Morgunblaðið - 29.05.1991, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991
ATVIHNlBAUGL YSINGAR
5 b HAGVIRKI
II KLETTUR
óska eftir að ráða nú þegar vélamenn til
starfa á gröfum.
Aðeins vanir menn koma til greina.
Upplýsingar veitir Birgir Pálsson
í síma 53999.
Tztsuðurverk hf
yW verktakar vélaleíga
C 98-78700-78240
Viljum ráða mann vanan borunum og spreng-
ingum.
Upplýsingar í síma 98-78700 eða 985-20067.
Bókhald - samvinna
Innflutnings- og verslunarfyrirtæki í Reykjavík
óskar eftir aðila, sem gæti annast bókhald
fyrirtækisins. Umfang ca 40-50 klst. á mán-
uði. Fyrirtækið getur lagt fram góða að-
stöðu, 1-2 herbergi og nýtt tölvukerfi. Við-
komandi gæti nýtt sér aðstöðuna til frekari
bókhaldsvinnu.
Þeir, sem hafa áhuga á slíkri samvinnu, vin-
samlega leggi nafn og frekari upplýsingar inn
á auglýsingadeild Mbl. fyrir 4. júní, merkt:
„Bóksam - 3973.“ Fullum trúnaði heitið.
Hárgreiðslusveinn
Hárgreiðslusveinn óskast sem fyrst.
Hárgreiðslustofan Möggurnarí Mjódd,
sími 77080.
Verkstjóri í
fiskvinnslu
óskar eftir vinnu í haust. Er með réttindi, 7
ára reynslu í fiskvinnslu sem verkstjóri, þar
af 4 ár í rækju. Er fjölskyldumaður. Með-
mæli ef óskað er.
Svör leggist inn á auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „V - 3936“, fyrir 5. júní.
Fótaaðgerða-
fræðingur
Óskum að ráða fótaaðgerðafræðing til sum-
arafleysinga.
Upplýsingar í síma 26222 frá kl. 9.00-12.00.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Kennarar
Kennara vantar til starfa við Grunnskóla
Grindavíkur næsta skólaár. Kennslugreinar:
Almenn bekkjarkennsla, sérkennsla, tón-
mennt og danska.
Upplýsingar í síma 92-68555 og í símum
92-68504 og 92-68363.
Frá Æfingaskóla
Kennaraháskóla
íslands
Sérkennara vantar til starfa við fyrirhugaða
lestrarmiðstöð sem starfrækt verður við
Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands.
Einnig er laus staða æfingakennara við skól-
ann. Um er að ræða starf umsjónarkennara
á miðstigi.
Upplýsingar eru veittar hjá skólastjóra og
yfirkennara í síma 84566.
Skólastýra.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
LAGNAFÉLAG ÍSLANDS
Ráðstefna um gæði innilofts
„húsasótt“
verður haldin á Hótel Loftleiðum laugardag-
inn 1. júní nk. kl. 08.30 til kl. 12.00.
Framsögur:
Alþjóðleg þróun:
Ole B. Fanger, Danmörku.
Nýja loftræstitæknin, flokkaskipt kerfi:
Ulf Rengholt, Svíþjóð.
Ný skipan upplýsingamála í Noregi:
Halvor Röstad, Noregi.
„Room-Vent“ 1992 í Danmörku:
Carl Sölling, Danmörku.
„Indoor Air“ 1993 í Finnlandi:
Bertel Evers, Finnlandi.
Pallborðsumræður og fyrirspurnir:
Hvert stefnir VVS-tæknin á Norðurlöndum.
Framsögurverða þýddar jafnóðum á íslensku
í hlustunartæki.
Ráðstefnan höfðar til: Arkitekta, hönnuða
lagnakerfa, byggingarfulltrúa og iðnaðar-
manna, en er öllum opin.
Þátttökugjald krónur sex þúsund.
KENNSLA
Námskeið á Hvanneyri
6.- 7. júní: Skjólbelti.
10.-12. júní: Verkun votheys í rúlluböggum.
Námskeiðið er skipulagt af bú-
tæknideild Rannsóknastofnun-
ar landbúnaðarins og Bænda-
skólanum á Hvanneyri.
13. júní: Matjurtarækt.
Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu
Bændaskólans á Hvanneyri, sími 93-70000.
Skólastjóri.
FLUGMÁLASTJÓRN
Bóklegt atvinnuflugnám
Flugmálastjórn mun standa fyrir bóklegri
kennslu fyrir væntanlega atvinnuflugmenn í
samstarfi við. Fjölbrautaskóla Suðurnesja
skólaárið 1991 -1992, ef næg þátttaka verður.
Kennt verður í kennsluhúsnæði Flugmála-
stjórnar á Reykjavíkurflugvelli.
Inntökuskilyrði eru einkaflugmannsskírteini
og stúdentspróf (þar af a.m.k. 3 einingar í
eðlisfræði).
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Flug-
málastjórnar í flugturninum á Reykjavíkur-
flugvelli. Umsóknir þurfa að hafa borist þang-
að fyrir 1. júlí nk.
Umsóknum skal fylgja:
Staðfest Ijósrit af stúdentsprófi, Ijósrit af
einkaflugmannsskírteini og 1. flokks heil-
brigðisvottorð frá trúnaðarlækni flugmála-
stjórnar.
Flugmálastjórn.
TIL SÖLU
Sumarbústaðalóðir
Til sölu 3 sumarbústaðalóðir í landi Þúfu,
Kjósarhreppi, Kjósarsýslu. Hver lóð er um
2.500 m2 byggingarlóð auk 2.500 m2 í sam-
eiginlegu afmörkuðu svæði. Hér er um
skemmtilegan sumarbústaðakjarna að ræða.
Örstutt frá Reykjavík. Góð greiðslukjör.
Upplýsingar í síma 677377 frá kl. 9.00-17.00
mánudag-föstudags.
í kvöld
ÝMISLEGT
Léttsteikt hýðingskjöt með piparsafransósu.
Eftirlæti landans.
HALLARGARBURINN
Húsi verslunarinnar, sími 678555.
Kynning á tengibúnaði
Sölustjóri FIBERMUX verður á íslandi föstu-
daginn 31. maí næstkomandi og þá höldum
við kynningu á margskonar tengibúnaði frá
fyrirtækinu.
FIBERMUX framleiðir m.a. tengimiðstöðvar
(concentrators), sem tengja saman mismun-
andi netgerðir. Ennfremur verður kynntur
hugbúnaður til eftirlits á kerfum, sem nota
SNMP staðalinn. Kynningin verður í Húna-
búð, Skeifunni 17, 3. hæð, kl. 14.00. Þátt-
taka tilkynnist til okkar í síma 68 16 65 í
síðasta lagi 30. maí.
HTÆKNIVAL
SKEIFAN 17 • 108 REYKJAViK • SÍMI 91-681665/687175
FiÚSNÆÐI í BOÐI
Iðnskólinn í Reykjavik
Skólaslit
verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 31. maí
kl. 14.00.
Ættingjar útskriftarnemenda og velunnarar
skólans velkomnir.
TILKYNNINGAR
Gott tækifæri!
Fyrirhuguð er sölu- og kynningarferð til Nor-
egs seinni part júní.
Ath.! Get bætt við mig vöruflokkum.
Vinsamlegast leggið nöfn inn á auglýsinga-
deild Mbl. merkt: „N - 7256“.
FÉLAGSSTARF
Selfoss
Almennur félagsfundur verður haldinn í
Sjálfstæðishusinu við Austurveg 38, Sel-
fossi, fimmtudaginn 30. maí kl. 20.30.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
mun ræða stjórnmálaviöhorfið.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélagið Óðinn.