Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 54

Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 54
54 MOKGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990 Yfirheyrslur hafnar í sakadómi vegna morðsins á bensínafgreiðslumanninum í Stóragerði: Hinir ákærðu bera hvor annan sökum um atlöguna að hinum látna Lögreglumenn að störfum á morðstaðnum, bensínstöð Esso við Stóra- gerði, að morgni miðvikudagsins 25. apríl síðastliðins. YFIRHEYRSLUR hófust í saka- dómi Reykjavíkur í gær yfir Guð- mundi H. Svavarssyni, 28 ára, og Snorra Snorrasyni, 34 ára, sem ákærðir eru fyrir að hafa orðið Þorsteini Guðnasyni bensínaf- greiðslumanni að bana þann 25. apríl síðastliðinn á bensínstöð Esso við Stóragerði. Mennirnir voru yfirheyrðir hvor í sínu lagi ,í gær. Þeir játuðu báðir að hafa verið á staðnum er ódæðið var framið, könnuðust við hafa tekið þátt í að ræna peningum úr bensínstöðinni og að hafa farið á brott í bíl Þorsteins hcitins en bera hvor annan sökum um að hafa unnið á Þorsteini enda hafi það ekki verið þáttur í áætlunum þeirra. í dag verða mennirnir sam- prófaðir í því skyni að varpa ljósi á það sem á milli ber. Snorri Snorrason þekkti Þorstein heitinn og kvaðst hafa viljað fara á staðinn til að ræna peningum úr peningaskáp stöðvarinnar þegar Þor- steinn væri á vakt og sagði fyrir dómi að ástæðan væri sú að sá sem ^vstaðið hefði vaktir sem afgreiðslu- stjóri á móti Þorsteini væri það gam- all að ekki hefði verið þorandi að rota hann. Guðmundur sagði hins vegar að Snorri hefði undirbúið för- ina og talað um að hann þyrfti að hitta á vin sinn á bensínstöðinni, sem mundi láta þá fá peningana; Snorri hefði þekkt Þorstein í 6 ár og sagð- ist Guðmundur hafa skilið Snorra þannig að þeir Þorsteinn hefðu kom- ist að samkomulagi um að Þorsteinn léti peningana af hendi. Snorri sagði að áður en farið var af stað hefðu — • þeir Guðmundur báðir gert sér grein fyrir því að þeir yrðu teknir fastir innan nokkurra daga en þeim hefði verið sama um það eins og allt ann- að. Upphaflega hefðu þeir ætlað í ránsförina á þriðjudagsmorgni en frestað förinni þegar í Ijós hefði kom- ið að Þorsteinn yrði ekki á vakt fyrr en á miðvikudagsmorgun. I máli beggja mannanna kom fram að þeir hefðu verið undir áhrifum áfengis og ýmissa efna. Guðmundur kvaðst hafa sofnað um klukkan fjögur að morgni miðvikudagsins eftir að hafa sprautað sig með lyfjum en Snorri hefði vakað alla nóttina og vakið sig um klukkan hálfsjö og sagt að þeir skyldu leggja af stað. Guðmundur kvaðst hafa tekið með sér að heiman sprautu og efni til að sprauta sig með en Snorri hefði tek- ið með sér morðvopnið, melspíru, sem hann hefði sjaldan skilið við sig og oftsinnis notað við innbrot. Snorri kvaðst hafa tekið melspíruna með sér þar sem hann hafi ætlað að spenna upp sjálfsala við bensínstöð- ina. Mennimir fóru frá heimili sínu við Smiðjustíg laust eftir klukkan hálfsjö að morgni miðvikudagsins 25. apríl. Báðir höfðu hanska á höndum. Þeir gengu að Hlemmtorgi þar sem þeir tóku strætisvagn númar 11. í vagninum segir Snorri að þeir hafi rætt um að nota melspíruna til að rota Þorstein. Þeir fóru úr vagninum við Grensásveg, móts við Almgerði, og gengu í átt að bensínstöðinni. A leiðinni námu þeir staðar, að sögn Guðmundar, og neyttu adrenal- índufts úr bauk sem Snörri var með. Þeir komu að bensínstöðinni um klukkan fimm mínútur yfir sjö og var hún þá mannlaus og læst. Þeir biðu og Guðmundur segist hafa náð að reykja eina sígarettu áður en Þorstein bar að í bíl sínum. Þorsteinn og Snorri heilsuðust og sagði Snorri Þorsteini að bíll þeirra félaga hefði bilað á Bústaðaveginum og bað um að fá að hringja. Þegar þar var kom- ið sögu segist Guðmundur hafa séð að eitthvað væri það málum blandið, sem Snorri hafði sagt, að þessi kunn- ingi hans mundi láta þá fá pening- ana. Báðir segja að Þorsteinn hafa tekið vel í að leyfa þeim að hringja, hann hafi opnað dyr bensínstöðvar- innar, boðið þeim inn og spurt hvort þeir vildu ekki kaffísopa. Síðan hafí hann gengið að þjófavamakerfínu . u og aftengt það og segir Guðmundur að Þorsteinn hafí grínast með að hann hefði naumlega náð að af-. tengja þjófavarnakerfið áður en það fór að sendá frá sér merki. Bæði Snorri og Guðmundur bera að Þorsteinn hafí gengið inn í eldhús- skot á bensínstöðinni, Snorri hafí fylgt eftir í humátt en Guðmundur hafí staðið hjá. Síðan skilur algjör- lega á milli um framburð þeirra og greinir þá í öllum atriðum á um hvernig atlagan að Þorsteini Guðna- syni átti sér stað. Snorri segir að Þorsteinn hafí gengið inn í eldhúskrókinn, kveikt á kaffívél, sett nestisbox sitt í ísskáp um leið og þeir spjölluðu saman. Guðmundur hafi staðið hjá en skyndilega pikkað í bakið á sér og beðið um melspíruna. Snorri segist hafa haft melspíruna í buxna- strengnum og kvaðst hafa lyft jakk- anum til merkis um að Guðmundur gæti tekið verkfærið. Guðmundur hafi þrifíð melspíruna, tekið um mjórri endann, gengið að Þorsteini og slegið hann ofan við hægra eyr- að, þannig að blæddi úr. Þorsteinn hafi gripið í Guðmund, ruðst út úr skotinu og fram í afgreiðslu og Guð- mundur hafi fylgt á eftir. Snorri kvaðst hafa staðið hjá í fyrstu en síðan reynt að hlaupa út. Dyrnar hafi verið læstar og hann hafi því hrökklast inn aftur þar sem Guð- mundur hafí þá haldið vinstri hendi um háls Þorsteini en mundað melspíruna með þeirri hægri og hót- að að slá Þorstein aftur, afhenti hann sér ekki lykla að peningaskáp stöðv- arinnar. Snorri segir að Þorsteinn hafí þá ávarpað sig og spurt hvers vegna hann væri að þessu og beðið um að hann yrði ekki sleginn aftur. Snorri kvaðst engu hafa svarað og skömmu síðar hafí Þorsteinn rétt fram lykla sem Snorri kveðst hafa hrifsað og hlaupið með þá niður stiga og inn í skrifstofu í kjallara bensín- stöðvarinnar. Þar hafi hann tekið plastpoka til handargagns og hafist handa við að fylla hann af peningum, seðlum og mynt úr peningakassa stöðvarinnar. Einnig hafi hann tekið peningaskjóðu úr skápnum. A meðan hafi Guðmundur beðið með Þorsteini og á leið niður stigann kvaðst Snorri hafa heyrt Guðmur.d skipa Þorsteini að vera rólegum. Snorri kvaðst ekk- ert hafa heyrt tii þeirra meðan hann var niðri á skrifstofunni, nema einu sinni hvell eins og járni væri slegið við járn. Hann hafí lagst fjóra fætur á gólf skrifstofunnar og verið að troða peningum í pokann þegar Guð- mundur hafi skyndilega birst í gætt- inni alblóðugur og spurt hvort hann væri ekki að koma. Snorri kvaðst skömmu síðar hafa farið úr skrif- stofukompunni og fram á kjallara- gang og séð Þorstein liggja þar á gólfinu. Guðmundur hafi þá staðið yfir Þorsteini og haldið um melspír- una miðja. Snorri kvaðst ekki hafa litið á Þorstein og ekki hafa séð áverka á honum en kvaðst hafa séð blóðpoll við höfuð hans. Hann kvaðst hafa klofað yfir fætur Þorsteins og hlaupið upp stigann, upp í afgreiðslu bensínstöðvarinnar, án þess að taka eftir hvort Þorsteinn væri með lífsmarki. Guðmundur hafi komið upp á eftir sér og spurt hvort Snorri væri með lykla að bíl Þorsteins. Svo hafí ekki verið og hafí Guðmundur þá snúið niður aftur til að ná í bíllykl- ana enda hafi verið ákveðið að fara á brott í bíl Þorsteins. Snorri kvaðst þá hafa staðið við bakdyr bensín- stöðvarinnar og litið niður stigann og séð hvar Guðmundur kraup yfír Þorsteinu og hélt melspírunni á lofti með báðum höndum. Síðan hafí hann risið upp með bíllyklana, komið upp og þeir hafi farið út og á brott í bíl Þorsteins, sem Guðmundur ók. Guðmundur segir þannig frá að hann hafi ekki haft Þorstein í sjón- máli þegar hann var í eldhúskróknum en hins vegar hafi hann séð í bakið á Snorra, Guðmundur kvaðst ekki hafa heyrt hvað Snorra og Þorsteini fór á milli en kvaðst hafa verið að hugsa með sjálfum sér að sennilega væri hægt að gefa það upp á bátinn að fá þarna peninga, Þorsteinn væri miklu eldri en Snorri og alls ekki líklegur til að taka þátt í neinu slíku með þeim. Þá hafí hann skyndilega séð útundan sér hvar Snorri tók snöggt viðbragð. Síðan hafí hann heyrt smell og þá hafi Þorsteinn komið hlaupandi fram úr króknum og beint í fangið á sér, haldandi um vinstra gagnaugað. Guðmundur kvaðst í fyrstu ekki hafa vitað hvað væri að gerast en þá hafí Þorsteinn gripið í hönd sér og þá segist Guð- mundur hafa séð að honum blæddi. Guðmundur sagðist hafa hrokkið við og slegið til Þorsteins með vinstri hendi. Þorsteinn hafi þá snúist á fæti og leitað aftur inn í eldhúskrók- inn. Þar hafi Þorsteinn æpt á Snorra að hann skyldi láta þá hafa pening- ana. Hann hafi beðið þá að drepa sig ekki heldur hringja á sjúkrabíl. Guðmundur kvaðst hafa séð hvar Þorsteinn hélt á brúnu lyklaveski og otaði því að Snórra, sem hafi sagst mundu hringja á sjúkrabíl ef Þor- steinn kæmi með þeim niður í kjall- ara þar sem hann sæist ekki frá götunni. Guðmundur kvaðst hafa tekið undir það með Snorra. í sama mund hafi Snorri þrifið lyklaveskið og um leið slegið Þorstein aftur í höfuðið svo small í. Guðmundur kvaðst þá hafa tekið í hönd Þorsteini og sagt honum að koma niður svo þeir gætu hringt á sjúkrabíl. Síðan hafi þeir teymt hann niður stigann þannig að Guðmundur fór fyrstur, þá Þorsteinn, alblóðugur, veinandi af kvölum, og haldandi um höfuð sér, og loks Snorri. í miðjum stigan- um kvaðst Guðmundur hafa heyrt annan smell og talið að Snorri hefði slegið Þorstein aftur. í sama mund hafi Þorsteinn fallið utan í sig og síðan á kjallaragólfíð. Guðmundur kvaðst hafa litið á Þorstein, kropið hjá honum, og séð að enginn vafi væri á. því að maðurinn væri að deyja. Á meðan hafi Snorri hlaupið inn á skrifstofuna í kjallaranum og lagst þar á fjóra fætur og fyllt plast- poka af peningum. Guðmundur kvaðst hafa þrifið í Snorra og sagt að þeir skyldu forða sér en Snorri hafí ekki haggast og haldið áfram að safna saman pening- um. Guðmundur kvaðst hafa gripið pokann og hlaupið upp stigann og ætlað út en kvaðst hafa snúið við þar sem hann hafi orðið hræddur um að mæta vinnufélögum Þorsteins sem von var á til vinnu á hverri stundu. Hann hafi því farið að bak- dyrum stöðvarinnar og bisað við að losa slagbrand sem var fyrir þeim. Þá hafi hann að nýju heyrt dynk, eða smell eins og fyrr, litið niður og séð að Snorri var byrjaður að ganga í skrokk á Þorsteini. Snorri hafi stað- ið yfir honum, haldið um melspíruna báðum höndum og stungið Þorstein í búkinn. Guðmundur kvaðst hafa hlaupið niður stigann, segist telja að hann hafi ætlað að reyna að stoppa Snorra sem þá hafi litið upp og rétt sér bíllykla. Guðmundur kvaðst hafa hiaupið af stað, út um bakdyrnar og að bíl Þorsteins. Hann hafi opnað bílinn, sest undir stýri og ræst vélina en síðan beðið nokkra stund eftir að Snorri kæmi út. Guðmundur ók bíl Þorsteins að heimili þeirra Snorra og sambýlis- kvenna þeirra við Smiðjustíg. Hann segist hafa neitað ósk Snorra um að þeir færu saman að losa sig við bílinn, og kvaðst hafa neitað að taka með sér peninga inn. Guðmundur sagðist hafa fyllst viðbjóði og orðið veikur. Hann hafi flýtt sér inn, farið úr al- blóðugum fötum í anddyrinu, beðið sambýliskonu sína að fleygja fötun- um, farið inn á bað, kastað upp og síðan farið beint í bað. Guðmundur segir að Snorri hafi komið inn í hum- átt á eftir sér en síðan farið út að losa sig við bílinn og melspíruna. Snorri segir að Guðmundur hafi far- ið inn á heimili þeirra og talað um að Snorri skyldi losa þá við bílinn og melspíruna. Sjálfur hafi hann rak- leiðis sest undir stýri á bílnum, þeg- ar Guðmundur var farinn inn, þurrk- að blóð af stýrinu og ekið burt og skilið bílinn eftir á bílastæði við Vest- úrgötu og í honum uppgjörstösku úr bensínstöðinni og tékka sem í henni voru. Frá Vesturgötu hafi hann gengið niður að höfn og kastað melspírunni og bíllyklunum í sjóinn. Síðan hafi hann tekið strætisvagn frá Steindórsplani að Þjóðleikhúsinu þaðan sem hann hafí gengið niður á Smiðjustíg. Eftir að heim var komið skiptu mennirnir á milli sín ránsfengnum. Guðmundur segir að 60 þúsund hafi komið í hlut hvors auk um 17 þús- und króna í skiptimynt sem Snorri hafí beðið sig um að reyna að skipta næstu daga. Snorri segir að 80 þús- und hafi komið í hlut hvors auk þess sem Guðmundur hafi fengið alla skiptimynt. Guðmundur segist hafa eytt peningunum á skömmum tíma í áfengi og fíkniefni, Snorri segist einnig hafa drukkið/inestalla pening- ana út en kveðst einnig hafa keypt sér föt, þar á meðal jakka þann sem hann klæddist í dómsalnum. Aðalleikarar myndarinnar „Góðir gæjar“ sem sýnd er í Bíóborginni. Bíóborgin sýnir myndina „Góðir gæjar4< BÍÓBORGIN sýnir myndina „Góðir gæjar“. Með aðalhlut- verkin fara Robert DeNiro, Joe Pesci og Ray Liotta. Leikstjóri er Martin Scorsese. Henry Hill er fæddur og uppal- inn í Brooklyn-hverfi í New York en þar búa að mestu verkamenn og fjölskyldur þeirra. Mesti áhrifamaðurinn þar er Paul Cic- ero sem ræður meðal annars lög- um og lofum í hverfinu. Innan umdæmis þess er Idlewild-flug- völlur. Vegna sambanda sinna á vellinum fær Paulie að vita að Air France eigi von á 420.000 dala peningasendingu. Það er öryggisvörður Air France sem lætur vita og stela menn Paulies sendingunni eins og hún leggur sig. Sauðfjár- slátrun lok- ið á Höfn Höfn. 26.277 fjár var slátrað á Höfn og 24.736 dilkar lagðir inn hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga í þessari sláturtíð. Slátrað er frá bæjum í Oræfum og austur um að Hamarsá í Álftafirði. Þá er líka slátrað á Breiðdalsvík á vegum kaupfélagsins. Þar var nú slátrað 4.151 íjár og innlagðir dilkar voru 3.881. Vænsta féð kom frá Siguijóni A. Bjarnasyni, Hofskoti í Öræfum, og var meðal- þungi dilka hans 16,01 kg. Miðað er við innlegg að minnsta kosti 100 dilka. Á Breiðdalsvík átti bestu dilkana Bragi Gunnlaugsson Berufirði 16.44 kg. Þyngsti dilkur kom frá Gerði í Suðursveit 30,9 kg. og þyngsta dilk fyrir austan átti Olafur Eggertsson á Berunesi en hann vó 25,1 kg. AU- ar tölur eru miðaðar við þurrvigt. Jafnframt slátrun voru_ nokkur líflömb seld austur á land. Úr Öræf- um fóru 1.337 lömb og úr Suður- sveit 511. Þá mun eitthvað hafa verð flutt af líflömbum úr landi. Sláturhússtjóri á Höfn er Einar Karlsson. _ jgg. Borgarnes: Rætt um inn- flutning á land- búnaðarvörum NEYTENDAFÉLAG Borgarfjarð- ar og Verkalýðsfélag Borgarness halda borgarafund fimmtudaginn 8. nóvember 1990 kl. 20.30 á Hót- el Borgarnesi. Fundarefni að þessu sinni er „Á að leyfa innflutning á landbúnaðar- vörum?“ Frummælendur verða: Steingrímur J. Sigfússon, landbúnað- arráðherrra, Jón Magnússon, fonri- aður Neytendafélags höfuðborgar- svæðisins, Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, og Haukur Halldórsson, formaður stéttarfélags bænda. Að loknum framsöguræðum verða fijálsar umræður og fyrirspurnir. Gert er ráð fyrir að hver framsögu- maður hafi 10-15 mínúturtil umráða í upphafi. í fijálsum umræðum 5-7 mínútur á mann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.