Morgunblaðið - 05.05.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
mutivamm
'bA&ÚrÍ- MAl-1991 - -..........................................................................................................................C
l#.1
Norsk blöð
í kreppu
Alvarleg kreppa ríkir í noi-skri
blaðaútgáfu. Ástæðurnar eru
minnkandi auglýsingatekjur og
minni lausasala. Nokkur blöð hafa
orðið að segja upp starfsfólki og
grípa til sparnaðar í rekstrinum.
Þetta á ekki aðeins við um lítil
blöð. Aftenposten, sem er útbreidd-
asta morgunblað Noregs — þrátt
fyrir nafnið — tilkynnti nýlega að
150 starfsmönnum blaðsins hefði
verið sagt upp. Tíundi hver starfs-
maður missti því atvinnuna. Blaðið
verður minnkað og eftirvinna tak-
mörkuð.
„Efnahagsleg staða norsku blað-
anna hefur aldrei verið eins slæm,“
sagði Odd Dissen, formaður lands-
sambands norskra dagblaða, í sam-
tali við Ritzau-fréttastofuna.
FURÐUHEIMAR
FJÖLMIÐLANNA
Ingólfur Margeirsson og Árni Tryggvason ræða um viðreisn ævisög-
unnar hjá þeiin fyrrnefnda.
Ingólfur Margeirsson
ritstjóri Alþýðublaðsins:
Skrifar ævisögu
Arna Tryggvasonar
INGÓLFUR Margeirsson ritstjóri Alþýðublaðsins hefur nú fengið
leyfi frá störfum sínum fram að næstu áramótum. Mun hann nota
leyfið til að skrifa ævisöjgu Árna Tryggvasonar leikara og trillu-
karls en það er Orn og Orlygur sem mun gefa bókina út.
VALKOSTADEILD
„í dag er sumardagurinn fyrsti
eða fyrsti dagur sumars að ís-
lensku tímatali.“
— Morgunblaðið
• •
Orlygur Hálfdánarson útgefandi
hafði samband við Ingólf
snemma á þessu ári og spurði hvort
hann væri til í verkið. „Eg fékk strax
áhuga á þessu enda þekki ég Árna
aðeins persónuiega og svo má segja
að hann hafi verið senuþjófur minnar
kynslóðar," segir Ingólfur. „Árni
Tryggvason var einn af mínum uppá-
halds leikurujn í æsku og ég veit að
hann er ljúfur og indæll persónuleiki
því ég kynntist honum og Stínu konu
hans er ég bjó á Dalvík árið 1986
. og heimsótti þau út í Hrísey."
í máli Ingólfs kemur einnig fram
að hann hafi verið farið að klæja í
puttana eftir að komast úr blaða-
mennskuharkinu og í textagerð á
þessuní vettvangi en hann sendi síð-
ast frá sér bók árið 1986. Það var
bókin „Allt önnur Ella“, ævisaga
Elínar Þórarinsdóttur. „Það má
kannski orða þetta svo að hér sé um
viðreisn ævisögunnar að ræða hjá
mér og ég hlakka til að takast á við
þetta verkefni," segir Ingólfur. Áætl-
að er að bókin komi út fyrir næstu
jóla.
verður haldinn mánudaginn 13. maí nk. kl. 16.
Fundurinn fer fram á skrifstofu félagsins
á Funahöfða 19, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál, löglega framborin.
Stjórn Ármannsfells hf.
Ármannsfell
hf.
Endingargóbar og mebfærilegar
Sorptunnur
fyrir heimili og fyrirtæki.
Þú getur valib úr ýmsum litum sem til
dæmis aubveldar flokkun úrgangs.
Viburkennd þýsk gæbavara.
Atlas
Borgartúni 24
s: 62 11 55
FARKORT
EÐA EKKI FARKORT
-það er engin spurning
FARKORT er greiðslukort sem gefið er út í
samvinnu Félags íslenskra ferðaskrifstofa og
VISA ÍSLAND.
FARKORT er alþjóðlegt VISA-greiðslukort, og
því gjaldgengt á yfir 8 milljón verslunar- og
þjónustustöðum um allan heim.
FARKORTI fylgja sömu réttindi og almennu
VISA-korti en ýmis fríðindi því til viðbótar.
Fullkomnar ferða/slysa-, sjúkra- og
farangurstryggingar og helmings afsláttur
af forfallatryggingargjaldi.
O Afsláttur á fjölmörgum skemmtistöðum,
veitingahúsum, hótelum og bílaleigum
innanlands.
O Afsláttur á skoðunarferðum erlendis.
Sveigjanlegri greiðsluskilmálar hjá
ferðaskrif stofum.
Sérstakar „lukkuferðir", þar sem hand-
höfum FARKORTS bjóðast
30 utanlandsferðir fyrir 30 krónur.
Um þessar ferðir er dregið tvisvar á ári.
7 -10% afsláttur af tilteknum ferðum til
helstu sumarleyfisstaða Evrópu. Þessar
ferðir eru auglýstar með góðum fyrirvara.
Ódýrar öræfaferðir.
C3
Þetta er því engin spuming!
Upplýsingar veita feröaskrifstofur, bankar og sparisjóðir um land allt.
FÁBKORÍT vkÁ
010 bbbH
i w. _
ot,
:
VtSA
greiðslukort með fríðindum