Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 26
26 B
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990
ATVIN N MMAUGL YSINGAR
Yfirmaður
tölvusviðs
Við óskum eftir að ráða til frambúðar tölvu-
fræðing til að stjórna og leiða þróun hugbún-
aðar og vélbúnaðar Húsasmiðjunnar.
Skilyrði er að viðkomandi hafi skilning á fjár-
halds-, viðskipta- og birgðabókhaldi.
Æskileg er þekking á Vax-umhverfi og DEC-
neti.
Gæti verið heppilegt starf fyrir tölvufræðing
með master í system management eða MBA.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist starfsmannahaldi Húsasmiðjunnar
fyrir 10. janúar.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum svarað.
HÚSASMIÐJAN HR
Skútuvogi, sími 687700
Vesturbær
Morgunblaðið óskar eftir blaðbera í eftirtalin
hverfi:
Oddagötu og Aragötu.
Ennfremur vantar blaðbera í Skerjafjörð,
norðan flugvallar.
Austurbær
Austurgerði og Byggðarenda.
Breiðholt
Stekki.
Kópavogur
Kársnesbraut.
Hressandi morguntrimm sem borgar sig.
Upplýsingar eru gefnar í síma 691253.
ÐAGVIST BAKIMA
Fóstrur, þroska-
þjálfar eða annað
uppeldismenntað
starfsfólk
Útlitsteiknari
SAM-útgáfan óskar að ráða útlitsteiknara til
að vinna við Vikuna, Samúel og Hús & híbýli,
auk annarrar hönnunar á vegum útgáfunnar.
Reynsla af útlitshönnun fyrir prentun nauð-
synleg. Æskilegt að viðkomandi geti hafið
störf hið fyrsta.
Upplýsingar veitir Þórarinn Jón Magnússon,
ritstjóri, í síma 83122.
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs-
fólki f gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og
eftir hádegi.
Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtal-
inna dagvistarheimila og skrifstofa Dag-
vistar barna, sfmi 27277.
Bakkaborg, BREIÐHOLT Blöndubakka, ls: 71240
Fálkaborg, Fálkabakka, s: 78230
Heiðarborg, SELÁS Selásbraut 56, s: 77350
Gullborg, VESTURBÆR Rekagranda 14, s: 622455
Sunnuborg, HEiMAR Sólheimum 19, s: 36385
Brákarborg, SUNDIN v/Brákarsund s: 34748
Nóaborg, AUSTURBÆR Stangarholti 11, s: 629595
Lækjarborg v/Leirulæk s: 686351
Garðaborg Bústaðavegi 81, s: 39680
Álftaborg Safamýri 32 s: 82488
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991
Kópavogshæli
Um áramótin vantar hjúkrunarfræðinga eða
þroskaþjálfa á næturvaktir. Starfshlutfall er
samkomulagsatriði. Æskilegt er að viðkom-
andi geti hafið störf eigi síðar en 15. janúar
næstkomandi. Starfið felur m.a. í sér yfirum-
sjón með heimiliseiningum staðarins og veita
næturvöktum stuðning.
Starfsfólk
Óskum að ráða starfsfólk í umönnun á deild-
um Kópavogshælis. Starfið felur í sér þátt-
töku í þjálfun, umönnun og útiveru með heim-
ilisfólki.
Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur
Hulda Harðardóttir, yfirþroskaþjálfi, og
Sigríður Harðardóttir, hjúkrunarforstjóri, alla
virka daga frá kl. 08.00-16.00 í síma 602700.
CAM UTGÁFA|\J
^^HAALEITISBRAUT 1 • 105 REYKJAVlK • SlMI 83122 M. »
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991
Handlækninga
deild 3 (11-G)
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar
Þann 1. febrúar nk. verður farið af stað með
6 vikna námskeið í hjúkrun hjarta- og lungna-
sjúklinga.
Hér er um að ræða markvissa aðlögun með
leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga á hand-
lækningadeild 3 ásamt fyrirlestrum einn eftir-
miðdag í viku. Fyrirlestrarnir eru fluttir af
hjúkrunarfræðingum og læknum deildarinn-
ar. Handlækningadeild 3 er brjóstholsað-
gerðadeild, sem er í örri þróun vegna fjölgun-
ar hjartaaðgerða hér á landi.
Nánari upplýsingar veita Lilja Þorsteinsdóttir,
deildarstjóri, sími 601340 og Anna Stefáns-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, símar
601366 og 601300.
Ljósmæður/hjúkrunarfræðingar
Ljósmæður og/eða hjúkrunarfræðingar ósk-
ast á sængurkvennadeildir 22-A og 22-B.
Um er að ræða vaktavinnu. Unnið er aðra
hvora helgi. Möguleiki er á sveigjanlegum
vinnutíma eða sérstökum vöktum. Einstakl-
ingsbundinn aðlögunartími.
Einnig óskast
sjúkraliði - dagvinna
Sjúkraliði óskast á dagdeild 21-B. Starfið er
100% dagvinna alla virka daga.
Upplýsingar gefur María Björnsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri kvennadeildar, sími
601195 eða 601300.
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991
Geðdeild
Landspítalans
Starfsmenn óskast við hinar ýmsu deildir
geðdeildar Landspítalans. Starfið felur í sér
aðstoð við umönnun sjúklinga. Um er að
ræða fulla vinnu, vaktavinnu og hlutastarf á
næturvakt.
Nánari upplýsingar gefa hjúkrunarfram-
kvæmdastjórar í síma 602600.
Sölumaður
Sölumaður óskast í heimilistækjaverslun.
Óskir okkar eru:
Góð almenn menntun.
Verslunar- eða Samvinnuskólagenginn.
Góð þjónustulund.
Hafa starfað í heimilistækja- eða raf-
tækjaverslun.
Geta unnið sjálfstætt og skipulega.
Geta lesið ensku og Norðurlandamál.
Vera með ökuréttindi.
Reykja ekki.
Ef þú telur þig uppfylla þessar óskir, þá
sendu inn upplýsingar til auglýsingadeildar
Mbl. um aldur, menntun og fyrri störf merkt-
ar: „Brosandi fólk - 6718“ fyrir 8. janúar
1991.
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991
Hjúkrunarfræðingar
athugið!
í byrjun árs eru lausar stöður á nokkrum
deildum á lyflækningasviði:
Á taugadeild 32-A verður farið af stað með
fræðslunámskeið um miðjan janúar. Farið
verður yfir hjúkrun og meðferð sjúklinga með
ýmsa taugasjúkdóma, sem og önnur atriði,
sem eiga að bæta þá meðferð serh veitt er.
Vinnuaðstaða er mjög góð og deildin vel
búin hjálpartækjum.
Á lyflækningadeild 11-A er laus staða hjúkr-
unarfræðings. Deildin er með 19 rúm og
aðalháherslan er á meltingar- og innkirtla-
sjúkdóma, smit- og lungnasjúkdóma. Nætur-
vaktir eingöngu koma vel til greina.
Á lyflækningadeild 11-B vantar hjúkrunar-
fræðing í 100% starf frá 6. janúar 1991.
Deildin er nú rekin sem 5 daga deild fyrir
lyflæknissjúklinga.
Á lyflækningadeild 14-G, er 22 rúma deild,
með aðaláherslu á gigtar- og nýrnasjúk-
dóma. Ýmis konar vaktafyrirkomulag kemur
til greina t.d., næturvaktir eingöngu.
Gjörið svo vel að koma og skoða deildirnar
og leitið upplýsinga hjá deildarstjórum við-
komandi deilda og hjá Laufeyju Aðalsteins-
dóttur, hjúkrunarframkvæmdastjóra, í
símum 601290 og 601300.
Sjúkraliðar athugið!
Nokkrar stöður sjúkraliða á lyflækningasviði
losna eða eru lausar í byrjun ársins. Gjörið
svo vel að koma og leita upplýsinga og skoða
deildirnar. Um margs konar vaktafyrirkomu-
lag er að ræða.
Upplýsingar gefur Laufey Aðalsteinsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í símum
601290 og 601300.