Morgunblaðið - 03.07.1991, Side 9

Morgunblaðið - 03.07.1991, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1991 9 3ja herbergja ibúd óskast 3ja herb. íbúð óskast til leigu fyrir tvær konur á aldrinum 26 og 28 ára. Skilvísum greiðslum og góðri umgengni heitið. Meðmæli ef óskað er. Upplýsingar í síma 28315. Nú eru raunvextir á spariskírteinum ríkissjóðs í áskrift 8,1%. Pantaðu áskrift núna og þá færðu þessa háu vexti, á þeim skírteinum senf þú kaupir til áramóta, þótt vextir lækki aftur síðar á árinu. Hringdu eða komdu í Seðlabanka íslands eða Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa og pantaðu áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Kalkofnsvegi 1, ' Hverfisgötu 6, sími. 91- 626040 sími 91-699600 Kringlunni, sími 91- 689797 Samfagnað með Tekkum og Ungverjum Samtðk herstððvaand- stæðinga samfagna Ung- verjum og Tékkum með að áratugalangri hersetu Sov- étríkjanna í löndum þeirra lauk í síðustu viku. í samþykkt miðnefndar samtakanna segir að afnám sovésku herstöðvanna í Tékkóslóvakíu og Ungverja- landi marki tímamót og sé ^narlrilpmir gV#>rflir . tíl KpfTTÍir Hvar voru þeir þá? Þjóðviljinn birti í gær frétt þess efnis, að Samtök herstöðvaandstæðinga hafi gert sérstaka samþykkt þar sem samtökin samfagni Ungverjum og Tékkum með að áratugalangri hersetu Sovétríkjanna í þessum löndum væri lokið. í Staksteinum í dag er fjallað um þennan fögnuð Sam- taka herstöðvaandstæðinga í sögulegu samhengi. Hvar voru þeir, þegar sovézki herinn framdi ofbeldisverk sín í Austur- Evrópu? Fögnuðu Rauða hern- um! Þjóðviljiim birti í gær frétt sem bar fyrirsögu- ma: „Samfagnað með Tékkum og Ungverjum". I frétt þessari sagði m.a.: „Samtök herstöðvaand- stæðinga samfagna Ung- veijum og Tékkum með að áratugalangri hersetu Sovétrikjanna í löndum þeirra lauk í síðustu viku. I samþykkt miðnefndar samtakanna segir, að af- nám sovézku herstöðv- anna í Tékkóslóvakíu og Ungveijalandi marki tímamót og sé merkileg- ur skerfur til þeirrar þró- unar í Evrópu, að þar verði engar erlendar her- stöðvar." Samtök herstöðvaand- stæðinga eiga sér langa sögu og áður en þau komu til sögunnar voru til önnur samtök, sem störfuðu að sama markmiði. Liðsmenn þessara samtaka hafa frá uppliafi verið flokks- menn í Alþýðubandalag- inu og Sósíalistaflokkn- um. Þetta fólk fagnaði því sérstaklega, þegar Rauði herinn lagði undir sig Austur-Evrópmikin við lok heimsstyijaldar- innar siðari og- kom þar á fót leppstjómum, sem riktu undir merki sósial- ismans í rúmlega fjóra áratugi. Þetta fólk hélt uppi vömum fyrir nánast hvert einasta grimmdar- verk, sem framið var i nafni sósialismans i þess- um ríkjum áratugum saman. Þetta fólk hélt því fram, að allar frásagnir af þessum ofbeldisverk- um væm „Moggalygi“, sem væri búin til á rit- stjómarskrifstofum Morgunblaðsins. Þegar sovézki herinn mddist um götur Berlín- arborgar á þjóðhátíðar- degi íslendinga árið 1953 hélt þetta fólk uppi vöm- um fyrir þau ofbeldis- verk. Þegar sovézki her- inn barði niður pólska uppreisn í Poznan árið 1956 hélt þetta fólk uppi vömum fyrir þau ofbeld- isverk. Þegar sovézku skriðdrekamir mddust inn i Búdapest 1956 hélt þetta fólk uppi vömum. Þegar sovézku skrið- drekamir mddust inn i Prag 1968 fór lítið fyrir þessu fólki. ÖU þessi ár héldu liðs- memi Sósíalistaflokksins, Alþýðubandalagsins, Friðlýsts lands, Samtaka herstöðvaandstæðinga og annarra samtaka af þessu tagi uppi linnulaus- um árásum á lýðræðis- shrna hér á landi, sem höfðu tekið upp samstarf við aðrar lýðræðisþjóðir i Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku um að veijast ofbeldisverkum kommúnismans í Austur- -Evrópu. Öll þessi ár hélt þetta fólk uppi stöðugum árásum á lýðræðissinna og sakaði þá um landsölu og yfirleitt allt það versta, sem hægt var að saka nokkura mann um. Þegar kommúnisminn hrundi til grunna i Austur-Evrópu kom í Ijós, að það, sem þetta fólk kallaði „Moggalygi" var aðeins litið brot af þeim grimmdarverkum, sem framin höfðu verið i nafni sósíalismans i þessum ríkjum. Veruleik- inn var margfalt óhugn- anlegri, en nokkura mann gat órað fyrir. Úr felum Nú skríður þetta fólk og arftakar þess úr fel- um og fagnar brottför sovézka hersins frá þess- um löndum! Hvar vom þeir þá?! Hvar vom þeir þegar ofbeldisverkin vom framin? Hvar vom þeir, þegar sovézku skriðdrekamir vom að drepa fólk á götum Berlínar og Búdapest og Prag? Hvar vom þeir? Þeir vom að ráðast á lýðræðissinna á íslandi fyrir samstöðu þeirra með öðmm vestrænum þjóðum í baráttunni við ofbeldisöflin í austri. Þeir vom að þramma milli Keflavikur og Reykjavík- ur til þess að reyna að draga úr stuðningi islenzku þjóðarinnar við vamarsamstarf vest- rænna þjóða. Það var þeirra framlag til þess að frelsa hinar kúguðu þjóðir undan áþján kommúnismans. Þegar sigur er unninn á ofbeld- isöflum sósíalismans í Austur-Evrópu kemur þetta fólk til sögunnar til þess að fagna þeim, sem hafa losnað undan jám- hæl þess veldis, sem þetta fólk studdi af öllum lífs og sálar kröftum í hálfa öld. En þetta fólk hefur hins vegar ekki gert upp við eigin samvizku. Hve- nær kemur að því? Nú vilja þeir uppsögn varn- arsamnings! I fyrmefndri frétt Þjóðviljans segir: „,,Is- lendingar hljóta að taka mið af þessum áfanga. Þeim ber að leggja sinn skerf til hinnar friðsam- legu þróunar með því að krefjast endurskoðunar og uppsagnar á her- stöðvasamningnum við Bandaríkin. Allt annað væri tímaskekkja," segir í ályktun miðnefndar Samtaka herstöðvaand- stæðinga." Þetta fólk hefur ekk- ert lært. Er nú ekki ráð, að þeir, sem höfðu á réttu að standa, þeir, sem börðust fyrir málstað frelsis og lýðræðis í harðri baráttu við kúg- unaröfl sósíalismans beri saman bækur sínar um það, hvemig friður verði bezt tryggður í Evrópu um langa framtið og frelsi þjóðanna í álfunni án ráðlegginga frá Sam- tökum herstöðvaand- stæðinga? M A N A Ð A R Frfr \TTIR V I B Iifeyrismál kveiina - kona er manns fylgja í opnugrein júnífrétta VIB er athyglisverð umfjöllun um lífeyrismál kvenna, en þar standa konur oft höllum fætí. Einnig er í blaðinu ítarleg úttekt á þjónustu verðbréfafyrirtækja og skýrðar upplýsingar úr ársreikningum útgerðar- og fiskvinnslufýrirtækja. Hægt er að fá kynningareintak af mánaðarfréttum VIB í afgreiðslunni Ármúla 13a og áskrift má panta í síma 91 - 68 15 30. Verið velkomin í VÍB. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Simi 68 15 30. Telefax 68 15 26. Simsvari 68 16 25.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.