Morgunblaðið - 04.04.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.04.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRIL 1991 17 gang að mörkuðum gegn því að veita öðrum greiðari aðgang að fiskimiðunum gegn vægu gjaldi. Slík tilhögun gæti orðið til þess að veita íslenzkum útgerðarmönnum holla samkeppni. Það er vafasamt, hvort aðild að Evrópubandalaginu yrði íslenzkum fiskiðnaði nokkur íyftistöng. Fiskverð erlendis og á Islandi bendir til þess, að íslenzkur fiskiðnaður sé ekki sérlega sam- keppnishæfur gagnvart fiskiðnaði bandalagslandanna. Aðild að Evr- ópubandalaginu yrði sennilega til mestra hagsbóta fyrir íslenzkan iðnað sem framleiðir vörur í þágu sjávarútvegs eða veitir honum þjón- ustu, hvort sem er á innlendum eða erlendum markaði. Ilöfundur er prófessor í fiskihagfræði við Verslunarháskóla Noregs í Björgvin en jafnframt gistikennari við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Islands. ■ SAMEIGINLEGUR framboðs- listi Þjóðarflokks og Flokks mannsins til Alþingiskosninga í Reykjaneskjördæmi 20. apríl 1991 hefur nú verið ákveðinn. Efstu sæt- in skipa: 1. Þorsteinn Sigmunds- son, bóndi, 2. Halldóra Pálsdóttir, markaðsfulltrúi, 3. Jón Á. Eyjólfs- son, húsasmiður, 4. Sigrún Bald- vinsdóttir, skrifstofumaður, 5. Eiríkur Hansen, matreiðslumaður. ■ SAMEIGINLEGUR framboðs- listi Þjóðarflokksins og Flokks mannsins í Reykjavík 1991 til Alþingiskosninga í Reykjavík 20. apríl 1991 hefur nú verið ákveðinn. Efstu sæti listans skipa: 1. Pétur Guðjónsson, stjórnunarráðgjafi, 2. Áshildur Jónsdóttir, markaðs- stjóri, 3. S. Kristín Sævarsdóttir, skrifstofumaður, 4. Ragnar Gunn- arsson, framkvæmdastjóri, 5. Erla Kristjánsdóttir, tækniteiknari, 6. Magnús Þór Sigmundsson, tón- listarmaður. ■ GRÆNT FRAMBOÐ býður nú í fyrsta skipti fram til Alþingiskosn- inga. Efstu sæti framboðslistans í Reykjavíkurkjördæmi fyrir kosn- ingarnar í ár skipa eftirfarandi: 1. Oskar Dýrmundur Olafsson, há- skólanemi, 2. Sigrún María Krist- insdóttir, nemi, 3. Jón Tryggvi Sveinsson, markaðsfulltrúi, 4. Hjördís B. Birgisdóttir, ritari, 5. Stefán Bjargmundsson, tollvörð- ur. ■ SAMEIGINLEGUR framboðs- listi Þjóðarflokks og Flokks mannsins til Alþingiskosninga í Vesturlandskjördæmi þann 20. apríl 1991 hefur nú verið ákveðinn. 5 efstu sætin skipa: 1. Helga Gísla- dóttir, kennari, 2. Sigrún Halliw- ell Jónsdóttir, húsmóðir, 3. Þorgrímur E. Guðbjártsson, bú- fræðingur, 4. Þóra Gunnarsdóttir, húsmóðir, 5. Sveinn Víkingur Þór- arinsson, kennari. Læiiu til ai veria Naprapat — nútímalegt starf Naprapati er algengasta sérmeðferðin, sem beitt er þegar reynt er að lækna óþægindi í hrygg, liðamótum og vöðvum með höndum. Læknisfræðilega efnið: Líffærafræði, líftækni, lífefnafræði, lífeðlis- fræði, taugasjúkdómafræði, matvælafræði, bæklunarsérfræði, meinafræði. Sjúkraþjálfun: Rafsegulfræði, liðamótafræði, nudd, teygjur. Lækning með höndum (manuell inedicin): Sjúkdómsgreining, tæknileg lífeðlisfræði, hag- kvæm líffærafræði, losunar- og hreyfingatækni. íþróttalæknisfræði: Íþróttalífeðlisfræði, íþróttasálarfræði, „tejpning". í kennaraliðinu eru dósentar, læknar, háskóla- kennarar og doktorar í naprapati. Menntunin samsvarar 160 p. Menntun, sem leiðir til sjálf- stæðs og mikilverðs starfs. Observatoriegatan 19-21, 113 29 Stockholm Tel. 08-16 01 20 GRAALINANOG VIÐVIKAÞJÓNUSTAN -Námskeið fyrir sjálfboðaliða- Rauði kross íslands, Félag eldri borgara, Soroptimistar og Bandalag kvenna í Reykjavík gangast fyrir námskeiði fyrir þá sem hafa áhuga á að veita eldri borgurum aðstoð. Um er að ræða nýja tegund sjálfboðaliða- þjónustu, síma- og viðvikaþjónustu. Með síma- þjónustunni gefst eldri borgurum kostur á að ræða við sjálfboðaliða í trúnaði, leita upplýsinga og/eða óska aðstoðar t.d. vegna léttra viðgerða og snúninga. Viðvikaþjónustan felur í sér aðstoð við ýmis smáviðvik eins og minni viðgerðir og sendiferðir. Ákveðið hefur verið að gefa þessari þjónustu nafnið Gráa línan og verður hún fyrst í stað opin einu sinni í viku eftir kl. 17. Námskeið fyrir væntanlega sjálfboðaiiða verður haldið laugardaginn 6. apríl í húsakynnum Félags eldri borgara að Hverfisgötu 105 í Reykjavík. Skráning og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu RKÍ í síma 26722. Vinsamlega skráið ykkur fyrir kl. 17 föstudaginn 5. apríl. (qo, FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ RAUÐA KROSS ÍSLANDS Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - sími: 91-26722 HIRTU TENNURNAR VEL — en gleymdu ekki undirstööunni! ýmsum B - vítamínum og gefur zink, magníum, natríum og fleiri efni sem eru líkamanum nauðsynleg. MJÓLKURDAGSNEFND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.