Morgunblaðið - 04.04.1991, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRIL 1991
37
Minning:
Bjarni Sveinsson
m úrarameistari
Fæddur 25. maí 1915
Dáinn 22. mars 1991
í dag verður tengdafaðir minn
Bjarni Sveinsson jarðsunginn frá
Hafnarijarðarkirkju.
Bjarni fæddist á Reykjavíkurvegi
13 í Hafnarfirði þann 25. maí 1915.
Hann var sonur hjónanna Guðlaug-
ar Bjarnadóttur og Sveins Jónsson-
ar.
Guðlaug og Sveinn eignuðust 3
börn. Þau voru Guðrún_ Halldóra
sem var elst, Bjarni og Ólafur.
Guðlaug móðir þeirra lést frá
þeim á unga aldri og var það mik-
ill missir fyrir fjölskylduna eins og
nærri má geta. Ólafi var komið í
fóstur hjá góðum hjónum hér í
Hafnarfirði og hafði hann alltaf
gott samband við föður sinn og
systkini. Bjarni og Guðrún ólust upp
í föðurhúsum. Bjarni var í sveit á
sumrin eins og algengt var á þeim
tíma. Eftir móðurmissinn voru allt-
af ráðskonur á heimilinu allt þar
til að Guðrún Halldóra var orðin
stálpuð og gat tekið að sér heimilið.
Nú eru öll þessi mætu systkini
farin í sína hinstu för héðan af
jörðu.
Bjarni hóf ungur nám í múrara-
iðn hjá Ingólfi Stefánssyni sem
reyndist honum góður lærifaðir og
hafði Bjarni ætíð miklar mætur á
honum.
Bjarni vann alla tíð í iðn sinni,
en ef svo brá við að lítið var að gera
í múrverkinu fór hann á sjóinn og
var háseti og matsveinn á minni
bátum og togurum.
Bjarni kvæntist Þórdísi Matthías-
dóttur frá Patreksfirði þann 11.
janúar 1941. Þau eignuðust sex
börn, þeirra elstur var Guðlaugur
sem fæddist 2. desember 1940 en
hann lést í Kanada þann 18. febrú-
ar 1988. Guðlaugur eignaðist dótt-
urina Heiðrúnu Hlín sem búsett er
í Kópavogi. Heiðrún er gift Hann-
esi Siggasyni og eiga þau einn son.
Hin börnin eru Steinunn, gift undir-
rituðum, og eiga þau 3 börn og
eitt barnabarn, Matthías, giftur
Sonju Einarsdóttur og eiga þau 2
dætur, Ólafur Sveinn, giftur Láru
Öfjörð, og eiga þau 2 dætur og
yngst er Rut Sigurðardóttir sem
gift er Ólafi Sigurjónssyni og eiga
þau 3 syni.
Þórdís og Bjarni slitu samvistir.
Bjarni tók virkan þátt í félags-
málum á sínum yngri árum. Hann
var einn af stofnendum Knatt-
spyrnufélagsins Hauka og lék hand-
bolta með félögum sínum í Haukum
um árabil og náðu þeir góðum ár-
angri í íþrótt sinni og urðu m.a.
Islandsmeistarar.
Bjarni fylgdist grannt með þeirri
miklu uppbyggingu sem átt hefur
sér stað hjá Haukum og það má
segja að þeir stofnendúr Hauka
Birting afniælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er þirt-
ur.
hafi getað glaðst yfir góðum
árangri Haukanna og nú heldur
yngri kynslóð uppi merki frumheij-
anna og stefnt er að enn frekari
árangri og uppbyggingu á nýju
svæði Hauka við Ásvelli. Þann 12.
apríl nk. eru 60 ár frá stofnun
Haukanna.
Kynni mín af Bjarnatengdaföður
mínum í gegnum árin sýndu mér
hvað hann var góður og traustur
félagi. Það var alltaf hressandi og
skemmtilegt að vera í návist hans
bæði í leik og starfi. Hann var mjög
vel lesinn og um margt fróður og
fylgdist grannt með því sem efst
var á baugi hveiju sinni.
Þegar ég og dóttir hans byijuðum
búskap og byggðum okkar fyrsta
hús hjálpaði hann okkur við múr-
verkið og það gerði hann einnig við
hin börnin sín sem í byggingum
stóðu.
Þegar við eignuðumst sumarhús
í Öndverðarnesi hlóð hann fyrir
okkur forláta útigrill sem oft hefur
komið að góðum notum. Þarna í
landi félaga sinna í Öndverðarnesi
hefur hann því reist okkur lítið
minnismerki um störf sín sem við
yljum okkur við á fögrum sumar-
kvöldum.
Fyrir nokkrum árum byggðum
við aftur I Hafnarfirði og var Bjarni
þá oðinn heilsutæpur og treysti sér
ekki til að hjálpa til við múrverkið
en hann kom flesta daga til að líta
eftir og var með útrétta hjálparhönd
ef með þurfti.
Síðustu tvö árin voru honum erf-
ið vegna veikinda.
Ég kveð tengdaföður minn með
söknuði og trega, og í hjarta mínu
geymi ég minninguna um allar þær
góðu samverustundir sem við áttum
saman bæði við störf og leik.
Guð blessi minningu hans.
Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugsson
Elskulegur afi minn er dáinn.
Hann sem var mér svo mikið. Milli
okkar var alveg sérstakt samband.
Okkar samverustundir voru stundir
gleði og ánægju. Oft'réðu lífsins
tilviljanir því að við vorum stödd
samtímis á sama stað. Lífið gaf
okkur því margar góðar stundir sem
ylja í minningunni.
Ein mín fyrsta minning um jól
tengist honum. Þá var ég búsett
norður í landi, hjá móður minni og
hálfbróður. Þar bjuggum við hjá
móðurforeldrum mínum, Hermanni
Sveinssyni og Jónínu Jónsdóttur
sem voru búsett á Miklahóli í Við-
víkursveit. Líklega hef ég verið um
fjögurra ára. Þá kom sá alstærsti
jólaböggull sem ég hafði séð frá
einhverri uppsprettu pakka sem hét
„að sunnan". í þessum pakka
reyndist vera svokölluð
puntudúkka, sem var alveg dýrindis
falleg.
Síðar setti Bjarni afi sinn svip á
jólin. Margan glaðninginn fékk ég
frá honum, reyndar nutum við þess
öll, epli og appelsínur, niðursuðu-
vörur og fleira leyndist í pokunum
frá honum. Þá var hugsunin að
kaupa eitthvað sem kæmi sér vel
fyrir einstæða móður með tvö börn.
Og í minningunni fyllti þessi stóri
maður upp í ganginn á Urðarhól,
það sem var heimili mitt fyrir sunn-
an. Og gjafmildin, glettnin og gleð-
in, það var hann. Bjarni afi var
föðurafi minn. Faðir minn Guðlaug-
ur fluttist til Kanada árið 1968.
Samband okkar pabba var slitrótt,
en afi gerði allt sem hann gat til
að bæta mér upp hvað pabbi var
fjarlægur. Miili okkar pabba var
kynslóðabil á stundum, en milli
okkar afa örlaði aldrei á því. Hann
hafði svo mikinn skilning og um-
burðarlyndi sem menn honum
óreyndari höfðu ekki til að bera.
Kynslóðir koma og kynslóðir
fara. Við vitum að lífið líður áfram,
en við hveija bugðu hverfur einn
úr hópnum. Stundum gerist þetta
óvænt og undirbúningslaust. Pabbi
dó þann 18. febrúar 1988 aðeins
47 ára gamall. Það varð afa mikið
áfall. Það að missa son sinn í blóma
lífsins er þungur harmur. Afi sem
dáði börnin sín og vildi þeim allt
hið besta. En lífið heldur áfram og
aðeins fjórum mánuðum eftir lát
pabba fæddist drengur sem var
fyrsta langafabarnið hans afa. Og ,
það var annar Guðlaugur.
Trúarvissa afa um líf að loknu
þessu var honum styrkur á erfiðum
stundum.
Á síðustu árum lagðist sjúkleiki
þungt á afa. Hann gerði sitt besta
til að láta líta svo út að líðanin
væri svo miklu betri en hún var.
En nú er öllum þrautum lokið
og afi hefur losnað frá þessu jarð-
neska oki og er kominn á fund hins
mikla meistara, þar sem sonur hans,
systkini og foreldrar fagna honum.
Heiðrún Hlín Guðlaugsdóttir
Það var á sunnudegi að ég frétti
að hann Bjarni væri dáinn. Eg ætl-
aði varla að trúa mínum eigin eyr-
um, að hann væri nú þegar farinn
til hinnar hinstu hvíldar. Að ég sæi
hann aldrei aftur og fengi aldrei
aftur frá honum jólakort sem stæði
á „Gleðileg jól, Hulda mín. Þinn
gerviafi Bjarni." Og nú þegar ég
fei' að hugsa man ég að hann náði
aldrei að koma í heimsókn til okkar
í nýja húsið í Hvassaleitinu, fékk
bara ekki tækifærið. Ég man þegar
hann kom í heimsókn til okkar í
Grundargerðið með súran hval
handa okkur, alltaf svo glaður á
svip og kvartaði ekki yfir einu eða
neinu. Svo eftir nokkra kaffibolla
rölti hann upp á Grensásveg í heim-
sókn til hennar ömmu og fékk þar
meira kaffi.
Þetta gerðist svo hratt að ég fékk
ekki tækifæri til þess að kveðja
hann með kössi. Þótt ég hafi ekki
vitað mikið um hann, þá vissi ég
þó að hann var vinur minn og ég
myndi gera hvað sem er til að fá
hann aftur. Því kveð ég hann með
söknuði.
Hulda Guðjónsdóttir
Kveðja frá Knattspyrnu-
félaginu Haukum
Helsti hvatamaðurinn að stofnun
Knattspyrnufélagsins Hauka í
Hafnarfirði og einn af hinum ungu
stofnendum, Bjarni Sveinsson
múrarameistari er fallinn frá, að-
eins fáum dögum áður en Haukafé-
lagar minnast með veglegum hætti
60 ára afmælis félagsins þann 12.
apríl nk.
Þáttur Bjarna í stofnun og við-
gangi Hauka á upphafsárum fé-
lagsins var mikill, enda ekki að
ástæðulausu að hann var jafnan
kallaður „Bjarni formaður" í vina-
og kunningjahópi. Hann var öllum
stundum að stofna félög um hin
ólíklegustu áhugaefni, en ekkert
þessara félaga var þó langlífara og
honum kærara en Knattspyrnufé-
lagið Haukar.
Bjarni vai' í forystu fyrir Haukum
fyrstu starfsárin. Hann var afar
virkur í félagsstarfi og ekki síður
liðtækur keppnismaður langt fram
eftir fimmta áratugnum. Handbolt-
inn átti hug hans allan en þeir félag-
arnir í Haukum voru fyrstir íþrótta-
félaga hérlendis til að æfa hand-
knattleik, en það var strax á öðru
starfsári félagsins veturinn 1932.
Bjarni dreif félaga sína áfram
jafnt innan vallar sem utan og bar-
áttan skilaði sannarlega árangri.
Haukar voru eitt allra sterkasta
handknattleiksfélag landsins á
fímmta áratugnum og um vorið
1943 fagnaði Bjarni sínum stærsta
sigri á íþróttavellinum, er Hauka-
strákarnir urðu íslandsmeistarar í
meistaraflokki karla í handknatt-
leik. Það fór sannariega vel á því
að frumkvöðlarnir sjálfir færðu fé-
laginu fyrsta íslandsmeistaratitil-
inn.
Haukafélagar standa í mikilli
þökk við Bjarna og veittu honum
margvíslega viðurkenningu. Hann
var gerður að heiðursfélaga Hauka
á 45 ára afmæli félagsins vorið
1977.
Það þurfti slíkan eldhuga sem
Bjarni var, til að taka fyrstu skref-
in í félagsstarfinu og gefast ekki
upp þrátt fyrir allan mótvind. „Heil-
ir til starfa Haukar," eru fleyg
hvatningarorð Bjarna. Honum þótti
vænt um félagið sitt og vildi fram-
gang þess sem mestan. Með öflugu
og þroskandi starfi höldum við best
á lofti minningunni um Bjarna og
hina frumheijana.
Blessuð sé minning Bjarna
Sveinssonar.
Stmx
aðlpknum
irettum
.D.
O
Strax að loknum fréttum í kvöld sýnir Sjónvarpið stutta
kynningarmynd sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
látið gera um helstu stefnumál sín, kosningarnar
framundan og þá lífssýn frelsis og mannúðar sem
sjálfstæðismenn eiga sameiginlega, hvar í stétt
sem þeir starfa og hvar í byggð sem þeir búa.
Stilltu á Stöð eitt kl.
20:35 í kvöld, fylgstu með
málflutningi okkar og þú
munt sjá hvers vegna
straumurinn liggur til
Sjálfstæðisflokksins.
MANNUÐ