Morgunblaðið - 04.04.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.04.1991, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL X901 I hrakningum á Möðrudalsöræfum: Vel fór um okkur í heitum bílunum - sagði Klara Sveinsdóttir frá Egilsstöðum „ÞAÐ FOR mjög vel um okkur í bílnum, funhiti inni og við vorum með nóg nesti, en vissulega var þetta nokkuð langur tími sem við vorum á ferðinni," sagði Klara Sveinsdóttir frá Egilsstöðum, en hún og fjölskylda hennar lentu í nokkrum hrakningum á Möðrudalsöræfum á mánudaginn. Þau óku fram á jeppa sem sat fastur í skafli, en í honum var fjölskylda frá Neskaupstað á leið heim úr páskafríi. Björgunarsveitarmenn úr Mývatnssveit aðstoð- uðu fólkið að komast til byggða. Klara og eiginmaður hennar, Þorlákur Helgason, lögðu af stað frá Raufarhöfn um kl. 11 á mánu- dagsmorgun þar sem þau höfðu dvalið um páskana ásamt þremur börnum sínum. Þaðan óku þau til Húsavíkur og síðan til Mývatns og þaðan að Möðrudal, en á öllum þessum stöðum létu þau vita af ferðum sínum. í Möðrudal var ákveðið að ef þau yrðu ekki kom- in í Skjöldólfsstaði yrði farið að huga að þeim. Á leiðinni þangað festu þau bil sinn, en gátu fijót- lega losað hann. Þau ákváðu að snúa til baka þar sem veður var að spillast. Á leiðinni til baka óku þau fram á fólk sem sat í jeppa föstum í skafli. Okumaðurinn var í óða önn að moka bílinn upp og Þorlákur aðstoðaði hann er þau komu að. Þeir losuðu bílinn en hann festi sig fljótlega aftur. Var þá ákveðið að bíða bóndans á Möðrudal og er hann kom var jeppinn losaður og ekið heim að Möðrudal þar sem fóiksins beið matur. „Við ákváðum að reyna að komast að Mývatni eða jafnvel til Morgunblaðið/Rúnar Þór Klara Sveinsdóttir með syni sína þijá, Eið Fannar, sem hún held- ur á í fanginu, Hannes Þór og Valbjörn Július, á Akureyri í gær. Akureyrar. Jeppinn var á undan okkur, en hann festi sig og var það fastur að við gátum ekki dreg- ið hann upp úr skaflinum. Rétt á meðan við vorum að brasa þetta skóf heilmikið og allt fylltist af snjó á skömmum tíma. Þegar við vorum stödd þarna komu snjósleð- amenn sem voru að koma frá Kverkfjöllum að okkur. Þeir fóru til Mývatns og höfðu samband við björgunarsveitarmenn þar sem síðan komu og hjálpuðu okkur upp úr þessu,“ sagði Klara. „Okkur leið vel í bílunum, það var heitt á okkur og við höfðum nóg nesti. Það væsti ekkert um okkur og krakkarnir gátu sofnað þannig að þetta fór allt vel. Ferð- in var auðvitað býsna löng, við vorum á ferðinni í um 12 tíma,“ sagði Klara. Þau héldu síðan til Akureyrar í fyrradag og þaðan ætlaði Klara að fljúga heim til Egiisstaða með synina, en Þorlák- ur fór landleiðina til Reykjavíkur þar sem hann er við nám. Samtök fiskvinnslustöðva: ÚA greiðir einna hæsta físk- verðið í beinum viðskiptum „Útgerðarfélag Akureyringa greiðir einna hæsta fiskverðið i beinum viðskiptum," segir Arnar Sigurmundsson formaður Sam- taka fiskvinnslustöðva. Heimalöndunarálag er að meðaltali 28% og fiskverð hefur hækkað um 7,9% frá áramótum, samkvæmt könnun, sem Samtök fiskvinnslustöðva gerðu í þessari viku hjá 23 fiskvinnslufyrirtækjum um allt land. Flest þeirra eru með eig- in togara eða fá hráefni til vinnslu með föstum viðskiptum. Þessi fyrirtæki vinna um helming af öllum botnfiskafla, sem fer til vinnslu í landinu. Flest þeirra 23ja fyrirtækja, sem könnunin náði til, greiða heimalöndunarálag til viðbótar verðlagsráðsverði en nokkur þeirra hafa samið um sérstakt fiskverð án viðrniðunar við verð- lagsráðsverð. Álagið er nokkuð misjafnt eftir fisktegundum, fisk- stærð og milli fyrirtækja. Fyrir- tækin greiða 54,62 króna meðal- verð fyrir tveggja kílóa þorsk en 72,44 króna meðalverð fyrir 5 kílóa þorsk. Þetta svarar til þess að verið sé að greiða 29% heimal- öndunarálag fyrir tveggja kílóa þorsk en 27,5% álag fyrir 5 kílóa CastlE hátalarar hljómflutningstæki Gæða tæki ó góðu verði, eins og lesa mó um í virfum fagtímaritum. Sendum upplýsingar hvert ó land sem er. Hafið samband við nwémvm cimi íoa\ 'Jlfi'Jf, Glerórgötu 3L Akureyri Sími (96) 23626 þorsk. Algengt er að fyrirtæki í könnuninni vinni um 80% af afla eigin skipa, að sögn Amars Sigur- mundssonar. Af þessum 23 fyrirtækjum greiða hæst verð fyrir þorsk Út- gerðarfélag Akureyringa hf. Sæ- fang hf. á Grundarfirði og Fiskiðj- usamlag Húsavíkur hf. Einstaka fyrirtæki greiðir meðalverð fyrir allan þorsk án þess að stærðar- flokka hann og eitt fyrirtæki í könnuninni greiðir hærra verð fyr- ir 2ja kílóa þorsk en greitt er hjá ofangreindum þremur fyrirtækj- um. Þetta fyrirtæki greiðir á hinn bóginn mun lægra verð fyrir 5 kílóa þorsk en þau fyrirtæki, sem greiða hæsta verðið. Arnar Sigurmundsson segir að hráefnisverðið hafi hækkað gífur- lega í fyrra og á þessu ári. Það hafí hækkað meira en afurðaverð- ið undanfarið og botnfiskvinnslan sé nú rekin með 2,4% tapi að mati Samtaka fiskvinnslustöðva. „Þetta er óhugnanleg staðreynd þegar litið er til þess að afurða- verðið er mjög hátt um þessar mundir. Þess er ekki að vænta að um frekari verðhækkanir verði að ræða í náinni framtíð og allar lík- ur eru á að verð á botnfískafurðum lækki á næstunni í íslenskum krónum vegna lækkunar á Evr- ópumyntum.“ Arnar segir að Samtök fisk- vinnslustöðva ítréki fyrri tilmæli til félagsmanna sinna um að standa vörð um þjóðarsáttina, sem ekki síst hafi skapað fiskvinnsl- unni góð rekstrarskilyrði með lækkun verðbólgu og nafnvaxta, og standa fast gegn frekari hækk- un fiskverðs og annarra kostnað- arliða. Hlutabréf UAhækka stöðugl í verði VERÐ hlutabréfa í Útgerðarfé- lagi Akureyringa hefur hækkað jafnt og þétt og eftirspurn er mjög mikil. Deila milli útgerðar og sjómanna hefur ekki haft nein áhrif og í gær var gengið frá sölu á síðustu bréfunum sem Kaupþing hf. hafði í sölu, en gengi bréfanna er nú 4,05. Elvar Guðjónsson sölustjóri verðbréfadeildar Kaupþings sagði að mikil eftirspurn væri eftir hlutabréfum í ÚÁ. „Þetta eru þau hlutabréf sem ég hef hvað flesta kaupendur að. Þessi deila sem stendur yfir nú hefur engin áhrif þar á, menn hafa það mikla trú á fyrirtækinu að hún hefur ekkert að segja hvorki hvað eftirspurnina né verðið varðar,“ sagði Elvar. Hlutabréfin hafa síðustu daga verið seld á genginu 4,05, en þeg- ar fyrstu bréfin voru seld á al- mennum markaði seinnihluta síð- asta árs var gengið 3,30. Elvar sagði að gengið hefði verið frá sölu síðustu bréfanna sem Kaup- þing hafði til sölu í gær, en þau hlutabréf sem seld voru í tveimur útboðum í fyrra, samtals að nafn- virði um 100 milljónir króna, eru löngu uppseld. „Ég tel að þessi deila muni eng- in áhrif hafa á sölu bréfanna, það þarf eitthvað verulega mikið að gerast til að svo verði, einfaldlega vegna þess að ÚA er og hefur verið einstaklega vel rekið fyrir- tæki. Það er eitt af örfáum útgerð- arfyrirtækjum sem nánast alltaf hefur skilað hagnaði á erfiðleika- tímum í útgerð,“ sagði Elvar. Húsavík: Laun fiskverkafólks hækki eins og sjómanna ALLT fiskverkafólk hjá Fiskiðju- samlagi Húsavíkur hf., um 110 manns, skrifaði á þriðjudag og miðvikudag undir áskorun um Askriftarsíminn er 69 11 22 Norrænt umhverfisár: Fundur með fulltmum stj órnmálaflokkanna 1 TILEFNI af Norrænu umhverfisári og Alþingiskosningum í vor efnir Islandsdeild Norræna umhverfisársins til tveggja opinna funda um um- hverfismál með fulltrúum stjórnmálaflokkanna. Fundirnir verða haldrá Akureyri og í Reykjavík. Fulltrúar flokkanna munu halda um 10 mínútna framsögu um stefnu sína og flokksins í umhverfismálum Umhverfistnálofundur verður haldinn á Hótel KEA í kvöld, 4. apríl kl. 20.30 Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri. og um þau verkefni sem þeir telja að efst séu á baugi á þessu sviði á næstunni. Að framsöguerindum loknum verða fijálsar umræður og fyrirspurnir. Fundurinn verður haldinn á Hót- el KEA í kvöld, fimmtudagskvöldið 4. apríl, og hefst hann kl. 20.30. Framsögu hafa eftirtaldir: Sig- björn Gunnarsson, Alþýðuflokki, Steingrímur J. Sigfússon, Aiþýðu- bandalagi, Guðmundur Bjarnason, Framsóknarflokki, Sigurborg Daðadóttir og Anna Hlín Bjarna- dóttir Kvennalista, Tómas Ingi Olrich, Sjálfstæðisflokki, og Árni Steinar Jóhannsson, Þjóðarflokki. (Frcttatilkynning) að laun þess verði hækkuð í sam- ræmi við það, sem aflahlutur sjó- manna hefur verið hækkaður um að undanförnu, að sögn Aðal- steins Baldurssonar trúnaðar- manns hjá Fiskiðjusamlaginu. Undirskriftalistinn verður af- hentur framkvæmdastjóra fyrir- tækisins í dag. Sjómenn á togar- anum Kolbeinsey ÞH frá Húsavík fengu á laugardag 8,5% hækkun á fiskverði frá áramótum. I áskoruninni segir að möguleik- ar Fiskiðjusamlags Húsavíkur á hækkun fiskverðs hljóti að skapast af arði af vinnu fiskverkafólks og vegna aukinnar hagræðingar í rekstri fyrirtækisins. Það hljóti því að vera sanngjörn krafa að fisk- verkafólk fyrirtækisins fái einnig að njóta árangurs af vinnu sinni. „Það er kurr í fiskverkafólki vegna þess að það fær lág laun og flótti er úr þessari starfsgrein," segir Aðalsteinn Baldursson. „Fisk- verkafólk fær einungis rúmar 48 þúsund krónur á mánuði eftir 10 ára starf og 40 klukkutíma nám- skeið. Ef fyrirtæki treysta sér á annað borð að hækka fiskverð eiga þau einnig að hækka laun fiskverk- afólks. Við óttumst það einnig að sagt verði í haust, þegar kjarasamn- ingar eru lausir, að ekkert sé til skiptanna. Það er verið að taka súpuna úr sama potti en hún er einungis sett á diska sjómannanna."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.