Morgunblaðið - 06.11.1990, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NOVEMBER 1990
43
Morgunblaðið/Sigrún Sigfúsdóttir
Sigurlaug Haraldsdóttir við
vinnu í nýju stofu.ini.
Hveragerði:
Hársnyrti-
stofa Sillu
er flutt
Hveragerði.
NÝLEGA flutti hársnyrtistofa
Sillu í rúmgott húsnæði í Austur-
mörk 2, en hún var um árabil í
Heiðmörk 39. Eigandi stofunnar
er Sigurlaug Haraldsdóttir hár-
greiðslumeistari.
Silla mun bjóða alla almenna
hársnyrtiþjónustu og auk þess hefur
hún á boðstólum frönsku snyrtivör-
urnar Roc, Bouijors-naglalökk,
Oroblu-sokkabuxur og Professional
hársnyrtivörur og margt fleira.
Silla er þekkt fyrir góða og vand-
aða þjónustu. _ g.
AF HVERJU EKKI?
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Af hverju endilega ég? („Why
Me?“). Sýnd í Bíóhöllinni.
Leikstjóri: Gene Quintano.
Aðalhlutverk: Christopher
Lambert, Christopher Lloyd, '
Kim Greist, Gregory Miller.
Gamanmyndin Af hveiju endi-
lega ég? segir frá tveimur inn-
brotsþjófum sem ræna gim-
steinabúð sama kvöldið og þang-
að er kornið með þjóðartákn
Tyrkja, stóran eðalstein, sem
afhendast átti réttmætum eig-
endum fyrr um daginn en var
rænt af lýðræðishreyfingu Arm-
ena eða einhveiju slíku. Þjófarn-
ir taka steininn og upphefst þar
með eltingaleikur sem í taka
þátt Tyrkir, téð lýðræðishreyf-
ing, CIA, lögreglan í Los Ange-
les, FBI og stór, stór glæpaklíka
í borginni.
Allt er þetta skrautlegur lýður
og sambland af hinum spaugile-
gustu persónugerðum í mynd,
'sem er helber hringavitleysa en
má hafa nokkurt gaman af ef
kröfurnar eru ekki miklar, þökk
sé ágætum leikarahóip, sérstak-
lega aukaleikaranna og Chri-
stopher Lloyd, sem leikur annan
gimsteinaþjófinn á móti nafna
sínum Lambert, er virðist full
stífur fyrir þessa tegund af ærsi-
aleik. Hann á reyndar að vera
Bandaríkjamaður hér og það
passar honum einhvern veginn
ekki. s
Það er varla alvarlegur stafur
í handriti þeirra Donalds E.
Westlakes, sem er kunnur glæp-
asagnahöfundur vestra, og
Leonards Maas, en fléttan sem
þeir búa til er ekkert ný af nál-
inni (minnir á aðra og betri glæp-
akómedíu, „Into the Night“) og
spaugið er fengið úr afkáraleg-
um skopstælingum sem næstum
tekst að hylja innihaldsleysið í
sögunni. Sumt er yfirgengilegt,
eins og skæruliðinn í lýðræðis-
hreyfingunni, sem hneppir eigin
ijölskyldu í gíslingu til að fá
steininn, en annað er giska skop-
legt eins og lögreglan í Los Ang-
isdes, foringi glæpaklíkunnar,
höfuðpaur Tyrkjanna og ger-
samlega ónothæfir CIA-menn.
Lloyd er bráðgóður í hvert.sinn
sem hann birtist.
Af hveiju myndin heitir Af
hveiju endilega ég („Why Me?“)
er hulin ráðgáta.
BÚSÁHÖLD — GJAFAVÖRUR — LEIKFÖNG O.FL.
PANTIÐ JÓLAVÖRURNAR NÚNA
SÍÐUSTU MÓTTÖKUDAGAR JÓLAPANTANA
1N
á
!/>
VILT ÞU
KYNNAST STARFSEMI
RAUÐA KROSSINS?
Langar þig til að starfa fyrir Rauða
krossinn, innanlands eða
á alþjóðavettvangi?
Kynningarnámskeið fyrir ungt og áhugasamt fólk
verður haldið dagcina 8., 12., 14. og 17. nóvember nk.
Dagskrá:
1. Ungmennastarf Rauða kross íslands.
2. Starfsemi Rauða kross íslands,
innanlands og á alþjóðavettvangi.
3. Málefni flóttamanna.
4. Framtíðarverkefni.
Námskeiðið hefst kl. 20.00 og stendur til kl. 22.30
fyrstu þrjú kvöldin og endar með helgardvöl fyrir
utan borgina, frá laugcu-degi og fram á sunnudag.
Námskeiðsstaður: Hótel Lind, Rauðarárstíg 18,
Reykjavík.
Skráning og nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu !
Rauða kross íslands í síma 26722 (Ólafur).
Ekkert þátttökugjald.
Allt áhugafólk velkomið.
Ungmennáhreyfing
Rauða kross íslands
Verð miðað við gengi 23.8.1990
PÖNTUNARSIMI52866.
B0RÐ-
ST0FUSKÁPA
S0FASETT
GAMLA KOMPANIIÐ
KRISTJÁN SIGGEIRSS0N
Hesthálsi 2 - 4
110 Reykjavík. Sími 91-672110
NÝRDAGUR SÍA