir stjórn
varðskipsins, þegar það kæmi á stað-
inn. Alls tóku 7 bátar þátt í leitinni.
Við báðum einnig Ingþór Helga að
snúa strax við og halda í norðurátt
að bjarginu aftur til að athuga hvort
hann yrði var við ferðir Sverris.
Hann fór eins nálægt bjarginu og
hann treysti sér til en varð ekki var
við neitt,“ sagði Hannes.
Kl. 17.45 voru 7 skip komin á leit-
arsvæðið og varðskipið og þyrlan
hafíð leit. Lögreglan á Patreksfírði
fór þegar út á bjargið og farið var
með fjömm. „Við vissum af mönnum
frá slysavamafélaginu sem voru
staddir út á Bjargi og þeir sögðu
mikið brim vera við þar. I framhaldi
af þessu var farið að undirbúa leit
næsta dag. Bátamir ætluðu að halda
leit áfram um nóttina en um 40
björgunarsveitarmenn frá deildum
slysavarnafélagsins voru tilbúnir til
leitar í birtingu á fjörum allt frá
Blakk í Bjarg, í Keflavíkinni og á
Rauðasandi,“ sagði Hannes. Kl.
20.47 tilkynnti Ingþór Helgi í gegn-
um Loftskeytastöðina í Reykjavík að
hann væri kominn til Ólafsvíkur og
að Sverrir væri kominn þar líka.
Hannes kvaðst ekki hafa heyrt
lýsingu sjómannsins sjálfs á atburð-
unum en heyrt haft eftir honum í
fréttum að hann hefði verið að tala
við Ingþór þegar sambandið rofnaði.
„Hvað átti maðurinn að halda að
Ingþór gerði þegar sambandið við
hann rofnaði? Auðvitað lætur hann
vita undir svona kringumstæðum, og
allt er sett í gang til leitar. Eitt lítið
nandblys, sem er um borð og við
hendina, hefði verið nægilegt merki
Haldiö upp frá
Tálknafiröi kl.
11:30 ásunnud.
Hugsaði bara um að
halda vélinni gangandi
-segir Gísli Marteinsson
Fékká
sig brot í
Látraröst
um kl. 3:00
Kom til Ólafs-
víkur kl. 20:45 á
sunnudagskvöld
„ÉG lagði af stað frá Tálknafirði um hálf tólfleytið á sunnudag og var
í samfloti við Ingþór Helga áleiðis til Ólafsvíkur. Þegar ég kom í Látra-
röstina, um kl. hálf þrjú, var haugasjór og raunar vitleysa að fara inn
í Röstina því það er ekki hægt að snúa við eftir að maður er kominn
inn,“ segir Gísli Marteinsson, sjómaðurinn sem lenti í hrakningunum í
Látraröst á sunnudag.
til Ingþórs, sem var skammt undan,
til þess að fara til aðstoðar, fylgja
bátnum inn og láta vita hvað hefði
komið fyrir. Þá hefði þessi aðgæsla
algjörlega afstýrt öllu þessu um-
stangi. Þetta bar þannig að og hið
versta sjólag á staðnum, að við töld-
um að um stórslys gæti verið að
ræða. Allt viðbragðskerfið var þess
vegna sett í gang,“ sagði Hannes
Þ. Hafstein.
„Ég var þama um stund og von-
aði að þetta væri að verða búið þeg-
ar brotið reið skyndilega yfir bátinn.
Sjórinn kom inn um rúðu í stýrishús-
inu og fór í gegn því hurð sprakk
upp beint á móti glugganum. Eg
varð gegndrepa en varð að halda
áfram og stefna upp í sjólagið til að
fá það ekki þvert yfir.
Ég varð að halda áfram því sjórinn
var það úfinn að ég lagði ekki í að
lensa í gegn,“ sagði Gísli.
„Ég kallaði um leið á Ingþór
Helga og sagðist vera með brotinn
glugga og var þá ekki búinn að átta
mig á að ég hafði ekkert talstöðvar-
samband. Það má draga þann lær-
dóm af þessu að staðsetningin á tal-
stöðvum í svona bátum sé vitlaus.
Af hveiju reyndi hann ekki að
gera vart við sig með því að skjóta
upp blysi? „Spurningin er hvenær ég
hefði átt að skjóta því upp. Ingþór
hafði sagt mér að hann legði ekki í
að fara í Röstina og ég taldi að hann
hefði snúið við. Því gerði ég ekkert
ráð fyrir honum og bjóst við að hann
hefði farið heim og kallað á ein-
hverja til leitar.
Eg tók þann kostinn að fara í
rólegheitunum til Ólafsvíkur. Hættan
var liðin hjá þegar ég komst í gegn-
um Röstina. Ég reyndi bara að gera
allt til að halda vélinni gangandi."
Gísli segist hafa komið inn til Ól-
afsvíkur kl. 20.45. Gaf hann lög-
regluskýrslu um atburðinn. Engar
skemmdir virtust vera á vélinni,
dýptarmælir, radar, lórantæki og
talstöð blotnuðu og eru talin ónýt.
Sverrir BA er í eigu Marteins Gísla-
sonar og var með uppstokkaða línu
og farangur um borð á leið til Ól-
afsvíkur þaðan sem báturinn verður
gerður út í vetur