Morgunblaðið - 29.05.1991, Side 25

Morgunblaðið - 29.05.1991, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991 25 Fjölgar um tvo í fjár- laganefnd Alþingis Þau tvö frumvörp scm nú eru til umfjöllunar I deildum Alþingis og gera ráð fyrir afnámi deildar- skiptingar þingsins, komust í gær langa leið að því marki að verða að lögum. Þau voru afgreidd í gegnum aðra og þriðju umræðu í þeim deildum, sem þau voru lögð fram í, og eru nú komin til nefnda í seinni deildinni. Frumvarpið um breytingar á stjórnarskránni er óbreytt. Frumvarpið um þingsköp Alþingis hefur tekið nokkrum breytingum. Um þær er næstum algjör samstaða nema um eina. Nú er gert ráð fyrir að nefndar- menn verði ellefu í fjárlaganefnd en upphaflega hafði verið gert ráð fyrir að þeir yrðu níu. Framsókn- armenn gagnrýndu þessa breyt- ingu harðlega. Frumvarpið um ný þingskaparlög hafði verið lagt fram í neðri deild og vísað til stjórnskipunar- og þing- skapamefndar. í upphafi deildar- fundar í gær gerði Geir H. Haarde (S-Rv) formaður og framsögumaður grein fyrir helstu breytingum sem frumvarpið hefur tekið í meðförum nefndarinnar en þær voru einnig unnar í samráði við stjórnskipunar- og þingskaparnefnd efri deildar. Breytingarnar sem gerð væri tillaga um fælu m.a. í sér að fastar væri kveðið á um að leitast skuli við að ná samkomulagi milli þingflokka varðandi kjör hinna fjögurra varafor- seta þingsins og um verkefni forsæt- isnefndar sem sinnir stjóm þingsins. Ný ákvæði em sett um meðferð fjár- lagafrumvarpsins; fjárlaganefnd verður ekki gert skylt að vísa til annarra fastanefnda þeim þáttum fjárlagafrumvarpsins sem fjalla um málefnasvið þeirra. Þess í stað er nefncþnni veitt heimild til slíks en jafnframt kveðið á um að aðrar fasta- nefndir geti að eigin frumkvæði ákveðið að fjalla um einstaka þætti fjárlagafmmvarpsins. Það kom fram í umræðum að talið er mjög æskilegt að fagnefndimar íjalli um sín mál- efnasvið í fjárlagafrumvarpinu en ekki var talið heppilegt að sú þróun gerðist með skjótari hætti en menn réðu við. Nú er bætt við nýrri máls- grein við 30 gr. framvarpsins og er þar kveðið á um að ef nefnd mæli með samþykkt lagaframvarps eða þingsályktunartillögu skuli hún láta prenta með áliti sínu áætlun um þann kostnað sem hún telur að ný lög eða ályktun hafí í för með sér fyrir ríkissjóð. I umræðum kom fram að ætlast er til að nefndin meti hug- anlegan kostnað sjálfstætt en leiti ekki með sjálfvirkum hætti álits hjá stofnunum framkvæmdavalds s.s. fjármálráðuneytis eða fjárlaga- og hagsýslustofnunar. í framvarpið er nú sett bráðabirgðaákvæði um hvemig breytingin frá deildaskiptu þingi verði á þessu löggjafarþingi. Gert er ráð fyrir því að þegar þing- skaparlögin hafi öðlast gildi ásamt breytingu á stjórnarskránni falli nið- ur umboð embættismanna þingsins og þingnefnda. Skal þá aldursforseti Alþingis boða til þingfundar og standa fyrir kosningu kjörbréfa- nefndar og forseta Alþingis sem gengst fyrir kosningu varaforseta og fastanefnda samkvæmt ákvæðum hinna nýju þingskaparlaga. Þannig er gert ráð fyrir því að fyrsti fundur þingsins í einni málstofu hafí þau verkefni sem fyrsti fundur nýs þings hefði. Hins vegar er talið óþarft að slíta þessu þingi og setja nýtt, heldur er gert ráð fyrir að þetta þing starfí áfram og því verði frestað til hausts, þegar það hefur lokið störfum á næstunni. Um þetta atriði hefur ver- ið nokkur óvissa og misskilningur sem m.a. hefur komið fram á þings- íðu Morgunblaðsins. Framsögumaður gerði grein fyrir fleiri breytingartillögum sem margar miða af því að gera ákvæði skýrari og taka af tvímæli. Það kom einnig fram í ræðu Geirs að stjórnskipunar- og þingskaparnefndin hefði rætt fjölda hugmynda en ekki verið sam- staða um þær allar. Nefndin taldi m.a. rétt að lýsa þeirri afstöðu að túlka beri ákvæði um nefndarfundi þannig að heimilt verði samkvæmt henni að halda opna nefndarfundi ef nefndir telji sérstakar ástæður til að veita fjölmiðlum og almenningi aðgang áð fundunum. Fjölgun Það kom fram í ræðu Geirs H. Haarde að í nefndinni hefði komið fram hugmynd um að íjölga í vænt- anlegri fjárlaganefnd úr níu í ellefu eða þrettán. Um þetta hefði ekki verið fullt samkomulag í nefndinni. Nú hefði um það samist milli nokk- urra úr hópi þingmanna, m.a. milli sín og formanns þingflokks Alþýðu- flokksins, að leggja til að nefndar- menn í fjárlaganefnd yrðu níu og gerði hann ráð fyrir að breytingartil- laga þar um yrði flutt fljótlega. Páll Pétursson (F-Nv) gagnrýndi þessa boðuðu fjölgun í fjárlaganefnd harðlega og taldi þau vinnubrögð forkastanleg að einstakir þingmenn sem skrifuðu undir nefndarálit án fyrirvara stæðu að breytingartillög- um. Við atkvæðagreiðslu eftir aðra umræðu voru breytingartillögur nefndarinnar samþykktar. Breyting- artillögur frá Inga Birni Albertssyni og Hjörleifí Guttormssyni voru hins Geir H. Haarde vegar felldar. Tillagan um fjölgun nefndarmanna í fjárlaganefnd hafði enn ekki veríð lögð fram og kom því ekki til atkvæða. „Hortittur“ Ekki tókst samkomulag um fjölda nefndarmanna í fjárlaganefndinni í fundarhléi milli annarrar og þriðju umræðu. Við þriðju umræðu lagði Rannveig Guðmundsdóttir (A-Rn) og Sigríður A. Þórðardóttir (S-Rn) fram áður boðaða tillögu um fjölgun nefndarmanna í fjárlaganefnd. Og kom til allsnarpra orðaskipta, eink- um og sér í lagi milli Páls Pétursson- ar (F-Ne) og Óssurs Skarphéðinsson- ar (A-Rv). Páll Pétursson (F-Nv) sagði m.a. að með þessum tillögu- flutningi væri sú samstaða sem verið hefði um frumvarpið rofin, nú hefði hagsmunapot gripið menn og yrði fróðlegt að sjá hvaða mönnum myndi auðnast að reikna sig inn í nefndina. Páll taldi enga bót í því fólgna að hafa fleiri en níu nefndarmenn og hafnaði þeim rökum að létta þyrfti vinnuálagi af nefndarmönnum með þessum hætti. Einnig var þeim rök- um hafnað að réttur smáflokka yrði betur tryggður. Páll benti á að aðrar fastanefndir yrðu skipaðar níu mönn- um; ellefu manna nefnd yrði „hortitt- ur“ í þingskaparlögunum. Ossur Skarphéðinsson (A-Rv) Umræðum um stefnuræðu frestað STEFNURÆÐA Davíðs Oddsson- ar forsætisráðherra er enn óút- rædd. Stuðningsmönnum og and- stæðingum greinir á um hvort núverandi ríkisstjórn sé til langs eður skamms tíma. Fáir munu þó mæla því mót að stefnuræða for- sætisráðherra hafi mótað stjórn- málaumræðuna í sameinuðu þingi, sem staðið hefur lengur en ýmsir höfðu vænst. Hún var flutt á þriðjudagskvöldið í síðustu viku og' hefur verið rædd í nokkru máli i u.þ.b. 13 klukkustundir. Ekki tókst að leiða þessa umræðu til lykta á kvöld- og næturfundi í fyrradag og fyrrinótt og var fundi frestað kl. 01.30. Stefnuræða forsætisráðherra hafði verið rædd fyrr um daginn en fundi frestað til kl. 20.30. Var að því stefnt að ljúka umræðu um stefn- uræðuna og ræða síðan um skýrslu ijármálaráðherra um stöðu ríkisíjár- mála í framhaldi af því. Umræðurnar í fyrrakvöld tóku töluvert mið af því sem fram hafði komið fyrr í umræðum. Stjórnarand- stæðingar gagnrýndu stefnu ríkis- stjórnar eða meint stefnuleysi. Kröfðu ráðherra nánari skýringa á stefnunni eða inntu ráðherra álits á því sem fram hafði komið í svörum samráðherra. Fjölmörg þjóðfélagsmálefni voru rædd, t.a.m. vaxta- og peningamál og húsnæðismál. Samskiptin við Evr- ópubandalagið og samningar um Evrópskt efnahagssvæði bar einnig á góma. Eggert Haukdal (S-Sl) ít- rekaði gagnrýni sína og efasemdir frá síðastliðnum vetri um Evrópskt efnahagssvæði eða jafnvel hugsan- lega aðild að Evrópubandalaginu. Eggert sagði nú miklu skipta að ganga varlega og með galopin augu til þessara viðræðna og gefa síðan Alþingi kost á því að fjalla um þetta viðkvæma mál, samþykkja hugsan- legt samningsuppkast eða hafna því. Stefna ber að fjárlagajöfnuði Á fyrsta tímanum í fyrrinótt var komið að Jóni Baldvini Hannibals- syni utanríkisráðherra að svara gagnrýni og spurningum stjórnar- andstæðinga. Utanríkisráðherra hafði m.^j verið inntur eftir áliti á þeim ummælum í stefnuræðu forsæt- isráðherra að fjórða meginverkefni stjórnarinnar yrði að framkvæma þá stefnu í landbúnaðarmálum sem mörkuð hefði verið af stjómvöldum og bændum í sameiningu hin síðari ár. Utanríkisráðherra vísaði til stefnuyfírlýsingar ríkisstjórnarinnar um mótun landbúnaðarstefnu er hafi að leiðarljósi lægra verð til neytenda, bætta samkeppnisstöðu bænda, lægri ríkisútgjöld og gróðurvernd, sem fæli m.a. í sér breytingar á vinnslu- og dreifingarkerfi landbún- aðarvara í framhaldi af endurskoðun búvörasamnings. Hvað varðaði stefnuræðuna sjálfa tók Jón Baldvin fram að hann hefði ekki óskað eftir því að lesa hana yfír, teldi það ekki sitt hlutverk. Hann treysti forsætis- ráðherra fyllilega til að semja sinn texta sjálfur og túlka fyrir hönd ríkis- stjórnarinnar þá stefnu sem báðir þingflokkar hefðu komið sér saman um að fylgja fram. yið þessi um- mæli mátti heyra að Ólafur Ragnar Grímsson (Ab-Rn) hváði; „ha“. Utanríkisráðherra hafði einnig verið spurður um afstöðu til endur- skoðunar sjávarútvegsstefnunnar. Vísaði hann á nýjan leik til stefnu- yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um mótun sjávarútvegsstefnu sem nái jafnt til veiða og vinnslu, hamli gegn ofveiði, efli fiskmarkaði, treysti byggð og stuðli að hagræðingu og tryggi stjómskipulega stöðu sam- eignarákvæðisins um stjórn fisk- veiða. Jón Baldvin dró ekki dul á að um fískveiðistefnu væra skiptar skoðanir í öllum flokkum og að sú stefna sem Alþýðuflokkurinn hefði gert að sinni hefði ekkert verið sam- þykkt fyrirfram, þ.e.a.s. sá þáttur stefnunnar að taka upp gjaldtöku fyrir veiðileyfí í áföngum. Henni hefði ekki verið hafnað en því hefði heldur ekki verið slegið föstu að hún kæmi til framkvæmda. í lögum um fískveiðistjórn stæði að þau skyldu endurskoðuð fyrir árlok 1992. Sam- komulag hefði tekist um að nýta tím- ann og skipa nefnd til að fara yfír málið og fullmóta stefnu sem tæki bæði til veiða og vinnslu. Utanríkisráðherra sagði fjármála- ráðherra hafa það verk að koma saman fjárlögum og yrði það vanda- samt ef stefnt yrði að jöfnuði strax á næsta fjárlagaári. En ljóst væri að með auknu frjálsræði í efnahags- og viðskiptalífi yrðu stjórnvöld að ná jöfnuði og draga úr óheyrilega mikilli lánsfjárþörf. Ræðumanni fannst að til að ná að markmiðum stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar yrði að fylgja því fast fram í stefnu- yfírlýsingunni um lægri ríkisútgjöld vegna landbúnaðarmála. Einnig var ræðumaður þess fullviss að vandi fjármálaráðherra yrði auðveldari ef gjaldtaka yrði tekin upp fyrir veiði- leyfi, t.d. í þeim tilvikum þegar menn nýttu sér ekki úthlutaðar aflaheim- ildir heldur seldu öðrum. Frestun Ólafur Ragnar Grímsson (Ab- Rn) taldi nýja stöðu komna upp eftir að upplýst hefði verið að Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðu- flokksins hefði ekki kynnt sér stefnu- ræðuna fyrirfram. Ólafur Ragnar túlkaði það þannig að Jón Baldvin tæki þá ekki ábyrgð á því sem for- sætisráðherra segði í nafni ríkis- stjórnarinnar. Ræðumaður óskaði eftir að þessari umræðu yrði frestað. Steingrímur J. Sigfússon (Ab-Ne) og Halldór Ásgrímsson (F-Ál) vildu einnig að umræðu yrði frestað, nauð- synlegt væri að ræða betur það sem fram hefði komið { ræðu utanríkis- ráðherra og fá álit landbúnaðarráð- herra og sjávarútvegsráðherra á ummælum Jóns Baldvins. Nokkar umræður urðu um þessa málaleitan undir liðnum „þingsköp" en að höfðu samráði við formenn þingflokka frestaði Salome Þorkels- dóttir forseti sameinaðs þings um- ræðunni kl. 01.30. Skýrsla fjármála- ráðherra sem einnig var á dagskrá þessa kvöldfundar er enn órædd. Páll Pétursson kvaðst myndu hafa kosið að fallerast með öðrum hætti; glata þeim jómfrú- ardómi sem kenndur væri við fyrstu þingræðu. En hann varð að svara Páli Pétursyni nokkru. Össur rakti nokkum fjölda dæma úr þingsögunni um að nefndannenn í fjárveitinga- nefnd hefðu verið fleiri en í öðram þingnefndum. Ræðumaður taldi einnig að þingnefnd væri annasam- ari og með fjölgun nefndarmanna væri vissum verndarsjónarmiðum framfylgt. Fjölgun nefndarmannanna var samþykkt að viðhöfðu nafnakalli með 26 atkvæðum gegn 8, voru þingmenn Framsóknarflokks andvígir en þing- menn annarra flokka flestir með- mæltir. Guðrún Helgadóttir (Ab- Rv) greiddi þó atkvæði gegn tillög- unni, hún taldi að ekki ætti að rjúfa samstöðu og sníða lög að stundar- hagsmunum. Frumvarpið var síðan sent í breyttu formi til efri deildar. Við fyrstu umræðu í efri deild ítrekuðu framsóknarmenn óánægju sína með að samstaðan hefði verið rofín. Mál- inu var síðan vísað til nefndar og annarrar umræðu. ELFA /-7//-7Í/-7Í/-/ IVORTICEI viftur í úrvali Spaöaviftur - borðviftur - bað-! herbergisviftur - gróðurskála-1 viftur - röraviftur - iðnaðarviftur j - fjósviftur Hagstætt verð. Einar Farestveit&Co.hf. BORGARTÚNI28, SÍMI622901.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.