Morgunblaðið - 05.01.1991, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Þorbergur og Einar
„njósna" í IMoregi
Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari og Einar
Þorvarðarson, aðstoðarmaður
hans, fara til Noregs frá Spáni
þar sem þeir ætla að taka leiki .í
Lotto Cup upp á myndband og
kortleggja væntanlega mótheija
íslands í B-keppninni í Austurríki.
Þar leika Norðmenn og
Hollendingar, sem eru í sama riðli
og íslendingar og írsaelsmenn í
B-keppninni. Einnig Danir, sem
verða væntanlegir mótheijar í
milliriðli í Austurríki, og svo Aust-
urríkismenn.
„Það er gott að eiga sem mest-
ar upplýsingar um mótheija okkar
í B-keppninni,“ sagði Þorbergur
Aðalsteinsson.
Lotto-keppnin í Noregi stendur
yfir frá 16. til 20. janúar.
Mikil vinna fram-
undan hjá Þorbergi
LANDSLIÐ íslands íhandknatt-
leik hefur verið mikið í sviðs-
Ijósinu að undanförnu, en liðið
stendur nú á tímamótum.
Margir þungavigtarmenn fyrri
ára eru hættir og ungir og
óreyndir leikmenn hafa verið
kallaðir fram í sviðsljósið. Mikl-
ar breytingar hafa orðið á
landsliðinu f rá því í heims-
meistarakeppninni f Tékkósló-
vakíu 1990. Það sést best á
því að þegar landsliðið hélt á
HM höfðu leikmenn liðsins
samtals 2.182 landsleiki að
baki, sem var 136,37 landsleik-
ir að meðaltali á leikmann. Nú
er landsliðið á leið til Spánar
og hafa leikmennirnir sem
halda þangað leikið samtals
FráAtla
Hilmarssyni
á Spáni
Spánverjar
velja
Spánveijar tefla fram sterku
liði á fímm liða mótinu í
smábænum Alcobendas, sem
hefst í næstu viku. Þó vantar
nokkra pósta frá
HM í liðið, en
þeir eru meiddir.
Landsliðshóp- •
urinn er þannig
skipaður:
Markverðir: Rico og Barru-
fet, Barcelona, Gutierrez, Caja
Madrid.
Línumenn: Roman, Atletico
Madrid og Ramos, Arrade.
Hornamenn: Yrdiales, At-
letico Madrid, Bardiedo og Car-
rano, Barcelona, Cabanas, Teka.
Skyttur: Masip, Barcelona,
Hermida og Marin, Atletico
Madrid, Alemany, Valencia,
Melo, Teka og Ordonez, Map-
ansa.
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
1.260 landsleiki, sem er 78,75
landsleikir að meðaltali á
mann.
Kristján Arason er leikreyndasti
leikmaður liðsins, en hann hef-
ur leikið 223 a-landsleiki. Næstir á
blaði koma þeir Jakob Sigurðsson
með 200 leiki og
Geir Sveinsson með
186 leiki. Þetta eru
þeir þrír leikmenn
sem eftir eru af
landsliðshópnum sem lék í HM í
Sviss 1986.
Aðeins tveir aðrir leikmenn hafa
náð að leika yfir 100 landsleiki;
Guðmundur Hrafnkelsson, mark-
vörður og Júlíus Jónasson, en þeir
Bjarki Sigurðsson og Valdimar
Grímsson eiga stutt í 100 leikja
markið. Af þessum leikreyndustu
leikmönnum okkar eru einn mark-
vörður, þrír hornamenn, tvær skytt-
ur og einn línumaður.
Góðir hornamenn, en
skyttur vantar
Mesti styrkleiki landsliðsins í
sóknarleiknum eru hinir sterku
hornaleikmenn sem við eigum, en
aftur á móti er mesti höfuðverkur
landsliðsþjálfarans hvað fáar stór-
skyttur og leikstjómendur hafa
komið fram í sviðsljósð. Stórskyttur
og leikstjórnendur eins og Alfreð
Gíslason, Sigurður Gunnarsson,
Páll Ólafsson, Sigurður Sveinsson
og Atli Hilmarsson hafa hætt að
leika með landsliðinu, en þetta voru
allt leikmenn með hátt í 200 lands-
leiki og þá er Héðinn Gilsson í lítilli
æfingu. -
Þegar litið er á sóknarhlið lands-
liðsins sést að þar eru leikmenn
með minnsta reynsluna. Aðeins
tveir leikmenn eru þar sem hafa
yfír reynslu að ráða; Kristján Ara-
son og Júlíus Jónasson. Þess má
geta að Júlíus hefur komið sterkur
Knattspyrnuþjálfari
óskast
Óskum eftir að ráða þjálfara næsta keppni-
æstímabil fyrir meistaraflokk.
Upplýsingar í síma 93-61504 eftir kl. 17.
Víkingur Ólafsvík.
Staða frjaísiþrottatijalíara laus
UMFA í Mosfellsbæ vill ráða frjálsíþróttaþjálfara
nú þegar. Þjálfaranum er ætlað að sjá um frjáls-
íþróttaæfingar félagsins og vinna að uppbygg-
ingarstarfi ásamt öðrum. Góð kjör.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
starfsreynslu, skulu sendar FrjálsíþróLtadeild
UMFA, pósthólf 324, 270 Mosfellsbæ, fyrir 10.
janúar.
Bjarni (s. 666837) og Höskuldur (s. 667141) veita
frekari upplýsingar um starfið.
Landsliðshópurínn
Hér er listi yfír leikmennina sem leik
á Spáni og hvað marga landsleiki þe
hafa leikið:
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson, FH.11
2
1
Hrafn Margeirsson, Víkingi....
Bergsveinn Bergsveinsson, FH...
Hornamenn:
Jakob Sigurðsson, Val.........
Konráð Olavson, KR............
Bjarki Sigurðsson, Víkingi....
Valdimar Grímsson, Val........
Línumenn:
Geir Sveinsson, Granollers....
Birgir Sigurðsson, Víkingi....
Skyttur og leikstjórnendur:
Júlíus Jónasson, Asnieres.....
Sigurður Bjarnason, Stjörnunni..
Petrekur Jóhannesson, Stjörnurini
Einar Sigurðsson, Selfossi...
Gunnar Gunnarsson, Ystad......
Kristján Arason, Teka.........
Stefán Kristjánsson, FH.......
.20
. 3
. 9
. 9
.18
. 4
.13
. 2
. 1
. 1
. 1
.22
. 1
upp að undanförnu, eða eftir að
hann varð fastamaður í landsliðinu.
Hinir fimm leikmennirnir í skyttu-
hlutverkum hafa ekki nema tólf til
tuttugu og tvo landsleiki að baki.
Leit að leikstjórnanda
Leikstjórnun íslenska liðsins hef-
ur ekki verið góð, enda hefur það
verið höfuðverku landsliðsins und-
anfarin ár hvað fáir sterkir leik-
stjórnendur hafa komið fram. Páll
Olafsson og Sigurður Gunnarsson
léku það hlutverk með landsliðinu
og síðan hafa margir verið reyndir.
Óskar Ármannsson úr FH var að
ná góðum tökum á þeirri stöðu en
hann varð fyrir því óhappi að hand-
arbrotna í vetur og hefur lítið sem
ekkert getað leikið með FH undan-
farna mánuði. Þess má geta að í
síðustu landsleikjum hefur Konráð
Olavson, hornamaður, þurft að
Bjarki Sigurðsson leikur sinn hundraðasta leik á Spáni ef hann
leikur alla þijá landsleikina þar.
bregða sér í stöðu leikstjóranda -
til að leysa vandann.
Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari, hefur lagt mesta
áherslu á varnarleikinn frá því að
hann tók við liðinu sl. sumar.
Einar Þorvarðarson, markvörður,
hefur skilið eftir sig stórt skarð.
Einar var á sínum tíma einn besti
markvörður heims og sýndi mikinn
stöðuleika. Því miður hafa þeir
markverðir sem nú leika með lands-
liðinu ekki náð eins góðu jafnvægi.
Þeir eiga misjafna leiki.
Þorbergur Aðalsteinsson á mikla
vinnu fyrir höndum og það veit
hann manna best. Efniviðurinn er
fyrir hendi, en það þarf að herða
hann og fínpússa fyrir B-keppnina
sem verður í Austurríki eftir rúmt
Landsliðið til
Júgóslavíu
Næsta verkefni landsliðsins eftir Spnarferðina verða þrír landsleikir
í Reykjavík í lok maí. Enn er ekki ákveðið hver mótheijinn verður,
en landslið S-Kóreu kemur til greina.
■Landsliðið heldur síðan til Júgóslavíu í júní, þar sem tekið verður þátt
í sex til átta þjóða móti.
■ 21 árs landsliðið tekur þátt í HM í Grikklandi í september.
■í október verða tveir leikur gegn Sviss í Reykjavík og tveir gegn Aust-
urríki í nóvember.
■ Stefnt er að því að taka þátt í fjögurra þjóða móti erlendis fyrir jól, en
á milli jóla og nýárs koma Svíar og leika hér þijá landsleiki.
■ Landsliðið fer til-Austurríki í byrjun janúar og verður reynt að taka
þar þátt í fjögurra þjóða móti. Ef það tekst ekki verður leikið gegn félags-
liðum á þeim sióðum sem landsliðið kemur til með að leika í B-keppninni.
■Tékkar koma tii íslands í febrúar 1992 og leika hér tvo landsleiki, en
eftir það verður landsliðið saman í þijár vikur til að undirbúa sig fyrir
B-keppnina í Austurríki.
Danir undir-
búa sig vel
Andreas Dahl-Nielsen, lands-
liðsþjálfari Danmerkur, seg-
ist vonast eftir að geta verið búinn
að koma upp sterkum lands-
liðskjarna fyrir B-keppnina í Aust-
urríki, sem verður í mars 1992.
Miklar líkur eru á að Danir og
íslendingar leika þar saman í milli-
riðli.
Danir hafa ekki riðið feitum
hésti frá landsleikjum sínum að
undanförnum vikum. Þeir hafa
aðeins unnið einn landsleik - gegn
Bandaríkjunum,_ en gert jafntefli
gegn Póllandi, íslandi og Noregi.
Þá hafa þeir tapað fyrir Þýska-
landi, Júgóslavíu, Tékkóslóvakíu,
Frakklandi, Póllandi og Noregi.
Danir taka þátt í mörgum sterk-
um mótum fyrir B-keppnina. Um
miðjan janúar taka þeir þátt í Lotto
Cup í Noregi ásamt Norðmönnum,
Þjóðveijum, Tékkum, Austurríkis-
mönnum, Hollendingum og Norð-
mönnum. í byrjun febrúar verður
mót í Danmörku þar sem Rúm-
enía, Ungveijaland og Finnland
taka þátt í. Eftir það kemur lands-
liðið ekki sarnan fyrr en í sumar
og verður þá í æfingabúðum. í
október taka Danir þátt í móti
ásamt Þjóðveijum, JúgóslÖvum og
Tékkum. Danir taka síðan þátt í
fimm þjóða móti í Hollandi í nóv-
ember og í fjögurra þjóða móti í
Danmörku í desember. Þeir verða
siðan með í World Cup í Svíþjóð í
janúar 1992 og í febrúar leika
þeir nokkra vináttulandsleiki gegn
Svíum. Andres Dahl-Nielsen segir
að lokaspunkturinn verði síðan tíu
daga æfíngabúðir fyrir B-keppnina
í Austurríki.