Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 45

Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990 45 börn, Erlu og Þorvald Björn, sem bæði eru látin, langt um aldur fram. Við Erla vorum, fyrir utan að vera náfrænkur, bestu vinkonur og átt- um margar skemmtilegar og ógleymanlegar stundir saman á okkar yngri árum. Að leiðarlokum er mér bæði skylt og ljúft að þakka Margréti, móður- systur minni, fyrir allt það sem hún var mér og minni fjölskyldu. Blessuð sé minning hennar. Eva í dag kveð ég elskulega ömmu mína hinstu kveðju, en hún lést 28. október sl., þá nýlega orðin níræð að aldri. Þó að aldurinn hafi verið orðinn hár og kraftar þrotnir, var hugsunin skýr til hinstu stundar. Sjálfsagt hefur amma mín blessun- in verið hvfldinni fegin, þó að ein- stök þrautseigja og sterk lífslöngun, allt fram til síðustu vikna, hafi ætíð gert henni kleift að sigrast á veikindum, sem að mati okkar hinna var varla mögulegt. Síðustu 3 árin sem amma lifði dvaldi hún langdvölum á sjúkrahúsum vegna versnandi hjartasjúkdóms. Er stund gafst mili stríða komst hún heim til sín, en þar þráði hún að fá að vera í lengstu lög. í byrjun ágúst- mánaðar síðastliðins fékk hún hjartaáfall og átti ekki afturkvæmt af sjúkrahúsi eftir það. Um sama leyti fór sjóninni að hraka það mik- ið, að hún hætti að geta lesið sér til dægrastyttingar. Þá var mikið frá henni tekið, því amma hafði alla tíð mikla ánægju af lestri góðra bóka. Amma varð fyrir þeirri þungu raun að missa bæði börnin sín, með fárra ára millibili, en þau létust bæði á besta aldri. Sjálf var amma þá orðin öldruð og heilsulítil. Eflaust hefði mörgum í hennar sporum orðið um megn að rísa und- ir slíku álagi. En það var ekki að hennar skapi að gefast upp. Hún æðraðist ekki, en bar harm sinn í hljóði. Hún var sannkölluð hetja. Henni fannst, að þrátt fyrir allt, hefði hún svo margt að lifa fyrir, og átti þar við okkur barnabörnin sín og barnabarnabörn. Enda reyndist hún okkur öllum ávallt góð, og bar velferð okkar mjög fyr- ir bijósti. Margar af mínum bestu minning- um frá bernskunni eru tengdar afa og ömmu á Hólavallagötu 5. En hjá þeim bjó ég um árabil, að vetr- um, við gott atlæti. Frá þessum árum eru minningarnar einstaklega hlýjar. Ég mun alltaf minnast afa og ömmu með þakklæti fyrir þá umhyggju, hlýju og góðvild sem þau sýndu mér þá, og á meðan þau lifðu. Oft var mannmargt á heimili þeirra hér áður fyrr, og í mörgu að snúast hjá ömmu. Þá hafði hún það fyrir sið að fara á fætur fyrir allar aldir, en gekk þó alltaf síðust til náða. Amma var myndarleg hús- móðir, og átti afar fallegt heimili. Þar var hver hlutur valinn af mik- illi smekkvísi hennar. Oft var gest- kvæmt hjá henni, enda var hún alla tíð höfðingi heim að sækja, og öllum leið vel í návist hennar. Hún var vinamörg og ræktarsöm við vini sína. Eitt var það í fari ömmu, sem ég dáði öðru fremur. Það var henn- ar létta Iundarfar. Hún virtist alltaf geta verið í góðu skapi, sama hvað á gekk. Og sannarlega gerði þessi eftirsóknarverði eiginleiki, sem fáum er gefinn, henni lífið léttbær- ara, þegar á móti blés. Ég minnist ömmu einnig frá fýrstu búskaparárum okkar hjóna, þegar við bjuggum ásamt lítilli dótt- ur okkar í sama húsi og afi og amma. Þá var gott að geta leitað ráða hjá ömmu varðandi barnaupp- eldið, matseldina og raunar hvað- eina. Því hún var ráðagóð og alltaf reiðubúin að aðstoða, ef með þurfti. Ósjaldan gætti hún nöfnu sinnar fyrir okkur, og taldi það síður en svo eftir sér. Af hennar hálfu var slíkt alltaf sjálfsagt. Fómfýsi henn- ar og umhyggjan fyrir okkur var einstök. Á þessum árum mynduðust óijúfanleg og gagnkvæm tengsl væntumþykju milli þeirra nafnanna. Við hjónin og börnin okkar eigum einnig ógleymanlegar minningar frá heimsóknum ömmu hingað á Norðurvanginn. Hún var hér alltaf aufúsugestur og mikið tilhiökkun- arefni hjá okkur að fá hana í heim- sókn. Börnin nutu þess vel að vera í návist lángömmu sinnar. Þau fundu svo vel hlýjuna og góðvild- ina, sem alltaf einkenndi hana. Þá gaf hún sér alltaf góðan tíma til að ræða við þau, spila, lesa eða syngja með þeim. í þessum heim- sóknum var margt rætt og mikið hlegið. Amma fylgdist vel með öllu, sem var að gerast í kringum hana. Hún hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, og gat ver- ið föst fyrir ef því var að skipta. Hún var gamansöm, og var fljót að koma auga á það spaugilega í tilverunni, og hló þá innilega sínum dillandi hlátri. Arnma mín hafði yndi af því að gleðja aðra með gjöf- um, en vildi sjaldnast þiggja neitt sjálfri sér til handa. Við hjónin og börnin okkar fengum svo sannar- lega að njóta gjafmildi hennar. Hún gaf okkur af rausn. En mest gaf hún okkur þó af sjálfri sér. Amma heimsótti okkur fyrir tæp- lega mánuði, og var þá verulega af henni dregið. Samt sem áður var hún glöð í bragði, eins og endra- nær. Hún lét ekki þverrandi krafta aftra sér frá því að eiga með okkur dagstund og spjalla við langömmu- bömin sín. Heimsóknir elskulegrar ömmu minnar verða ekki fleiri. Við söknum hennar sárt, en yndislegar minningar um hana, og sú fullvissa okkar að henni líði nú vel, milda söknuðinn. Amma var alla tíð trúuð kona, og trúði á endurfundi ástvina eftir dauðann. Ég efast ekki um, að henni hefur orðið að trú sinni. Við hjónin og börnin okkar kveðj- um elsku ömmu mína með hjartans þakklæti fyrir það sem hún var okkur, og biðjum góðan guð að varðveita sálu hennar. Valdís SPARIÐ - SETJIÐ SAMAN SJALF B jöminn býður upp á gott og íjölbreytt úrval efniviðar til smíði á eldhús- og baðinnréttingum og fataskápum. Fagmenn okkar sníða efnið eftir þínum þörfum. Þú setur innréttinguna saman sjálf(ur) og sparar þannig peninga. Komdu með þína hugmynd til okkar - fagmenn aðstoða þig við að útfæra hana. BJORNINN BORGARTÖNI28 S. 6215 66 AiÉC frév-eri ÓM«u<áás$ Vinningstölur laugardaginn 3. nóv. 1990 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 13.689.011 2. tStm 9 151.668 3. 4af 5 414 5.687 4. 3af 5 13.756 399 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 22.897.085 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 IMEFM AðeinsMi w sekúndurheimshomaámilli Þeir sem atvinnu sinnar vegna verða að senda bréf, graf ík eða teikningu á milli staða komast vart lengur hjá því ítrS nnta tolofaytaQlfi Nú bjóðum við nýtt telef axtæki INFOTEC 6023 Öflugt, fallegt, einfalt í notkun og ódvrt Þetta nýja tæki hefur yfirað ráða flestum þeim kostum stóru tækjanna, s.s. íslenskur texti á skjám tækjanna, gráskala, 80 númera minni ofl. ofl. - Verðið kemur þér á óvart. Hafið samband við sölumenn okkar í síma 691500 - TÆKNIDEILD ttmHv' pega' HeimilistæKi hf Tæknideild. Sælúni 8 SÍMI69 15 00 sanotútguM'

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.