Morgunblaðið - 05.02.1991, Qupperneq 23
I
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRUAR 1991
23
Reuter
Brunnið flak Boeing-þotu flugfélagsins USAir skammt frá flugbrautinni.
Mistök í flugtumi talin or-
sök slyssins í Los Angeles
Los Angeles. Reuter.
SÉRFRÆÐINGAR, sem annast rannsókn slyssins á alþjóðaflugvellin-
um í Los Angeles aðfaranótt laugardags, hafa beðið flugumferðar-
stjóra vallarins um að gangast undir fíkniefnakönnun. Orsök slyss-
ins, sem kostaði 33 lífið, er sögð sú að einn af flugumferðarstjórun-
um gaf tveim vélum leyfi til að nota sömu brautina samstímis.
Talsmaður bandaríska flugör-
yggisráðsins, Jim Burnett, sagði í
gær að tvær ratsjár í flugturninum,
er fylgjast með flugbrautunum,
hefðu báðar verið óvirkar. Umrædd-
ur flugumferðarstjóri mun hafa
gefíð Boeing 737-300 þotu USAir-
flugfélagsins lendingarleyfí aðeins
70 sekúndum eftir að hann hafði
sagt lítilli skrúfuvél að nota sömu
braut til flugtaks. Stóra vélin lenti
ofan á þeirri minni, Metroliner-flug-
vél frá Skywest-félaginu. Þotan
rann síðan út af vellinum með hina
vélina undir búknum á hús þar sem
þotan brotnaði í tvennt og eldur
varð laus. Minni vélin tættist í sund-
ur við áreksturinn og allir í henni
fórust.
Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður:
Litháar segja skjótar
ákvarðanir Islendinga
vera lífsnauðsynlegar
ÞINGMANNANEFND Alþingis kom til landsins í gær úr opinberri
heimsókn hjá litháíska þinginu, og mun nefndin gera grein fyrir för
sinni á fundi utanríkismálanefndarú dag. Eyjólfur Konráð Jónsson,
sem sæti á í þingmannenfndinni segir að vonandi verði þar ákveðið
að taka upp stjórnmálasamband við Litháen, en hann segir að Lithá-
ar telji skjótar ákvarðanir Islendinga þar að lútandi vera lífsnauðsyn-
legar.
Eyjólfur Konráð sagði ljóst að
Litháar væru íslendingum geysi-
lega þakklátir fyrir einarða afstöðu,
en hann væri hræddur um að að-
dáun þeirra breyttist ef væntingar
þær sem íslendingar hefðu vakið
með þeim um stjórnmálasamband
drægjust á langinn. „Landsbergis
forseti telur að margar þjóðir
myndu feta í fótsporið þegar íslend-
ingar hafa ákveðið að taka upp
stjórnmálasamband við þá, þar á
meðal Norðmenn og Danir ásamt
fleiri ríkjum í Evrópu og öðrum
heimsálfum. Allir Litháar sem við
hittum, en þeir voru geysimargir
og meðal annars á 5-600 manna
fundi sem haldinn var með okkur
úti á landsbyggðinni, lögðu meginá-
herslu á að skjótar ákvarðanir af
okkar hálfu væru lífsnauðsynlegar
í bókstaflegri merkingu, því að Sov-
étherinn gæti hvenær sem er hert
tökin,“ sagði hann.
Eyjólfur Konráð sagði að í kvöld-
verðarboði á sunnudagskvöldið
hefðu æðstu ráðamenn Lettlands
sagt að þeir myndu fagna mjög
stjórnmálasambandi íslendinga við
Litháa, enda væru örlög Eystra-
saltsríkjanna allra komin undir af-
stöðu vestrænna ríkja og aðgerðum
af þeirra hálfu.
„Það fer ekkert á milli mála að
mikill ótti ríkir í Eystrasaltsríkjun-
um um frekari aðgerðir af hálfu
Sovétríkjanna, og átakanlegt var
að sjá hervirkin innanhúss og utan
við þinghúsið í Vilnu. Við héldum
blaðamannafund i þinghúsinu á
laugardagskvöldið og mætti Lands-
bergis þar er líða tók á fundinn,
en hann dvelur í þinghúsinu nótt
og dag. A múrnum nýja við þing-
húsið í Vilnu eru óteljandi áletranir
og tákn, og á einu skilti er teikning
af íslenska fánanum og áletrun-
inni: „Þakkir ísland". Vonandi verð-
ur það uppi til frambúðar,“ sagði
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ítalía:
Kommún-
istaflokk-
urinnalliir
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra:
Undirbúningi að stjómmála-
tengslum ekki lokið í Litháen
„VIÐ erum að reka þetta mál á þjóðréttarlegum grundvelli. “ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Ég sagði stjórnvöldum í Litháen að við myndum skoða
það vandlega hvort við gætum stigið það skref að taka upp formleg-
ar viðræður um sljórnmálasamband, þegar að samningurinn á milli
Litháens og Rússlands lægi fyrir, ekki aðeins sem viljayfirlýsing,
heldur sem staðfestur milliríkjasamningur," sagði Jón Baldvin.
„Það var loksins síðasta fímmtu-
dag sem sendinefndir Rússlands og
Litháens komu saman og kláruðu
textann að milliríkjasamningnum
og formenn sendinefndanna undir-
rituðu þann samning. Næst liggur
fyrir að Jeltsin og Landsbergis und-
irriti samninginn, en þá eru þeir
komnir á sama stigi og Eistland
og Lettland voru komin strax 13.
janúar. Þriðja stigið er svo staðfest-
ing þjóðþinga Eystrasaltslandanna
og þar ætti engin fyrirstaða að
verða. Það kann hins vegar að verða
spurning um staðfestingu Rúss-
neska þingsins. Það er auðvitað
stórpólitískt mál og getur hæglega
dregist eitthvað. Það hefur enginn
tryggt það að Jeltsin hafi þann
meirihluta sem þarf. Ég veit að
hann hefur tveggja atkvæða meiri-
hluta í þinginu, en þar er um sam-
steypu að ræða, sem ekki er víst
að haldi í öllum málum," sagði Jón'
Baldvin.
Hann sagði að Jeltsin hefði að
vísu lagt fyrir Rússneska þingið
stefnuyfírlýsingu, nánast eins og
þessa í Tallin, sem hefði verið sam-
þykkt sem þingsályktun í þinginu
með 117 atkvæðum, gegn 54 . Það
þyrfti hins vegar tvo þriðju hluta
atkvæða þingsins til þess að stað-
festa milliríkjasamning, þannig að
miðað við þetta vantaði enn níu
atkvæði.
Utanríkisráðherra sagði að
stjórnvöld í Litháen hefðu á því
fullan skilning að hann yrði að halda
á þessu máli á þann veg að það
yrði ekki skoðað sem ögrun við
Sovétríkin, til þess fallna að spilla
samskiptum. „Heldur yrði ég að
reka þetta mál á þjóðréttarlegum
grundvelli, eins og ég hef gert.“
Jón Baldvin sagði að þetta væru
forsendur fyrir því sem hann hefði
sagt og öllum aðilum væri fullkunn-
ugt um þær, utanríkismálanefnd,
sem öðrum. „Enda eru þetta for-
sendurnar fyrir þeim ákvörðunum
sem teknar voru í ríkisstjórn,“ sagði
utanríkisráðherra.
Jón Baldvin sagði að það skipti
auðvitað sköpum ef ljögur af aðild-
arríkjum Sovétríkjanna, Rússland,
Litháen, Eistland og Lettland gera
með sér samninga sem hægt er að
segja að hafi verið staðfestir á lýð-
ræðislega kjörnum þjóðþingum.
Slíkir samningar opni að sjálfsögðu
fyrir frekari milliríkjasamninga,
eins og milli íslands og þessara
ríkja.
„Sendinefnd þingsins sem fór í
heimsókn til þingsins í Vilnius fór
ekki til þess að semja fyrir hönd
framkvæmdavaldsins. Eyjólfur
Konráð Jónsson gerir því máli sem
við væntanlega báðir berum fyrir
bijósti engan greiða að vera með
órökstuddar getsakir og dylgjur.
Öllum aðilum málsins var fullkunn-
ugt um forsendur þess, strax frá
því að við ræddum við Landsbergis
og aðstoðarmenn hans í Vilnius
fyrir 20. janúar. Málið er í vinnslu.
Eg hef verið í stöðugu sambandi
við utanríkisráðherra Litháen og
það er enginn ágreiningur og eng-
inn misskilningur um það hvað þarf
að liggja fyrir áður en við getum
lokið málinu. Getsakir um annað
eru málinu til óþurftar,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra.
Utanríkisráðherra lét þessi orð
falla þegar orð Eyjólfs Konráðs
Jónssonar frá því í laugardagsblaði
Morgunblaðsins voru borin undir
hann. Eyjólfur Konráð sagði þar
meðal annars: „Þetta eru aldeilis
fréttir fyrir mig og fyrir þá, að það
standi upp á Litháa í þessu máli.“
Rimini. The Daily Telegraph, Reuter.
STÆRSTI kommúnistaflokkur
Vesturlanda leið undir lok á
sunnudag og á rústum hans
fæddist Lýðræðisflokkur vinstri-
manna á Italíu.
Samþykkt var á landsþingi
flokksins, sem haldið var í Rimini,
að breyta nafni og stefnuskrá hans
í kjölfar hruns kommúnismans í
Austur-Evrópu. Þar með heyrði
einnig Evrópu-kommúnisminn svo-
kallaði í raun sögunni til.
Breytingarnar á flokknum gengu
þó ekki hljóðalaust fyrir sig. Sex
þingmenn lýstu til að mynda yfir
því á þinginu að þeir hygðust stofna
nýjan flokk, sem kenndur yrði við
kommúnisma.
Nokkrir ræðumenn gátu ekki
tára bundist er þeir andmæltu
breytingunum og fylgismönnum
þeirra vöknuðu einnig um augu.
„Hugsjónir kommúnista hrundu
ekki með Berlínarmúrnum. Ég heí
ekki orðið var við nein mistök,“
sagði Armando Cossutta, þingmað-
ur og málsvari þeirra sem telja
breytingarnar svik við fortíð flokks-
ins.
Achille Occhetto, leiðtogi flokks-
ins, fékk ekki tilskilinn meirihluta
atkvæða til að ná endurkjöri sem
leiðtogi flokksins í gær. Hann vai
einn í framboði en skorti átta at-
kvæði til að ná kjöri. „Finnið ykkur
annan leiðtoga," sagði Occhetto er
úrslitin voru kynnt, en talið var þó
líklegt að hann gæfi kost á sér á
ný er gengið verður aftur til at-
kvæða í dag.
BARNASKÓR • BARNASKÓR • BARNASKÓR • BARNASKOR
ÚTSALA Á BARNASKÓM
kr. 350,- r ■» r
áður kr. 2.485,- nú frá kr. 590,- Sm.cl S KL02T
Skólavörðustíg 6b, sími 622812.
25-70% dfsláttllf r :