Morgunblaðið - 03.07.1991, Síða 7

Morgunblaðið - 03.07.1991, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1991 . . ...VA . _______________________________________________ ............................. ; Sjt/'S' *'**'l\ ' A' - "x' . <-<!«■•., w:'• '• • XSSÍ- •* . ~. ' "' K- .: •: •: — • •" .'--••-**■:-. J/*.*--, ■• • —7",^"* . '*.. • '•>'", ._ „r ■: . -• “ ™ 'i~'v' - Morgunblaðið/Jón Stefánsson Bát hvolfdi á Elliðavatni MAÐUR féll í Elliðavatn um hádegisbil í gær er bát hans hvolfdi á vatninu. Lögreglumenn úr Kópavogi og Reykjavík komu á staðinn með björgunarbát. Lögreglumenn hugðust bjarga manninum, en hann streittist á móti og vildi ekki fara um borð í lögreglu- bátinn. Gripið var til þess ráðs að draga manninn í land. Á myndinni sjást lögreglumenn halda mannin- um á floti yið bát hans, sem marar í hálfu kafi. Álverið í Straumsvík: Útlit er fyrir lélega rekstrarafkomu í ár Verð á áltonni er nú um 650 dölum lægra en í fyrrasumar ÚTLITIÐ varðandi rekstrarafkomu álversins í Straumsvík í ár er slæmt vegna lágs heimsmarkaðsverðs á áli. Nú um mitt ár er verðið á tonninu af áli á markaði í Lundúnum um 1.350 dollarar. Verðið á tonninu var nálægt 2.000 dollurum í fyrrasumar. Stjórnarfundur og ársfundur ÍSAL fyrir árið 1990 voru haldnir í Straumsvík sl. föstudag. Þar kom m.a. fram að fyrirtækið þarf að stíga enn frekari skref til að draga úr kostnaði. Ákvarðanir um aðgerð- ir hafa ekki verið teknar en sam- kvæmt upplýsingum sem blaðið fékk í gær, verður ekki gripið til uppsagna. Orkuverð til Landsvirkjunar er nú 15,3 mills fyrir kílówattstund- ina. Það er tengt fjórum álverðsvísi- tölum og breytist miðað við álverð næstu þrjá mánuði á undan. Raf- orkuverðið getur hæst orðið 18,5 mills og lægst 12,5 mills. Breytingar hafa orðið á fulltrúum ríkisstjórnarinnar í stjórn ÍSAL. Fulltrúar fráfarandi ríkisstjórnar, Bjarni P. Magnússon og Hrafnkell Ásgeirsson, ganga úr stjórn, en í þeirra stað hefur iðnaðarráðherra skipað Ingvar Viktorsson, kennara, og Magnús Óskarsson, borgarlög- mann. Auk þeirra eru í stjórninni Ragnar S. Halldórsson, stjórnar- formaður, Edward A. Notter, vara- stjórnarformaður, Kurt Wolfens- berger, Gunnar J. Friðriksson og Sigurður Halldórsson. Alusuisse-Lonza hefur ákveðið að hætta framleiðslu á hrááli í ál- verinu í Rheinfelden í Þýskalandi, en það var elsta starfandi álverið í eigu fyrirtækisins. Um 200 starfs- menn missa vinnuna vegna þessa. Álverið hóf framleiðslu árið 1988 og.hefur framleitt 40 þúsund tonn af hrááli á ári. Um ástæður þess að álverið hættir starfsemi segir í frétt frá ÍSAL að það sé einkar óhagstæð efgnahagsþróun, en frá því á miðju ári 1988 hafi álverð fallið úr um 3.000 Bandaríkjadölum tonnið í 1.300. Á sama tíma hafi framleiðslukostnaður aukist. Orku- verð sé hátt í Þýskalandi pg til- kostnaður vegna umhverfisverndar sé stöðugt vaxandi. Ásarnir koma ekki til Enn er dræm veiði í Laxá á Ásum og lítið af fiski á svæðinu. Á hádegi á sunnudag voru aðeins komnir 48 laxar í veiðibókina og þeir sem þá luku veiði voru með tvo laxa á aðra stöngina, en einn fisk á hina. Morgunblaðið hefur það fyrir satt, að óskilgreindur fjöldi umræddra 48 laxa séu hop- laxar og því gefur talan villandi mynd af veiðinni. Ekki er vitað til að annars staðar séu hoplaxar bókaðir, enda byggja veiðiskýrsl- ur á fiski sem er að ganga úr sjó, en ekki til sjávar eftir vetrar- dvöl í ánni. Vatn fer minnkandi og horfur á laxagöngum minnka með hveijum sentimetra sem lækkar í ánni. Fyrstu Iaxarnir úr Húseyjarkvísl Veiðimenn sem voru í Húseyj- arkvísl rétt fyrir síðustu helgi fengu tvo laxa, 7 og 10 punda, og voru það fyrstu laxar sumars- ins. Laxarnir tóku maðk og voru dregnir úr Laxhyl og Reykja- fossi. Viðmælandi Morgunblaðs- ins sagði að auk þess væri mikið af vænum urriða á svæðinu og menn sem nenntu að elta ólar við þann fisk gætu náð heilu kippunum. Þeir sem laxana veiddu urðu ekki meira varir og sáu ekki aðra laxa á svæði sínu. Bunkar í Straumunum Eins og mátti ef til vill reikna með, hefur mikill lax safnast í Straumana, sem eru ármót Hvít- ár, Norðurár og Gljúfurár í Borg- arfirði. Laxinn gengur treglega upp í bergvatnið, svo vatnslitlar eru árnar orðnar, en heldur þeim mun meira til í vatnaskilunum. Veiðimenn sem voru nýlega að veiða í Stramunum fengu 8 laxa og voru þeir allir vænir, 8 til 14 pund. Laxinn var í torfum á Morgunblaðið/SÁM Sigfús Þ. Elíasson með 10 punda hrygnu sem hann veiddi á Eyrinni í Norðurá fyrir nokkrum dögum. svæðinu, en tók eingöngu flugu. Maðkur styggði fiskinn. Einn og sami veiðimaðurinn, Ómar Sig- geirsson, fékk sex þessara laxa og var það afrakstur þess að reyna hveija fluguna af annarri, en hann hitti loks á rétta flugu, „gula“ flugu og fékk þá sex bolt- afiska. Meira úr Miðfjarðará ' í veiðiþætti Morgunblaðsins á þriðjudaginn þar sem greindi frá veiðinni í Miðfjarðará undir lok síðustu viku stóð að veiðst hefðu um 35 laxar. Þar átti að standa 55 laxar og er beðist velvirðingar á misrituninni. En hvernig sem á það er litið þá er veiðin slök og vatn þverrandi. Fræðsluráð og Skólamálaráð: Ragnar Júlíusson lætur af störfum RAGNAR Júlíusson, formaður Fræðsluráðs og Skólamálaráðs Reykjavíkurborgar, hefur óskað eftir að láta af störfum í nefnd- unum frá og með 1. júlí. Hefur Árni Sigfússon varaformaður Fræðsluráðs verið kosinn for- maður þess en ráðið kýs sér sjálft formann. Ragnar Júlíusson hefur setið í Fræðsluráði í 17 ár, þar af 11 sem formaður, og gegnt formennsku í Skólamálaráði frá stofnun þess árið 1986. „Þetta eru samtals 150 fund- ir og ætli það sé ekki nokkuð gott,“ sagði hann. „Ég er þó ekki sestur í helgan stein.“ Beiðni Ragnars um lausn frá störfum hefur verið lögð fram í borgarráði og var vísað þaðan til borgarstjórriar. Verður hún tekin fyrir á næsta fundi á fimmtudag en borgarstjórn kýs formann Skóla- málaráðs- Ragnar Júlíusson LOVE ME TENOER ARI JÚNSSOK ANHA VILHJÁLMS BJORGVIN HALLDÓRSSON Enn slær Hótel ísland í gegn með glæsilegri sumarsýningu sem allir tala um! (Kjörin skemmtun fyrir ferðamenn og erlenda gesti). Ljúffengur kvöldverður og hrífandi skemmtun gera helgina ógleymanlega. Mióa- og boróapantanir i sima 687111. HOm^IAND

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.