Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ VlÐSKn’TI/iOVlNNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990
Erlent
Að stjórna stærsta fyrirtæki í
heimi er engin draumastaða
Berliner Treuhandsanstalt er fjárhaldsfyrirtæki átta þúsund fyrrum austur-þýskra fyrirtækja
Frá Steingrími Sigurgeirssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
DETLEV Rohwedder, stjórnandi Berliner Treuhandsanstalt, stærsta
fyrirtækis í heimi, á ekki auðvelda daga framundan. Berliner Treuhand-
sanstalt, er í raun ekki eitt fyrirtæki, heldur fjárhaldsfyrirtæki átta
þúsund fyrrum austur-þýskra fyrirtækja. Hlutverk Rohwedder er að
koma þeim á lappir á ný, annað hvort að einkavæða þau, koma rekstr-
inum í viðunandi horf eða einfaldlega leggja þau niður eins og nýlega
var gert við fyrirtækið Pentacon sem framleiddi mýndavélar af gerð-
inni Praktica. Þegar hafa tvö hundruð fyrirtæki sem heyra undir fjár-
haldsfyrirtækið verið seld og sagði Rohwedder á dögunum, í samtali
við Frankfurter Allgemeine Zeitung, stefna að því að um áramótin
verði alls búið að selja fimm hundruð þeirra.
Berliner Treuhand var stofnað í
mars sl. af Hans Modrow, þáverandi
forsætisráðherra Austur-Þýska-
lands, og hefur á margan hátt reynst
hinn mesti gallagripur. Er talið að
fyrir Modrow hafi vakið að varðveita
sem mest af sósíalismanum og
vernda „félagana" í háttsettum stöð-
um áður en sameining Þýskalands
skall á. Vegna hinnar gríðarlegu
stærðar fjárhaldsfyrirtækisins
reyndist það fyrsta vestræna stjórn-
andanum Reiner-Maria Gohlke, fyrr-
um yfirmanni Deutsche Bundesbahn,
vestur-þýsku járnbrautanna, ofviða
að fá heildaryfirsýn yfir dæmið. Go-
SAMSTEYPA — Berliner Treuhandsanstalt er fjárhaldsfyrir-
tæki átta þúsund a-þýskra fyrirtækja.
hlke, sem tók við stjóminni í júní sl.
lét af störfum fyrir skömmu og að
beiðni Helmut Kohls, kanslara
Þýskalands, tók við Detlew Roh-
wedder, sem áð.ur stjórnaði stálfyrir-
tækinu Hoesch í Dortmund. Hvernig
honum vegnar á eftir að sýna sig.
Vandamál Rohwedders
mörg
Vandamál Rohweþders er ekki
bara að reyna að koma hinum oft
ömurlega rekstri fyrirtækjanna í
skikkanlegt horf, finna nýja stjórn-
endur, nýja framleiðslu, nýja mark-
aði, og síðast en ekki síst nýja eigend-
ur. Hann verður þar að auki líka að
beijast við fyrirtæki að vestan sem
vilja komast yfir fyrirtæki án þess
að greiða raunvirði fyrir og hið gamla
veldi SED, fyrrum austur-þýska
Kommúnistaflokksins. Þó að hann
sé ekki lengur til, að minnsta kosti
ekki undir því nafni, er hið gamla
valdakerfí fíokksins að miklu leyti
til enn við lýði í fyrirtækjunum. Hef-
ur þetta gamla valdakerfi verið eins
konar fímmta herdeild innan Berliner
Treuhand, reynt að gera samninga
án vitundar stjórnar fjárhaldsfyrir-
tækisins, unnið gegn hagsmunum
þess og jafnvel stolið öllu steini létt-
ara úr sumum fyrirtækjum.
Alvarlegasta dæmið varðar Inter-
hotel, hótelkeðjuna, sem austur-
þýska ríkið rak áður fyrir' gesti að
vestan. Undir Interhotel heyra 34
hótel, m.a. hið glæsilega Grand Hot-
el á horni Friedrichsstraíie og Unter
den Lindén í Berlín. Eini stjórnar-
maður Interhotel og tveir fulltrúar
Berliner Treuhand, sem allir þrír
voru áður háttsettir í Kommúnista-
flokknum og skipaðir höfðu verið í
ÞJOI MUSTUSKODUN
ii ISUZ < ISUZU M
OKEYPIS
P1 ÞJÓNUSTUSKODUN
Þér er boðið að koma með ISUZU bifreið þína til skoðunar á
verkstæði okkar, þar sem hún verður gaumgæfilega skoðuð
af sérfræðingi ISUZU verksmiðjanna ásamt starfsfólki okkar.
OKEYPIS
□ VIOHALDSÞJÓNUSTA
verður boðin í formi olíu og síuskipta.
Þjónustuskoðun JÖTUNS/ISUZU verður dagana
19. til 23. nóv. nk. að báðum dögum meðtöldum.
Bókaðu tíma fyrir bifreið þína í síma 68 55 39, tímanlega.
r-hci, vj'ari Boðið verður upp á kaffi, gos og meðlæti fyrir þá, sem vilja bíða
[_JJ "frTjgjr. meðan skoðun er framkvæmd, ásamt afþreyingu fyrir börnin.
Vörubíla- og tækjaverkstæðið mun bjóða sömu þjónustu á sama tíma
fyrir pall- og flutningabíla á Smiðshöfða 7, sími 68 55 49.
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
GM
u
HÖFÐABAKKA 9 112 RBYKJAVÍK SÍMI 91 -670000
stöðurnar af Hans Modrow, sömdu
leynilega við hótelfyrirtæki með að-
setur í Frankfurt. Steigenberger
Hotels AG, um yfirtöku á rekstri
Interhotel í tuttugu ár. 24. júlí sl.
var skrifað undir samning sem stjórn
Berliner Treuhand frétti fyrst af í
gegnum frétt í dagblaðinu, Die Welt,
þremur dögum síðar. Og það þrátt
fyrir að þremenningamir höfðu orðið
að bregða sér af fundinum þar sem
skrifað var undir samninginn til að
fara á annan fund í höfuðstöðvum
Berliner Treuhand um málefni fyrir-
tækisins sem skyndilega var kallað
til. Þeir fengu þar fyrirmæli um að
gera ekkert sem væri andsnúið
stefnu Ijárhaldsfyrirtækisins. Um
samningafundinn við Steigenberger
sem stóð yfir nákvæmlega þá stund-
ina minntust þeir ekki einu orði.
Meiriháttar hneyksli
Eftir að stjórn Berliner Treuhand
hafði skoðað samninginn var ljóst
að um meiriháttar hneyksli var að
ræða ekki bara vegna þess hvernig
að samningnum var staðið. Munurinn
á því sem Steigenberger átti að
greiða á þessum tuttugu árum og
því sem raunhæft væri að fá á mark-
aðinum nam alltað áttatíu milljörðum
íslenskra króna. Rohwedder gerði
Steigenberger gagntilboð. Gerði
kauptilboð í Interhotel. Ekkert svar
barst við því tilboði.
Önnur dæmi eru til um hvernig
fyrrum SED-félagar hafa reynt að
misnota stöðu sína — mismunandi
alvarleg. Til dæmis voru nýlega seld
ný litasjónvörp, með eins árs ábyrgð,
framleidd af fyrirtækinu „LWG“ á
einungis 140 mörk. Kaupendur voru
þó einungis fyrrum flokks- og Stasi-
félagar enda var fyrirtækið til
skamms tíma í eigu öryggislögregl-
unnar. Um hin ódýru litasjónvörp
vissi stjórn íjárhaldsfyrirtækisins
STOFNANDINN —
Berliner Treuhand var stofnað
í mars sl. af Hans Modrow, þá-
verandi forsætisráðherra
Austur-Þýskalands, og hefur á
margan hátt reynst gallagripur.
ekki neitt, og það þrátt fyrir að hún
varð að greiða niður verð hvers sjón-
varps fyrir um þúsund mörk.
Ein helstu mistök Gohlke eru talin
vera þau að hann reiddi sig um of á
hina gömlu austur-þýsku stjórnendur
og vanmat hversu mikil völd SED
og öryggislögreglunnar Stasl voru
en Rohwedder ásamt aðstoðarmanni
sínum Birgit Breuel, sem áður var
ráðherra í sambandslýðveldinu
Neðra-Saxlandi, hefur reynt að leita
gömlu SED-félaganna uppi og reka
þá og taka inn menn að vestan í
fyrirtækin. Einungis þannig er talin
von um að koma fyrirtækjunum heil-
um og höldnum úr áætlunarbúskap
yfir í markaðsbúskap. Hafa mörg
hundruð vestur-þýskir stjórnendur
frá þekktum fyrirtækjum tekið sæti
í stjómum fyrirtækja sem heyra und-
ir Berliner Treuhand.
Hvernig til tekst er enn óvíst þrátt
fyrir átta mánaða starf hefur ekki
tekist að rýna nægilega vel í gegnum
rúnir hinnar kommúnistísku bók-
færslu til að komast að því hver raun-
veruleg staða fyrirtækjanna átta
þúsund er. Rohwedder mat nýlega
verðmæti þau sem falla undir stjórn
Berliner Treuhand á 600 milljarða
marka eða sem samsvarar 24.000
milljörðum íslenskra króna. Þeir eru
þó til sem gagnrýna þessa útreikn-
inga hans og segja að þegar allt sé
tekið.inn í myndina séu menn heppn-
ir ef dæmið komi út á sléttu.
Iðnaður
VIÐURKENNING “■ í annað sinn á tveimur árum hefur
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hlotið sérstaka viðurkenningu fyrir
gæði á RC-Cola. Einungis 5 aðilar fá þessa viðurkenningu, en framleið-
endur RC-Cola um allan heim eru 175. Ölgerðin hóf framleiðslu á
gosdrykknum hérlendis haustið 1988 samkvæmt einkaleyfi Royal
Crown Cola International í Bandaríkjunum. Á myndinni eru f.v. Ágúst
Sigurðsson matvælafræðingur, Ragnar Haraldsson framleiðslustjóri,
sem tók við viðurkenningarskjalinu og Tony Arbid fulltrúi RC-Cola
Crown Int., sem afhenti skjalið.