Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 40

Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NOVEMBER 1990 Minning: Erlendur Jóhanns- son, húsgagnasmiður Fæddur 19. desember 1908 Dáinn 27. október 1990 Góður og vammlaus maður er genginn. Vinur foreldra minna, okkar systkinanna og fjölskyldna okkar. Hann réðst til starfa á húsgagna- vinnustofu föður míns, Kristjáns •»-3iggeirssonar, árið 1938 og vann óslitið hjá fyrirtækinu í um 40 ár eða þar til heilsan leyfði ekki lengri starfsdag. Betra fólk en Erlend og Ástu er vart hægt að hugsa sér. Þar ríkti gagnkvæm vinátta og öllum leið vel í þeirra návist. Nú að leiðarlok- um leitar hugurinn til baka til okk- ar kynna. Hugurinn fyllist þakklæti fyrir að hafa fengið að eiga sam- leið með svo vönduðum manni bæði til orðs og æðis, og að hafa átt hann að nokkru sem læriföður í húsgagnasmíðinni. Erlendur fæddist í Stykkishólmi hinn 15. desember árið 1908, yngst- ur 8 systkina. Hann fluttist síðar til Reykjavíkur og hóf nám í hús- gagnasmíði alþingishátíðarárið 1930 hjá húsgagnavinnustofu Gunnars Stefánssonar á Laugavegi 60 hér í Reykjavík. Erlendur lauk síðan sveinsprófi í húsgagnasmíði hjá Þorsteini Sigurðssyni húsgagn- asmíðameistara árið 1934, en hann var til húsa á Grettisgötu 13. Upp frá því var húgsgagna- og innrétt- ingasmíði hans starfsvettvangur. Hann stundaði hana öllum er með honum störfuðu til fyrirmyndar þar "™Iil hann lét af störfum sökum heilsubrests. Þegar ég var í húsgagnasmíða- námi á verkstæði föður míns á árun- um 1944-1948 kynntist ég vel hvern mann Erlendur hafði að geyma, hvorttveggja sem sam- starfsmaður og að nokkru leyti sem lærifaðir í húsgagnasmíði. Þar var fagmennskan í fyrirrúmi, þar sem saman fór verklagni, frábær fag- mennska og mikil afköst. Allt unn- ið í kyrrþey, ekki asinn eða lætin, heldur örugg handtök. Ef hugleitt er hvernig þetta fag, húsgagnasmíðin, hefur þróast í tímans rás, þá hefur það orðið fyr- ir tilstilli og þátttöku manna eins og Erlendar Jóhannssonar. Hún hefur orðið að fastri og uppbyggj- andi framleiðslugrein hér á Iandi. Það er slíkum mönnum að þakka sá árangur sem_ náðst hefur í iðn- væðingu okkar Islendinga og þeirri iðngrein sem hann helgaði alla sína starfsævi. Fyrir utan starfið var það skáta- hreyfíngin og hugsjónir hennar sem átti stóran þátt í lífi hans að ógleymdum sumarbústaðnum við Elliðavatn. Þar áttu þau sælureit, þar sem þeim leið vel. Við honum tók Höskuldur sonur hans og hans fjölskylda, sem hefur endurbætt hann allan, en það gladdi Erlend mjög að sjá það starf hans verða tii áframhaldandi ánægju og gleði innan fjölskyldunnar. í mínum huga var Erlendur ímynd skátahreyfingarinnar með Verðlaun í samkeppninni eru ferðavinningur á vegum Ferða- skrifstofu stúdenta að upphæð 40 þúsund krónur, sem veittur verður fyrir besta Ijóðið að mati dóm- nefndar, en auk þess verða veitt 2.550 kr. ritlaun fyrir hvert ljóð hennar göfugu hugsjónum um hjálpsemi og þjónustu. í þeirri mynd var hann fyrirmynd ungra manna að öllu leyti, fyrst þú, svo hann sjálf- ur. Það er ekki lítils. virði a hafa fengið að verða samferða slíkum mannkostamanni, sem var ávallt reiðubúinn, sama hvort var heima eða heiman. Þar voru þau hjón Ásta og Erlendur samstíga í hug- sjóninni og skátahreyfingunni. Erlendur kvæntist hinn 14. júlí árið 1934, sama árið og hann lauk námi í húsgagnasmíði, Ástu Þor- grímsdóttur, mikilli mannkosta- konu. Ásta var fædd hinn 3. febrú- ar árið 1909 og lést hinn 1. maí árið 1981. Ástaog Erlendur eignuð- ust 3 mannvænlega syni. Jóhann fæddan 17. maí árið 1940, flug- virkja. Jóhann hefur dvalist mestan hluta starfsferils síns í Banda- ríkjunum og er nú búsettur í E1 Pasa í Texas. Hann er giftur þar- lendri konu. Jóhann hefur eignast 3 börn, eina dóttur og son hér heima í sínu fyrra hjónabandi og dóttur í Bandaríkjunum. Næstelstur er Hös- kuldur, fæddur 6. júlí árið 1943, húsgagnasmiður, en hefur um ára- bil starfað við Tollgæsluna í Reykjavík. Hann er kvæntur Ástu Kröjer og eiga þau 2 syni, Hilmar, fæddan árið 1976 og Erlend, fædd- an árið 1980, myndarpiltar báðir. Yngstur var Kjartan, fæddur árið 1948, vélstjóri ókvæntur og barn- laus. Kjartan stundaði að mestu sitt fag til sjós. Hann drukknaði í sjóslysi hér á sundunum hinn 28. október árið 1983. Þetta var góð fjölskylda og mikl- ir vinir okkar allra. Heimili þeirra endurspeglaði húsráðendur með alla reglusemi og snyrtimennsku. Það fór ekki framhjá neinum sem þangað kom, að mikil rækt var Iögð við skátastarfið. Það var fróðlegt að heyra Erlend lýsa öllum þeim minjagripum sem þau áttu og höfðu svo fagurlega safnað saman og endurbætt. Eftir lát Ástu bjó Erlendur einn í íbúð þeirra á Kleppsvegi 6. Ekki var þó hægt að segja að hann væri einn, því að einstök var sú um- hyggja sem Höskuldur sýndi föður sínum,_ og þá ekki síður eiginkona hans Ásta, tengdadóttirin, sem allt vildi fyrir hann gera til að létta honum ævikvöldið. Með þeirra hjálp og umhyggju gat hann til hinstu stundar búið á því heimimli sem Ásta eiginkona hans og hann höfðu skapað svo fagurlega. Þar leið hon- um best innan um minningar liðinna ára. Góður og vammlaus maður er genginn. Við sem kynntumst hon- um erum þekklát fyrir samfylgdina. Innilegar samúðarkveðjur eru flutt- ar aðstandendum öllum. Blessuð sé minning Erlendar Jóhannssonar. Hjalti Geir Kristjánsson „Eidar kulna, allt er hljótt, eymir þó í glóðum, er sem steymi ylur frá öllum vinum góðum.“ sem birtist í bókinni. Henni verður dreift til allra stúdenta HÍ, auk þess sem hún verður seld á al- mennum markaði. Utgáfudagur bókarinnar er 1. febrúar 1991, en þá munu úrslit verða kynnt. Skila- frestur • i - samkeppninni er til 1. Ævidegi Ella er lokið, en ávallt mun í huga gamalla skáta, sem minnast hans, hljóma þessi gamla skátavísa. Það er staðreynd, að eld- ar okkar kulna, það verður hljótt í kringum okkur, það fýkur í sporin okkar, en skátaylurinn er samur við sig. Hann hittir fyrir gömlu vin- ina, skátaylurinn frá gömlu glóðinni hittir í mark og umlykur gömlu vin- ina. Erlendur og Ásta, ætíð kölluð Ásta og Elli, voru fyrstu skátarnir, sem ég kynntist í Reykjavík. Það var árið 1936, en á næsta ári eru 10 _ár síðan Ásta lést. Ég komst fljótt að raun um, að þeirra skátanöfn og skátaferill voru ekki bara orðin tóm. Þar var hug- sjón á bak við, þetta var þeirra hjartans mál, kjarni hins daglega lífs. Það komu oft skátavinir á heim- íli þeirra á kvöldin, og var þá mikið rætt um skátamál — útilegur — skátapróf — leit að týndu fólki — blóðgjafir — þá var enginn blóð- banki hér. Skátar fóru á sjúkrahús, og blóð var gefið beint í blóðþegann. Það var mikið rætt um að gefa — leita — hjálpa — það lá eins og rauður þráður í gegnum allt starfið. Allt skátastarfið miðaði að því að þroska sig, æfa sig svo hægt væri að hjálpa bæði sjálfum sér og öðr- um. Og útivistin stælti og örvaði — alltaf gerðist eitthvað skemmtilegt, oft var hlegið hjartanlega. Já, skátalífið var dýrlegt líf. Ásta og Elli voru miklir skátar og kröfu- hörð, þar var ekki hægt að kasta höndunum til neins í skátastarfi — heilt og strangheiðarlegt skyldi það vera. Þau áttu bæði erfitt með að til- einka sér breytingar með nýjum viðhorfum og nýjum siðum, enda var Elli búinn að draga sig í hlé á margan hátt, en skátakjarnann átti hann óspilltan, hann var alltaf sami gamli, góði skátinn. Hann lifði fyr- ir litlu vinina sína, eins og hann sagði, og ljómaði allur, þegar hann talaði um þá sonarsynina sína. Og nú er Elli kominn heim. Um ókomin ár, eða á meðan við vinir hans dveljum héma megin grafar, mun ylur vináttu hans streyma til okkar, og minna okkur á skáta- heitið. Slík er skátavináttan. Við sem ennþá erum hér, þökkum honum samfylgdina, og allar góðar stundir, og allt hið góða, sem honum auðnaðist að fá gert á skátaferli sínum. Hann gekk ætíð heilshugar til starfa, hvort sem það var að leið- beina ungum skátum að huga að skátaferli sínum eða að negla fyrir glugga, þar sem rúða hafði brotn- að. Allt skyldi vera vel gert og til sóma. Við skátavinir óskum Ella góðrar heimkomu og þökkum hon- um árin, sem við áttum samleið. Ástvinum hans vottum við innilega samúð. Með skátakveðju, Hrefna Tynes. Ekki tjóar að deila við skapanorn- ir, þótt æskufélagi og vinur kveðji þá orðið er kvöldsætt. Árið 1907 fluttust hjónin Anna Sigurðardóttir og Jóhann Erlends- son til Stykkishólms og þá frá Ól- afsvík, þar sem þau höfðu búið frá því fyrir aldamót, en áður í Dal í Miklaholtshreppi, — bæði voru þau snæfellskra ætta. Anna var dóttir Oddfríðar Jóns- dóttur og Sigurðar Jónssonar, bú- enda á Kálfárvöllum í Staðarsveit. desember. Handritum ber að skila til skrifstofu SHÍ í lokuðu umslagi merktu dulnefni, en nafn og heim- ilisfang skal fylgja með í lokuðu ógegnsæju umslagi merktu sama dulnefni og handrit. Dómnefnd í ljóðasamkeppni SHÍ skipa Matthías Johannessen, ritstjóri og rithöfundur, Sigurður Pálsson, rithöfundur og háskóla- kennari og Steinunn Sigurðardótt- ir. rithöfundur. ...... Sæmundur á Elliða, faðir Jóhanns læknis og þeirra systkina, var bróð- ir Önnu. Oddfríður ólst upp hjá prestshjónunum á Helgafelli, séra Jóni Guðmundssyni og Önnu Guð- mundsdóttur. Eftir að hún missti Sigurð bónda sinn giftist hún Jóni Árnasyni borgara í Ólafsvík, og með þeim var Anna uns hún flutt- ist að Miðhrauni í Miklaholts- hreppi, en þar var hún í tíu ár. Föðurforeldrar Önnu voru Jón Sig- urðsson, hreppstjóri á Hólkoti í Staðarsveit, og kona hans Vigdís Jónsdóttir. Jóhann var einnig sunnanijalls- maður, sonur Erlendar Jónssonar og Ingibjargar Hreggviðsdóttur, búenda á Fáskrúðarbakka. En Jó- hann fór ungur í fóstur að Mið- hrauni til hjónanna Þóru Þórðar- dóttur og Þórðar Hreggviðssonar. Frá Miðhrauni giftust þau fóstur- systkinin, Anna og Jóhann, og byij- uðu búskap í Dal. Þegar þau settust að í Stykkis- hólmi höfðu þau eignast sex börn, fimm syni og eina dóttur, en þar auðnaðist þeim einn sonur í viðbót, en það var Erlendur, sem kvaddur er í dag. Anna og Jóhann voru ötul og vel samhent við að sjá barnahóp sínum farborða, en með láti Erlend- ar er hann allur genginn. Öll voru þau systkini myndar- og dugandis- fólk við margvísleg störf. Jóhann hafði lært söðlasmíði og stundaði þá iðn í Stykkishólmi, ásamt smá- verslun nokkurn tíma, jafnframt því sem hann hafði ávallt nokkrar skepnur. Miðað við það algenga í Hólminum framan af öldinni mátti telja, að Anna og Jóhann kæmust vel af. Bræðurnir Torfi og Erlendur urðu æskufélagar mínir, þótt ég væri þeim nokkru yngri. Óg eftir að við vorum allir fluttir suður slitn- aði ekki samband okkar nema síður væri. Við Erlendur áttum eftir að vera í sambýli í fjögur ár ókvæntir, svo að kynni mín af honum urðu náin. Fór allar stundir vel á með okkur, enda var hann stakur reglu- maður, jafnlyndur og háttprúður í öllu viðmóti og vildi í engu láta standa upp á sig, þar sem hann kom nærri. Erlendur hafði flust til Reykja- víkur 1928 og tók þá að nema hús- gagnasmíði, en það var í úthall al- þingishátíðarsumars 1930 að við urðum sambýlismenn. Hann hafði skamman tíma verið í Reykjavík þegar hann gerðist skáti og hélt óslitinni tryggð við þann félagsskap til hinstu'stundar. Meðal stofnenda Kvenskátafélags Reykjavíkur var Ásta Þorgrímsdóttir. Með henni og Erlendi tókust kynni og hrökk brátt sem af tinnu neisti á milli þeirra og varð af varðeldur, sem entist lengi og vel. Ásta var Reykjavíkur- barn á líkum aldri og Erlendur, dóttir Sigurbjargar Illugadóttur og Þorgríms Jónssonar, er lengi bjuggu á Laugavegi 151. Ásta hafði verið í Kvennaskólanum, lærði síðan hatta- og skermagerð og starfaði við á iðn þangað til Erlend- ur og hún settu saman bú um mitt sumar 1934. Hann hafði þá nýverið Iokið sveinsprófi í sinni iðn hjá Þor- steini Sigurðssyni á Grettisgötu 13, sem hann sagði strangan kennara, en valinn húsbónda og raungóðan mann. Ásta-ogKrlendur byijuðu búskap (J.O.J.) Stúdentaráð HÍ: Efnt til ljóðasamkeppni nemenda STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands hefur efnt til ljóöasamkeppni meðal nemenda Háskólans, og hafa allir nemendur sem skráðir "eru í HÍ rétt til þátttöku. Verðlaun verða veitt fyrir besta ljóðið að mati dómnefndar, en jafnframt mun dómnefndin velja að minnsta kosti tuttugu önnur ljóð, sem SHI áskilur sér rétt til að birta í bók sem gefin verður út í tengslum við samkeppnina á Öldugötu 16 og bjuggu þar í 12 ár. Hjá þeim var lengi eftirsóknar- verður griðastaður ungs fólks, sem allt var skátar, að mér undanskild- um. Góðgerðir voru ekki skornar við nögl. Margt var sér til gamans gert, en á öllu var skátabragur. Húsbændurnir voru motor primus þessara gestaboða, en minningar frá þeim orna vafalaust fleirum en mér, þótt langt sé_ Um liðið. Vináttan við Ástu og Erlend depraðist ekki, þótt leiðir skildu, því að ætíð voru gagnvegir milli þeirra og okkar Helgu. Þau fýlgd- ust því vel með okkur og við með þeim, svo að segja mátti að það sem andstætt var kærili við okkur öll og jafnframt hið gagnstæða, eða þegar hyllti undir gleðigjafa í amstrinu. Meðal eftirtektarverðra eiginda Ástu og Erlendar var hversu vel þeim var ótamt að láta andstreymi smækka sig. Erlendur stundaði ætíð hús- gagnasmíði eftir að hafa lokið námi í þeirri grein og þótti hafa völundar- hæfni, enda sá á, að honum var ekki í kot vísað með störf, því að hann iðjaði nær því alla ævi á sama stað, eða hjá hinu kunna fyrirtæki Kristjáns Sigurgeirssonar. Hann kvað oft fast að orði, hversu kærir honum væru húsbændurnir, og hef- ur það vafalaust verið á báða bóga. Ásta og Erlendur eignuðust þijá syni. Eistur er Jóhann flugvéla- virki, búsettur í Bandaríkjunum með sambýliskonu sinni, Corinne M. Van, Berg. Böm hans eru þijú, tvö hérlendis, en eitt vestra. Hös- kuldur er annar sonurinn, lærður húsgagnasmiður, en vinnur hjá toll- stjóraembættinu. Kona hans er Ásta Kröyer og eiga þau tvo syni. Yngsti sonur Astu og Erlendar var Kjartan, lærður frá Vélskóla Is- lands, og var lengi á skipum Eim- skipafélagsins, en síðast á skipinu Sandéy, og með því fórst hann á sundunum í nánd við Reykjavík 28. október 1983. Ásta og Erlendur sýndu best hvert manntak var í þeim, þá er þau þurftu samtímis að lúta bilaðri heilsu. Ásta veiktist 1975, eftir að hafa unnið nokkur ár hjá Ríkisút- gáfu námsbóka. Þrautagöngu hennarlinnti ekkifyrren 1981, hún lést þá 1. maí. Erlendur veiktist 1973, þá 65 ára, og var óvinnufær upp frá því. Honum var ótamt að fást um mikla raun, enda þolgóður og bjartsýnn að eðlisfari. Þá er fundum okkar bar saman duldist ekki að honum var hugleik- ið að riíja upp minningar frá æsku- stöðvunum og reyndar einnig frá veru sinni hér .syðra, er þá í senn tengdust mönnum sem atvikum. Jafnan þegar við Erlendur hittumst var honum efst í huga þakklæti til Höskuldar, konu hans og drengj- anna fyrir elskusemi við sig seint og snemma. Nærgætni úr þeirri átt fór ekki fram hjá mér né öðrum sem til þekktu. Samfylgd sem varað hefur í rösk 70 ár er lokið, en margt er það sem þá Ieitar eins og óboðið utan af jaðarsvæðum vitundarinnar og minnir á, að fátt er mætar en ævi- löng óbrigðul, þelhlý vinátta. Slík gjöf er meira en þakkarverð í hörð- um heimi. Lúðvík Kristjánsson Erlendar Jóhannssonar verður ávallt minnst hjá Skátafélagi Hraunbúa í Hafnarfirði með mikilli virðingu og þökk. Þegar skátafélag- ið var endurreist eftir allmikla lægð árið 1937 var það einmitt Erlendur sem þá tók við félaginu. Skátaferill hans hófst 1929 og Hraunbúar nutu góðs af reynslu hans og mann- kostum þegar hann tók við stjórnar- taumum í félaginu. í apríl sl. birtist viðtal við Erlend í blaði félagsins, Hraunbúanum. Þar rifjar Erlendur upp þann tíma sem hann starfaði með hafnfirskum skátum. „Við vor- um ekki margir i þá daga en ég lagði kapp á að hjálpa þessum drengjum að verða eins fullkomnir skátar og frekast var unnt. Við reyndum að starfa eins vel og við gátum og drengirnir voru afskap- lega duglegir." í viðtalinu kemur víða fram viðhorf hans til æskunnar og trú hans á mikilvægi skáta- starfsins til þess að koma unglingn- um til nokkurs þroska. Hann minnir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.