Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1991 C u Óttast fjöldamorð: fallin ossetísk kona syrgð. nýlega. „Heil þorp hafa verið brennd til ösku. Ibúarnir styðja þá kröfu sovézka þingsins að Gorb- atsjov lýsi yfir neyðarástandi." Ossetar segja að 14.000 manns frá 69 þorpum hafí flúið yfir fjöllin til Rússlands og að tugum Osseta hafi verið rænt. Lík rúmlega 100 Osseta hafi fundizt i nágrenni Tsk- hinvali síðan í desember. Georgíu- menn segjast hafa misst 40 menn fallna og tekið við 8,000 flótta- mönnum á sama tíma. Þtjú þúsund Georgíumenn hafi flúið. Verkfæri Kremlverja? Sovézkir embættismenn saka yfirvöld í Georgíu um að hafa ýtt undir átök fólks af ólíku þjóðerni. Kröfur um að Gorbatsjov taki stjórnina í Suður-Ossetíu hafa orðið háværar, en hann hefur hikað við að stíga það skref, líklega af ótta við að það mundi aðeins gera illt verra. Gamsakhurdía forseti hefur sak- að Sovétmenn um að vopna Osseta og reyna að magna ólguna til þess að fá átyllu til íhlutunar. Það sem þeir reyni að gera sé að reka fleyg milli íbúa Georgíu og tefja sókn þeirra til sjálfstæðis. Nú reynir Gamsakhurdía með verkfalli því, sem hann hefur efnt til, að vekja athygli á þeirri meginkröfu að sovézka herliðið í Suður-Ossetíu verði kallað heim, svo að þjóðvarð- lið Georgíu geti tekið við fnðar- gæzlu. Forseti Georgíu sakar Osseta um „svik við þjóð Georgíu". Hann segir að bolsévíkar hafí búið Suður-Osse- tíu til og að svæðið eigi engan rétt á sjálfstjórn. Hann hefur kallað Osseta „verkfæri Kremlvetja" og margir eru sammála því — jafnvel sumir Ossetar. Um leið hefur hann reynt að fullvissa Suður-Osseta um að þeir þurfí ekki að óttast sjálf- stæði Georgíu frá Sovétríkjunum. Umdeildur leiðtogi Gamsakhurdía er umdeildur stjórnmálamaður og þykir ósveigj- anlegur, gætinn og tortrygginn. Faðir hans var merkasti rithöfundur Georgíu á þessari öld og sjálfur er hann rithöfundur og góður mála- maður. Hann er 52 ára gamall og varð á unga aldri eitt helzta tákn baráttunnar fyrir sjálfstæði Georg- íu. Aðeins 17 ára gamall var Gams- akhurdía hnepptur í fangelsi fyrir andófsstarfsemi. Árið 1977 var hann fangelsaður á ný sökum þess að hann var formaður Helsinki- nefndarinnar í Georgíu. Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi, en látinn laus þegar hann hafði setið inni í tvö ár þar eð hann kom fram í sjónvarpi, játaði og iðraðist. „Ég þurfti nauðsynlega að losna úr fangelsi vegna stjórnmálastarfa minna,“ sagði hann síðar. „Þetta var brella.“ Þegar Gamsakhurdía var kosinn þingforseti í fyrra hét hann lýðræði og margir líktu honum við Tékkann Vaclav Havel. Síðan hefur hann beitt harkalegum ráðum gegn and- ófi og. skert frelsi blaða. Nokkrir pólitískir andstæðingar hafa verið handteknir, ranglega gefið að sök hafa haft vopn í sínum fórum. Hann hefur þótt Ijandsamlegur fijálsu markaðskerfí. Þótt Gamsakhurdía hafi verið harður andstæðingur kommúnista virðist hann andvígur nýjum, sovézkum leiðtogum á borð við Borís Jeltsín. Hins vegar virðist hann njóta dyggs stuðnings starfs- manna flestra stofnana gamla sov- étkerfisins — þar á meðal KGB. Ovinir Gamsakhurdía hafa líkt hon- um við Mussolini, en stuðnings- menn hans líkja honum við heilagan Georg, sem er þjóðartákn, og spá því að hann muni leggja „sovézka drekann“ að velli. Annað Líbanon Ossetar hundsuðu þjóðarat- kvæðagreiðsluna í Georgíu á dög- unum: Þrátt fyrir deiluna við þá er sagt að Gamsakhurdía njóti stuðn- ings Armena, Azera, Rússa og Gyðinga í lýðveldinu. Engu að síður hefur notkun nokkurra tungumála verið tak- mörkuð í Georgíu með nýjum lög- um. Flokkar heimamanna á nokkr- um stöðum fá ekki að bjóða fram í lýðveldinu öllu. Þessu hafa þjóðar- brot reiðzt. „Georgíumenn vilja stjórna okkur eins og nýlendu," er haft eftir Zurab Asinba, einum leið- toga Abkhaza, sem lengi hafa notið sjálfstjórnar og vilja að hún verði aukin. Ríkisborgararéttur verður skil- greindur í nýjum lögum og óvíst er að hann verði látinn ná til allra Annað Líbanon? Sovézkir hermenn í Ossetíu. Vestræn aðstoð? Gamsakhurdía hefur sagt að lýð- veldið muni þurfa stuðning annarra þjóða og mál þess kunna að koma til kasta vestrænna ríkja. „Vestur- veldin verða að taka málstað hinna kúguðu, ekki kúgaranna," sagði hann nýlega. „Sovétríkin eru ekki lengur til. Aðeins eru til þrælar í þessu þjóðafangelsi.“ Hann hefur þegar skrifað George Bush forseta og beðið hann um að beita áhrifum sínum gagnvart Gor- batsjov og senda eftirlitsmenn til Suður-Ossetíu. Talið er að Vestur- veldin verði enn tregari að styðja Kákasushéruðin en Eystrasalts- löndin. Margir Georgíumenn segjast styðja Gamsakhurdía af þvi þeir telji baráttuna gegn Möskvuvaldinu aðalatriðið. „Ég hef óbeit á mörgu því sem stjórn okkar gerir,“ er haft eftir kvikmyndagerðarmanni, „en ef sovézku skriðdrekarnir koma mun ég berjast við hlið leiðtoga Georgíu á götunum.“ Sú hætta er fýrir hendi að ein- ræðiskenndar aðferðir Gamsakhur- día hafi í för með sér auknar þjóða- eijur og leiði til þess að skriðdrek- arnir verði sendir að sögn fréttarit- ara. Sókn Georgíu til sjálfstæðis geti leitt til aukins ofbeldis og ein- ræðis í stað frelsis og lýðræðis. séu virkir í Suður-Ossetíu og Ábkh- azíu. Þjóðavandamálin í Georgíu eru torleyst. Innbyrðis deilur íbúanna og sífelld hætta frá Moskvu valda því að óttazt hefur verið að Georg- ía geti orðið „annað Líbanon". I höfuðborginni Tbilisi hefur ríkt spenna og öngþveiti samkvæmt frá- sögn Wall Street Journal. í stað þess að stjórna gefí nýju vald- hafarnir út yfírlýsingar og tilskip- anir og fáu sé komið í verk. Marg- ir eigi vopn og mikið beri á eirðar- lausum þjóðvarðliðum, sem veifi skammbyssum og Kalashnikov- rifflum. Glæpum hafi fjölgað og að meðaltali séu framin þrjú morð á dag. Margir reyni að komast hjá herþjónustu. Einkaherir Einkaherir hafa látið að sér kveða. I janúar lét Rauði herinn til skarar skríða gegn 2.000 manna ólöglegum „her“ fyrrum bankaræn- ingja og síðar prófessors, Djaba Ioseliani. Árás var gerð á æfinga- búðir Ioselianis — gamla félagsmið- stöð kommúnista — 20 voru hand- teknir og búðunum var lokað. Iosel- iani kenndi Gamsakhurdía um að- förina og efndi til götumótmæla gegn honum, en Gamsakhurdía lét handtaka hann. Einn mikilvægasti bandamaður Ioselini er Georgíj Tsjanturía, sagn- fræðingur sem sat tvö ár í fangelsi fyrir andófsstarfsemi. Hann er einn helzti leiðtogi svokallaðs „auka- þings" fulltrúa flokka, sem neituðu að taka þátt í kosningunum í haust' og telja Gamsakhurdía og þing hans anga af valdakerfi Moskvumanna. Að minnsta kosti tvisvar hefur verið reynt að ráða Tsjanturía af dögum. „Við vitum að Gamsakhur- día er fasisti og hefur starfað fyrir KGB í 13 ár,“ sagði hann nýlega. Um leið sakaði hann Gamsakhurdía um að hafa svipt Suður-Ossetíu sjálfstjórn til að koma af stað of- beldisverkum og gefa sovézka hern- um átyllu til íhlutunar. Georgía stendur ekki traustum GLUGGINN auglýsir 20% kynningarafsláttur á blússum og pilsum í stærðum 48-52. mm&w Laugavegi 40. KYRRÐARDAGAR í SKÁLHOLTI Kyrrðardagar verða í Skálholti um hvítasunnu, 17.-20 maí. Umsjón kyrrðardaga er í höndum sr. Jónasar Gísla- sonar, vígslubiskups, og sr. Jóns Bjarman, sem sér um fræðslu. Kyrrðardagar eru íhugunar-, bæna- og hvíldar- dagar. Þú tekur þig út úr skarkala hversdagslífsins og gengur á vit þagnar. Kyrrðardagar eru öllum opnir og henta þeim, sem leita slökunar, vilja rækta sinn innri mann og sinna íhugun í anda kirkjunnar. KIRKJULISTARNÁMSTEFNA Námsstefna i kirkjulist verður í Skálholtsskóla 24.-25. maí. Dr. Elisabeth Stengaard, kirkjulistfræðingur, verður aðalfyrirlesari. Fjallað verður um trúartúlkun í nútíma- kirkjulist, kirkjubyggingar, búnað og skreytingu kirkna. Námsstefnan er öllu áhugafólki opin og ætti einnig að nýtast listamönnum, arkitektum, prestum o.fl. Skráning á kyrrðardaga og kirkjulistarnámstefnu er á Biskupsstofu í Reykjavík, s. 91-621500. Skálholtsskóli. Meim en þú geturímyndað þér! Gorbatsjov: hafnað. íbúa Georgíu. Gamaskhurdía hefur neitað því að slík lög muni þrengja að Ossetum, Abkhözum og ef til vill fleiri þjóðarbrotum. Hins vegar hefur hann sagt að vopnaðir óvinir verði sviptir borgararéttindum í fullvalda Georgíu og margir þeirra fótum efnahagslega þrátt fyrir mestu mangannámur í heimi. Lýð- veldið hefur m.a. verið háð jarð- gasi, olíu, korni og sykri frá Sov- étríkjunum og fjárhagsaðstoð frá Moskvu. Sovétmenn hafa í vaxandi mæli beitt efnahagslegum þvingun- um, skortur hefur verið á rafmagni svo að verksmiðjum hefur verið lok- að og dregið hefur úr vinnuafköst- um vegna ótryggs ástands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.