Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ MENMINGARSTRAUMAR fiUNNUPAGUR 5. MAÍ 1991
■ FKÖNSK dægurtónlist
er afskaplega fjölbreytt og
lífleg og á síðustu Lista-
hátíð sýndi það sig að hér-
lendir áheyrendur eru vel
móttækilegir fyrir slíku. Þá
léku hér sveit Malímannsins
Salifs Keita, sem starfar í
Frakklandi, og Les Ne-
gresses Vertes fyrir fullu
húsi. Síðasta sumar kom svo
hér Mitterrand, forseti
Frakklands með menning-
armálaráðherra sínum,
Jaques Lang, en sá er mik-
ill aðdáandi Sykurmol-
anna. Lang átti frumkvæði
að auknum samskiptum
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Frá Malí um Frakkland
Mory Kante.
þjóðanna á sviði dægurtón-
listar og í haust er fyrirhug-
að að hér leiki franskar
hljómsveitir. Þegar er
ákveðið að ein þeirra verði
Mano Negra, sem er með
vinsælustu sveitum Frakk-
lands, en að auki er rætt
um að annað hvort
fransk/malíski tónlistar-
maðurinn Mory Kante, eða
alsírski söngvarinn Cheb
Khaled komi hingað um
svipað leyti. Síðar er svo
ætlunin að einhverjar ís-
lenskar sveitir leiki í Frakk-
landi.
MLOKS er komin á markað
fyrsta breiðskífa Kristjáns
Hreinssonar, Skáld á nýj-
um skóm, sem Geimsteinn
gefur út. Ýmislegt varð til
þess að tefja útgáfu plöt-
unnar, sem átti að koma út
fyrir mánuði, en henni hefur
nú verið dreift í flestar
plötuverslanir.
Simple Minds
Gestir á Hróarskeldu.
Hróarskeldurokk
MESTA tónlistarhátíð Norðurlanda og sú mesta í Evr-
ópu er Hróarskelduhátíðin danska. Hróarskelduhátíðin
er yfirleitt haldin í lok júní og svo verður einnig þetta
ár, að hún stendur 27. til 30. júní, að báðum dögum
meðtöldum.
Hátíðarhaldarar hafa
margoft lýst þeim
vilja sínum að fá frekar til
leiks ferskar hljómsveitir
og efnilegar en fylla allt
af ráðsettum stjörnum og
einnig að þeir vilji ekki fá
of marga gesti. Undanfarin
ár hefur og borið á því að
á Hróarskeldu leika flestar
ungsveitir á uppleið, sem
ekki gera eingöngu út á
léttpoppmið. I frétt frá
stjóm hátíðarinnar segir.
einmitt að þeir sem leiti að
jass, léttpoppi eða fjöl-
skylduskemmtan fari í geit-
arhús að leita ullar komi
þeir til Hróarskeldu.
Ekki er búið að fastsetja
alla þá sem troða upp í
Hróarskeldu að þessu sinni,
en nokkur nöfn hafa verið
staðfest: Paul Simon, Sort
Sol, Peter Belli, The Soup
Dragons, Gang Starr, Zuc-
chero Sugar Fornaciari,
Danzig, Niagara, Marianne
Faithfull, Malurt, The Sept-
ember When, Sisters of
Mercy, Northside, Simple
Minds, The Charlatans,
Albert Collins & the
Icebreakers og Lush.
Því er svo við að bæta
að Konsertklúbbur Japís
fyrirhugar hópferð á Hró-
arskelduhátíðina.
DÆGURTÓNLIST
Hvab er abgerast í bílskúmum f
Douðarokkið lifir!
FYRIR rúmri viku lauk í Tónabæ árlegri hljómsveitakeppni félag-
smiðstöðvarinnar sem kallast Músíktilraunir. Músíktilraunir eru
einskonar litmúspappír íslenskra smásveita; þær gefa þversnið
af því sem fer fram í bílskúrum um land allt.
Það kom sumum á óvart hve
mikið bar á þungarokki í
öllum sínum fjölbreytilegu mynd-
um í nýliðnum Músíktilraunum;
dauðarokki, rusirokki, speedrokki,
mm^^mmmm sleaserokki og
poppþungarokki.
„Venjulegt"
rokk var einnig
áberandi og
greinilegt að
rokkið lifir góðu
lffi, hvað sem
hljóðgerflahross
segja. Það er af
eftir Ámo
Matthíasson
sem áður var þegar Músíktilraun-
ir voru sá vettvangur þar sem
ball- og gleðisveitir stigu fyrstu
skrefin, en það hefur Iengi verið
Ijóst flestum sem fylgst hafa með
tónlist að þungarokkið hefur verið
frjóasti vettvangur rokksins síð-
ustu misseri. Lífleg sala á þunga-
rokki hlaut og að benda til þess
sem væri í vændum.
Ekki var þungarokkið þó einr-
átt og þær hljómsveitir sem tóku
þátt í tilraununum að þessu sinni
voru jafnbetri en áður og metnað-
ur meiri. Allskyns tónlist brá fyr-
ir, allt frá rafblús Paxromania, í
gleðipopp Þorunganna, nýbylgjuf-
önk Funkhouse, sleaserokk Nir-
vana, montpopp Jónatans, frump-
önk Sagtmóðigs og dauðarokk
Infusoria. Fjöibreytnirt var því
meiri en úrslitin gefa til kynna,
en sveitimar sem sigruðu léku
dauðarokk, speedrokk og rusl-
rokk, í þeirri röð. Það sem greindi
þessar sveitir frá þeim sem ekki
náðu á verðlaunapall, var ekki
endilega það að þær væru svo
miklu betri, heldur frekar hve
sveitarmeðlimir voru ákveðnir og
einlægir í tónlist sinni. Það skein
af sveitannönnum að tónlistin
sem þeir voru að spila var þeim
hjartans mál. Það sem heillaði í
árdaga var frumkrafturinn og
óbeisluð tjáningin í rokkinu og þó
það hafi iðulega gleymst í tískuaf-
brigðum og tilgerð, koma menn
aftur og aftur að þeim kjarna.
Pönkið var að nokkru uppreisn
gegn geldri tilgerð, þó fleira hafi
komið til, og kannski er þunga-
rokkbylgjan sem nú rís ekki síst
svar við gleði/froðu/sálar/sólar-
poppinu, sem hefur verið áberandi
síðustu ár.
Infusoria Svar við gleði/froðu/sálar/sólarpoppinu?
IMirvana Rokkið lifir góðu lífi.
Ljóamynd/Björg Sveinsdðttir
Komplexa-
laus tónlist
ÍSLANDSVINIR heitir hljómsveit úr Reykjavík sem lét
fyrst á sér bera með græskulausu gamanrokki á síð-
asta ári. Sveitin lét ekki við það sitja, því hún á lag á
Bandalögum 3, sem Steinar hf. gáfu út fyrir skemmstu.
*
Islandsvinir eru þeir Kári
Waage, Pálmi Sigur-
hjartarson, Bjöm Vil-
hjálmsson, Jón Borgar
Loftsson, Sigurður Jónsson
og Eðvarð Lárusson.
Kári Waage sagði að
fyrsti vísir að sveitinni hafí
verið samstarf hans við
Centaur-pilta sumarið
1989. „Segja má að tveir
Centaurmanna háfi verið á
rangri hillu í sveitinni, ekki
fengið útrás fyrir þá tónlist
sem þeir vildu fást við og
ég fór að vinna mikið með
öðrum þeirra, Pálma Sigur-
hjartarsyni. Ég hafði þá
gengið með hugmyndina
að Islandsvinum í magan-
um í 3-4 ár og við Pálmi
ákváðum að hleypa sveit-
inni af stokkunum, sem
varð svo snemma á síðasta
ári. Frá upphafi var tak-
markið að stofna sveitina
með skemmtilegum hóp
tónlistarmanna, sem væru
lausir við alla komplexa
gagnvart tónlist. Við vild-
um spila fyrir áheyrendur
og okkur sjálfa, en ekki
fyrir aðra poppara.“
Kári segir að lögin tvö á
Bandalögum 3 séu bara
forsmekkurinn, „það verða
önnur tvö lög á Bandalög-
um 4 og svo eigum við nóg
á breiðskífu sem gæti kom-
ið út fyrir jól. Viljinn og
getan eru fyrir hendi hjá
okkur, það er bara spurn-
ing um hvað útgefendur
vilja gera.“
MÍSLENSKIR jassáhuga-
menn hafa jafnan verið af-
skiptir og íslenskar jassplöt-
ur ekki í samræmi við eftir-
spurn. A næstunni er þó
væntanleg plata með hinum
kunna trompetleikara
Frank Lacy, sem leikur
með Tómasi R. Einarssyni
og félögum. Platan var
hljóðrituð þegar Lacy var
hér á ferð fyrir stuttu og
verður gefin út í maílok í
tengslum við fyrirhugaða
jasshátíð. Að sögn útgef-
anda, p.s. músík, er platan
ekki síst ætluð fyrir erlend-
an markað.