Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 4
morgunBlaðíð- þíriðjuöa'gur r>’ !f^bi^ar: -1«!U
Jóhann Briem látinn
JÓHANN Briem, listmálari, lést
1. febrúar. Hann fæddist á
Stóra-Núpi í Gnúpverjahreppi
17. júlí 1907.
Eftir stúdentspróf frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1927
hélt Jóhann til Þýskalands þar sem
hann stundaði nám hjá Woldemar
Winkler í Dresden 1929-31 og Max
Feldbauer og Ferdinand Dorsch í
Staatliche Kunstakademie í sömu
borg. Að námi loknu kom Jóhann
heim til íslands þar sem hann starf-
aði að myndlist og kenndi myndlist-
amemum. Hann var formaður
Bandalags íslenskra listamanna
1941-44 og einn af stofnendum
Nýja myndlistarfélagsins 1952. Jó-
hann teiknaði myndir í fjölda bóka,
m'álaði veggskreytingar og fjölda
altaristaflna. Hann hefur haldið
margar listsýningar og tekið þátt í
mörgum sýningum erlendis. Þá hef-
ur hann ritað margar greinar í blöð
og tímarit.
Fyrri kona Jóhanns var Eleonore
Hertha, dáin 24. júlí 1941. Seinni
kona hans er Elín Briem og eiga
þau þijár dætur, Katrínu Briem,
skólastjóra Myndlistarskólans í
Reykjavík, og Ólöfu og Brynhiidi
Briem, lyfjafræðinga.
Jóhann Briem
Flug fór verulega úr skorðum um helgina
BÆÐI millilandaflug og innanlandsflug Flugleiða fór verulega úr skorð-
um um helgina, fyrst og fremst vegna veðurs, að sögn Einars Sigurðs-
sonar blaðafulltrúa Flugleiða. „Bæði Ameríku- og Evrópuflug fór úr
skorðum á laugardag og sunnudag vegna veðurs. Einnig bættust við
tafir vegna bilunar, sem tók lengri tíma að ganga frá í Keflavík en
ætlað var. Vegna þessarar bilunar var tekin vél á leigu frá Banda-
ríkjunum fyrir eina ferð hingað. Áður hafði verið tekin vél á leigu frá
Bandaríkjunum vegna reglubundinnar, langrar skoðunar á Flugleiða-
vél.“
Flug klukkan 11 á sunnudags- inni, þegar það gerði heiftarlegt veð-
morgun frá Keflavík tafðist svo vélin ur og hún var tvo klukkutíma að
komst ekki af stað fyrr en klukkaji komast frá stöðinni. Þá um morgun-
14. Vélin var rétt komin frá flugstöð- in kom einnig leiguflugvél með far-
þega frá Bandaríkjunum og mjög illa
gekk að koma henni að flugstöðinni.
Þessi vél var tekin á leigu vegna
þess að fara þurfti út í tímafrekari
mótorviðgerðir á vél, sem við vorum
með í skoðun. Ekki er Ijóst hver bil-
unin er, þannig að skipta verður um
mótor en viðvörunaijós kviknaði um
olíusmit."
Einar segir að Evrópuflugið hafi
einnig farið allt meira og minna úr
skorðum á sunnudag vegna veðurs-
ins.
VEÐUR
■ IJ ’■ k ■ .. ■ w ■ "j""
VEÐURHORFUR I DAG, 5. FEBRUAR
YFIRLIT í G/ER: Á Grænlandssundi er 984ra mb tægð sem þokast
norðnorðvestur, en 970 mb lægð um 700 km suðvestur af Reykja-
nesi hreyfist norðaustur.
SPÁ: Hvöss sunnanátt eða stormur og rigning eða slydda með 3ja
ti! 8 stíga hita um austanvert landið. Vestanlands verður hvöss
suðaustan átt og rigning eða slydda með 1 til 4ra stiga hita í
kvöld, en kólnar aftur með suðvestan stinningskalda og allhvössum
éijum f nótt og á morgun.
TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus
-(^)- Heiðsk/rt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V V Skúrir Él Þoka
•Qj Léttskýjað / / / / / / / Rigning
Hálísl<^a® / / / * / # ? ? Þokumóða Súld
/ * r * Slydda / * / oo Mistur
Skafrenningur
lil"**8 * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍDA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 3 aiskýjað
Reykjavík 2 alskýjað
Bergen 1 léttskýjað
Helsinki *4 léttskýjað
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Narssarssuaq +23 léttskýjað
Nuuk +20 skafrenningur
Osló 6 iéttskýjað
Stokkhólmur 1 léttskýjað
Þórshöfn 0 léttsksýjað
Algarve 14 léttskýjað
Amsterdam 4-3 mistur
Barcelona 12 mistur
Berlín *2 snjókoma
Chicago vantar
Feneyjar 4 þokumóða
Frankfurt •5*1 mistur
Glasgow 0 snjókoma
Hamborg i skýjað
Las Þalmas vantar
London 1 mistur
LosAngeles 12 þokumóða
Lúxemborg 0 mistur
Madrfd 8 hálfskýjað
Maiaga 16 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Montreal +4 skýjaö
NewYork vantar
Oriando vantar
Parls 1 skýjað
Róm ð þokumóða
Vín 4 þokumóða
Washíngton vantar
Winnipag 2 skýjað
Langbylgjumastríð á Vatnsendahæð
hrundi í veðurofsanum:
Ný langbylgjustöð gæti
kostað 7-800 milljónir
- segir útvarpsstjóri
LANGBYLGJUSENDINGAR Ríkisútvarpsins féllu út í óveðrinu á
sunnudag þegar annað stórmastrið á Vatnsendahæð hrundi í storminum
kl. 13.20. Mastrið var orðið meira en 60 ára gamalt og hefur oft verið
varað við að það stæðist ekki kröfur um styrkleika auk þess sem sendar
í stöðinní eru löngu úr sér gengnir. Að sögn Markúsar Arnar Antons-
sonar, útvarpsstjóra, var rætt um neyðarráðstafanir á fundum í stofnun-
inni í gær. Er verið að kanna hvort það mastur sem enn stendur er
nýtanlegt fyrir langbylgjusendingar. „Ástand þess er mjög slæmt og
spurning hvort ætti að rífa það niður. Greinargerð sérfræðinga um
þetta mun liggja fyrir innan fárra daga,“ sagði Markús.
Markús sagði að ef ekki reyndist
kleyft að nýta mastrið sem eftir
stendur sé til athugunar að koma
upp loftnetsmöstrum til bráðabirgða
sem eru til hjá Pósti og síma ög
hefja útsendingar um loftnet sem
yrði strengt á milli þeirra.
„Þetta er auðvitað mjög bagalegt
fyrir sjómenn á hafi úti og við erum
að kanna leiðir til að endurvarpa
fréttum, veðurfregnum og öðrum
nauðsynlegum tilkynningum hjá
strandstöðvum.
Það verður engin lausn endanleg
fyrr en búið er að byggja nýja stöð
og mér heyrist á umræðum á alþingi
að fullur vilji sé til að taka á þessu
máli. Geri ég ráð fyrir að undirbún-
ingur þess verði settur af stað og
fjármagn til þess verði tryggt. Þá
ætti að sjá fyrir endann á því á tveim-
ur til þremur árum,“ sagði Markús.
Hann sagði að verð væri breytilegt
á búnaði fyrir nýja endurvarpsstöð.
„Menn eru þó þeirrar skoðunar að
ef á að byggja nýja stöð með 500
kílóvatta sendi, sem eigi að geta tek-
ið við hlutverki beggja stöðvanna á
Vatnsenda og Eiðum og ná um landið
allt og út á hafsvæðin, gæti sú fram-
kvæmd kostað á bilinu 7 - 800 millj-
ónir,“ sagði hann.
I veðurofsanum á sunnudag brotn-
aði einnig mastur í Langholti í
Hrunamannahreppi og er unnið að
bráðabirgðaviðgerðum svo hægt
verði að helja útsendingar þar að
nýju en FM sendingar og sjónarpsút-
sendingar féllu þar út. Sagði Markús
að tjónið næmi um 2 milljónum.
ísing olli símatruflimum
fyrir vestan og norðan
TRUFLANIR voru enn á örbylgjusamböndum Pósts og sírna í gær
vegna ísingar en starfsmenn unnu að viðgerðum í allan gærdag. Fjar-
skipakerfi Pósts og síma stóðust veðurofsanum nokkuð vel á sunnu-
dag, að sögn Þorvarðar Jónssonar, framkvæmdasljóra tæknisviðs Pósts
og sima. Orbylgjusambönd til Vesturlands, Vestfjarða og Norðurlands
urðu þó fyrir miklum truflunum vegna ísingar og var simasamband
lélegt til Vesturlands og Vestufjarða frá kl. 13 - 17 á sunnudag og frá
kl 13 - 22 til Norðurlands en gripið var til þess ráðs að umtengja 120
tallínur yfir á ljósleiðarastrenginn til Norðurlands og því rofnaði sima-
sambandið ekki. Meiri truflanir urðu á talsímasambandi út úr Iandinu
þar sem jarðstöðin Skyggnir snérist í hvassviðrinu. Varaloftnet kom þó
á sambandi að hluta við umheiminn.
Þorvarður sagði í samtali við
Morgunblaðið að ástandið hefði verið
verst á Snæfellsnesi og Vestfjörðum.
„Það var þó aldrei um algert sam-
bandsrof að ræða vegna ísingar, þar
sem einstaka símtöl fóru í gegn.
Rafmagnsleysið'olli því líka að tæmd-
ist af rafhlöðu í Sangerðisstöðinni
og rofnaði sambandið þangað í einn
og hálfan klukkutíma þar til varavél
var tekin í notkun,“sagði hann.
Þorvarður sagði að töluvert álag
hefði verið á símkerfinu á meðan
Leiðréttiiig-
Á baksíðu Morgunblaðsins á
föstudag birtist frétt um að troll
frystitogarans Vestmannaeyjar
hefði bráðnað er hún var að veið-
um í Breiðamerkurdýpi. Nú hef-
ur komið í ljós að frétt þessi var
röng.
Birgir Þór Sverrisson, sem var
skipstjóri í þessari veiðiferð, stað-
festi þetta í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. Hann sagði að
atburður þessi hefði átt að eiga sér
stað er hann var í koju og er hann
kom á vaktina hafi honum verið
sögð þessi tíðindi og sýnd vegsum-
merkin. Hann sagðist ekki hafa
haft frumkvæði af að koma þessu
í fjölmiðla en hefði svarað spurning-
um þeirra um málið, þegar á hann
var gengið. Hann hafi gert það eft-
ir bestu samvisku, en nú hafi hins
vegar komið í ljós að áhöfn skips-
ins, eða alla vega hluti hennar,
hafí staðið saman um að útbúa
þessa sögu og ljúga henni í sig og
reyndar fleiri.
Morgunblaðið biður lesendur sína
afsökunar á því að það skuli hafa
verið notað með þessum hætti í
gálgahúmor fyrmefndrar áhafnar.
veðurofsinn stóð yfir. „Við vorum
famir að óttast að geymarnir í
Landsímahúsinu myndu ekki duga
þar sem stöðin varð útundan í raf-
magnsskömmtuninni og stóð það
yfir á sjötta tíma á sunnudag sem
hefði getað valdið truflunum á
símstöðv unum. Við höfðum þó út-
vegað varavél fyrir Landsímahúsið
þegar rafmagnið kom aftur inn,“
sagði hann.
Jarðstöðin Skyggnir snérist til í
vindhviðunum og missti gervitungla-
sambandið. Olli það miklum truflun-
um á fjarskiptum út úr landinu frá
kl. 9 - 19 á sunnudag. Samband um
varaloftnet komst þó á kl. 13.20 og
tókst að halda símasambandi við
útlönd að hluta til.
------'
Leiðrétting:
Eignaraðild
Shell að
Skeljungi
í frétt í blaðinu síðastliðinn laug-
ardag um eignaraðild útlendinga
að íslenskum fyrirtækjum urðu
mistök við lestur úr töflu til þess
að ýkja stórlega eignaraðild út-
lendinga að Olíufélaginu Skelj-
ungi.
Rétt er að í lok ársins 1989 átti
Shell Petrol Company 20% hlutafjár
í Skeljungi og var sú eign metin á
um 361 milljón króna og Shell As-
iatic Petrol átti á sama tima 4,11%
hlutafjár í Skeljungi og var sú eign
talin um 74 milljón króna virði.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.