Morgunblaðið - 05.05.1991, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 05.05.1991, Qupperneq 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1991 \ eftir Valgeir Guðjónsson NORSKA ríkisútvarpið heit- ir uppá norsku Norsk Riks- kringkasting, en gegnir hversdags nafninu NRK. Þar á bæ er húsakostur öllu rýmri og viðameiri en sá sem RUV hefur yfir að ráða. Þessu kynntist undirritaður allítarlega nú á dögunum þegar hann leitaði dyrum og dyngjum að rauðhærðum og rómsterkum Eiríki Haukssyni, sem vitað var að var staddur einhvers staðar innandyra í stofnuninni. Eft- ir eyðimerkurgöngu um endalausa rangala og innlit í hvert mynd- og hljóðverið á fætur öðru þótti ekki horfa vænlega um árangur leið- angursins. Þá birtist skyndi- lega rauður makki og undir honum Eiríkur. Á hæla hans fylgdu aðrir liðsmenn kvart- ettsins Just 4 fun á leið í búninga- og förðunarráðu- neytið til undirbúnings upp- töku á Evróvisjónlagi Norð- manna í ár. Just 4 fun skipa auk Eiríks Hanne Krogh, önnur Bobbysokkasyst- ranna, sem sigruðu fyrir Noregs hönd um árið sællar minningar, Marianne .... fallega dimmrödduð, komin 5 mánuði á leið, og Jan nokk- ur Groth, gamall refur úr rokkinu. Eftir hefðbundin fagnaðar- læti tveggja íslendinga á erlendri grund, tylltum við Eiríkur okkur niður í bún- ingsherbergi hans, sem reyndist næstum jafnstórt og samanlögð búningaað- staða sjónvarpsins okkar við Laugaveg og fyrsta spurningin var auðvitað: Hvað er þungarokkarínn að gera í þessu Júróvisjóni úti í löndum? „Það er auðvitað sama gamla sagan og sú þegar ég hætti að syngja með rokksveitinni Drýsli um árið og fór að syngja fyrir Gunnar Kafað í dýpstu gildi textans um frú Thompson. Til í slaginn. Eiríkur segir norskum jentum gamansögu. T Höfundur texta í þungum þönk- um. Þórðarson. Ef þú ætlar að syngja þungarokk fyrir fámenna þjóð í norðri máttu ekki búast við að auðg- ast af tiltækinu, frekar að þú safnir skuldum! Þannig að ég er bara að hafa vaðið fyrir neðan mig. Þunga- rokksveitin Artch er reyndar síður en svo hætt því önnur platan okkar er að koma út í Bandaríkjunum núna fljótlega. Því umstangi fylgir hinsvegar mikill dauður tími, þannig að þegar ég vár beðinn að taka þátt í þriggja vikna tónlistarsýningu í mínum heimabæ, Fredrikstad, sló ég til og varð fjórði maður í kvart- ett, sem hlaut nafnið Just 4 fun. „Just 4 fun“ eða „Uppá grín“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.