Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990 B 9 ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLENT ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ^ ganga í gallabuxum og stutt- ermabolum á almannafæri. C. Ákveðið var að leikritið Ham- let eftir Shakespeare yrði ekki leng^ur til prófs í fyrsta bekk vegna þess að danski knattspyrn- umaðurinn Martin Oleson skor- aði sigurmark Juventus gegn Eton United í meistaramóti Evr- ópubandalagsins. D. Margaret Thatcher þáverandi forsætisráðherra var fyrst kvenna sæmd heiðursdoktors- nafnbót við skólann. 19. au tíðindi voru flutt á útmájiuð- um að sinfóníuhljómsveitir I gætu verið hættulegar og kæmi til greina að breyta skipan þeirra og uppbyggingu. Hvað veldur? I A. Ærandi hávaðinn úr málm- blásturshljóðfærum skaðar heyrn annarra hljómsveitar- manna. Þess vegna er brýnt að setja þau út í ysta hring eða ein- angra á annan hátt. B. Þrotlaus vinna undir harð- stjórn hljómsveitarstjóra getur skaðað félagslegan þroska hljómsveitarmanna og er því brýnt að auka lýðræði og áhrif þeirra á verkefnaval og upp- færslu. C. Fagottleikarar, sem löngum hefur þótt hlutur sinn fyrir borð borinn við flutning nútímaverka, eiga það til á hljómleikaferðalög- um að þjarma að klásúluleikur- ! um sem gegna æ mikilvægara hlutverki sérstaklega í verkum síðpóstmeistara. ' D. Náin samvinna fólks sem ekki hefur annað markmið en list- ræna sköpun í atvinnuskyni get- I ur haft varanleg og óbætanleg áhrif á hjónabandið. 20. ér hlýtur annaðhvort að vera um misskilning að ræða eða þá að Arafat hefur verið að leiða forsætisráðherrann á villigötur," sagði Peter G. Naschitz, ræðis maður íslands í Tel Aviv í samtali við Morgunblaðið. Hvert var tilefni þessara ummæla ræðismannsins? A. Steingrímur sagði eftir heim- sókn til Arafats að það væru borðsiðir í arabalöndum að borða , með guðsgöfflunum. B. Steingrímur sagði eftir heim- sókn til Arafats að arabar væru l svona miklir mannvinir vegna þess að þær ætu heilann úr sauð- fé sínu. ^ C. Steingrímur sagði eftir heim- sókn til Arafats að Israelar hefðu gefið út pening með korti af Stór-ísrael sem næði yfir megin- hlutann af Jórdaníu, írak og Palestínu og vekti þetta tor- tryggni í arabaheiminum. D. Steingrímur sagði eftir heim- sókn til Arafats að Gísli gísl væri í raun gísl ísraelsku Ieyni- þjónustunnar. 21. Landssamtök útivinnandi kvenna í Bandaríkjunum (9 - 5)efndu til nýstárlegrar keppni í vor sem I hét „Sagnasamkeppni um verstu yfirmenn Bandaríkjanna“. Spurt er hvaða saga vakti mesta athygli. I A. Sagan af fjármálamanninum í Fíladelfiu sem vildi nota tímann sem best og skipaði einkaritara sínum að fara á næstu krá með friðþjóf sér við hönd og nota boðtækið ef falleg kona kæmi þangað. B. Sagan af forsljóranum í Kans- as sem kom fyrir kvikmyndavél- um á salernum til að geta sann- reynt að undirmennirnir væru ekki að slóra í vinnunni. C. Sagan af yfirmanni ríkisfyrir- tækis í Wisconsin sem neitaði starfsmanni um frí til að heim- sækja móður sína á sjúkrahús á þeirri forsendu að fyrirvarinn væri of skammur. D. Sagan af yfirmanni verðbréfa- fyrirtækis í Idaho sem lét skrif- stofustúlkurnar keppast um hver væri best í að falsa Undirskriftir viðskiptavina á verðbréf. 22. andarískur auðkýfingur komst í greiðsluþrot í júní. Hvað heit ir hann? A. John Dollar. B. Alan Silver. C. Donald Trump. D. Richard Ace. 23. resk kona sem lést í borginni Hull á árinu valdi sér óvenju legan erfingja að 2,6 milljónum króna. Hver var erfinginn? A. Krókódíllinn Villi B. Sæfíllinn Júmbó. C. Skjaldbakan Fred. D. Sauðnautið Svavar. 25. örlum, sem starfa á skrifstofu menningarmálaráðuneytis Neðra-Saxlands í Vestur-Þýska- landi, var heitt í hamsi í sumar er yfirmaður þeirra, kona, bann aði hálsbindi á vinnustaðnum. Hvers vegna voru bindin bönnuð? A. Vegna þess að bindi eru tákn um kraft og karlmennsku. B. Vegna hitabylgju. C. Yfirmaðurinn sagði bindin tákn um kynfæri karla. D. Hún vildi samhæfa klæðaburð karla og kvenna á skrifstofunni. 26. Bækurnar um Dodda eftir Enid Blyton voru umskrifaðar á árinu þar sem Bretum þóttu þær ekki hæfa lengur sem lesefni fyrir börn. Hvers vegna? A. Lási lögga þótti of klámfeng- inn. B. Bækurnar þóttu ýta undir kynþáttafordóma- og ala á rang- hugmyndum um hlutverk kynj- anna. C. Lýsingar á Eyrnastóra þóttu ala á fordómum í garð fólks með líkamslýti. D. Einelti þótti einkenna um of leiki fólksins í Leikfangalandi. 27. ularfullir hringir hafa myndast á kornökrum í Englandi í aldaraðir og hafa lengi verið mönn- um ráðgáta. Alþjóðleg sveit vísinda- manna tilkynnti í júlí að henni hefði loksins tekist að kvikmynda mynd- un slíkra hringja eina nóttina. Hvað var það sem þeir mynduðu? A. Fjjúgandi furðuhlutir utan úr geimnum sem höfðu lent á akrin- um. B. Hringvindar sem urðu til þess að kornið lagðist niður. C. Litlar grænar geimverur sem dönsuðu hringdans á akrinum. D. Stöfunarborð og krossar galdratrúarmanna, sem ein- hveijir bragðarefir höfðu komið þarna fyrir. 28. Vísindamenn fundu í sumar sönnun þess að hvalir, sem lifðu fyrir 40 milljónum ára, höfðu fætur, með hnéskeljar, ökkla og litl- ar tær. Vísindamenn greinir á um til hvers hvalirnir notuðu fæturna, en hvað þótti helst koma til álita? A. Hvalirnir hefðu notað fæturna til að knýja sig áfram á sundi eða koma"ser í réttar stellingar við mökun. B. Til að ganga eða þrýsta sér saman við mökun. C. Til að synda og klóra sér. D. Til að ganga og verja sig. 29. rænlendingar gerðu í júlí samn- ing við kanadískan kaupsýslu mann um sölu á nýrri sjávarafurð. Þeir hófu þar með útflutning á: A. Þorskroði, sem nýtt verður á svipaðan hátt og leður. B. Signum marhnútum, sem Jap- önum þykja lostgæti. C. Kynfærum sela. D. Eldissteinbíti. 30. reska sunnudagsblaðið Inde- pendent on Sunday birti í sum ar kafla úr niðurstöðum ráðstefnu um Þýskaland, sem Margaret That- cher, þáverandi forsætisráð herra Bretlands, sótti ásamt ýmsum sér- fræðingum. Kaflinn olli miklu fjaðr- afoki í Bretlandi, en hvers vegna? A. Varað var við hættunni á því að Þjóðverjar legðu heiminn undir sig. B. Helmut Kohl var sagður „klunnalegur bóndadurgur". C. Varað var við því að íþrótta- menn Þjóðveija, einkum knatt- spyrnumenn, yrðu ósigrandi. D. Þjóðareinkenni Þjóðveija voru sögð ótti, árásargirni, ofrí- ki, sjálfsdýrkun, minnimátt- arkennd og tilfinningasemi. 32. •• llum fertugum Dönum var í lok septembermánaðar sent bréf þar sem þeir voru hvattir til að forðast ákveðinn ,;ósóma“ fyrstu vikuna í október. „Osómi" þessi er: A. Áfengi. B. Eiturlyf. C. Kynlíf. D. Sjónvarpsgláp. SJÁ NÆSTU SÍÐU 31. Skosk geit komst í fréttirnar í lok júlí er Steingrímur Hermanns son forsætisráðherra var í einkaheimsókn í Skotlandi í boði Davids Steels, þingmanns og fyrr um leiðtoga Fijálslynda flokksins. Hvað hefur geitin til síns ágætis? A. Hún hefur sérlega verðmikla ull og fóðrast einkar vel af loðdýr- um og eldislaxi. B. Hún er af geitarkyni sem ræktað er til framleiðslu á kasmír- ull og fást gæði hennar með því að blanda saman mjúkri ís- lenskri ull og skoskri. C. Hún er af íslensk-belgísku geitarkyni, vann til verðlauna á landbiinaðarsýningu í Edinborg og sannfærði Margaret Thatcher endanlega um ágæti ríkisstyrkja til landbúnaðarins. D. Hún er forystugeitin í hópi 750 geita, sem ganga eiga sjálfala á skoska hálendinu í vor vegna offjölgunar. Samband skoskra skotveiðimanna hyggst selja þeim veiðileyfi, sem vilja skjóta gei- turnar. Þetta átak í að leysa vanda bænda vakti einkum athygli vegna þess að Karl Bretaprins er verndari þess, ásamt Steingrími Hermannssyni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.