Morgunblaðið - 03.07.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1991
19
Reuter
Á mánudag féll aurskriða á þorpið Jalong, sem er um 20 km frá
eldfjallinu. Unglingspiltar ráðast hér á storknaða aureðjuna með
prikum og skóflum. Einn piltanna skríður í gegnum op sem áður
var dyragætt hússins.
Filippseyjar:
Stórgos í vændum í
Pinatubo-eldfjallmu?
Manila. Reuter.
PlNATUBO-eldfjallið á Filippseyjum þeytti í gær upp ösku og grjóti
í öflugu sprengigosi. Gosmökkurinn náði 15.000 metra hæð og eld-
fjallafræðingar á eyjunum telja að hætt sé við að senn líði að enn
kröftugri hræringum. Efnahagur eyjanna er bágur og hafa stjórn-
völd þar farið fram á það við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn að fá fjár-
stuðning.
Eldjallið hafði haft tiltölulega
hljótt um sig í tvær vikur fram að
gosinu í gær, en á þeim 25 dögum
sem liðnir eru frá því að þar fór
að gjósa hafa 343 menn látið lífið,
tvær bandarískar herstöðvar verið
yfirgefnar og 250.000 manns hafa
flúið heimili sín.
Eldgosið í Pinatubo-fjallinu hefur
haft mikil áhrif á efnahag Filipps-
eyja. Stjórnvöld hafa lengi barist
við verðbólgudrauginn, en gosið
hefur gert vonir um sigur í þeim
baráttu að engu í bráð. I febrúar á
þessu ári tóku Filippseyingar 900
milljón dala lán til að rétta efnahag-
inn við, sem þá þegar var bágur
vegna náttúruhamfara á síðasta
ári. Nú hafa stjórnvöld farið fram
á fjárstuðning frá Alþjóða gjald-
eyrissjóðnum að sögn Jesus Estan-
islao, fjármálaráðherra Filippseyja.
„Sjóðurinn er reiðubúinn að bæta
okkur upp viðskiptatap við útlönd
að hluta, en við verðum einnig að
sýna að við erum tilbúin til þess
að bera skaðann sjálf,“ sagði Estan-
islao.
■ JÓHANNESARBORG - Sam-
kvæmt skoðanakönnun, sem gerð
var í byggðum blökkumanna í
Suður-Afríku, fengi Afríska þjóð-
arráðið (ANC) 62% atkvæða
blökkumanna ef þeir ættu þess
kost að kjósa það. í könnuninni
sem gerð var af Witwatersrand-
háskólanum kom í ljós að Þjóðar-
flokkur F.W. de Klerks forseta
fengi 12% og Inkatha-hreyfíngin
fengi 5% fylgis. Blökkumenn, sem
eru þrír af hveijum fjórum íbúum
Suður-Afríku, hafa ekki kosninga-
rétt til löggjafarþingsins sam-
kvæmt apartheid, aðskilnaðar-
stefnunni sem de Klerk er nú
smám saman að leggja af. Hann
hefur lofað nýrri stjórnarskrá sem
veiti öllum íbúum landsins óskoruð
stjórnmálaleg réttindi.
■ MADRAS - Indverskir lögregl-
umenn hafa handtekið Subha
Sundaram, eiganda Ijósmynda-
þjónustu í Madras, í tengslum við
rannsókn á morðinu á Rajiv
Gandhi, fyn-verandi forsætisráð-
herra Indlands. Sundaram er átt-
undi maðurinn sem handtekinn
hefur verið grunaður um aðild að
morðinu. Sundaram er gefíð að
sök að hafa aðstoðað morðingja
Gandhis við að flýja. Talsmenn
lögreglunnar segja að nú eigi að-
eins eftir að handtaka tvo menn
sem grunaðir eru um aðild að
morðinu.
■ PRAG - Nöfn þeirra stóru
ríkisfyrirtækja sem selja á einka-
aðilum í Tékkóslóvakíu verða
gefin upp í dag, miðvikudag. Frá
því í janúar á þessu ári hafa meira
en 6.000 smáfyrirtæki, s.s. versl-
anir, veitingahús og lítil hand-
verksfýrirtæki, verið seld einkaað-
ilum fyrir meira en þijár milljónir
tékkneskra króna eða rúmlega 6
milljarða ÍSK en það er aðeins
byrjunin á einkavæðingunni í
landinu, nú er röðin komin að stóru
fyrirtækjunum.
Talið ekki illa
um rigninguna
London. Daily Telegraph.
HÉÐAN í frá verður ekki minnst á „suddaveður", heldur að-
eins rigningu. Veðurfræðingar heimsins verða beðnir að hætta
að viðhafa ónotalegar athugasemdir um votviðri.
í næstu viku hittist hópur vís-
indamanna í Washington til að
skrifa veðurfræðingum um heim
allan bréf, þar sem þeir eru hvatt-
ir til að hætta að vera „afsakandi,
neikvæðir eða ómálefnalegir“ þeg-
ar þeir fjalla um þessa mikilvægu
náttúruauðlind. „Veðurfræðingar
ættu að hætta að tala um, að það
verði áfram „sama leiðindaveðrið",
segir Kenneth Small, skipulags-
stjóri samtakanna Global Water
Summit Initiative, sem starfar í
tengslum við Sameinuðu þjóðirnar
og hefur að markmiði að aðstoða
við að koma í veg fyrir vatnsskort
í hinum ýmsu heimshlutum.
„Rigningin er af hinu góða,“
segir hann. „Við þurfum bara að
taka tillit til hennar þegar við
búum okkur, en ættum að hætta
að tala um hana eins og hún sé
vandamál. Á næstu 10 til 15 árum
verður vatn víða talið eins verðmæt
náttúruauðlind og olía, ekki síst í
Miðausturlöndum, og því nauðsyn-
legt að glæða skilning fólks á
þessu.
Michael Fish, veðurfræðingur
hjá breska ríkissjónvarpinu, BBC,
er á sama máli: „Við reynum að
tala um þessa hluti á faglegan
hátt og forðast persónulegt mat.“
Annar veðurfræðingur hjá BBC
segir: „Versta veðrið fyrir okkur
er þegar það er þurrt, heitt og
sólríkt - það er svo erfitt að gera
það að umtalsefni.“
Talsmaður Wimbleton-tennis-
mótsins, sem vindur og votviðri
hafa löngum sett svip sinn á, sagði:
„Auðvitað er rigningin yndisleg og
nauðsynleg. Við vildum bara, að
hún hefði ekki alveg svona mikið
uppáhald á okkur.“
Holland:
Afbrotaunglingar skikk-
aðir í lögregluvinnu
Amsterdam. Reuter.
HOLLENSKIR afbrotaunglingar geta fengið að sinna störfum fyrir
lögregluna í stað þess að vera refsað með fangelsisvist. Lögreglan
í Amsterdam hyggst koma á þessari nýbreytni á næstunni en sam-
kvæmt lögum má fólk inna af hendi ýmis gagnleg störf fyrir opin-
bera aðila í stað þess að dúsa í steininum.
Clarence Thomas Reuter
Bandaríkin:
Ihaldssamur
blökkumað-
ur hæsta-
réttardómari
Maine. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti
útnefndi Clarence Thomas, alrík-
isrómara í Washington, í embætti
hæstaréttardómara í gær. Hann
er annar blökkumaðurinn sem
útnefndur er dómari í Hæstarétti
Bandaríkjanna.
Búist er við að skipunin muni
mæta andstöðu, einkum af hálfu
blökkumannaleiðtoga, sem segja að
Thomas sé íhaldssamur og hafl sýnt
lítil tilþrif í þau sjö ár sem hann sat
í Jafnréttisráði vinnumarkaðarins.
Bush sagði að kynþáttamál hefðu
engin áhrif haft á sig þegar hann
skipaði Thomas. Hann tekur við af
Thurgood Marshall, sem er fyrsti
blökkumaðurinn sem gegnt hefur
embætti hæstaréttardómara í
Bandaríkjunum og hefur þótt fijáls-
lyndiir í embættisverkum sínum.
„Ég er sannfærður um að Thomas
verður frábær dómari," sagði Bush.
Öldungadeild þingsins á eftir að
samþykkja útnefninguna.
Tugir afbrotamanna, aðallega
ungra, munu gæta bygginga lög-
reglunnar eða sjá um hestana sem
hún notar. Talsmaður lögreglunnar
sagði hana vilja sýna gott fordæmi
með því að aðstoða fólk sem hafnað
hefði í vítahring síbrotamannsins.
„Það verður ögrandi viðfangsefni
fyrir þá og okkur að láta þá af-
plána dóma hjá lögreglunni.“
Myndir sem birtast í Morgunblaöinu,
teknar af Ijósmyndurum blaösins
fdst keyptar, hvort sem er
til einkanota eöa birtingar.
UÓSMYNDADEILD
„SALA MYNDA"
Aðalstrœti 6, sími 691150
101 Reykjavík
Hvaba kröfur
gerir þú til
nvrrar
þvottavélar ?
Væntanlega þær, a5 hún þvoi, skoli og vindi vel, en sé jafnframt sparneytin
á orku, vatn og sápu. A5 hún sé auöveld í notkun, hljóðlát og falleg.
Sföast en ekki síst, að hún endist vel án sífelldra bilana, og að varahluta- og
viögerðaþjónusta seljandans sé góð.
Séu þetta kröfurnar, líttu þá nánar á ASKO hjá Fönix. ASK0 stenst þær allar
og meira til, jjví þab fást ekki vandaðari né sparneytnari vélar. Og
þjonusta Fönix er fyrsta flokks, traust og lipur.
Verbib svíkur engan, því nú um sinn bjóbum vib ASK0
þvottavélarnar, bæbí framhlabnar og topphlabnar, á sérstöku
kynningarverði:
ASKO 10003 framhl. 1000 sn.vinding KR. 71.500 (67.920 stgr.)
ASK011003 framhl. 900/1300 snún. KR. 79.900 (75.900 stgr.)
ASKO 12003 framhl. 900/1300 snún. KR. 86.900 (82.550 stgr.)
ASKO 20003 framhl. 600-1500 snún. KR. 105.200 (99.940 stgr.)
ASKO 13002 topphl. 1300 sn.vinding KR. 62.900 (59.750 stgr.)
ASKO 16003 topphl. 900/1300 snún. KR. 78.900 (74.950 stgr.)
Góbir greibsluskilmálar: 5% staðgreibsluafsláttur (sjá að ofan) og 5% ab auki séu keypt
2 stór tæki samtímis (magnafsiáttur). VISA, EURO og SAMKORT rabgreibslur til allt ab
12mán. ,án útborgunar.
ÞVOTTAVÉLAR 6 GERÐIR TAUÞURRKARAR 8 GERÐIR
UPPÞVOTTAVELAR 5 GERÐIR
V.
JrQ nix
HÁTÚNI 6A SÍMI (91) 24420
J