Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 35
afa sínum. Bjöm fór ótal ferðir eft-
ir þeim í skþla og leikskóla. Oft fór
hann með þær heim, gaf þeim að
borða s.s. sæta grauta að hætti
Björns og oft fylgdi súkkulaðimoli
eða eitthvað annað góðgæti að
skilnaði. Ef börn hænast að ákveð-
inni persónu er Jijartalag beggja
aðila gott. Það hefur mikið uppeldis-
iegt gildi fyrir börn að kynnast eldra
fólki sem hefur eitthvað að gefa.
Eldra fólk hefur aðra þekkingu og
reynslu af lífínu en það yngra.
Fjölskyldur Valgerðar og Magn-
úsar fóru margar ferðir með þeim
hjónum Birni og Guðrúnu og marg-
ar ferðirnar fóru þeir saman feðg-
ar, enda miklir vinir. í ferðum fjöl-
skyldnanna gegndi tjaldvagn og
margrasæta rússajeppi mikilvægu
hiutverki í að styrkja fjölskyldu-
tengslin. Ýmist var farið styttri eða
lengri ferðir. Fljótsdalshérað hafði
mikið aðdráttarafl, en þar vom átt-
hagar Björns. Hann fór margar
ferðir þangað einn bæði að vetri
og sumri. Nokkrar ferðir fóru fjöl-
skyldurnar saman þangað og eru
margar ánægjulegar _ minningar
tengdar þeim ferðum. í faðmi fjöl-
skyldunnar leið Birni vel, og ef
hægt var að sameina samveru-
stundir og dvöl úti í náttúrunni, lék
Bjöm á als oddi. í þessum ferðum
fór Björn iðulega í fjallgöngu. Að
fenginni reynslu spurðu þeir hann,
sem eftir honum biðu, hversu lengi
hann héldi að hann yrði í göngunni.
Oft voru svörin dálítið loðin. Tak-
markið sem hann setti sér var ekki
tíminn heldur fjallið sem beið hans.
Oft kom það fyrir að þeir sem biðu
voi-u farnir að óttast um hann, en
alltaf kom hann þó til baka, að vísu
dauðþreyttur en alsæll. Ef Björn
var ekki að etja kappi við fjöll, þá
sat hann með barnabömin í fanginu
eða fór með þau í gönguferðir, gaf
þeim að borða eða brá á leik með
þeim.
Björn hafði skemmtilega frá-
sagnargáfu og sagði oft sögur af
skemmtilegum persónum sem hann
hafði kynnst á lífsleiðinni. Við höf-
um oft dvalið einir saman við vinnu
eða leik. Síðastliðin tvö sumur höf-
um við farið saman nokkrar ferðir
á trillu út á- Faxaflóa. Á siglingu
eða þegar beðið var eftir að fiskur
kæmi á færin, lét Björn gamminn
geisa og sagði mér nokkrar
skemmtilegar sögur.
Birni fannst það heldur súrt ef
við sigldum tómhentir til baka í
land, hvorki fugl né fiskur, en hafði
hamskipti þegar fiskurinn gaf sig
og gleymdi stund og stað þegar
mest var að gera.
Þær eru margar fleiri minning-
arnar sem rifjast upp á skilnaðar-
stundu. Minningin um hjartahlýjan,
hjálpsaman, heiðarlegan og hóg-
væran mann stendur uppúr og mun
lifa áfram í minningu þeirra sem
eftir lifa. Um leið og ég og dætur
mínar Guðrún Lára og Elín Birna
kveðjum elskulegan tengdaföður og
afa, þökkum við fyrir allar þær
stundir sem við áttum saman og
kveðjum mann sem hafði. mikið að
gefa.
Skarphéðinn Oskarsson
Haustið 1946 bættust fjórir piltar
í þriðja bekk Kennaraskólans. Fyrir
var samhentur og sjálfumglaður
hópur sem leit með nokkurri tor-
tryggni til hinna nýju félaga. Upp-
teknir af eigin ágæti spurðu þeir
sem fyrir voru hver annan hvort
þessir nýkomnu myndu nú falla inn
í hópinn, hvernig félagar þeir yrðu.
Það leið þó ekki á löngu þar til í
ljós kom að bekknum hafði bæst
þarna hið mesta mannval, það
gleymdist brátt að þeir höfðu ekki
verið með frá upphafí og þeir skip-
uðu sér fljótt í fremstu sveit í námi,
söng og leik.
Einn þessara félaga okkar, Björn
Magnússon, er nú skyndilega og
óvænt horfinn úr hópnum. Þetta
er vissulega gangur lífsins en alltof
snemma fínnst okkur hann hafa
Heiisuval, Barónsstíg 20, s 626275 ofl 11275
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991
35
verið kallaður frá fjölskyldunni og
frá okkur. Við höfum nú um árabil
hist á fimm ára fresti og dvalið
langa helgi einhvers staðar utan
bæja. Björn var hreint ómissandi
þá sem fyrr. Glettnin og alvaran,
söngurinn og samveran öll með
honum, allt var skemmtilegt, allt
var þannig að á betra varð ekki
kosið.
Það var sárt að frétta lát þessa'
vinar okkar og standa frammi fyrir
því að eiga aldrei eftir að njóta
samvistanna með honum. Það er
enn eitt skarð fyrir skildi sem ekki
verður bætt, en við munum hittast
og minnast. Mestur er missir Guð-
rúnar, barnanna tveggja og fjöl-
skyldna þeirra. Við sendum þeim
öllum innilegar samúðarkveðjur og
minnumst góðs vinar með söknuði
og þakklæti.
Bekkjarsystkinin
Björn Magnússon, stjórnarráðs-
fulltrúi, lést í Borgarspítalanum
sunnudaginn 24. mars sl. Okkur
samstarfsfólki hans í menntamála-
ráðuneytinu voru það óvænt og
sorgleg tíðindi að Björn skyldi falla
svo skyndilega frá og það er svo
sannarlega skarð fyrir skildi að
missa hann frá margvíslegum verk-
efnum sem hann vann að því að
leysa í íþrótta- og æskulýðsmála-
deild ráðuneytisins.
Eftir að hafa verið íþróttakenn-
ari og skólastjóri að Eiðum hafði
Björn unnið í menntamálaráðuneyt-
inu í aldarfjórðung, einkum að
málefnum íþróttasjóðs, félagsheim-
ilasjóðs og sundkennslunnar í
landinu. Var hann að allra dómi
sérstaklega áhugasamur, nákvæm-
ur og samviskusamur í vandasömu
starfi sínu.
Hann hafði mjög gott vald á
íslensku máli og átti auðvelt með
að skrifa hvort heldur voru bréf til
einstakra aðila eða skýrslur um
ákveðið máiefni.
Birni var mjög umhugaið um land
og þjóð og þó að Austfirðir væru
honum hjartfólgnastir en í starfí
sínu kynntist hann fólki, svo til í
hvetjum hreppi og var sérstaklega
fróður um landið og landshagi.
Það var ekki að undra þó Björn
væri mikill útivistarmaður, enda
góður íþróttamaður á yngri árum.
Hann fór ekki alltaf troðnar slóðir
á ferðum sínum. Hann hafði mikið
yndi af því að ganga á skíðum og
ferðast um óbyggðir ýmist gang-
andi eða akandi. Björn var einnig
listhneigður og sérstaklega var þó
söngur og tónlist sem hann hneigð-
ist að. Hann var góður söngmaður
og söng oft í kórum.
Það fór ekki fram hjá okkur sam-
starfsfólki hans að hann var fjöl-
skyldu sinni stoð og stytta í stóru-
sem smáu og var alltaf við þegar
á þurfti að halda. Hann var greini-
lega mikill barnavinur og átti auð-
velt með að fá börn til að tjá sig,
hvort sem um var að ræða barna-
börn hans sem sóttu mjög til afa
síns, eða önnur sem aðeins voru
gestir á heimili hans eða vinnustað.
Það er því með djúpum söknuði
sem ættingjar Björns kveðja nú
elskulegan eiginmann, föður og afa.
Við samstarfsfólk Björns í
menntamálaráðuneytinu vottum frú
Guðrúnu, Valgerði og Magnúsi,
tengdabörnum og barnabörnum og
öllum ættingjum þeirra okkar inni-
legustu hluttekningu og samúð í
sorg þeirra og biðjum þeim guðs
blessunar.
Við kveðjum góðan samstarfs-
mann með djúpum söknuði en þakk-
læti í huga fyrir trausta samfylgd
í starfi.
Frá samstarfsfólki í
menntamálaráðuneytinu.
Fleiri greinar um Björn Magnús-
son biða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
___________Brids______________
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Hornafjarðar
Jón Skeggi Ragnarsson og Bald-
ur Kristjánsson sigruðu í sýslutví-
menningnum sem lokið er. 24 pör
spiluðu og var spilaður barometer.
Lokastaðan:
Jón Skeggi Raparsson - Baldur Kristjánsson 99
JónNíelsson-JónGuðmundsson 74
IngvarÞórðarson-GísliGunnarsson 65
Sigurður Skúlason—Skúli ísleifsson 63
GísliJóhannsson-ÖmRagnarsson 36
GesturHalldórsson-MagnúsJónasson 32
Ámi Stefánsson - Jón Gunnar Gunnarsson 2S
Björn Gíslason — Geir Björnsson 27
Séra Baldur hafði sigur ásamt
Jóni Skeggja, en fermingarbam
Baldurs, Sigurður Skúlason, veitti
honum harða keppni. Aldursforseti
var Ragnar Snjólfsson, 88 ára gam-
all, og sýnir þetta okkur að ekkert
kynslóðabil er í bridsinum í Höfn.
JGG
Æfinga- og úrtökumót fyrir
landslið
Auglýst er eftir 8 pörum til þátt-
töku eða keppni um sæti í liði sem
sent verður á alþjóðlegt mót landsliða
og sterkra sveita sem spilað verður í
Hollandi 8.-9. júní í sumar. Lið íslands
gengur undir heitinu Landslið 2.
Spilað verður í sveitum dagana
18.-20. maí og 1.-2. júní. Pörin verða
dregin saman í sveitir af handahófi.
Fyrri helgina keppa með þessum sveit-
um Landslið 1 (tvö lið), kvennalands-
lið og unglingalandslið en seinni helg-
ina einungis Landslið 1 (tvö lið).
Árangur einstakra para verður
reiknaður eftir fjölsveitaútreikningi og
tvö efstu pörin’ af þeim 8 sem keppa
um Landslið 2, báðar helgar meðtald-
ar, verða Landslið 2.
Keppnisstjóri og útreikningsmeist-
ari verður Kristján Hauksson.
Þau pör sem hafa áhuga á þátttöku
í þessu móti eru vinsamlegast beðin
að tilkynna það til skrifstofu Brids-
sambands íslands fyrir 11. apríi nk.
Þátttökugjald er ekkert, en stefnt
er að því að spilastaður verði í ná-
grenni Reykjavíkur, stutt að keyra en
svefnaðstaða og matur fyrir þá sem
vilja á lágmarksverði. Nánar auglýst
síðar.
Bridsfélag kvenna
Nú er parakeppninni lokið með sigri
Nönnu og Sigurðar. Úrslit urðu þessi:
Nanna Ágústsdóttir - Sigurður Ámundason 560
Guðrún Jörgensen - Þorsteinn Kristjánsson 555
Hrafnhildur Skúladóttir - Jörundur Þórðarson 548
Ólafía Jónsdóttir - Baldur Ásgeirsson 536
Ingunn Bemburg - Sigurður Steingrímsson 533
Sigríður Pálsdóttir - Eyvindur Valdemarsson 532
Efstu skor í riðlunum:
A-riðill:
Hrafnhildur Skúladóttir - Jörundur Þórðarson 182
Nanna Ágústsdóttir - Sigurður Ámundason 179
Guðrún Jörgensen - Þorsteinn Kristjánsson 175
B-riðill:
Júlíanaísebam-Ömísebam 198
Véný Viðarsdóttir—Jónas Elíasson 196
Ingunn Bemburg - Sigurður Steingrímsson 185
C-riðill:
Aðalheiður Torfadóttir - Magnús Eymundsson 204
Ólafía Þórðardóttir—Jón Sigurðsson 193
KristínJonsdóttir-ValdemarJóhannsson 189
Næsta keppni félágsins og jafn-
framt sú síðasta á þessu tímabili verð-
ur 4-5 kvölda hraðsveitakeppni sem
er öllum opin (körlum) og hefst 8.
apríl. Sveitir geta skráð sig í síma
32968 (Ólína).
Frá Hjónaklúbbnum
Nú er fjórum umferðum lokið í
sveitakeppninni og er staða efstu
sveita þannig:
DröfnGuðmundsdóttir 90
Sigrún Steinsdóttir 77
Dóra FViðleifsdóttir 69
Kristín Guðbjömsdóttir 62
matsölu- og skemmtistadur,
Kringlunni 4, síttti 689686
ELITE KEPPIMIN í KVÖLD
HÚSIÐ OPNAÐ KL. 20.00
Að gefnu tilefni
viljum við vekja athygli á því, að við erum einkaum-
boðsmenn á íslandi fyrir hið frábæra súkkulaðikex:
VILT ÞU
KYNNAST STARFSEMI
RAUÐA KROSSINS?
Langar þig til að starfa fyrir Rauða
krossinn, innanlands eða
á alþjóðavettvangi?
Kynningarnámskeið (Grunnnámskeið 1) fyrir
ungt og áhugasamt fólk verður haldið dagana
5., 9., 11., 13. og 14. apríl nk.
Dagskrá:
1. Ungmennastarf Rauða kross íslands.
2. Starfsemi Rauða kross íslands,
innanlands og á alþjóðavettvangi.
3. Málefni flóttamanna.
4. Framtíðarverkefni.
Námskeiðið hefst kl. 20.00 fyrstu þrjú kvöldin og
endar með helgardvöl fyrir utan borgina, frá
laugardegi og fram á sunnudag.
Námskeiðsstaður:
Þingholtsstræti 3, Reykjavík.
Skráning og nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu
Rauða kross íslands í síma 26722 (Ólafur).
Ekkert þátttökugjald.
Allt áhugafólk velkomið.
Ungmennahreyfing
Rauða kross íslands