Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 8
* g MORGtJNBLAÐIÐ SUNNUÐAGUR' 30. DESEMBER '1990 ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND/ 1. il mikilla átaka kom í sovétlýð- veldunum Armeníu og Az erbajdzhan í janúar og febrúar, m.a. vegna deilna út af umdeildu héraði, Nagorno-Karabak í síðar- nefnda lýðveldinu. Kom m.a. til þess að stjórnvöld í Azerbajdzhan lýstu yfír strfði á hendur nágranna- lýðveldinu. íbúar reyndu að flýja átökin og meðal þeirra sem sluppu naumlega frá Bakú var: A. Míkhaíl Gorbatsjov B. Anatólíj Karpov C. Garrí Kasparov D. Borís Jeltsín 3. Fyrrverandi einvaldur í Panama gafst upp í byijun janúar fyrir bandarískum hermönnum sem setið höfðu um sendiráð Páfagarðs í Pan- amaborg þar sem hann hafði dval- ist eftir innrás Bandaríkjamanna skömmu fyrir áramót. Hann var fluttur með herflugvél til Flórída þar sem hann var leiddur fyrir rétt. Átt er við: A. Eric Arturo Delvalle B. Manuel Solis Palma C. Manuel Noriega D. Guiellrmo Endara 4. Fijálslyndi flokkurinn í Rúmeníu lagði til í byijun árs að landið yrði aftur að konungdæmi og fyrr- verandi konungur, sem kommúnist- ar neyddu til að segja af sér 1947, kæmi til valda á ný. Hann heitir: A. Ionescu B. Mikael C. Nastase D. Ceausescu 5. Vegna vöruskorts sem hefur ver- ið viðloðandi í Sovétríkjunum og verið einkar tilfínnanlegur á þessu ári voru nýjar skömmtunar- aðferðir innleiddar í stórborgum 1. febrúar. Til þess að fá nauðsynjar keyptar eftir þann tíma urðu menn að: A. Fara fyrst með faðir vorið fyrir kaupfélagssfjórann. B. Borga með dollurum. C. Sanna að þeir byggju í borg- inni með því að sýna skilríki. D. Hoppa berfættir á öðrum fæti umhverfis kaupfélagið. 6. * Ijanúar samþykkti þing Austur- Þýskalands lög þess efnis að frá þeim tíma væri landsmönnum heim- ilt að fljúga um loftin blá í svifdrek- um sínum. Þar með afléttu yfirvöld banni sem lagt hafði verið á þá íþrótt vegna: A. Ótta við að drekarnir kæmust ekki aftur til jarðar vegna þykks mengunarlofts, B. Hræðslu við að þeir rugluðu ratsjár hins rammgerða loftvarn- akerfi landsins, C. Ótta landsfeðranna við að þegnarnir myndu nota flugdreka til að flýja sælu kommúnismans i stórum stíl til og flögra til ann- arra landa. D. Otta við að ýmsar fuglateg- undir sturiuðust er drekarnir svifu um athafnarými þeirra. 7. Ifebrúar leyfði Lyfja- og matvæla- stofnun Bandaríkjanna manni sem haldinn er svokölluðum Nails- Patella-sjúkdómi er einkennist af verkjum og krampaflogum að lina þraufir sínar með því að: A. Borða hvalkjöt. B. Reykja hass. C. Drekka landa. D. Taka íslenskt þorskalýsi. 8. Asíðustu misserum hefur hver stórviðburðurinn rekið annan á pólitíska sviðinu í austanverðri Evrópu. Þannig urðu mikil tímamót á fundi í Moskvu 7. febrúar sl. er: A. Boris Jeltsín var kjörinn for- seti Rússlands. B. Edúard Shevardnadze sagði af sér starfi utanríkisráðherra. C. Mikhaíl Gorbatsjov var kosinn forseti Sovétríkjanna. D. Miðstjórn sovéska kommún- istaflokksins samþykkti að af- nema valdaeinokun flokksins sem hann hafði haft í 70 ár. 12. itt þeirra ríkja sem talist hafa til lýðvelda Sovétríkjanna frá árum síðari heimsstyijaldarinnar lýsti yfír sjálfstæði 11. mars. Þar með varð þetta ríki fyrst lýðveld- anna til að segja skilið við sovéska ríkjasambandið. Forseti þessa lands kom tii íslands á árinu og hefur þráfaldlega leitað eftir stuðningi Islendinga við sjálfstæðisbaráttu þjóðar sinnar. Hvað heitir þetta riki? A. Lettland. B. Moldavía. C. Rodína. D. Litháen. 13. úgóslavi nokkur, Hakic Ceku, komst á forsíður dagblaða víða um heim í aprílmánuði. Hann hafði verið dreginn fyrir rétt í Malaga á Spáni, sakaður um margvísleg voðaverk, en yfirheyrslunni var hætt þegar í ljós kom að: A. Hakic hafði saumað saman á sér varirnar. B. Hakic hafði límt saman á sér varirnar með júgóslavnesku Tonna-taki. C. Hakic reyndist vera Spánveiji og áður óþekktur hálfbróðir dómarans. D. Serbó-króatíski túlkurinn reyndist vera heyrnarlaus sænskur ellilífeyrisþegi í sólar- landaferð. 14. Nýr forseti sór embættiseið í Nicaragua í aprílmánuði eftir að hafa sigrað Daniel Ortega, for- seta sandinistastjórnarinnar, sem stjórnað hafði landinu frá því í bylt- ingunni árið 1979. Forseti Nic- aragua heitir: A. Violeta Chamira B. Violeta Chamorro C. Violeta del gran Cuerpo D. Violeta de la Hamburgesa grande. Verslun ein í Bordeaux í Frakklandi hóf á árinu að selja kjöt vöru sem fram til þessa hefur ekki þótt sjálfsagður liður í mataræði Vesturlandabúa. Kjö- tið þykir sérlega magurt og kó- lesterólmagnið skaplegt enda munu viðbrögð neytenda hafa verið mjög jákvæð. Hér ræðir að sjálfsögðu um: A. Alftahakk. B. Hangimús. C. Vísundakjöt. D. Súrsaðan gný í eigin vess- um. 15. Við þurfum ekki á íslandi að halda,“ sagði talsmaður Sov étstjórnarinnar í samtali við frétta- ritara Morgunblaðsins í Zurich og skellti síðan á. Gennadíj Ger asímov heitir þessi annálaði séntilmaður og heimsborgari en hvert var til- efni þess að hann taldi Sovétstjórn- ina ekki þurfa á íslendingum að halda? A. Forsætisráðherra hafði óskað eftir því að íslendingar fengju aðild að Varsjárbandalaginu og boðið Keflavík fram sem eftir- litsstöð með friðsamlegum geim- rannsóknum Einingarsamtaka Afríkuríkja. "B. Stjórnvöld í Litháen höfðu snúið sér til íslands, Danmerkur og Noregs og spurt hvort þessi ríki væru tilbúin til að veita að- stoð vegna hugsanlcgs samn- ingafundar Sovétmanna og Lit- háa. ■11. Ein skærasta stjarna kvik- myndanna lést á páska dag í New York í Bandaríkjunum, 84 ára að aldri. Hún hætti að leika í kvikmyndum aðeins 36 ára gömul á hátindi ferils síns og var upp frá því mannafæla hin mesta,. sást sjaldan utan dyra og aldrei án sólgleraugna. Kvikmyndastjaman dáða hét: A. Dolly Darnett. B. Ginger Hodgers. C. Greta Garbo. D. EIvis Hitler. C. Ríkisstjórn íslands hafði boð- ist til að miðla málum i harðvit- ugri landamæradeilu Sovét- manna og Spánveija. D. íslendingar höfðu boðist til að veita sovéska rikisbankanum, Gosbank, lán til kaupa á saltsíld og ullarvörum og jafnframt boð- ið fram aðstoð vegna yfirvofandi hungursneyðar. 16. Baldvin Belgíukonungur afsalaði sér konungstign í aprílmánuði og var landið án þjóðhöfðinga í heila tvo sólarhringa sökum þessa eða þ'ar til þingið samþykkti sam- hljóða að hann tæki við völdum á ný. Ástæða þess að Baldvin afsal- aði sér konungstign var sú að: A. Hann treysti sér ekki til að staðfesta lög um fóstureyðingar. B. Hann treysti sér ekki til að staðfesta lög um ókeypis tann- læknaþjónustu belgískra toll- varða. C. Hann treysti sér ekki til að staðfesta lög um réttindi kyn- hverfra til að ganga í hjónaband. D. Hann treysti sér ekki til að staðfesta lög um friðun belgísku villiandarinnar. 17. Auglýsing í bændablaðinu breska Farmers Weekly vakti athygli í marsmánuði en þar aug- lýsti bóndakona ein eftir eiginmönn- um handa fjórum dætrum sínum. Málsvarar kvennahreyfingarinnar supu hveljur ekki síst þar sem aug- lýsingin birtist í dálkinum: Á. Húsdýramarkaðurinn. B. Búfénaður til sölu. C. Klaufdýra-hornið. D. Gæludýr og haugsugur til salgs. 18. Nefnd foreldra og kennara í menntaskólanum víðkunna Eton á Englandi tók tímamóta- ákvörðun í vor. A. Stúlkum var í fyrsta skipti í fimm alda sögu skólans veittur aðgangur. B. Drengjunum var leyft að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.