Morgunblaðið - 04.04.1991, Side 49

Morgunblaðið - 04.04.1991, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR ■ /1.1 I ’I ■' •- 'IV . FIMMTUDAGUR 4. APRIL 1991 IÞRÓTTIR UNGLINGA / HANÐKNATTLEIKUR Ótrúleg spenna - þegar ÍR-stúlkur lögðu Gróttu „ÉG vissi ekkert hvað ég var að gera,“ sagði Sóley Gunn- laugsdóttir, hornamaður ÍR eft- ir að hafa tryggt liði sínu sigur á Gróttu, 5:4, með marki í bráðabana í hreint út sagt ótrú- legum úrslitaleik. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn, 2:2 og því þurfti að grípa til framlengingar. Svandís Þorvaldsdóttir skoraði tvívegis í framlengingunni Frosti fyrir ÍR og sigur Eiðsson Breiðhyltinga virtist sknfar vís. En Gróttustúlk- ur gáfust ekki upp og náðu að jafna 4:4. Þá var gripið til bráðabana, sem merkir að leikur- inn er framlengdur þangað til ann- að liðið skorar mark og það var Sóley sem tryggði ÍR bikarinn eftir að hafa laumað sér inn úr hægra horninu. Varnarleikurinn var aðalsmerki liðanna í leiknum og markvörður Gróttu hélt marki sínu hfeinu fram í síðari hálfleik. Þá gat þjálfari ÍR ekki setið á sér á spennandi augna- blikum í framlengingunni, hann mótmælti dómi og var fyrir það rekinn upp á áhorfendapalla af röggsömum dómui-um. „Ég hef aldrei spilað annan eins leik, - þvílík spenna,“ sagði Svandís sem skoraði bæði mörk sín í úrslit- unum með undirhandarskotum. „Gróttustúlkurnar eru orðnar mun betri en þær voru fyrr í vetur, en við vorum ákveðnar í að gefast ekki upp,“ sagði Svandís. ÍR hefur verið sigursælt í þessum flokki í vetur og mótið í síðustu viku var þriðja mótið sem þær vinna á þessum vetri. Það var hins vegar ekki hægt annað en að hafa samúð með Gróttustúlkunum sem börðust Morgunblaðið/Frosti „Þið eruðu mikið betri en þær,“ gæti þjálfari ÍR verið að segja á þessari mynd í leikhléi framlengingarinnar gegn Gróttu. Gróttustúlkurnar Björg Fenger og Margrét Guðjónsdóttir stóðu sig vel gegn ÍR en það dugði ekki til. vel allan tímann en uppskáru ekki í samræmi við það. „Við vorum mjög taugaóstyrkar fyrir leikinn og það var leiðinlegt að við skyidum tapa,“ sögðu þær Björg Fenjjer línumaður og Margrét Guðjónsdótt- ir langskytta. 840 keppendur Fjölmennasta mót vetrarins í handknattleik, - Spörtu- mótið var þriggja daga mót 4. og 5. flokks kvenna og 5. og 6. flokks stráka. Leik- ið var í mörgum íþróttasöl- um á höfuðborgarsvæðinu dagana fyrir páskahelgina en alls kepptu 840 krakkar á mótinu. URSUT Keppt var um sæti í 5. flokki kvenna og í 6. flokki karla. Færri lið voru skráð til leiks í 6. flokki kvenna og 7. flokki karla og kepptu öll liðin innbyrðis í þeim flokkum. Þess má geta að í 7. flokki karla voru þijú af sex liðum ólögleg, þar á meðal Víkingur sem lenti í efsta sæti. Úrslitin í þeim flokki voru kærð og eftir nokkra rekistefnu var ákveðið að leikir þeirra liða sem tefldu fram of gömlum leikmönnum skyldu ekki taldir með. Endanleg úrslit á Spörtumótinu urðu því þessi: 5. flokkur kvenna A f. ’78—'79 1.-2. sæti ÍR — Grótta 5-4 3.-4. sæti KR — Stjarnan 8-7 5.-6. sæti Haukar - Fi-am 5-4 7.-8. sæti ÍBV — Fylkir 5-0 9.-10. sæti Valur — Víkingur 4-3 11.-12. sæti UMFN — Fjölnir 7-5 5. flokkur kvenna B f. ’78—’79 1.-2. sæti Fram b — ÍR b 10-4 3.-4. sæti KRb-ÍBVc 7-3 5.-8. sæti ÍBV b — Fylkir b 5.-8. sæti Valur b — Sijaman b 9.-10. sæti ÍR c — Grótt a b 3-2 11.-12. sæti Fylkir c — KR c 2-0 6. flokkur karla A f. ’80—’81 1.-2. sæti KR-HK 5-3 3.-4. sæti ÍR-Valur 10-4 5.-5. sæti Stjaman — Fylkit 10-0 7.-8. sæti Víkingur — Haukar 10-3 9.-10. sæti Grótta — Þór Ve. 7-2 11.-12. sæti ÍBK-UMFA 10-0 13.-14. sæti Fram — Fjölnir 10-0 6. flokkur karla B f. ’80—’81 1.-2. sæti Valurb —Stjamanb 7-4 3.-4. sæti Víkingurb —HKb 11-10 5.-8. sæti Haukarb —Fylkirb 7-6 5.-8. sæti KRb-ÍRb 10-0 9.-10. sæti Stjaman c — Grótta b 4-3 11.-12. sæti KRc-UMFAb 10-0 13.-14. sæti Fjölnir b — ÍR c 0-0 6. flokkur kvenna f. ’80—’81 stig l.Gróttaa 6600 84 -14 12 2. Fylkira 6 5 0 1 41- -23 10 3. Haukar 6 4 0 2 65- -41 8 4.Gróttab 6 3 0 3 36- -24 6 5. Stjarnan 6 2 0 4 35 -51 4 6. Fylkir b 6 1 0 5 15- -58 2 7. Rjölnir 6 0 0 6 9- -74 2 '7. flokkur karla f. ’82 — 1. Haukara 2 2 0 0 17- 8 4 2. Haukarb 2 10 1 8-10 2 3. Gróttaþ..... 'á"b' Ö'' 2 '5-12' Ö Morgunblaðið/Frosti KR-liðið í 6. flokki hefur náð mjög góðum árangri í vetur. Strákarnir úr KR stóðu fyrir sínu STRÁKARIMIR úr 6. flokki í KR hafa verið mjög sigursælir í vetur og engin breyting varð á því á Spörtu-mótinu í hand- knattleik. eir sigruðu jafnaldra sína úr HK í úrslitaleik 5:3 og unnu þar með fjórða mót sitt í vetur. Fyrr í mótinu höfðu þeir slegið út Víkinga sem veitt hafa þeim harða keppni í vetur. KR tapaði óvænt fyrir Gróttu með þriggja marka mun í einum af fyrstu leikjum mótsins, en það kom ekki að sök. KR komst áfram alla leið i úrslitin. Ásgrímur Sigurðsson skoraði tvö marka KR í úrslitaleiknum en þeir Eiríkur Lárusson, Guðmundur Steindóreson og Alfreð Finnsson skoruðu eitt mark hver. „Við erum betri“ Þeir Hreiðar Guðmundsson markvörður og Sigurður Benedikts- son hægri skytta stóðu sig vel á mótinu. „HK er með sterkt lið en við erum einfaldlega betri og við unnum þá líka á „Coca-Cola,“ mót- inu, þá með sjö marka mun,“ sögðu þeir. Þeir voni báðir sammála um að framtíðarmarkmiðið hjá þeim væri að komast í landsliðið. „Anægðar með árangurinn“ Fram tryggði sér sigurinfi í b-iiða keppni 5. flokks með því að vinna b-lið ÍR ömgglega í úrelitaleik 10:4. „Við byrjuðum flestar að æfa f vetur og erum ánægðar með árangurinn,” sagði fyrirliði fYam-b, Heiður Margrét Björnsdóttir, 12 ára leikstjóniandi. „KR-stúlkumar voru erfiðastar, við unnum þær ekki nema með einu marki,” sagði Heiður sem lagði jazzballett og fimleika á hilluna til að geta einbeitt sér að handboltanum. Heiður Margrét Björnsdóttir. Morgunbiaðid/frosti Þórhlrf hélt markinu hreinu Grótta sigi-aði í 6. flokki stúlkna en þær unnu alla sina leiki á mótinu, þar á meðal stóreigur gegn Pjölni, 19:0. Skemmtilegasti leikurinn var gegn Fjölni en sá mest spennandi gegn b-liði Gróttu,” sagði fyrirliði a-liðs Gróttu, Þórhlíf Jónsdóttir, sem hafði það náðugt í leiknum gegn Fjöini þar sem að hún leikur sem markvörður. „Þetta er í annað skiptið sem að ég keppi á handboltamóti og ég ætla að halda áfram að æfa mark, það er skemmtilegast,“ sagði Þórhlíf. Morgunblaðið/Frosti Þórhlif Jónsdóttir, fyi’irliði Gróttu hampar signriaununum í 6. flokki. T -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.