Morgunblaðið - 05.01.1991, Síða 36

Morgunblaðið - 05.01.1991, Síða 36
 VZterkur og Ll hagkvæmur & auglýsingamiðill! /Zv™>7 JHwgniiMftfeffe /17777') 4 \ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Morgunblaðið/Árni Sæberg Starfsmenn Hitaveitunnar kanna skemmdir á rörinu sem tæring komst í við Höfðabakkabrú í gær. Um þriðjungnr íbúa höfuðborgarsvæðis- ins án heits vatns TÆPLEGA þriðjungur íbúa höfuðborgarsvæðisins var án heits vatns frá því um miðjan dag í gær og fram á nótt. Gat kom á heitavatnsæð í Höfða- bakkabrúnni, sem flytur vatn til notenda í Hafnarfirði, Garðabæ, Bessastaðahreppi og stórum hluta Kópavogs, og þurfti að loka fyrir rennslið meðan bráðabirgðaviðgerð fór fram. Að sögn Gunnars H. Kristins- sonar, hitaveitustjóra, uppgötvað- ist í gærmorgun að gat var á æðinni og um klukkan 16 var lok- að fyrir rennslið til að hægt væri að gera við hana til bráðabirgða. Segir Gunnar að orsakir þessara skemmda megi rekja til þess, að vatn hafi komist ofan í hitaveitu- stokkinn niður um þenslurauf á brúnni og tært gat á lögnina. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Hitaveitunnar í gær- kvöldi gekk viðgerð á æðinni vel eftir atvikum og var stefnt að því að vatni yrði hleypt á hana aftur um miðnætti. Fjármálaráðuneytið: Vextir á ríkisvíxlum hækka í 11 prósent FJÁRMÁLARÁÐUNEYTI hef- ur ákveðið að hækka vexti ríkisvíxla og gildir hækkunin frá og með síðastliðnum fimmtudegi, 3. janúar. Ríkis- víxlar bera nú 11% forvexti, en þeir voru áður 10%. Viðbótar- vextir, allt að 1%, eru greiddir ef sami kaupandi kaupir í einu lagi víxla fyrir umtalsverðar fjárhæðir. I greinargerð frá Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa segir að nauðsynlegt sé talið að hækka þessa vexti vegna þess að hækkun vaxta hjá bönkum og sparisjóðum sé orðin almenn. Almenn ársávöxtun ríkisvíxla er nú á bilinu 11,71% til 11,86%, en var á bilinu 10,59% til 10,71%. Sé keypt fyrir 50 milljónir króna eða meira hækka vextirnir og sé keypt fyrir 300 milljónir króna eða meira fæst hámarks vaxtaauki og eru þá víxlarnir með 12% forvöxt- um, sem gefa ársávöxtun á bilinu 12,78% til 13,03%. í lok ársins 1990 nam fjárhæð ríkisvíxla um 8 milljörðum króna og höfðu þeir því selst fyrir rúma tvo milljarða umfram innlausn eldri víxla á árinu. í greinargerð Þjónustumiðstöðvar segir að ríkisvíxlar hafi átt verulegan þátt í að fjármagna fjárþörf ríkissjóðs innan ársins, þar sem ríkisvíxla- stofninn náði 11 til 13 milljörðum króna þegar mest var. Þá segir í greinargerðinni að þar sem nafnvextir hjá bönkum og sparisjóðum hafi verið að hækka á undanfömum vikum, sé hækkun vaxta ríkisvíxla ákveðin Sovétmenn hafa aflýst afhend- ingu gasolíufarms hingað til lands sem átti að afhenda nú í byijun árs. Sú skýring var gefin að ekki hefði samist um nýja verðskrán- ingu milli íslendinga og sovéska til þess að halda samkeppnisstöðu þeirra gagnvart öðrum óverð- tryggðum skuldbindingum. Almennum forvöxtum ríkisvíxla var síðast breytt 19. september síðastliðinn, er þeir voru lækkaðir úr 12% í 10%. Síðustu tvo við- skiptadaga nýliðins árs voru stærri kaupendum boðnir 12,5% vextir af ríkisvíxlum. olíufélagsins Soyuznefteexport. Um miðjan mánuðinn á að af- henda farm af svartolíu og ræðst væntanlega af því hvort semst um verðviðmiðun hvort staðið verður við afhendingu hans. Sovétmönnum sent gagntilboð um olíuverð Sovétmenn aflýsa afhendingu olíufarms VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ hefur sent svar til sovéska olíufélags- ins Soyuznefteexport um verðviðmiðun olíu. Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri segir að í gær hafi verið sent gagntilboð til Sovét- manna eftir fund með fulltrúum olíufélaganna og var óskað svars í næstu viku. Hann vildi ekki staðfesta hvað fólst í tilboðinu. Morgunblaðið/KAX Fjölskyldurnar tvær sem dvöldust um borð í skuttogaranum Orvari þar sem hann lá við festar^í höfninni á Skagaströnd..Yngsti fjölskyldumeðlimurinn lengst til hægri á myndinni er tveggja mánaða gamall. _ •• Flúðu um borð í Orvar vegna kulda TVÆR fjölskyldur frá Skaga- strönd höfðu Húið kaldar stofur heimila sinna og komið sér fyr- ir í hlýjum matsalnum í togar- anum Orvari þegar blaðamenn Morgunblaðsins fóru um Skagaströnd í gær. Aimannavarnanefnd staðarins setti upp stjórnstöð sína um borð í Örvari, en skipið er búið farsím- um og talstöðvum. Hjá Kaupfélagi Húnvetninga hafði gengið mjög á ýmsar vörur og mjólk var þar uppurin í gærmorgun. Björn Viðar Hannesson og kona hans voru að orna sér við kaffi- sopa og piparkökur í lúkarnum ásamt börnum sínum þremur og létu vel af vistinni um borð. „Við erum hérna vegna rafmagns- og símaleysis, eða bara allsleysis, því ekkert höfum við vatnið heldur," sagði Björn. „Annars hefur snjór- inn bjargað okkur, við höfum brætt hann á gasprímus sem við höfum líka notað við matseldina, sagði Björn. Kona hans varð strax sjóveik þegar hún steig um borð í Örvar, enda með afbrigðum sjó- veik, að eigin sögn. Sjá miðopnu og bls. 21.. Landspítalinn: Ekki hægt að fjölga hjarta- aðgerðum eins og áætlað var EKKI hefur verið hægt að fjölga hjartaaðgerðum á Lands- pítalanum, eins og áformað hafði verið um áramótin. Er ástæða þessa kjaradeila aðstoð- arlækna við ríki og borg. Þórar- inn Ólafsson, yfirlæknir svæf- ingadeildar Landspítalans, seg- ir að svæfingalæknar geti ekki annað fleiri en þremur aðgerð- um á viku nú, en stefnt hafi verið að því að hægt yrði að framkvæma fjórar á viku. Þórarinn Ólafsson segir að í september hafi verið ákveðið að fjölga hjartaaðgerðum á Land- spítalanum, þannig að hægt yrði að framkvæma þrjár eða jafnvel fjórar á viku. Jafnframt hafi verið áformað að fjölga aðgerðum enn frekar upp úr áramótum. Hann segir að málið sé nú hins vegar í biðstöðu enda treysti svæf- ingalæknar sér ekki til að fjölga þessum aðgerðum. Meðal þeirra gæti nú þreytu vegna aukins vinnuálags, þar sem þeir hafi þurft að ganga í störf aðstoðar- lækna. Þórarinn segir hins vegar að búast megi við að hjartaaðgerðum verði fjölgað strax og kjaradeila þeirra ieysist.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.