Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 49

Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990 49 Rod með Kelly Emberg. SKILNAÐUR Rod reyndi til þrautar Rokkarinn rámi, Rod Stewart og fyrirsætan Kelly Emberg hafa slitið samvistir eftir 5 ára sam- búð. Hún fylgdi honum m.a. hingað til lands um árið er popjsarinn krýndi fegurðardrottningu Islands á Breiðvangi. Og Rod var ekki lengi að festa sig í tygjum við aðra ljósku, en Rod hefur til þessa vart litið við konum nema þær séu með sítt og ljóst hár. Nýja konan í lífi hans er áströlsk draumadís, 21 árs gömul fyrirsæta (hvað annað?) að nafni Rachel Hunter. Hann hefur beðið hennar og hún sagt já! Varla eru líkindi til þess að ungfrúnni verði álasað fyrir að ásælast umtalsverð- an auð hans, því hún er ein af eftir- sóttustu fyrirsætunum fyrir vestan haf og fregnir herma að daglaun hennar nemi iðulega hunduðum þúsunda króna, enda hefur hún lá- tið hafa eftir sér að vinnan skipti ekki minna máli heldur en væntan- legt hjónaband. Það hefur ekki farið hátt, en sagt er að Rod karlinn hafi í lengstu lög reynt að halda í Kelly Emberg. Rod með Rachel Hunter. Sagan segir að hann hafi kynnst ungfrú Hunter og þeim hafi orðið vel til vina þótt ekkert laumuspil hafi verið á milli þeirra. Emberg líkaði ekki við umræddan vinskap og þar sem Rod hafði áður misstig- ið sig í trygglyndisgeiranum, lagði hún saman tvo og tvo. Fékk út að nú væri mælirinn fullur, því hvort sem karl sinn væri mjög náinn ungfrú Hunter eða ekki, myndi slúðrið verða á einn veg og hún kærði sig ekki um að standa í slíku. Hún tilkynnti Rod að hún væri að fara og fjögurra ára dóttir þeirra færi með sér. Sagt er að Rod hafi lagt fast að henni að fara hvergi og lofaði bót og betrun. Lofaði einn- ig að hitta Hunter aldrei framar. Þegar Emberg tók treglega í það bað Rod hennar, en Emberg neit- aði. Lét Rod þá af frekari tilþrifum til sátta og gaf sig allan á vald ungfrú Hunter með þeim afleiðing- um að brúðkaup þeirra vofir nú yfir ... LOVÍSA CHRISTIANSEN Kosningaskrifstofan er á Reykjavíkurvegi 60, HafnarfirÖi, s: 51116 -51228 -650256. Kaffi á könnunni. TÖKVM ÞÁTT í PRÓFKJÖRI SJÁLF- STÆÐISFLOKKSINS í REYKJANES- KJÖRDÆMI. TRYGGJVM LOVÍSV ÖRÚGGT SÆTI. Stuðningsmenn. er nýtt bókaútgáfufyrirtæki, sem ætlað er að koma á fram- færi sem íjölbreytilegustu efni til lesenda um þau málefni, sem gjarnan eru kennd við nýöld, svo sem sjálfsleit, sjálfs- rækt, sálarrannsóknir, guðspeki, fræðslu frá æðri sviðum, yoga, stjörnuspeki, heilsufæði, líkamsrækt, heilun, náttúru- lækningar, samband manns og náttúru og sögulegar frásagn- ir af andlegri reynslu. Boðnar verða frumsamdar, íslenskar bækur, þýddar erlendar bækur, sem hæst ber hverju sinni, frumsamið og þýtt efni á segulbandsspólum og myndbönd- um, handbækur og bæklingar um sérhæfð efni. Fvrstu bækurnar sem boðnar verða eru: HeBflt er að fð bækumar í áskrffl meö þvf aö gerast fðlagl f bökaldúbbl nýaldar. Gertstþú félagl núf növember bjöðast þér bækumar helmssendar með 30% afslœttt frá búðarverðl LIFÐU í GLEÐI rituð af Sanaya Roman (Living With Joy) BÓK EMMANÚELS rituð af Pat Rodegast & Judith (Emmanuel’s book) Starfsemi bókaklúbbsins Félagsmenn fá sent heim frétta- bréf, þar sem kynnt verður ein ný bók hverju sinni. Auk þessarar bókar verða boðnar valbækur, bæklingar og minni rit, segulbands- spólur og myndbönd. I hverju fréttabréfi verður síðan komið á framfæri upplýsingum um fundi, fyrirlestra og námskeið, er varða nýaldarmálefni hverju sinni. Meðal efnis af öðru tagi, sem boð- ið verður upp á á næstunni, eru myndbönd af sjónvarpsþáttum Stöðvar 2, Nýja öldin. Einnig verð-., ur boðið upp á minni rit um marg- Y vísleg efni, hljóðsnældur o.íl. 'SJ V/ 'SJ HAFIR ÞÚ ÁHUGA Á ÞÁTTTÖKU í BÓKAKLÚBBNUM ÞÁ ERU SKRÁNINGARSÍMARNIR 68 92 78 OG 68 92 68 OG ÞAR FÆRÐU ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ STARFSFÓLKI OKKAR. *»»>»»/»»»»»>» ÞRASASTAÐAÆTT kom út ó sl. ári. Þessi skagfirska bændaætt er rakin frá Bergi Jónssyni bónda á Þrasastöðum í Stíflu og konu hans, Katrínu Þorfinnsdottur. I bókinni eru um 500 Ijósmyndir af einstaklingum og fjölskyldum. Bókin fæst hjá Gyóu Jóhannsdóttur, Mióleiti 7, Reykjavík, sími (91) 68 81 70. Gistiaöstaöa er glsesileg á Hótel Sögu. I herbergjurtum er góö vinnuaöstaöa og öll þægindi þar fyrir hendi. A veitingastöðum okkar bjóðum viö mat og þjónustu í sérflokki og fundaraöstaða á hótelinu er eins og best veröur á kosiö. Haföu samband í síma 29900. hóiel /A<*A — lofar góðu !

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.