Morgunblaðið - 29.05.1991, Page 24

Morgunblaðið - 29.05.1991, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991 Hvítasunnu- söfnuðurinn: Norsk hjón tala á rað- samkomum Hvítasunnusöfnuðurinn á Ak- ureyri verður 55 ára á morgun, 30. maí, og á þeim tímainótum efnir söfnuðurinn til raðsam- koma í Hvítasunnukirkjunni, en hin fyrsta verður í kvöld, mið- vikudagskvöld, og sú síðasta á laugardagskvöld, 1. júní. Sam- komurnar hefjast allar kl. 20.30. Ræðumenn verða hjónin Lise og Ludvik Karlsson frá Noregi, en þau reka um 30 heimili þar í landi fyrir þá sem orðið hafa vímugjöfum að bráð. Ludvik er forstöðumaður Hvítasunnusafnaðarins í Ósló. Söfnuðurinn starfaði í fyrstu í heimahúsum, síðan í leiguhúsnæði, en árið 1951 keypti hann sitt fyrsta húsnæði, Fíladelfíu við Lundargötu. Hafist var handa við kirkju- og leik- skólabyggingu fyrir tæpum tíu árum og leikskólinn, Hlíðarból, hóf starfsemi fyrir þremur árum. Verið er að byggja annan áfanga kirkj- unnar sem verður safnaðarmiðstöð og sérstök aðstaða fyrir æskulýðs- starfsemi, en núverandi húsnæði tekur 70 manns í sæti í sal. Meðlim- um í söfnuðinum hefur Ijölgað á síðustu tveimur árum og eru húsa- kynni orðin í þrengsta lagi. Morgunblaðið/Rúnar Þór Þær mæðgur, Kristín Heiða og Halldóra Yngvadætur og Helga Hall- dórsdóttir á Dalvík hjóluðu út í skógarreit skammt sunnan bæjarins í blíðunni í gær til að drekka þar síðdegiskaffið sitt. Á leiðinni buðu þær hestunum upp á nýsprottið gras, sem þeir fúlsuðu ekki við. Ein- stök veðurblíða var í Eyjafirði í gærdag og komst hitinn upp fyrir 20 stig og reyndu því allir sem vettlingi gátu valdið að vera sem mest útivið. Söitunarfélag Dalvíkur skilar góðum hagnaði: Morgunblaðið/Rúnar Þór * A flot fyrir sjómannadag „Ég ætla aðeins að líta á botninn á honum áður en ég set á flot,“ sagði Sigurpáll Sigurðsson, sem dyttaði að trillunni sinni, Birki EA, í fjörunni við Haugasand í gærmorgun. Hann sagðist stefna að því að koma bátnum á flot fyrir sjómannadag. Bátar sem gerðir eru út frá Hauganesi hafa verið að fiska sæmilega út við Langanes að und- anförnu, að sögn Sigurpáls, en sjálfur kvaðst hann lítið fara á sjó, enda orðinn 81 árs. „Maður hefur verið að þvælast í þessu frá 12 ára aldri og kann ekkert annað,“ sagði hann. Með Sigurpáli, sem er til vinstri á myndinni, er Sveinbjörn Jóhannsson, en hann var einnig að gera sína trillu, Jóhann EA, klára. Yeltan nær þrefaldaðist þrátt fyrir erfiðleika í rækjuiðnaði Dalvík. MJOG GÓÐ afkoma varð af rekstri Söltunarfélags Dalvíkur hf. á síðasta ári og nam hagnaður 84,3 niilljónum króna, en árið 1989 var tap á rekstri fyrirtækisins að upphæð 34,9 milljónir króna. Liðlega helming- ur hagnaðar er vegna sölu eigna en unnið hefur verið að fjárhags- legri endurskipulagningu félagsins. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var á föstudag. Mikil umskipti urðu í rekstri fyrirtækisins á síðasta ári er Kaupfélag Eyfirðinga seldi Sam- herja hf. á Akureyri lilut sinn í fyrirtækinu, en Dalvíkurbær er jafn- framt hluthafi með þriðjung hlutafjár. Söltunarfélag Dalvíkur hf. rekur rækjuverksmiðju á Dalvík og hefur jafnframt gert út togarann Dalborgu til rækjuveiða. Með tilkomu nýrra hluthafa í fyrirtækið var sú stefna mörkuð að byggja starfsemi félags- ins upp, en Söitunarfélagið hafði þá átt í verulegum greiðsluerfiðleikum vegna taprekstrar. Unnið var að end- urskipulagningu félagsins og nær Njotið gúðra veiga og veit inga i notalego umhverfi. Glæsilegir veitingasalir, bar og kaffiteria. 72 herbcrgi, með baði, beinum suna, útvarpi, lit- sjónvarpi og video, mini- har og herbergisþjónustu. Hoteho hefur nylegu verið stækkað og endurnýjað og allur aðbunaður rétt eins og best gerist. HOTEL KEA AKUREYRI Hafnarstræti 87-89, 600 Akurevri. Pósthólf 283 Simi: (96)-22200, 'l'elex: 3166 hot kea is þrefaldaðist velta þess á árinu þrátt fyrir mikla erfiðleika í rækjuiðnaði. Á síðasta ári keypti félagið Heiðr- únu frá Árskógsströnd en seldi hana aftur til Patreksíjarðar. Jafnframt seldi félagið Dalborgu til Keflavíkur og er nú unnið að því að fá í hennar stað annan togara til fyrirtækisins. Á aðalfundinum lýsti Þorsteinn Már Baldvinsson formaður stjórnar að Hjalteyrin, skip Samheija hf., yrði keypt til fyrirtækisins og jafnframt að unnið yrði að því að auka afla- heimildir fyrirtækisins með kvóta- kaupum. Nú nýlega festi Söltunarfélagið kaup á Hafsteini frá Siglufirði og hefur báturinn fengið nýtt nafn, Valeska EA-417, og er þegar farinn til veiða fyrir verksmiðju fyrirtækis- in. Endurnýjun hefur staðið yfir á verksmiðjunni, þar sem miklar kröfur eru gerðar um hreinlæti og verður hún einhver fulikomnasta sinnar teg- undar hér á landi eftir breytinguna. Reiknað er með að hún verði kominn í fullan gang í byijun júnímánaðar. Á síðasta ári störfuðu 55 manns hjá féiaginu og námu launagreiðslur tæpum 96 milljónum króna. Á aðal- fundinum var samþykkt að auka hlutafé félagsins um 33 milljónir króna með útgáfu jöfnunarhluta- bréfa og þá var samþykkt heimild til stjórnar að auka hlutafé um allt að 60 milljónir króna. Stjórn félags- ins var endurkjörin en hana skipa: Þorsteinn Már Baldvinsson, Kristján Vilhelmsson og Kristján Þór Júiíus- son. Varamenn stjórnar eru Þor- steinn Vilhelmsson, Laufey S. Sig- urðardóttir og Jón Kr. Gunnarsson. Að aðalfundi loknum var starfs- fólki félagsins og iðnaðarmönnum boðið til fagnaðar þar sem þeim voru þökkuð frábær störf og kynnt hver væru framtíðaráform félagsins. Framkvæmdastjóri Söltunarfélags Dalvíkur er Finnbogi Baldvinsson. Fréttaritari Sælgætisframleiðendur og bakarar athugið Óskum eftir að kaupa nú þegar súkkulaðihúðunarvél án kælis. Upplýsingar gefur Sigurður Arnórs- son, sími 96-22800. Linda hf., Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.