Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 35

Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990 35 Kirkjuþing: Athvarf fyrir böm í safnað- arheimilum FJÖLSKYLDUVERND er áberandi mál á yfirstandandi Kirkju- þingi en þar er fjallað um þijár tillögur sem allar lúta að heill fjölskyldunnar og að kirkjan verði virkari í þessum málum. í tillögu sem flutt er af Kirkju- ráði um athvarf fyrir börn í safnað- arheimilum, er ályktað að fela Kirkjuráði að hlutast til þess við þá söfnuði landsins þar sem það er kleift og þarft, að boðið verði upp á athvarf eða opið hús á vegum safnaðarins t.d. í safnaðarheimili fyrir þau börn sem verða að vera á eigin vegum hluta dagsins frá því er skóla lýkur og foreldrar eða aðstandendur koma heim. Tilraun hefur verið gerð í Fella- og Hólasókn í Breiðholti að hafa opið hús fyrir fyrir börn þegar þau eiga frí í skólum. Að sögn séra Hreins Hjartarsonar hófst þetta starf fyrir þremur árum og hefur gefist mjög vel. „Það hafa komið á annað hundrað böm þegar kenn- arar halda starfsdaga í skólum og börnunum hefur verið boðið upp á helgistund, leiki og sitt hvað fleira, sem hefur gefist vel. Til að söfnuð- ir landsins geti sinnt þessu þarf þó að afla tekna, en þetta er mikil- vægt starf,“ sagði hann. I greinargerð með tillögunni seg- ir að vansæld yngri kynslóðarinnar á íslandi virðist fara vaxandi, sem sjáist best á því að ofbeldi meðal barna og unglinga hafi stóraukist. „Hópur barna, svokölluð lyklabörn, er á eigin vegum frá því skóla lýk- ur og þar til foreldri eða aðstand- andi kemur heim. Annar hópur, svonefnd „plastpokabörn" búa við enn verri kost, þar sem þau kom- ast ekki einu sinni inn á heimili sín,“ segir í greinargerð. Er sagt æskilegt að safnaðar- heimilin opni dyr sínar fyrir yngstu safnaðarbömin, með því að hafa t.d. opið hús og athvarf íýrir þau eftir skólatíma. Þar gætu þau unn- ið heimaverkefni sín, eða hvílst við leik. „Kalla mætti eftir starfskröft- um eldri borgara til sögulesturs og annars konar umönnunar og sam- félags og að vera börnunum innan handar við heimaverefni o.fl. í þessu athvarfi kirkjunnar fyrir börnin. Einnig mætti hugsa sér að söfnuðir byðu foreldrum yngri barna skammtímagæslu í safnaðar- heimilum þegar þeir þurfa að sinna erindum sínum, en eiga bágt með að fá gæslu fyrir börnin.“ Er lagt til að greitt verði fyrir slíka gæslu. Kostnaðarhlið starfsins þyrfti ekki að vera of erfið, ef söfnuðir legðu til húsakynni, hita og ljós, sjálf- boðaliðar tækju verulegan hluta af starfi og foreldrar greiddu veiting- ar og laun launaðs starfsfólks með einhverjum hætti. Er einnig sagt hugsanlegt að sveitarfélög styddu slík athvörf. Aukið átak í fermingarstörfum kirkjunnar Fyrir þinginu liggur einnig til- laga, flutt af Kirkjuráði, um aukið átak í fermingarstörfum kirkjunnar til að stuðla að heill unglinga í samstarfi við foreldra þeirra. Er lagt til að kannað verði með hvaða hætti megi auka samstarf foreldra og annarra til að bæta það ástand sem oft skapast í unglingahópum og leiðir til ofbeldisverka. Er sérs- taklega bent á foreldra fermingar- barna sem samstarfsaðila kirkjunn- ar í þessu efni. í greinargerð segir að full ástæða sé til að kanna, hvort ekki mætti kalla eftir fjöí- þættara samstarfi kirkju og heim- ila að heill unglingsins m.a. með skipulögðum ferðum foreldrahópa á þá staði þar sem drukknir ungl- ingar safnast saman, eða með ann- arri slíkri starfsemi, sem brúað gæti bilið og aukið traust og skiln- ing milli kynslóða. „Á slíkum grundvelli mætti byggja frekari aðgerðir á landsvísu, þar sem víðtækum þrýstingi yrði beitt til að bæta hag barna og unglinga," segir í greinargerð. Dr. Björn Björnsson, Jóhann Björnsson, séra Jónas Gíslason, vígslubiskup og séra Karl Sigur- björnsson flytja tillögu á þinginu um aukna fjölskylduþjónustu kirkj- unnar. Er lagt til að slíkri þjónustu verði formlega komið a'fót um land allt. I greinargerð er bent á að Safnaðarráð Reykjavíkurprófasts- dæmis hefur samþykkt að koma á fót fjölskylduráðgjöf á vegum próf- astsdæmisins. Hefur einnig verið leitað til nærliggjandi prófasts- dæma og þeim boðin þátttaka. Miðast þjónustan við umhyggju, fyrirbyggjandi fræðslu, ráðgjöf, uppbyggingu og meðferð fyrir fjöl- skyldur, safnaðarfólk og presta um land allt. Stendur til að slík starf- semi hefjist í Reykjavík á næsta ári. I - V' ■ ...; } - ' ’ w - ' ' Nemendur Jarðhitaskólans við vinnsluholu Hitaveitu Húsavíkur á Hveravöllum í Reykjahverfi. Nemendurnir eru frá Búlgaríu, Costa Rica, Egyptalandi, Júgóslavíu, Kenya, Nicaragua og Uganda. Ellefu nemendur frá sjö lönd- um útskrifaðir úr Jarðhitaskóla TÓLFTA starfsári Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Reykjavík lauk með skólauppsögn í dag (29. október 1990). Ellefu styrkþegar útskrifuðust eftir sex mánaða sérhæft nám í jarðhita- fræðum. Styrkþegarnir koma frá Búlgaríu, Costa Rica, Egyptal- andi, Júgóslavíu, Kenya, Nicaragua og Uganda. Frá því Jarðhitaskól- inn tók til starfa árið 1979 hafa alls 93 styrkþegar frá 20 þróunarl- öndum útskrifast eftir scx mánaða nám, en að auki liafa liðlega • 30 dvalið hér við nám í skemmri tíma (2 vikur til 3 mánuði). Jarðhitaskólinn er rekinn sam- af þróunaraðstoð Islendinga. Kenn- kvæmt samningi milli Háskóla arar við Jarðhitaskólann eru sér- Sameinuðu þjóðanna í Tókýó og fræðingar hjá Orkustofnun, Há- Orkustofnunar fyrir hönd íslenska ríkisins. Fjárframlög til Jarðhita- skólans koma frá Háskóla Samein- uðu þjóðanna og_ íslenska ríkinu. Litið er á framlag íslands sem hluta skóla íslands, og verkfræðistofum í Reykjavík. Nemendur Jarðhitaskólanshafa allir lokið háskólanámi í jarðvísind- um eða verkfræði og unnið í nokk- ur ár við jarðhitarannsóknir í sínum heimalöndum áður en þeir koma til íslands til framhaldsnám. Á þessu ári voru fjórir nemendanna við nám í jarðhitaleit en sjö í bor- holumælingum og jarðhitaverk- fræði. Margir nemendur Jarðhita- skólans frá fyrri árum eru nú leið- andi sérfræðingar í jarðhitarann- sóknum í sínum heimalöndum. Nánari upplýsingar um Jarðhita- skólann veitir forstöðumaður skól- ans, dr. Ingvar Birgir Friðleifsson, jarðfræðingur, (sími 83600). (Fréttatilkynning) Frumvarp um fjárfestingar eriendra aðila á íslandi: Rýmkaðar heimildir í sjávarút- vegi og eignaraðild að bönkum NEFND sem forsætisráðherra skipaði fyrir tæpu einu ári til að endur- skoða fyrra frumvarp til laga um fjárfestingu erlendra aðila á Islandi hefur lokið störfum og mun Steingrímur Hermannsson forsætisráð- herra væntanlega kynna ríkisstjórninni frumvarp um þetta efni. í frumvarpinu er gert ráð fyrir aðila í íslensku atvinnulífi hveiju rýmkuðum heimildum útlendinga til fjárfestinga í flestum greinum at- vinnulífsins, auknu eftirliti með er- lendri fjárfestingu og fjárfestendur lúti í einu og öllu íslenskum lögum. Meðal annars er lagt til að hlutafjár- eign erlendra aðila í viðskiptabönk- um megi vera allt að 25% og innan fimm ára megi erlendir aðilar kaupa hlut í íslenskum hlutafélagsbönkum án takmarkana. Þetta kom fram í erindi sem Jón Sveinsson aðstoðar- maður forsætisráðherra og einn nefndarmanna flutti á fundi í Banka- mannaskólanum í gær. Nefndin telur að með fnimvarpinu sé stigið mikilvægt skref í þá átt að erlent áhættufé geti í ríkari mæli komið í stað erlends lánsfjár við fjár- mögnun atvinnurekstrar á íslandi. Fram kom að enginn einn aðili hérlendis hefur yfirlit yfir fjárfest- ingar erlendra aðila í atvinnurekstri á íslandi og því sé afar erfítt að safna upplýsingum u,m þessi mál. Afar brýnt er að mati nefndarinnar að koma upplýsiggaöflun í fast form þannig að unnt verði að fá góða heildarmynd af umsvifum erlendra smm. Nefndin telur að milliríkjasamn- ingur milli íslands og annarra EFTA-landa og ríkja Evrópubanda- lagsins um evrópskt efnahagssvæði, sem feli í sér afnám á hömlum í við- skiptum, fjármagnshreyfíngum milli ríkja og á búsetu ríkisborgara innan yfirráðasvæðis ríkjanna, muni óhjá- kvæmilega leiða til endurskoðunar laganna, einkum að því er varðar rétt einstaklinga og lögaðila í aðild- arríkjunum til fjárfestinga í atvinnu- rekstri hérlendis. Nefndin telur samt sem áður brýnt að lögfesta frum- varpið sem fyrst enda núgildandi reglur sundurlausar og ósamstæðar. Nefndin leggur til að fjárfesting erlends ríkis eða fyrirtækis í eigu erlends ríkis í atvinnurekstri hér á landi verði óheimil nema með sér- stöku leyfi viðskiptaráðherra og að leyfi viðskiptaráðherra þurfi fari heildarfjárfesting erlends aðila fram úr 250 milljónum króna á ári. Þá má heildarfjárfesting erlendra aðila í hverri atvinnugrein ekki fara yfir 25% nema til komi leyfi viðskiptaráð- herra. Nefndin leggur til að numin verði úr gildi heimild erlendra aðila til að eignast allt að helmingi hlutafjár í útgerðarhlutafélögum. Lagt er til að sömu ákvæði gildi um vinnslu sjávar- afurða, en þó verði heimildir um eign- arhald erlendra aðila rýmkaðar við atvinnurekstur vegna umpökkunar í neytendaumbúðir eða frekari vinnslu sem gera afurðir hæfari til dreifing- ar, neyslu eða matreiðslu. Sam- kvæmt núgildandi lögum er erlend- um aðilum óheimilt að eiga hlut í slíkum atvinnufyrirtækjum. Útlendingar eigi ekki kost á að fjárfesta í virkjunum eða jarðhita Lagt er til að erlendir aðilar eigi ekki kost á fjárfestingum í virkjunum vatnsfalla og jarðhita, annarra en til heimilisnota. Þá verði erlen’dum aðil- um óheimilt að reka hér á landi út- varpsstöðvar og að eignarhluti er- lendra aðila í íslensku fyrirtæki sem rekur útvarpsstöð megi ekki vera meiri en 25%. Samkvæmt núgildandi útvarpslögum mega erlendir aðilar reka hér útvarpsstöðvar sé eignar- hlutdeild þeirra ekki yfir 10%. Samkvæmt núgildandi viðskipta- bankalögum skal hlutafé í hlutafé- lagsbanka allt vera í íslenskri eign. Greiðslumat vegna húsbréfalána: Leitað samninga við fjármálastofnanir LEITAÐ verður samninga við alla þá aðila, sem svöruðu út- boði Húsnæðisstofnunar ríkisins um framkvæmd greiðslumats vegna umsókna um húsbréfalán. Sigurður Geirsson deildarstjóri húsbréfadeildar segir það vera í samræmi við ósk þeirra, sem svöruðu, að þessi afgreiðsla færi á sem flestra hendur. í síðasta mánuði óskaði Húsnæðis- stofnun ríkisins eftir tilboðum banka, sparisjóða og verðbréfafyr- irtækja í að taka að sér þessa þjón- ustu. Svör bárust frá Landsbanka íslands ásamt Landsbrtéfum hf., íslandsbanka hf. ásamt Verðbréfa- markaði Islandsbanka hf., Búnað- arbanka, Sambandi sparisjóða, Kaupþingi hf. og Fjárfestingafé- laginu hf. Sigurður segir að leitað verði samninga við alla þessa aðila og náist samningar við þá alla verði hægt að fá greiðslumatið innt af hendi í afgreiðslustöðum þeirra. Alls höfðu um 4.300 umsóknir borist um húsbréfalán um síðustu mánaðamót og þar af höfðu um 1.400 hlotið lokaafgreiðslu. Sigurð- ur segir biðtíma eftir afgreiðslu nú vera kominn í eðlilegt horf og ná- ist samningar um að færa greiðslu- matið út úr Húsnæðisstofnun létti það álaginu af húsbréfadeild og stytti þann tíma sem stofnunin þarf til að sinna hverri umsókn. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að erlendir aðilar megi eignast allt að 25% hlutafjár. Frá 1. janúar 1992 hækkar þetta hámark í 50% . og frá 1. janúar 1995 megi erlendir aðilar kaupa hlut í íslenskum hlutafé- lagsbanka án annarrra takmarkana. Nefndin leggur til að að saman- lagður eignarhluti erlendra aðila í íslensku atvinnufyrirtæki sem stund- ar flugrekstur hér á landi verði ekki meiri en 49%. I frumvarpinu er ekki lagt til að takmarkanir verði lagðar á aðild erlendra aðila að farmflutn- ingum á sjó. Óráðlegt að rýmka heimildar í sjávarútvegi Birgir Björn Sigutjónsson hag- fræðingur sagði í erindi sínu á fund- inum að frumvörpin opni erlendum fjárfestingaraðilum fleiri leiðir að íslenskum sjávarútvegj. Gert sé ráð fyrir að erlendir aðilar geti stofnað og rekið banka og aðra fjármagns- þjónustu og ekki sé vafí á því að erlendir aðilar geti í krafti stöðu lána- drottna náð undirtökum á skuldugum útgerðarfyrirtækjum. Hann kvaðst ’ sakna þess að frumvörpum þessum hefði ekki verið fylgt úr hlaði með skýrri stefnuyfirlýsingu um megintil- gang þeirra og að til að svara fjöl- mörgum spurningum sem upp koma hefði þurft ítarlega fræðilega úttekt. Halldór Árnason, fulltrúi Samtaka atvinnurekenda í sjávarútvegi, kvaðst telja óráðlegt að rýmka heim- ildar erlendra aðila til fjárfestingar í sjávarútvegi nú. Hann taldi að rétt- ara væri að bíða með slíkar ákvarð- anir þar til gengið verður til samn- inga um evrópskt efnahagsvæði auk þess sem það væri andstætt grund-« vallarreglum bjóða erlendum aðilum að fjárfesta hér á landi meðan sjávar- útvegurinn byggi við háa tolla í Evr- ópubandalagsríkjunum. Nefndina skipuðu Jón Sveinsson aðstoðarmaður forsætisráðherra, Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri, Friðrik Sigurðsson framkvæmda- stjóri, Heimir Hannesson lögmaður og Ragnar Arnalds alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.