Morgunblaðið - 04.04.1991, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRIL 1991
39
Guðmundur á margan hátt á undan
sinni samtíð og kom fram með
ýmsar nýjungar svo sem breytingar
á vinnutilhögun og styttingu á
vinnutíma. Hann hafði hug á að
festa kaup á eignarhluta móður
sinnar og systkina í Valdastöðum
en þau áform gengú ekki eftir. Að
svo komnu máli seldi Guðmundur
bústofninn og lagði niður búskap.
Árin 1943-45 sá Guðrún um
heimavistina við barnaskólann á
Valdastöðum. Guðmundur fékk
starf í Reykjavík hjá Sláturfélagi
Suðurlands en dvaldi heima um
helgar. Hann var kunnur hjá Slátur-
félaginu því þau Guðrún höfðu
stundum áður farið þangað saman
til starfa á haustin. Á þessum árum
hugleiddu þau möguleikann á því
að flytja búferlum til Reykjavíkur
en af því varð ekki. Þess í stað
byggðu þau hús í landi Valdastaða
og kölluðu Hallkelsstaði. Þangað
fluttu þau árið 1945. Hafa verður
hugfast að síðari heimsstyijöldin
geysaði og þessi ár voru tími mik-
illa breytinga og óvissu í íslensku
þjóðlífi. Þetta voru afdrifarík ár
fyrir Guðmund og Guðrúnu.
Það var svo árið 1947 að þau
létu loks verða af því að flytja til
Reykjavíkur. Ekki er hægt að segja
að þau hafi komið til höfuðstaðarins
með tvær hendur tómar því þeim
hafði orðið fjögurra barna auðið.
Þau eru: Þorkell Gunnar innanhús-
arkitekt og kennari við Iðnskólann
í Hafnarfirði og Reykjavík, Aðal-
heiður, rekur dagheimili í Kópa-
vogi, gift Einari Fjölni Stefánssyni
skólastjóra Tónlistarskóla Kópa-
vogs, og Halldór, framkvæmda-
stjóri auglýsingastofunnar Hvíta
húsið.
Á þessum árum var húsnæðis-
ekla mjög mikil í Reykjavík og örð-
ugt að verða sér úti um Ieiguhús-
næði. Það tókst að lokum en í því
var lítil framtíð. Það mun hafa ver-
ið um 1960 að þau Guðmundur
réðust í að festa kaup á íbúð. Guð-
mundur stundaði ýmis störf á þess-
um árum og Guðrún vann við
prjónaskap til að drýgja tekjurnar
eins og hún hafði löngum gert.
Er Guðrún var 42 ára 1956, hóf
hún störf á saumastöfu Anderson
& Laut og var lengst af verkstjóri.
Árið 1969 andaðist Guðmundur
aðeins sextugur að aldri og var það
mikið áfall. Guðrún starfaði hjá
Anderson & Laut í 23 ár eða til
1979 er fyrirtækið hætti starfsemi.
Hún var þá 65 ára. Guðrúnu lynti
vel við fólk. Hún var mikill manna-
sættir og var hollráð stúlkunum
sem unnu undig hennar stjórn á
saumastofunni. Óhætt er að full-
yrða að hún ávann sér traust og
virðingu allra þeirra er hún starfaði
með. Eftir að störfum hjá Anderson
& Laut lauk annaðist hún breyting-
ar á fatnaði fyrir herrafataverslun-
ina Ragnar um 7 ára skeið. Þær
voru ófáar flíkurnar sem hún saum-
aði eða lagfærði á barnabörnin og
að sjálfsögðu var fullt tillit tekið til
tískunnar hveiju sinni.
Eins og áður sagði þá var um-
gengni við bækur stór þáttur í lífi
Guðrúnar. Hún hafði kröfuharðan
bókmenntasmekk _ og sérstaka
ánægju af ljóðum. Á þeim árum sem
hún vann á saumastofunni eða um
1970 festi hún kaup á bókbands-
tækjum og batt inn bækur í tóm-
stundum sínum í um 20 ár og nut-
um við í ijölskyldunni góðs af. Hún
varð sér oft úti um fágætar bækur
okkar fremstu skálda og gaf mörg-
um dýrgripnum nýtt iíf í nýjum
búningi. Handbragð bókbandsins
leynir sér ekki. Það var unnið af
þeirri vandvirkni, smekkvísi og alúð
sem einkenndi allt sem hún tók sér
fyrir hendur.
Nú þegar þetta er skrifað leitar
hugurinn til baka. Ég minnist þess
þegar Arndís kynnti mig fyrir for-
eldrum sínum hve vel mér leið í
návist þeirra. Ég var varla kominn
inn úr dyrunum á litlu íbúðinni á
Melhaga þegar Guðmundur tók að
segja mér frá Söngfélagi verkalýðs-
samtakanna en hann hafði sungið
í kórnum. Síðan bauð hann mér í
skák meðan beðið var eftir kaffi.
Skákinni lyktaði nú með stórmeist-
arajafntefli því sennilega hefur
hann ekki talið rétt að snarmáta
tilvonandi tengdason svona í fyrstu
umferð.
Ég veitti því athygli hve vandað-
ur bókakostur setti mikinn svip á
þetta menningarlega heimili. Þar
var alla tíð gestkvæmt og líflegt
og umræður um þjóðfélagsmál jafn-
an ofarlega á baugi. Segja má að
heimili tengdaforeldra minna hafi
verið eins konar miðstöð ættar-
móts. Þessu ættarmóti var síðar
haldið áfram á Reynimelnum í eld-
húskróknum hjá tengdamömmu og
nú er því lokið.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast tengdamóður minnar,
Helgu R. Sigurbjörnsdóttur, er lést
á heimili sínu 22. mars sl.
Strax við fyrstu kynni tók Helga
mér og dóttur minni, Báru Björk,
vel og reyndist Helga henni alla tíð
vel sem amma. Helga var alveg
sérlega ósérhlífin og vinnusöm
kona. Hún sat aldrei auðum hönd-
um og eftir langan og erfiðan vinnu-
dag tók hún gjarnan í pijóna. Allt-
af var hún tilbúin að hjálpa öðrum
og þau voru ófá skiptin sem hún
bauð okkur fjölskyldunni að dvelj-
ast hjá sér er við komum heim í
jóla- eða sumarfrí. Eitt gott dæmi
um hvernig Helga var er að hún
hafði komist að því hver var minn
Guðrúnu var ekki eðlislægt að
hugsa um liðna tíð. Aftur á móti
var framtíðin henni hugstæð. Hún
var í essinu sínu í snörpum umræð-
um um pólitík, var afdráttarlaus í
skoðunum og gat verið snögg upp
á lagið. Hún fylgdist vel með því
mikla þjóðfélagslega umróti og
átökum sem átt liafa sér stað i
veröldinni og bar umhyggju fyrir
velferð fólks í stríðshijáðum heimi.
Kannske var það einmitt þessi virka
hugsun sem varð til þess að mér
fannst Guðrún aldrei vera öldruð.
Guðrún tengdamóðir mín var fríð
sýnum og svipmikil og heilsteyptur
persónuleiki. Hún var seintekin
þeim er henni voru ókunnugir en
hafði mikla hlýju og umhyggju að
gefa þeim er hún veitti vipáttu sína.
Guðrún gerði ekki kröfur fyrir sjálfa
sig en var örlát við aðra. Hörð
lífsbarátta kenndi henni að taka því
sem að höndum bar af raunsæi og
æðruleysi. Sá eiginleiki kom greini-
lega fram í veikindum hennar og
ekki hvað síst sú mikla reisn og
myndugleiki sem hún hafði til að
bera og einkenndi allt hennar líf.
Sjálf átti hún miklu barnaláni að
fagna og fjölskyldan var stór. Hún
eignaðist 13 barnabörn og
langömmubörnin urðu 12.
Ég var svo lánsamur að eignast
tengdamóður sem varð mér mjög
nákomin. Minningin um hana er
dýrmæt. Minningin um ástríka
móður, ömmu og langömmu. Minn-
ingin um tengdamóður sem hugsaði
sífellt um velferð fjölskyldu sinnar,
fjölskyldunnar sem var henni allt.
Er nú skarð fyrir skildi. Minning-
in um Guðrúnu veitir styrk í sárum
söknuði.
Fjölnir Stefánsson
í dag er amma kvödd, hún amma
Guðrún. Ekki aðeins amma heldur
uppáhaldsréttur og í hvert skipti
sem við komum til íslands eldaði
hún þennan rétt, þrátt fyrir misjafn-
ar undirtektir annarra heimilis-
manna.
Fyrir rúmlega einu ári greindist
sá sjúkdómur er dró Helgu til
dauða, langt um aldur fram. Frá
fyrsta degi var hún harðákveðin í
að hún skyldi hafa betur. Hún barð-
ist hetjulega en smám saman fóru
kraftarnir þverrandi.
Eiginmaður hennar Gunnar
Heiðdal og dóttirin Dagmar stóðu
sig sem hetjur í umönnun sinni og
fyrir þeirra tilstilli og dugnað fékk
Helga að vera heima þar til yfir
lauk.
einnig kær vinur sem alltaf var
gott að koma til hvort sem var í
gleði eða sorg. Hún talaði við okkur
og leiðbeindi af ást og skynsemi svo
fljótt var skynjað af ungri barnssál
að þai' áttum við málsvara. Klögur
voru ekki ömmu að skapi en stuðn-
ingur við það sem hún taldi rétt
og var órög við að láta í ljós mein-
ingu sína. Fjölskyldan stækkaði ört
og oft var glatt á hjalla hjá ömmu
og afa og seinna ömmu. Fjörugar
umræður og mikið hlegið oft og
tíðum og þá stækkuðu augu og
eyru smávaxinna gesta.
Oftast var málefnið hvernig ætti
að breyta ranglátum heimi í réttlát-
an, ekki voru allir sammála um
hvernig; en hægt var það, með bar-
áttu. Ekki lét amma sitt eftir liggja
í umræðunni, enda með góða
kímnigáfu og ákveðnar skoðanir.
Svo voru borðaðar heimsins bestu
flatkökur sem hún hafði bakað eft-
ir fullan vinnudag og vat'ð að veislu-
borði. Þótti henni það ekki mikið.
Svona var amma, full af orku
og fylgdist alltaf vel með öllu sem
gerðist í þjóðlífi, bókmenntum og
ekki síst hvernig ljölskyldunni
vegnaði. Hún var ung í anda og
útliti, fordómalaus og hress og því
alltaf skemmtilegt að ræða við
hana, enda stöðugur gestagangur.
Margar góðar stundir áttum við
í eldhúskróknum á Reynimelnum
og búum við að þeim andlega styrk,
fjársjóði sem hún var svo ónísk á
að veita.
Vegurinn var ekki alltaf auð-
genginn hjá elsku ömmu, en hún
dró þyrnana út hjá samferðafólki
hún og hlúði að. Við fengum að
fylgja henni dálítinn spöl. Við þökk-
um samfylgdina, við gieymum
henni aldrei.
Guðrún Ágústa Þorkelsdóttir,
Ingveldur Þorkelsdóttir
Ég vil þakka Heigu fyrir allt og
bið góðan Guð að blessa hana.
Hulda Hauksdóttir
Nú er amma okkar dáin. Með
henni er horfin síðasta manneskjan
í okkar fjölskyldu sem var af þeirri
kynslóð sem ólst upp við kröpp kjör
og upplifði þær mestu breytingar
sem orðið hafa í íslensku samfélagi.
Amma 'okkar naut skammrar
vistar á skólabekk en hún var eigi
að síður víðlesin og vel að sér á
mörgum sviðum. Hún var mjög
sjálfstæð kona og hafði ákveðnar
skoðanir á öllum hlutum og þá ekki
síst þjóðfélagsmálum. Skoðanir
hennar einkenndust jafnan af heil-
brigðri skynsemi og því hve jarð-
bundin hún var.
Hún amma okkar var einstaklega
örlát og gjafmild gagnvart okkur
krökkunum en gerði engar kröfur
fyrir sjálfa sig. Hún var góð heim
að sækja og það var oft glatt á
hjalla í eldhúskróknum á Reyni-
melnum. Það var alltaf vel veitt hjá
ömmu og við höfðum oft á orði
hvað allt væri sérstaklega gott sem
hún útbjó. Fyrir okkur byrjuðu jólin
í eldhúsinu hjá ömmu á aðfangadag
þegar verið var að keyra út pakka
og stórfjölskyidan hittist og amma
veitti hangikjöt og flatkökurnar
sem hún bakaði sjálf og ávallt voru
ómissandi ef eitthvað stóð til.
Fyrir rúmu ári veiktist hún af
ólæknandi krabbameini en hún
reyndi samt sem áður að halda í
fyrri lífsvenjur sínar eins og að fara
daglega í bæinn. Hún amma var
heilsteypt manneskja og hafði yfir
sér mikla reisn sem hún hélt til
dauðadags.
Nú er leiðir skilja fyllumst við
þakklæti fyrir öll árin sem við áttum
með henni. Minningin um góða "
ömmu lifir áfram með okkur.
Ingibjörg, Þorbera og
Brynhildur Fjölnisdætur.
SILVER REED
SKÓLARITVÉI.AR
Þægilegar í notkun, íslenskur
leiðarvísir og sérstaklega hljóðlatar.
Sjálfvirk leiðrétting, feitletrun
og undirstrikun.
5 íslensk letur.
SKRIFSTOFUVÉLAR SUND HF
NÝBÝLAVEGI16 - SÍMI 641222
-tækni og þjónusta á traustuin grunni
Helga R. Sigurbjöms-
dóttir - Kveðjuorð
TILBOÐSDAGAR!
Við bjóðum ykkur Knorr sósur og pastarétti
á sérstöku tilboðsverði í Nóatúnsbúðunum næstu vikur.
Vörukynningar verða á eftirtöldum stöðum:
Nóatúni, Nóatúni - 4., 5. og 6. apríl.
Nóatúni, Rofabæ -11., 12. og 13. apríl.
Nóatúni, Hamraborg - 18., 19. og 20. apríl.
Kynningin stendur frá kl. 14.00-19.00 fimmtudaga og
föstudaga en frá kl. 11.00-16.00 laugardaga.
Verðdæmi:
Venjulegt verð Tilboðsverð
Knorr sveppasósa 73
Knorr Bearnaise-sósa (4 í pakka) 182
Knorr pastaréttur 267
59
149
221
'f&lCM1'
-þegar við eldum góðan mat!
Q NÓATÚTÍ