Morgunblaðið - 03.07.1991, Side 1

Morgunblaðið - 03.07.1991, Side 1
48 SIÐUR B 147. tbl. 79. árg. MIÐVIKUDAGUR 3. JULI 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Júgóslavneskur ar höfðu brotist Reuter hermaður hleypur frá skriðdreka sinum og logandi vegartálma í gær eftir að bardag- út milli Júgóslavíuhers og heimavarnarliðs Slóveníu að nýju. Suður-Líbanon: PLO-menn hraktir úr fimm þorpum Ain al-Delb. Reuter. SVEITIR líbanska stjórnarhersins náðu í gær á sitt vald fimm þorp- um í Suður-Líbanon þar sem Frelsissamtök Palestínu (PLO) hafa hafst við. Með þessum aðgerðum hersins stefna stjórnvöld að því að ná landinu á sitt vald að fullu. A.m.k. 19 manns féllu og 58 særðust þegar 6.000 manna herlið fór um þorpin, sem eru fyrir austan hafnarborgina Sídon, en stórskota- lið hélt einnig uppi skothríð á þ'orp- in og á þau var skotið með eldflaug- um. Leyniskyttur PLO höfðu komið sér fyrir mjög víða og skutu á her- menn stjórnarhersins. Síðdegis í gær hafði stjórnarherinn náð nær öllum aðalvégum á svæðinu á sitt Júgóslavía: Herinn hótar Slóvenum vægðarlausri leiftursókn Zagreb. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. Ljubljana, Vín. Reuter. FORSETI júgóslavneska herráðsins, Bjagoje Adzic, sagði í gær að her Júgóslavíu hefði hafið öfluga árás í Sióveníu og myndi bijóta heima- varnarlið lýðveldisins á bak aftur með vægðarlausri leiftursókn. Tug- ir skriðdreka hersins voru sendir til Slóveníu eftir að átök brutust út að nýju í lýðveldinu snemma í gærmorgun þrátt fyrir að samið hefði verið um vopnahlé. Lojze Peterle, forsætisráðherra Slóveníu, lýsti þvi yfir í gærkvöldi að heimavarnarlið lýðveldisins myndi ekki beijast áfram nema nauðsyn krefði. „Við hyggjumst gera öfluga árás þannig að stríðið, sem við neydd- umst til að heyja, verði eins skamm- Gorbatsjov jákvæður í nýsafls garð Moskvu. Reuter og The Daily Telegraph. VÍTALÍJ ígnatenkó, talsmaður Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétfor- seta, sagði í gær að forsetinn væri jákvæður í garð nýs stjórn- málaafls í Sovétríkjunum sem nú er að ryðja sér til rúms. Er þar um að ræða Lýðræðislegu um- bótahreyfinguna en að henni standa margir af helstu sam- starfsmönnum Gorbatsjovs í gegnum tiðina. Ignatenkó sagði á blaðamanna- fundi í gær að Gorbatsjov hefði haft vitneskju um að til stæði að mynda hin nýju samtök enda hefði hann mikil og regluleg samskipti við það fólk sem að þeim stæði. Hann kvaðst líta svo á að með stofnyfirlýsingu samtakanna væri verið að bjóða öll- um lýðræðisöflum til samstarfs. „Það er ljóst að þessi samtök eru ekki stofnuð til að efna til ófriðar. Þau hvetja alla þá sem styðja per- estrojku til samstarfs. Við lítum þessi samtök í því ljósi,“ sagði ígnat- enkó. Sjá „Okkar helsta mark- mið ...“ á bls. 18. vinnt og mögulegt er,“ sagði Bjagoj Adzic í sjónvarpsávarpi. „Við ætlum að leita þá alla uppi, jafnvel þá sem hafa grafið sig niður. Við erum stað- ráðnir í að koma á lögum og reglu og leiða stríðið til lykta.“ Adzic gagnrýndi einnig stjórnvöld í Belgrad fyrir að semja við slóvensku stjórnina á meðan bardag- ar geisuðu og gaf til kynna að her- inn hefði tekið fram fyrir hendurnar á stjórnvöldum. „Valdastofnanir sambandsríkisins voru sífellt að hindra okkur og kröfðust samninga- viðræðna á sama tíma og Slóvenar beittu öllum ráðum til að ráðast á okkur," sagði hann. Peterle, forsætisráðherra Slóv- eníu, sagði skömmu síðar að heima- varnarliðið myndi ekki beijast áfram nema til að veija lýðveldið ef nauð- syn krefði. Forseti júgóslavneska herráðsins sagði hins vegar í gær- kvöldi að vopnahlé kæmi alls ekki til greina. Júgóslavneski herinn gerði í gær loftárás á höfuðborg Slóveníu, Ljubljana, og staði austan við hana. Loftárás var einnig gerð í námunda við bæinn Brezise, sem er aðeins 30 km vestan við Zagreb, höfuðborg Króatíu. Þá kom til skotbardaga í Króatíu og óttast var að allsheijar stríð væri að bijótast út í Júgóslavíu. Fregnir hermdu að tugum skrið- dreka Júgóslavíuhers hefði verið ekið frá Króatíu til Slóveníu í gær. Stjórnin í Króatíu mótmælti því harðlega við stjórnvöld í Belgrad. Hópur Króata kastaði gijóti og bensínsprengjum á skriðdrekana og kveikti í einum þeirra. Hermenn svöruðu með vélbyssuskothríð og drápu að minnsta kosti einn mann og særðu tvo. Austurríska lögreglan skýrði frá því að skotbardagar hefðu brotist út er sveitir Júgóslavíuhers reyndu að brjótast úr herkvi, sem Slóvenar höfðu haldið þeim í við landamærin að Austurríki. Slóvenar hefðu óvart skotið á landamærastöð í Austurríki en enginn mun hafa særst. Aust- urríski herinn hefur sent 7.000 her- menn að landamærunum til að koma í veg fyrir að átökin breiðist út yfir þau. Uppþot brutust út í þinghúsinu í Belgrad er hundruð foreldra her- manna í júgóslavneska hemum ruddust inn í bygginguna og kröfð- ust þess að synir þeirra yrðu sendir heim frá Slóveníu. Margaret Tutwiler, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði i gær að Bandaríkjastjórn myndi viðurkenna sjálfstæði Slóv- eníu og Króatíu ef þau næðu því fram með friðsamlegum hætti. Þetta virtist stefnubreyting því áður hafði stjórnin lagt áherslu á einingu Júgó- slavíu. Sjá „Stöðugar skærur“... á bls. 18 vald en liðsmenn PLO héldu enn einstaka bækistöðvum. Skothríðin fór ekki framhjá ísra- elskum hermönnum og banda- mönnum þeirra í Suður-líbönsku hersveitunum (SLA) í bænum Jezz- ine og á öryggissvæði því sem þær hafa á sínu valdi við ísraelsku landamærin. Bækistöðvar PLO, sem nú voru upprættar, voru þær síðustu þaðan sem liðsmenn PLO höfðu beinan aðgang að ísraelskum hersveitum. Ríkisstjórn Líbanons, sem nýtur stuðnings Sýrlendinga, vonast til að brotthvarf PLO- manna frá Suður-Líbanon verði til þess að ísraelar dragi sig einnig til baka frá öryggissvæðinu syðst í Líbanon. Michel al-Murr, varnarmálaráð- herra Líbanops, sagði í yfírlýsingu sem hann gaf út í gærkvöldi, að stjómarherinn hefði tekið síðustu bækistöðvar PLO í landinu en væri enn að uppræta þá litlu andspyrnu sem eftir væri. Herinn hefði hand- tekið 200 skæmliða og gert vopn upptæk í þorpunum. Zeid Wehbeh, talsmaður Yassers Arafats, leiðtoga PLO, í Líbanon, krafðist vopnahlés og viðræðna við stjórnvöld. „Þetta er fjöldamorð á palestínsku þjóðinni. Við krefjumst vopnahlés fyrst og síðan viðræðna þar sem öll smáatriði verða rædd. Að öðrum kosti munum við veija okkur,“ sagði hann í samtali við Eeuters-fréttastofuna. PLO-menn fóru fram á það við sveitir múslima í Sídon að þær skærust í leikinn fyrir þeirra hönd. Þá var beiðni send frá höfuðstöðv- um PLO í Túnis til Arababanda- lagsins um að það sæi til þess að bardagar yrðu stöðvaðir. * Ovissa um yfirstjórn Júgóslavíuhers: Talið að harðlínuöflin séu að ná yfirhöndinni Bonn, Belgrad. Reuter, The Daily Telegraph. VESTRÆNIR hernaðarsérfræðingar sem Reuíers-fréttastofan ræddi við í gær töldu að harðlínuöfl í júgóslavneska hernum væru að ná þar yfirhöndinni þótt mjög óljóst væri hver færi nú með völd innan hersins. Sérfræðingarnir sögðu að aft- urhaldssamir yfirmenn hersins væru að reyna að knýja stjórn- völd í Belgrad til að halda áfram hörðum aðgerðum gegn Slóveníu, sem lýsti yfir sjálfstæði í síðustu viku. Sérfræðingur í málefnum ríkja á Balkan-skaga sagði marga yfirmenn í hernum hafa hvatt til þess löngu fyrir sjálfstæðisyfirlýs- ingu Slóveníu að herinn léti til sín taka. Þeir vildu ekki að herinn leystist upp í frumeindir sínar um leið og Júgóslavía. Her Júgóslavíu var upphaflega myndaður úr sveitum skæruliða undir stjórn Josips Títós sem börð- ust gegn Þjóðveijum og ítölum í heimsstyijöldinni síðari. Allt frá upphafi hafa um 70% yfirmanna hans verið Serbar. Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, sagði í gær að svo virtist sem yfirmenn júgóslavneska hers- ins væru ósammála um hvaða aðgerða ætti að grípa til gegn Slóveníu. Óttaðist hann að hluti yfirmanna hersins myndi fara sínar eigin leiðir og að það gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar. Kvaðst Kohl byggja þetta mat sitt á nýjustu upplýsingum sem hann hefði frá Júgóslavíu. „Við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að fínna friðsamlega lausn á deilunni," sagði Kohl og bætti við að það væri sannfæring sín að ekki væri hægt að halda ríki saman með skriðdrekum og sprengjum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.