Morgunblaðið - 05.05.1991, Qupperneq 28
I
'tt&mjmíttWLvlQlSMfVMMmivmmi
„ þctta. er 2 pwsent mjóUef hi/ab
bOrC)a 'eg þci rriifdS fynr hihUSprósentin?
*
Ast er...
. . . að vera sakleysið upp-
málað þegar reikningarnir
berast.
TMReg US PatOff — all rights reserved
® 1991 Los Angeles T imes Syndicale
Ég hreyfi mig ekki par.
Konan er farin heim til að
sækja pening í stöðumælinn.
Konan þín er alveg frábær
húsmóðir. Fer ekki á milli
mála.
HÖGNI HREKKVÍSI
A FORNUM VEGI
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Geirfugl í Arnarfirði:
Aprílgabbið sem
ekkert varð úr
Bíldudal.
ÞEGAR nær dró 1. apríl, fóru margir að huga að aprílgabbi. En
því miður urðu þau frekar fá, aðeins hjá Sjónvarpinu og Útvarp-
inu. Dagblöð komu ekki út 1. apríl. A Bíldudal var búið að und-
irbúa aprílgabb, en úr því varð ekki, vegna útgáfudaga blaðanna.
t>essir hringdu . .
Katrín verði borgarsljóri
Guðný Ósk Friðriksdóttir-
hringdi:
„Ég vil eindregið mæla með því
að Katrín Fjelsted verði næsti borg-
arstjóri Reykjavíkur. Hún er mjög
hæf til að gegna embættinu og svo
er löngu tímabært að kona hljóti
þessa stöðu.“
Gleraugu
Herragleraugu voru skilin eftir á
Hótel Sögu 20 apríl og má vitja
þeirra í gleraugnasölunni Fokus
Lækjargétu 6b.
Bolti
Hinn 29. apríl tapaðist við Aust-
urbæjarskóla nýr fótbolti af gerð-
inni Alitra cosmos, hvítur með
svörtum dílum. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa samband við
Karl í síma 28256.
Kettlingur
Tveggja og hálfs mánaða gamall
gulur og hvítur högni þarf að kom-
ast á gott heimili. Upplýsingar í
síma 23015.
Slæða
Stór slæða fannst við Grensásveg
þann 27. apríl. Upplýsingar 35842.
Ákeyrsla
Hinn 24. apríl á milli kl. 13 og
17 var ekið utan í svartan Daihatsu
sæm var á stæði í sundinu við
Ármúla 38 og 40. Eigandi bílsins
er félítill námsmaður. Bíllinn sem
tjóninu olli er ljós að lit. Viðkom-
andi ökumaður eða vitni eru vin-
samlegast beðin að hafa samband
við lögregluna í Reykjavík eða
hringja í síma síma 51021.
Kettlingur
Ómerktur, svartur og hvítur
högni, um það bil þriggja mánaða,
kom í hús í Seljahverfi föstudaginn
26. apríl. Upplýsingar í síma 71185.
Úr
Stálúr með svartri ól fannst á Meist-
aravöllum í mars. Sennilega
krakkaúr. Upplýsingar í síma
25412.
Oskar Magnússon, refaskytta
og listamaður, var búinn að
leggja mikla vinnu í að gera líkan
af geirfugli, sem talinn er útdauð-
ur fyrir löngu. Geirfuglinn var
gerður úr frauðefnum úr brúsa og
fóru fimm brúsar í fuglinn. Síðan
var hann málaður og settir á hann
fætur úr dagblöðum.
Þá var komið að því að mynda
geirfuglinn. Var það gert á litlu
nesi við Dufansdal í Arnarfirði.
Síðan var saga búin til og var hún
eitthvað á þessa leiðf
Geirfuglinn spakur að sjá
„Vörubifreiðastjóri á Bíldudal,
sem var að keyra með efni úr
skreiðarhjöllum frá Dufansdal, tel-
ur sig hafa séð geirfugl á litlu
nesi fyrir neðan veg. Bílstjórinn
tók tvær myndir af fuglinum, sem
var nokkuð spakur að sjá. Mynd-
irnar sendi hann til Sævars Peters-
ens, fuglafræðings, og fullyrti
hann að myndin væri af geirfugli.
Geirfuglinn hefur sést stöku
sinnum við nes í Arnarfirði og virð-
ist hann vera einn á ferð. Fjöldinn
allur af fuglaskoðurum, ljósmynd-
urum og fuglafræðingum ásamt
Bruce Spakel, yfirmanns Náttúru-
vísindastofnunar Boston-háskóla,
eru komnir vestur til Bíldudals til
að skoða geirfuglinn. Bruce Spa-
kel var staddur hér á landi í tengsl-
um við rannsóknir á útbreiðslu
keldusvíns á íslandi ásamt starfs-
Víkverji skrifar
Víkverji dagsins hefur lifað
margar ríkisstjómir. Hann
hefur oft og mörgum sinnum haldið
því fram að viðreisnarstjórnin 1959-
1971 hal'i ekki aðeins verið lang-
lífasta landstjórn lýðveldisins —
heldur og sú farsælasta.
Þetta stjórnarmunstur viðreisn-
aráranna, samstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks, speglaði
þann stóra borgaralega meirihluta,
sem þá var með þjóðinni — og er
enn. Það samtvinnaði jafnrétti og
fijálslyndi. Það henti úreltum höft-
um á öskuhauga og efldi framtak
samkeppnishvata í þjóðarbúskapn-
um. Það stórbætti starfsaðstöðu
atvinnulífsins, sem skila verður
verðmætum til að standa undir vel-
ferð samfélagsins.
Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur áttu þá, fremur en nokkrir
aðrir tveir stjórnmálaflokkar, sam-
leið, bæði í innanríkis- og utanríkis-
málum.
Sósíalistaflokkur/Alþýðubanda-
lag hélt þá enn dauðahaldi í höftin,
miðstýringuna, forsjárhyggjuna og
tengslin við marxískan [skoðana-
leganj uppruna sinn í „fyrirmynd-
arríkjum“ sósíalismans.
xxx
Víkverji hefur hitt örfáa ein-
staklinga, sem spyrja sem
svo: verður Viðeyjar-viðreisn jafn
farsæl og forveri hennar 1959-
1971? Hafa þessir samstarfsflokkar
ekki breytzt umtalsvert í tímans
rás, sem og þjóðfélagið og umheim-
urinn? Eiga þeir jafn mikið sameig-
inlegt í innanríkis- og utanríkismál-
um? Eru það ekki „aðrir menn“ nú
en þá sem freista þess að byggja
upp viðreisnar-trúnað sín á milli?
Og eru kringumstæðurnar, sem
skapa starfsvettvanginn, ekki með
öðrum hætti 1991 en 1959?
Vissulega hefur flest breytzt í
samfélaginu á þessum árum. Sumt
hefur breytzt of mikið, annað of
lítið. En það er staðreynd, nú sem
þá, að engir tveir stjórnmálaflokkar
eiga fleira sameiginlegt og færra
sem aðskilur þá, ef grannt er gáð,
en Sjálfstæðisflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn. Það, sem aðskilur,
er þó töluvert. En ekki svo mikið
að útiloki gott samstarf, ef af heil-
indum er að því staðið af báðum
aðilum. En vel þarf að vanda það
sem lengi á að standa.
xxx
Hvort sem menn hafa meiri eða
minni trú á ágæti Viðeyjar-
viðreisnar, gildir það sama um
þessa ríkisstjórn, þessa ráðherra,
og fyrri stjórnir og einstaklingana
sem þær mynduðu. Ríkisstjórnin á
sinn reynslutíma! Það er ekki rétt
að kveða upp dóma yfir henni fyrr
en að hæfilegum reynslutíma lokn-
um. Hún þarf að fá starfsfrið til
að sýna, hvað í henni býr.
Víkverji dagsins er þeirrar skoð-
unar að þetta eigi eftir að reynast
góð stjórn. Breytingin frá því sem
var getur að minnsta kosti ekki
orðið nema til hins betra.