Morgunblaðið - 29.05.1991, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991
13
tugnum. Hin evrópsku nýlenduveldi
voru nýhrunin, og sífelld þensla á
vesturlöndum var að skapa makráð
samfélög smáborgara á sama tíma
og þjóðir þriðja heimsins reyndu að
láta til sín heyra á alþjóðavettvangi
í fyrsta sinn í sögunni.
Ef segja má að rokk-tónlist hafi
verið ögi'un við samfélagið á þess-
um tíma, og tónlist John Cage hafi
verið uppreisn, þá sneri Fluxus baki -
við borgaralegri list samtímans, og
hélt jafnvel mótmælagöngur gegn
henni (fræg eru mótmælin gegn
flutningi á verkum Karl-Heinz
Stockhausen). í stað þess að fram-
leiða hefðbundin listaverk, komu
Fluxus-menn sínum skoðunum á
framfæri á annan hátt, og sterk-
asta meðal þeirra var húmor: í út-
gáfustarfsemi, orðaleikjum, uppá-
komum, tónleik-um, fyrirmælum til
viðstaddra, gjörningum og athöfn-
um — þar sem Fluxus er fjarri hinu
verndaða umhverfi listasalanna og
í snertingu við daglegt líf hins al-
menna borgara.
Vegna þess er hvert það Fluxus-
verk, sem sett er á sýningu, aðeins
skugginn af sjálfu sér; það er heim-
ild um atburð eða gjörning, sem fór
fram á ákveðnum stað, á ákveðnum
tíma — en það getur aldrei orðið
endursköpun þess sem liðið er.
Gullöld Fluxus-hreyfingarinnar
stóð stutt (1963-68 að áliti Maciun-
as sjáifs), og hún naut ekki mikillar
athygli á þeim tíma. Ýmsir lista-
menn sem þar komu við sögu hafa
þó haldið áfram listsköpun á grunni
hennar, og öðlast alþjóðlega viður-
kenningu, samtímis því sem hreyf-
ingin sjálf hefur notið vaxandi at-
hygli sem boðberi róttækra viðhorfa
í nútímalist, og grundvöllur undir
margt af því sem gerst hefur á
myndlistarsviðinu síðustu tvo ára-
tugi.
Eðli málsins samkvæmt er lítið
um Fluxus-verk á söfnum, enda
voru þau alls ekki söluvara og ekki
ætlað að vera varanieg; þau fáu
verk Fluxus-manna, sem þó eru til,
eru helst ritað mál (lýsingar at-
hafna, fyrirmæli um gjörninga o.fl.)
og smáhlutir. Nokkrir einkaaðilar
hafa þrátt fyrir þetta náð saman
góðu safni verka þeirra og bréfa,
og þekktast er eflaust Fluxus-safn
Gilberts og Lila Silverman í Detroit
í Bandaríkjunum, en Jon Hendricks,
listfræðingur, sem átti stóran þátt
í uppsetningu sýninganna á Kjarv-
alsstöðum, var safnvörður þess um
skeið. Fluxus-menn hafa svo sjálfir
ákveðið að fela nokkrum útvöldum
söfnum að varðveita verk sín, en
meðal þeirra eru m.a. Henie Onstad
listamiðstöðin í Hovikodden í Nor-
egi og Kjarvalsstaðir í Reykjavík.
Það ber að skoða þá sýningu, sem
nú stendur í austursal Kjarvals-
staða, fyrst og fremst sem brota-
kenndar heimildir um það sem eitt
sinn var, en alls ekki- sem sögulegt
yfirlit eða heildarúttekt á Fluxus-
hreyfingunni. Til að þeir orðaleikir
og önnur gögn, sem sýningin bygg-
ist á, njóti til fulls, þarf að lesa
verkin vel og vandlega. En hér er
því miður ekki komið nægilega vel
til móts við sýningargesti.
Sýningunni er nokkuð þröngt
skipað á veggi, og þyldi auðveldlega
nokkru meira rými; hið sama má
segja um sýningarbúrin, sem eru
full af áhugaverðum hlutum, sem
þyrftu meira pláss. Erfiðast er þó
fyrir hinn almenna gest, að fyrir
utan stuttar leiðbeiningar í sýning-
arskrá (þar sem hlutverk John Cage
er ef til vill gert of fyrirferðarmik-
ið), er ekkert lesmál á íslensku;
hvorki titlar, skýringar né einstök
vei'k eru þýdd fyrir gesti. Þetta
gerir börnum og unglingum ókleift
að njóta sýningarinnar, og krefst
tungumálakunnáttu af hinum full-
orðnu. Þetta vandamál hefur verið
nefnt áður um einstakar listsýning-
ar, og ætti að vera óþarfi að þurfa
að benda margoft á það, því íslensk-
an á að sjálfsögðu að fylgja sýning-
um hér á landi — annað er einfald-
lega ókurteisi.
Það er mikilvægt að kynna er-
lendar listhreyfingar fyrir íslend-
ingum, og þar hafa Kjarvalsstaðir
og fleiri staðið sig vel síðustu ár.
Með slíkum sýningum fá sýningar-
gestir ekki aðeins nasasjón af lista-
sögunni og því sem er að gerast á
erlendum vettvangi hveiju sinni,
heldur sjá þeir einnig ýmislegt í
íslenskri listasögu í öðru ljósi — t.d.
ætti samband SÚM-hreyfingarinn-
ar hér á landi við Fluxus og aðra
alþjóðlega strauma að vera öllum
ljóst eftir þessa sýningu.
Fluxus-sýningin á Kjarvalsstöð-
um stendur til 2. júní, og ætti eng-
inn listunnandi að láta hana fram-
hjá sér fara.
Miða- og
borðapantanir
687111
P'unéúte&wt
ACS*^
l.itnf "
&e*H< aííifi
tala, um oy e*t$i*t*t tttá-
SÍÐASTA SÝi\Ii\(í
Log'ræðmgu'
ÞorhilOu' Sandhoít
Solumpnn
Gisli Sigurbiornsson
Sigurbpm Þoroergsson
Einbýlishú^lll^^"l|
HEIÐARBÆR
Mjög gott einbhús á einni hæð 151,5
fm auk 15 fm garðstofu. Góðar stofur,
4-5 svefnherb. Góður garður. 31,2 fm
bílsk. fylgir. Ákv. sala. Verð 14,5 millj.
SMÁÍBÚÐAHVERFI
Mikið endurn. einbhús 127 fm með 31
fm bílsk. Húsinu fylgir garðskáli, gróður-
hús og mjög góður suðurgarður með
yfirbyggðri verönd. Ákv. sala. V. 11,7 m.
GARÐABÆR
Gott 136 fm steypt einbhús á
einni hæð. 37 fm bílsk. 3-4
svefnherb. Góður garður. Ákv.
sala. Verð 12,2 millj.
TEIGAR
Vel staðsett og fallegt 2ja íb. hús á
Teigunum, efri hæð og ris 153,9 fm nt.
Góðar stofur, stórt eldhús, 4 svefnherb.
í kj. er 3ja herb. íb. m/sérinng. 23 fm
bílsk. Góður garður í suður. Ákv. sala.
STARHÓLMI - KÓP.
Fallegt 192 fm einbhús með 5
svefnherb. og innb. bílsk. Falleg
ræktuð lóð. Auk þess er rúmg.
kj. með vinnu- og tómstunda-
aðst. Ákv. sala.
V^terkurog
k.# hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Stakfell
Fasteignasaia SuduriandsOraut 6
687633 if
DAN V. S. WtlUM, LÖGFRÆÐINGUR,
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJ.
DAVÍÐ SIGURÐSSON, SÖLUMAÐUR
Kópavogur. 3ja herb. mjög góö
íb. á 1. hæð við Kjarrhólma. Sér-
þvottah. Suðursv. fallegt útsýni. Laus
strax. Áhv. veðd. 3,1 millj. 348.
Kjarrhólmi — Kóp. 3ja herb.
rúmg. íb. á 1. hæð. [b. og hús i mjög
góðu ástandi. Góð staðs. Ákv. sala.
Verð 5,8 millj. 42
Uthlið. 4ra herb. íb. á jarðh. í
þríbhúsi. Laus strax. Sérhiti. Hurð út í
garðinn. Ákv. sala. Verð 7,0 millj. 352.
Smáíbúdahverfi. Efri hæð og
rishæð í tvíbhúsi við Sogaveg. Sérinng.
Sérhiti. Mikið endurn. eign. Samþ.
teikn. á tvöf. bílsk. Verð 10,6 millj. 353.
íbúd fyrir aldrada —
Hjallasel v/Seljahlíð. Parh.
á einni hæð. Nýl. góð eign. Öll þjón-
usta. Afh. strax. Verð 8,3 millj. 343.
Fossvogur. Endaraðhús við Kúr-
land. Húsið er á tveimur hæðum.
Bílskúr fylgir. í húsinu eru 2 samþ., íbúð-
ir. Stærð efri hæðar er ca 130-140 fm.
Á jaröh. er rúmg. -2ja herb. íb. m. sér-
inng. Ákv. sala. 354.
Esjugrund — Kjalarn. Timb-
urhús á einni hæð ásamt bílsk. Ákv.
sala. Laust strax. Verð 9,8 millj. 355.
Einbýlishús — Hafnarfj.
IGIæsil. einbhús mikið stands. Mögul. á
séríb. í kj. Laust strax. Verð 7,9 millj.
349.
Metsölublad á hverjum degi!
EIGNASALAIXi
REYKJAVIK
Yfir 30 ára reynsla
tryggir öryggi þjónustunnar
HÖFUM KAUPANDA
Okkur vantar góða 2ja-3ja herb. íb. i
Hafnarf. Góð útb. í boði f. rétta.eign.
SKIPTI ÓSKAST
Höfum 2ja herb. íb. á 3. hæð í fjölb. í
skiptum f. 3ja herb. í sama hverfi. Milli-
gjöf greidd á stuttum tíma.
HÖFUM KAUPANDA
að góðri 5 herb. íb. (4 svefnherb.), gjarn-
an í fjölb. þar sem húsvörður er. Fleira
kemur til greina. Góð útb.
EINBÝLI ÓSKAST
Höfum fjárst. kaupanda að góðu einb-
húsi í Gbæ eða Hafnarf. Æskil. stærð
150-170 fm.
HÖFUM KAUPANDA
að góðri 4ra herb. íb. Bílsk. æskil. Góð
útb. í boði f. rétta eign.
HÖFUM KAUPENDUR
að 2ja-5 herb. ris- og kjíb. Mega í sum-
um tilf. þarfn. standsetn. Góðar útb.
geta verið í boði.
HÖFUM KAUPENDUR
að 2ja-3ja herb. íb., gjarnan í vesturb.
og sem næst miðb. Æskil. að áhv. séu
nýl. lán frá veðd. Góðar útb. í boði.
HÓLAR - 2JA HB.
SÉRINNG. - TVÍB.
Höfum í sölu 60 fm 2ja herb. mjög
góða ib. á 1. hæð í tvibhúsi á ról. og
skemmtil. stað í Hólahv. Sérinng. Sér-
hiti. Áhv. um 800 þús. í veöd. Laus fljótl.
HRAUNBÆR - 3JA
3ja herb. sérl. vönduð íb. á 2. hæð í
fjölb. Ný eldhinnr. Þvottah. og búr innaf
eldh. Suðursv. Mikið útsýni.
LAUGARNES - 3JA
3ja herb. 82 fm íb. í fjölb. á horni
Kleppsv. og Laugarnesv. íb. er í góðu
ástandi. Húsvörður. Verð 6,2 millj.
EICNASALAM
REYKJAVIK
Ingólfsstræti 8 ./g
Sími 19540 og 19191 II
Magnús Einarsson, lögg. fastsali,
Eggert Elíasson, hs. 77789
hiiibnmai’frxflinfiar
Við, hjúkrunarfræðingar sem
störfum á skurð- og svæfinga-
deildum Landsspítalans, verð-
um með opið hús þriðjudaginn
11. júní frá klukkan 9:00
til 16:00.
Við bjóðum hjúkrunarfræðinga
velkomna, sem áhuga hafa á að
til að kynnast starfsemi deild-
anna í fjölbreyttri dagskrá.
Þátttaka í opnu húsi tilkynnist
Bergdísi Kristjánsdóttur,
hjúkrunarframkvæmdastjóra
eða ritara hjúkrunarforstjóra í
síma 601300 og 601301
fyrir 6. júní.
Bcrgdís veitir einnig allar
nánari upplýsingar í síma
601000.
■ kynning á starfsemi skurð- og svcefinga-
deilda og starfssviði hjúkrunarfræðinga
á deildunum
m matarhlé - umrceður
m heimsókn á skurðstofurnar
Hjúkrunarfræðingar á
skurð- og svæfingadeildum
Landspítalans