Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRUAR 1991
.13
Menntamálaráðuneytið:
Upplýsinga-
bæklingur
um fullorð-
insfræðslu
Skurðstofusorp á Gufunesi
getur valdið sóttkveikjum
Málið verður skoðað, segir heilbrigðisráðherra
SÓTTNÆMUM úrgangi frá sjúkrahúsum á höfuðborgarsvæðinu hefur
verið ekið á sorphaugana í Gufunesi en ekki verið eytt í samræmi við
mengunarvarnareglugerðir í brennsluofnum. Sorpið, sem kemur meðal
annars frá skurðstofum, getur valdið sóttkveikjum við snertingu og
fugl sem kemst í það áður en það er urðað getur borið sóttkveikjur.
Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra segir að þetta mál verði
tekið til athugunai- í ráðuneytinu.
„Svona úrgangur á alls ekki að
fara á urðunarstað eins og í Gufu-
nesi. Hoilustuvernd mun hins vegar
ekki beita sér í þessu máli að öðru
leyti en því að -gera rammareglur um
þetta. Að öðru leyti er það sjúkrahú-
skerfísins að taka á þessu máli, það
ætti að vera fullfært um að sinna
þessu svo að vel sé,“ sagðí Birgir
Þórðarson, skipulagssstjóri Hollustu-
vemdar ríkisins.
Sjúkrahúsið á Akranesi hefur eytt
þessum úrgangi í brennsluofni eins
og reglur gera ráð fyrir en slíkur
búnaður er ekki til við sjúkrahús
annars staðar á landinu. „Þetta þurfa
að vera háhitaofnar með 7-800 gráðu
hita. Síðan þarf að koma til eftir-
brennsla á reyk og hreinsun á reykn-
um því við erum að tala um úrgang
frá skurðstofum, blóð og annað
slíkt,“ sagði Birgir.
Borgarspítalinn hefur sett þennan
úrgang í sérstakar tunnur og síðan
er þeim brennt með innihaldi. Birgir
sagði að forsvarsmönnum ríkisspítal-
anna hefðu verið boðin þessi þjón-
usta, sem unnin er af einkaaðilum,
en þeim þætti hún of dýr. Hann taldi
að kostnaður við eyðingu sorpsins á
þennan hátt næmi á milli 5-10 kr. á
hvert kg sem þó væri smáræði sam-
anborið við kostnað í Bandaríkjum.
Hann sagði að þar kostaði eyðingin
um 50-60 kr. á hvert kg enda mis-
munandi aðferðum beitt.
Birgir sagði að vikið væri lítillega
að eyðingu slíks úrgangs í mengun-
varvarnareglugerð. „Það er í gangi
vinna við stefnumótun varðandi allt
sem lýtur að sorphirðu og endur-
vinnslu. Þar er tekið á þessu en í
raun þarf sérstaka reglugerð um
svona úrgang, hvernig eigi að með-
höndla hann og hvemig eigi að farga
honum. Hana vantar alveg,“ sagði
Birgir.
„Ég fæ upplýsingar um þetta mál
eftir helgina. Það virðist ekki vera í
samræmi við mengungarvarnareglu-'
gerðir sem ég hef gefið út. Við verð-
um að sjá hvað býr þama að baki
og sjá hvort spítalarnir hafi ekki
aðstöðu til að vinna samkvæmt þess-
ari reglugerð. Það verður að skoða
það og taka á því,“ sagði Guðmund-
ur Bjamason.
Skrifstofutækni
Fyrir aðeins kr. 4750' á mánuði.
Námið kemur að góðum notum í atvinnuleit. Einungis
eru kenndar námsgreinar sem nýtast þegar út á
vinnumarkaðinn er komið. Til dœmis:
Bókfærsla
Tölvubókhald
Ritvinnsla
Tollskýrslugerð
V erslunarreikningur
Verðið miðast við skuldabréf til tveggja ára. ^
Tölvuskóli Islands
Sími: 67 14 66, opið til kl. 22
Menntamálaráðuneytið hefur
gefið út upplýsingabækling um
fullorðinsfræðslu. Þetta er í fyrsta
sinn sem ráðuneytið safnar saman
upplýsingum í slíkan bækling.
Tilgangur bæklingsins er að hafa
tiltækt á einum stað yfirlit yfir þá
aðila sem bjóða upp á fullorðins-
fræðslu og hvers eðlis sú fræðsla er.
Ekki eru veittar upplýsingar um ein-
stök námskeið en í fréttatilkynningu
frá ráðuneytinu segir að slíkt sé vart
gerlegt þar sem námskeiðaframboðið
sé breytilegt á hvetjum tíma. í stað
þess er fólk hvatt til að afla sér frek-
ari upplýsinga hjá einstökum
fræðsluaðilum.
Upplýsingabæklinginn verður
hægt að fá hjá bókasöfnum, heilsu-
gæslustöðvum, fyrirtækjum, stéttar-
félögum, ýmsum fræðsluaðilum,
menntamálaráðuneytinu og fleiri að-
ilum.
Kr. 995,-
Rauðir
21212
ÖRUGGUR VINNUSTAÐUR
- GOTT STARFSUMHVERFI
Mikilvægir þættir sem sífellt
þarf aö vaka yfir.
Við eigum mikið í húfi íslendingar, hvernig þessi mál þróast. Gott
starfsumhverfi er einn meginþáttur umhverfisverndar, og engum _
blandast hugur um að hrein og tœr náttúra landsins ásamt fyrirtækj-
um, sem búin eru samkvœmt ýtrustu hreinlætis- og mengunarvarna-
kröfum, eru bestu vopnin þegar att er kappi við aðra framleiðendur
á heimsmörkuðum.
Öryggi á vinnustað og góður aðbúnaður starfsfólks eru eftirsóknar-
verð markmið jafnt launþega og vinnuveitenda.
Á þessu sviði eru mörg verkefni og stór sem bíða úrlausnar,
en efalaust hafafáir gert sér greinfyrir því, að unnt er að leysa þau
með langtíma fjármögnun.
í lögum Iðnlánasjóðs eru ákvœði, er heimila honum að lána í þessa
mikilvœgu uppbyggingu.
GÆTUM LANDSINS - GERUM HREINT.
IÐNLÁIMASJÓÐUR
ÁRMÚLA 13a, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 68 04 00