Morgunblaðið - 29.05.1991, Page 1

Morgunblaðið - 29.05.1991, Page 1
48 SIÐUR B 118. tbl. 79. árg._______________________________________MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991____________________________________Prentsmiðja Morgxinblaðsins Helsti samningamaður ísraela í viðræðum þeirra við Eþíópíustjórn um eþíópsku gyðinganna, sem flutt- ir voru til ísraels í vikunni, staðfesti í gær að greitt hefði verið lausnargjald fyrir Eþiópiumennina. Hann vildi ekki nefna fjárhæðina en aðrir ísraelskir embættismenn sögðu að ísraelar hefðu greitt um 35 milljónir dala (2,1 milljarð ISK). A myndinni eru eþiópísk börn að leik í Tel Aviv. Stofnun hraðliðs NATO samþykkt Brussel. Reuter. Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins (NATO) samþykktu í gær mestu breytingar á varnarstefnu bandalagsins í rúmlega fjög- urra áratuga sögu þess. Þeir ákváðu meðal annars að stofna hraðliðs- hersveitir, sem gætu brugðist með skjótum hætti við ógnunum í Evr- ópu nú þegar kalda stríðinu er lokið. Talsmenn bandalagsins sögðu að sveitirnar yrðu skipaðar að minnsta kosti 60.000 hermönnum, eingöngu evrópskum, sem yrðu undir stjórn bresks yfirmanns. Hægt yrði að senda þær frá norðurheimsskauts- svæðinu til Miðjarðarhafs á örfáum vikum. Ráðherrarnir samþykktu einnig að fækka verulega hermönnum í sveitum í Mið-Evrópu, sem ætlað hefur verið að vetjast stórfelldri árás Varsjárbandalagsins á landi. Samkvæmt þessari nýju stefnu, sem verður samþykkt formlega á leiðtogafundi bandalagsins síðar á árinu, er litið svo á að Vesturlöndum stafi enn mest hætta af hernaðar- mætti Sovétríkjanna vegna ólgunnar í landinu. Ennfremur er talin hætta á að stríðsátök kunni að breiðast út til aðildarríkja bandalagsins frá Austurlöndum nær og Austur-Evr- ópu. Ráðherrarnir voru sammála um að ekki mætti skera á tengslin á sviði öryggis- og vamarmála milli Evrópulandanna annars vegar og Bandaríkjanna hins vegar þótt Evr- ópuríkin ykju varnarsamstarf sitt. Margaret Thatcher íKreml Stjórninni í Eþíópíu steypt eftir árás skæruliða á Addis Ababa: Nýir valdhafar lofa frjáls- um kosningum innan árs 1 lln/llinum A il/Jii' Aknkn HPkn Tlnilir Tnln/vnnnli Lundúnum, Addis Ababa. Reuter, The Daily Telegraph. EÞÍÓPSKIR uppreisnarmenn náðu Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, á sitt vald eftir þriggja klukkustunda bardaga í gærmorgun og bundu þar með enda á sautján ára harðstjórn marxista í landinu. Leiðtogar skæruliða í Lýðræðis- og byltingarhreyfingu eþíópsku þjóðarinnar (EPRDF), sem réðust inn í borgina, fara með völdin í landinu þar til lokið verður viðræðum um myndun bráðabirgðastjórnar með þátttöku annarra hreyfinga. Þetta varð niðurstaða tveggja daga fundar þriggja eþiópskra skæruliðahreyfinga í Lundúnum, sem lauk i gær. Leiðtogi EPRDF, Meles Zenawi, kvaðst ætla að hefja viðræður við aðrar hreyf- ingar fyrir 1. júlí og stefna að frjálsum kosningum innan árs. Fyrrver- andi ráðamenn, sem bæru ábyrgð á stríðsglæpum, yrðu leiddir fyrir rétt. Þúsundir uppreisnarmanna tóku þátt í árásinni á Addis Ababa og mættu mun minni mótspymu en búist hafði verið við. Skriðdreka- sveit hélt uppi vélbyssuskothríð á forsetahöllina í borginni, þar sem viðbúnaður stjórnarhersins var mestur. Skotið var á tvær vopna- geymslur við höllina og varð gífur- leg sprenging. Fáar opinberar byggingar urðu þó fyrir árásum og ekki var ráðist á íbúðarhverfi. Tals- maður Rauða krossins í Eþíópíu taldi í gærkvöldi að rúmlega 200 manns hefðu beðið bana í átökunum í höfuðborginni í gær. Bandaríkjastjórn hafði hvatt Lýðræðis- og byltingarhreyfinguna til að ráðast á Addis Ababa til að koma á lögum og reglu í borginni. Fulltrúar eþíópsku stjórnarinnar gengu þá af fundinum í Lundúnum í mótmælaskyni. Herman Cohen, aðstoðarutanrík- isráðherra Bandaríkjanna, sem stjórnaði fundinum, sagði að Bandaríkjastjórn myndi ekki veita nýjum valdhöfum í Eþíópíu efna- hagsaðstoð nema þeir stæðu við loforð sín um að koma á lýðræði í landinu. Auk Lýðræðis- og byltingar- hreyfingarinnar voru á fundinum í Lundúnum fulltrúar Frelsishreyf- ingar Erítreu (EPLF), sem barist hefur fyrir sjálfstæði héraðsins í þrjá áratugi, og Frelsishreyfingar Oromo-héraðs. EPLF náði Erítreu á sitt vald í síðustu viku og talsmað- ur hreyfingarinnar sagði að hún myndi ekki taka þátt í myndun bráðabirgðastjómar. Hún hefði ekki heldur áform um að lýsa tafarlaust og einhliða yfir sjálfstæði héraðs- ins. Efnt yrði til þjóðaratkvæða- greiðslu um framtíð héraðsins og reynt að tryggja stuðning við sjálf- stæði þess á alþjóðavettvangi. Tesfaye Dinka, fyrmerandi for- sætisráðherra Eþíópíu, sagði að það leysti á engan hátt vanda Eþíópíu- manna að fela einni hreyfingu völd- in í landinu til bráðabirgða. Fulltrúi Frelsishreyfingar Oromo kvaðst einnig óánægður með að Lýðræðis- og byltingarhreyfingin tæki ein við völdum og sakaði Bandaríkjastjórn um hlutdrægni. Cohen vísaði því á bug að Bandaríkjastjórn styddi eina hreyfíngu umfram aðrar, henni væri aðeins umhugað að tryggja lýðræði í landinu. Meles Zenawi, leiðtogi Lýðræðis- og byltingarhreyfingarinnar, sagði í gærkvöldi að komið hefði verið á lögum og reglu í höfuðborginni. Fyrrverandi ráðamenn hefðu verið handteknir og þeir, sem bæru ábyrgð á stríðsglæpum, yrði refsað en öðrum hlíft. Höfuðáhersla yrði lögð á að afstýra hungursneyð í landinu. Sjá fréttir af falli eþiópsku stjórnarinnar á bls. 18. Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, er í einkaheimsókn í Moskvu í boði Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétfor- seta og hafa Moskvubú- ar tekið henni með kostum og kynjum. Til ryskinga kom milli öryggis- varða og náms- manna, sem reyndu að troðast inn í fyrir- lestrasal háskóla þar sem hún flutti ávarp og svaraði fyrirspurn- um. Á myndinni er Thatcher í Kreml eftir fund með Valentín Pavlov, forsætisráð- herra Sovétríkjanna í gær. Guðlaugur Gunnarsson, kristniboði í Addis Ababa; Mestur óttinn vid vopnaða ræn- ingjaflokka sem fara um borgina „ÞAÐ gekk mikið á í morgun, mikil skothríð og sprengingar ekki fjarri og við sáum héðan þegar vopnagcymslurnar við forsetahöll- ina sprungu í loft upp. Nú um eftirmiðdaginn er orðið heldur kyrr- ara og mesta hættan stafar nú af ræningjahópum, aðallega vopnuð- um unglingaflokkum, sem fara ránshendi um borgina," sagði Guð- laugur Gunnarsson kristniboði þegar Morgunblaðið náði sambandi við hann í Addis Ababa í Eþíópíu í gær. Guðlaugur sagði, að hann færi uninn rætt við konu sína. Sagði ekki út úr húsi enda fólk varað við því en Qölskylda hans er sunnar í landinu, í um 500 km fjarlægð frá höfuðborginni. Kvaðst hann hafa talstöðvarsamband við hana á hveijum degi og hafði þá um morg- hún, að nokkur skothríð hefði verið ekki langt frá fyrr um daginn en nú væri komin kyrrð á. „Það er mikið vandamál hér í Addis Ababa hvað vopnaeign er mikil. Þegar stjðrnarhermennirnir flúðu til borgarinnar seldu margir þeirra vopnin fyrir mat og nú fara ránsflokkarnir um með skothríð og stela öllu steini léttara. Rétt eftir hádegi kom einn slíkur hópur hér að hliðinu, skaut nokkrum skotum en hafði sig síðan burt. Ég hef hins vegar heyrt, að ráðist hafi verið á aðsetur Svía, sem starfa fyrir „Save The Children“-sjóðinn, og varðmaður í húsinu skotinn og öllu stolið. Ég hef séð til þessara ræningja hér á götunni með alls konar þýfi,“ sagði Guðlaugur. Að sögn Guðlaugs eru borgarbú- ar ánægðir með, að styijaldarátök- unum skuli vera að linna og friður að komast á. Borgin er hins vegar rafmagnslaus ennþá og hann kvaðst óttast, að ræningjaflokkarn: ir tvíefldust í næturmyrkrinu. í útvarpinu hefur fólk verið varað við að vera á ferli og skæruliðar, sem eru sem óðast að treysta tökin á borginni, segjast munu skjóta umsvifalaust þá, sem staðnir eru að ránum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.