Morgunblaðið - 05.02.1991, Side 31
MÖGWíé^j|fei^ÍfeMíÐÁ<}ít^5Í¥feÖ^M'ÍIÍ|-.
m
FARVIÐRI GENGUR YFIR LANDIÐ
Morgunblaðið/Júlíus
„Það var meiri veltingar á Herjólfi þegar við fórum með honum
til Vestmannaeyja fyrir tveimur árum og sú ferð tók 5 ldukk-
utíma,“ segja strákarnir í 4. flokki Víkings um ferð Akraborgar
til Reykjavíkur á sunnudag. Talið frá vinstri: Þröstur Helgason,
Stefán Geir Arnason, Hjörtur Örn Arnarson, Gunnar Stefánsson
og Helgi Eysteinsson. A innfelldu myndinni er Þorvaldur Guð-
mundsson, skipstjóri á Akraborginni.
„Kókvél flaug yfir matsal-
inn og stólar homa á milli“
Mesta hvassviðri sem ég hef lent í
á Akraborginni, segir skipstjórinn
„ÞETTA er mesta hvassviðri, sem ég hef lent í á Akraborginni en
ég er búinn að vera með skipið í 17 ár,“ segir Þorvaldur Guðmunds-
son, skipstjóri á Akraborginni, um ferð skipsins frá Akranesi til
Reykjavíkur á sunnudag. Þorvaldur fullyrðir að Akraborgin hefði
slitið sig frá bryggjunni á Akranesi ef skipinu hefði ekki verið siglt
þaðan á sunnudag. Um 70 fjórtán ára gamlir strákar fóru þá með
Akraborginni til Reykjavíkur en þeir kepptu á handboltamóti á
Akranesi um helgina. Þorvaldur segir að þeir hafi ekki verið í
neinni hættu um borð í skipinu. „Það var kröpp vindbára en ekki
mikill undirsjór og vindurinn hélt skipinu niðri.“
Um 70 strákar í 4. flokki
Víkings, Breiðabliks, Vals, HK og
Reynis í Sandgerði fóru með Akra-
borginni til Reykjavíkur á sunnu-
dag. Skipið var tvær klukkustundir
og 40 mínútur á leiðinni en vana-
lega tekur ferðin um eina klukku-
stund. „Kókvélin flaug þvert yfir
matsalinn, brothljóð heyrðust úr
eldhúsinu, stólar flugu homanna á
milli, rusíafötur ultu um koll og
margir farþeganna ældu eins og
múkkar," segja nokkrir félagar í
Víkingi, sem voru í þessari ferð.
„Okkur var sagt um hádegisbilið
á sunnudag að best væri að koma
strákunum um borð í Akraborgina,
þar sem menn héldu að veðrið
myndi versna til muna. Trúlega var
það maður frá Akraborg, sem sagði
okkur þetta. Ég held að þetta hafí
verið ævintýraferð fyrir strákana á
vissan hátt,“ segir Bjarki Sigurðs-
son þjálfari 4. flokks Víkings.
Kristín Rútsdóttir, móðir eins af
strákunum í þessari ferð Akraborg-
ar, segist vera mjög undrandi á því
að handboltaliðin skuli hafa verið
send með Akraborginni til
Reykjavíkur. „Veðrið var mjög
slæmt klukkan hálf tvö, þegar ég
heyrði það fyrst í útvarpinu að
strákarnir hefðu verið sendir með
Akraborginni," segir Kristín. Hún
segir að Víkingsliðið og Breiða-
bliksliðið hafi farið á tveimur bílum
frá Reykjavík til Akraness snemma
á sunnudagsmorgun. „Þá strax var
orðið mjög hvasst í Hvalfirðinum
og við vorum um tvo klukkutíma
á leiðinni," segja strákarnir í
Víkingi.
Þeir segja að vegna veðurs hafí
ekki verið hægt að aka aftur til
Reykjavíkur um Hvalfjörðinn. Ekki
hafi heldur verið hægt að koma
bílunum um borð í Akraborgina.
„Sumir handboltastrákanna
hringdu heim til sín úr farsíma um
borð í Akraborginni til að láta vita
af sér en aðrir voru of sjóveikir til
að hringja. Lögreglan tók á móti
okkur í Reykjavík og við vorum
sendir í leigubflum heim.“
„Við vissum að handboltastrák-
amir færu með Akraborginni á
sunnudag. Hins vegar skiptum við
okkur aldrei af því hvort Akraborg-
in siglir eða ekki eða hveijir fara
með henni. Það er skipstjórans að
meta hvort ráðlegt er að sigla skip-
inu,“ segir Brandur Fróði Einars-
son, varðstjóri í lögreglunni á Akra-
nesi, en hann var á vakt á sunnu-
dagsmorgun.
„Við hringdum í útvarpið og
báðum um að því yrði komið á
framfæri að strákarnir væru famir
með Akraborginni til Reykjavíkur,"
segir húsvörðurinn í íþróttahúsinu
við Vesturgötu á Akranesi. Hann
segir að keppendur á handbolta-
mótinu hefðu getað gist aðfaranótt
mánudags í íþróttahúsinu og æsku-
lýðsheimilinu á Akranesi. Hins veg-
ar væri tíkallasími um borð í Akra-
borginni, sem strákarnir hefðu get-
að notað til að hringja heim til sín.
Tvær byggðalínur urðu óvirkar:
Rafmagnstniflanir
urðu um allt landið
A annað hundrað raflínustaurar
brotnuðu, þar af margir nýlegir
ÁSTANDIÐ í rafmagnsmálum var enn bágborið víða um land í gær-
morgun og straumlítið frá byggðalínu Landsvirkjunar á Austurlandi,
Norðurlandi og víða vestanlands fram undir hádegi. Rafmagn var
skammtað í Reykjavík í fyrrinótt og gærmorgun. Möstur í Búrfellslínu
og og Brennimelslínu að aðveitustöðinni á Geithálsi brotnuðu í óveðr-
inu á sunnudag og hefur Landsvirkjun aðeins eina línu frá Þjórsár-
og Tungnársvæðinu til Faxaflóasvæðisins. Viðgerðarmenn unnu að
viðgerðum í gær og að sögn Guðmundar Helgasonar, rekstrarstjóra
Landsvirkjuijar, tekur sólarhring að gera við bilanirnar. Truflanir
voru á byggðalínunni fram eftir degi í gær en raforkudreifing var þó
víðast. hvar að komast í sæmilegt horf um miðjan dag.
Það var kl. 9.15 á sunnudags-
morgun sem truflanir hófust og fór
rafmagn tií ÍSAL út um tíu leytið
og á höfuðborgarsvæðinu kl. 10.20.
en þar var að mestu leyti straum-
laust fram til kl. 17.20. Á Reykja-
nesi fékkst rafmagn víða frá díselvél-
um.
Möstur brtnuðu bæði í Gnúpveija-
hreppi og skammt frá Brennimel.
Það voru einkum veður og selta sem
ollu rafmagnsleysinu fyrir norðan og
austan í gær, en að sögn Guðmund-
ar var ekki talið að um stórvægileg-
ar bilanir væri að ræða þar. Hann
sagði óvíst hversu miklu tjóni Lands-
virkjun varð fyrir af völdum veðurs-
ins.
50 staurar brotnuðu á
Suðurlandi
Á Suðurlandi er talið að um 50
starar hafí brotnað í óveðrinu. Að
sögn Örlygs Jónassonar, svæðis-
stjóra RARIK á Suðurlandi, var unn-
ið að viðgerðum alla aðfararnótt
mánudags og í gærdag, óg var þá
straumur að komast á smám saman.
„Það sem hefur háð okkur er tak-
mörkun á afhendingu frá Landsvirkj-
un, þar sem við fengum ekkert raf-
magn frá Sogsvirkjunum nema til
Hveragerðis. Varð því að flytja raf-
magn frá Búrfelli allt vestur til Þor-
lákshafnar, sem hefur gengið með
truflunum," sagði hann.
Truflanir á Vesturlandi
í gærmorgun var enn straumlaust
í Dölum vegna straumleysis frá
byggðalínunni. Nokkrir bæir á Skóg-
arströnd, Eyrarsveit voru straum-
lausir fram eftir degi þar sem raflínu-
staurar höfðu brotnað, að sögn
Ágeirs Þórs Ólafssonar, rafveitu-
stjóra í Stykkishölmi. Víða var
straumlaust í Borgarfjarðarhéraði af
og til vegna seltu.
Rafmagn fór af á Snæfellsnesi kl.
14.30 á sunnudag og var rafmagns-
laust víðast hvar fram á mánudag.
Ásgeir sagði að alvarlegasta bilunin
hefði orðið á 66 kílóvolta línu frá
Stykkishólmi til Grundarfjarðar en
þar brotnuðu þijár staurastæður við
Berserkseyri í Eyrarsveit og var
díselvaraflstöð keyrð á Grundarfirði
á sunnudag og í gær, en M gekk ,á
með hvössum éljum og vareKitt um
vik við viðgerðir. Ásgeir sagðist
áætla að 25 - 30 staurar hefðu brotn-
a.ð á veitusvæðinu í veðurofsanum.
Miklar skemmdir á
Norðurlandi vestra
Á Norðurlandi vestra brotnuðu um^,
30 staurar í óveðrinu. Haukur Ás-
geirsson, rafmagnsveitustjóri, á
Blönduósi, sagði að miklar raf-
magnstruflanir hefðu verið í gær og
fyrradag á öllu svæðinu. „Við höfum
getað keyrt díselvélar á Hofsósi,
Sauðárkróki, Skagaströnd, Blöndu-
ósi og Hvammstanga. Þessir staðir
hafa haft rafmagn að mestu leyti
allan tímann, en truflanir voru mikl-
ar í sveitunum, og er Vatnsnesið að
vestanverðu að stærstum hluta
straumlaust," sagði hann.
Veður fór versnandi þegar leið á
daginn í gær og erfitt að sinna við-
gerðum en þeim var að ljúka um
hádegi. Byggðalínan frá Landsvirkj-
un kom inn skömmu fyrir hádegi en
með truflunum.
Sagði Ásgeir að línur hölluðust
verulega og erfitt væri að meta tjón-
ið en margir staurar sem félíu í
óveðrinu eru sömu staurar og reistir
voru eftir veðurofsann sem gekk yfir
norðurland í byrjun janúar.
Spennir bilaði í Kröflu
Straumur frá byggðalínu Lands-
irkjunar á Austurlandi fór út kl.
11.15 á sunnudag. Að sögn Sigurðar
Eymundssonar, svæðisstjóra
RARIK, voru dísilrafstöðvar keyrðar
á fjörðunum fram yfir hádegi þegar*
straumur komst aftur á frá Lands-
virkjun. í gærmorgun fór straumur
af byggðalínunni í tvígang fyrir aust-
an. Spennir bilaði í Kröfluvirkjun og
var búist við einhveijum áframhald-
andi truflunum frá dreifíkerfi Lands-
virkjunar.
Vesturlandslína óvirk
Miklar skemmdir á Landspítalanum:
Endurnýjun talin
kosta 30 milljónir
MIKLAR skemmdir urðu á Landspítalanum í veðurhamnum á sunnu-
dag sem geta kostað spítalann tugi milljóna króna þegar upp er
staðið. Á fæðingardeild fauk 250 fermetra álklæðning af þakinu og
braut glugga á tveimur deildum. Mest varð þó tjónið vegna steinflísa
sem fuku af þaki aðalbyggingar spítalans en þær eru frá árinu 1930
og ekki fáanlegar í dag. Þarf að endurnýja alla klæðningu þaksins,
sem mun kosta 22 milljónir króna, að sögn Ingólfs Þórissonar, fram-
kvæmdastjóra tæknisviðs Landspítalans.
Alls brotnuðu 20 rúður á Lands- tæmd. Sagði Ingólfur að nokkuð
pítalanum í storminum, tré rifnuðu
upp á lóðinni og flaggstangir og
girðingar brotnuðu.
Ingólfur sagði nauðsynlegt að
endumýja allt þak fæðingardeildar-
innar og er áætlað að það kosti 2
milljónir króna. „Við áætlum að
annar kostnaður á lóð og glugga-
rúðum muni nema 1.2 milljónum,“
sagði hann.
Þegar veðurofsinn stóð sem hæst
þurfti að flytja sjúklinga -úr stofum
áveðursmegin og var ein deild
hafi borið á ótta meðal sjúklinga.
Voru björgunarsveitarmenn að
störfum allt til kl. 22 á sunnudags-
kvöld.
Á Kleppspítala urðu einnig tals-
verðar skemmdir í suðaustanáttinni
sem brast á á sunnudagsmorguninn
þegar þakklæðning fauk af þremur
húsum og er það tjón áætlað upp
á hálfa milljón kr. Auk þessa fauk
70 fermetra álklæðning af þotta-
húsi ríkisspítalanna á Tunguhálsi
og er tjón þar áætlað 200 þús. kr.
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson.
Bílarfuku um kollá bílastæði
Tveir bílar fuku um koll á bílastæði við fjölbýlishús að Engihjalla á
sunnudag. Björgunarmenn bundu þennan bíl við húshliðina þar til
veðrinu slotaði en þá veltu þeir honum á hjólin aftur.
Vesturlína Landsvirkjunar til
Vestfjarða fór út á ellefta tímanum
á sunnudag. Að sögn Jakobs Ólafs-
sonar, deildarstjóra hjá Orkubúi
Vestfjarða, var víða straumlaust
fram eftir sunnudegi þar sem orka
frá Mjólkárvirkjun féll út um tíma
vegna bilunar í tengivirki en dísil-
stöðvar voru einnig keyrðar. *
í gær hafði ekki tekst að koma á
sambandi frá Landsvirkjun við Vest-
firði en Jakob sagði að þrátt fyrir
það hefði ekki þurft að grípa til
skömmtunar á firðina. Straumlaust
var til Súðureyrar og einnig voru
línur frá ísafirði til Súðavíkur og
Bolungarvíkur úti í gær. Hann sagði
að margir staurar hefðu fallið í
óveðrinu og einnig væru skemmdir
á staurum sem þó væru uppistand-
andi.
Truflanir fyrir norðan
Straumur frá byggðalínu Lands-, -
virkjunar féll út á Norðurlandi eystra
fýrir hádegi á sunnudag og voru
rafmagnstruflanir fram eftir sunnu-
degi og í gærmorgun vegna seltu á
línum. Að sögn Ingólfs Árnasonar,
svæðisstjóra rafmagnsveitna ríkisins
á Akureyri, urðu aldrei stórvægilegar
rafmagnstruflanir á svæðinu og ekki
mikið um skemmdir á drefikerfinu'-
vegna veðurs.