Morgunblaðið - 03.07.1991, Side 23

Morgunblaðið - 03.07.1991, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JULI 1991 23' ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar 1. júlf 1991 Mánaðargreiðsiur Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) .................. 12.123 'A hjónalífeyrir ...................................... 10.911 Full tekjutrygging ..................................... 26.320 Heimilisuppbót .......................................... 8.947 Sérstök heimilisuppbót .................................. 6.154 Barnalífeyrir v/1 barns ................................. 7.425 Meðlag v/1 barns ........................................ 7.425 Mæðralaun/feðralaun v/1 barns ............................4.653 Mæðralaun/feðralaun v/2ja barna ....................... 12.191 Mæðralaun/feðralaun v/3ja barna eða fleiri ............. 21.623 Ekkjubætur/ekkilsbætur6 mánaða ......................... 15.190 Ekkjubætur/ekkilsbætur12mánaða ......................... 11.389 Fullurekkjulífeyrir .................................... 12.123 Dánarbætur í 8 ár (v/slysa) ............................ 15.190 Fæðingarstyrkur ....................................... 24.671 Vasapeningarvistmanna ...................................10.000 Vasapeningar v/ sjúkratrygginga ........................10.000 Daggreiðslur Fullirfæðingardagpeningar ............................ 1.034,00 Sjúkradagpeningareinstaklings .......................... 517,40 Sjúkradagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ............... 140,40 Slysadagpeningareinstaklings ........................... 654,60 Slysadagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ................ 140,40 18% tekjutryggingarauki, sem greiðist aðeins í júlí, er inni í upphæð- um tekjutryggingar, heimilisuppbótar og sérstakrar heimilisuppbót- ar. FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA 2. júlí. FISKMARKAÐUR hf. í. Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 98,50 73,00 83,36 70,809 5.902.931 Smáþorskur 69,00 30,00 67,99 2,755 187.324 Ýsa 95,00 40,00 79,59 19,735 1.570.679 Smáýsa 20,00 20,00 20,00 0,052 1,040 Rauðmagi 10,00 10,00 10,00 0,029 290 Smáufsi 37,00 37,00 37,00 0,070 2.590 Steinbítur 39,00 20,00 35,55 1,167 41.512 Keila 22,00 22,00 22,00 0,073 1.606 Karfi 30,00 30,00 30,00 2,647 79.430 Blálanga 46,00 46,00 46,00 0,046 2.116 Lúða 250,00 . 70,00 125,28 0,356 44.600 Ufsi 55,00 54,00 54,90 8,850 485.920 Langa 46,00 46,00 46,00 0,059 2.714 Koli 76,00 46,00 73,53 2,097 154.202 Samtals 77,95 108,749 8.476.954 FAXAMARKAÐUR hf. Reykjavík Þorskur (sl.) 88,00 69,00 85,70 55,710 4.774.597 Ýsa (sl.) 105,00 35,00 76,39 33,818 2.583.338 Blandað 5,00 5,00 5,00 0,022 110 Grálúða 73,00 69,00 70,82 0,167 11.827 Karfi 28,00 20,00 27,62 28,697 792.710 Keila 34,00 34,00 34,00 0,908 30.872 Langa 47,00 47,00 47,00 0,474 22.278 Lúða 230,00 100,00 146,79 2,515 369.175 Skarkoli 35,00 20,00 29,94 0,175 5.240 Steinbítur 39,00 35,00 38,27 0,918 35.134 Ufsi 53,00 46,00 52,57 20,207 1.062.185 Undirmál 69,00 38,00 48,04 1,123 53.951 Samtals 67,31 144,734 9.741.418 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 106,00 74,00 90,73 44,998 4.082.811 Ýsa 113,00 ' 75,00 98,90 5,047 499.165 Lýsa 27,00 ; 27,00 27,00 0,032 864 Keila/bland 15,00 15,00 15,00 0,045 675 Háfur 5,00 I 5,00 5,00 0,036 180 Undirmál 48,00 48,00 48,00 0,028 1.344 Lúða 385,00 : 375,00 379,00 0,033 12.525 Keila 30,00 15,00 23,58 0,187 4.410 Steinbítur 50,00 • 40,00 43,95 0,220 9.670 Sólkoli 65,00 i 65,00 65,00 0,059 3.835 Skötuselur 180,00 180,00 180,00 0,121 21.760 Langa 50,00 36,00 44,99 0,769 34.598 Langlúra 54,00 . 48,00 52,00 1,311 68.172 Öfugkjafta 29,00 29,00 29,00 1,065 30.885 Skarkoli 67,00 67,00 67,00 0,800 53.600 Skata 77,00 66,00 76,35 0,286 21.835 Ufsi 59,00 . 41,00 45,87 56,782 2.604.491 Karfi 40,00 27,00 28,29 23,211 656.572 Samtals 60,04 135,030 8.107.412 FISKMARKAÐURINN í Þorlákshöfn. Þorskur 80,00 77,00 77,99 1,766 137.728 Ýsa 76,00 73,00 74,91 5,974 447.500 Blandað 20,00 20,00 20,00 0,983 19.550 Karfi 26,00 24,00 25,68 5,384 138.280 Keila 20,00 20,00 20,00 0,006 110 Langa 49,00 49,00 49,00 0,193 9.457 Lúða 180,00 180,00 180,00 0,117 20.970 Skata 36,00 36,00 36,00 0,015 540 Skarkoli 71,00 71,00 71,00 4,189 297.454 Skötuselur 155,00 155,00 155,00 0,460 71.300 Steinbítur 20,00 20,00 20,00 0,189 3.780 Ufsi 47,00 47,00 47,00 4,000 188.000 Undirmál 65,00 47,00 47,44 1,876 88.968 Samtals 56,61 25,151 1.423.747 Fyrirhugnð réttargeðdeild að Sogni: Nýráðimi yfirlæknir segir upp starfi sínu Deildin mun ekki geta hýst hættulega glæpamenn, segir heilbrigðisráðherra LARA Halla Maack, nýráðinn yfirlæknir fyrirhugaðrar réttargeðdeild- ar, sagði upp starfi sinu í gær. Hún segir að faglegar ráðleggingar sínar um undirbúning starfseminnar hafi verið algerlega hunzaðar af heilbrigðisráðuneytinu. Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra segir að ekki hafi verið hægt að draga það, að starfsemi geðdeildarinn- ar hæfist, jafnlengi og Lára hafi viljað. Ráðherra skýrði jafnframt frá því í gær að fyrirhugað húsnæði réttargeðdeildar að Sogni í Ölfusi myndi ekki hýsa hættulega glæpamenn, heldur fyrst og fremst þroska- heft og geðfatlað fólk, sem ekki væri hættulegt umliverfi sinu. Lára Halla Maack, sem er eini Islendingurinn með sérmenntun í réttargeðlækningum, var skipuð í stöðuna af Guðmundi Bjarnasyni, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, dag- inn sem ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar fór frá völdum. í upp- sagnarbréfi sínu segir hún að núver- andi ráðherra telji sig augljóslega „á engan hátt bundinn af samkomu- lagi mínu við fyrrverandi ráðherra um undirbúning að stofnun réttar- geðdeildar.“ Sighvatur Björgvinsson segir að sér sé ekki kunnugt um að neitt sam komulag hafi verið gert við Láru. Hann hafi fengið bréf upp á að hún gæti ekki hafíð störf fyrr en 1. sept- ember, sem sér hafi þótt heldur seint. Jafnframt hafi Lára tilkynnt að frá þeim tíma þyrfti hún allt að níu mánuði til að undirbúa starfsemina og finna hentugt húsnæði. Þetta hefði þýtt að ekki væri einu sinni hægt að gera ijárlagatillögur fyrir nýju réttargeðdeildina og hún gæti tæplega tekið til starfa fyrr en árið 1993. „Eg hafði einnig frétt á skotspón- um um hugmyndir um þessa starf- semi,“ sagði heilbrigðisráðherra á blaðamannafundi í gær. „Ef það er rétt, þá eru menn hér að hugsa um nýbyggingu, sem myndi kosta á fjórða hundrað milljónir króna og rekstur, sem myndi kosta á annað hundrað milljónir á ári. Menn geta séð hvort það er eitthvað sem okkar 250.000 manna þjóðfélag ræður við.“ Ráðherra vildi ekki svara því beint hvort þarna væri um hugmyndir Láru Höllu að ræða, sagðist hafa heyrt þetta utan að sér. Er orð ráð- herra voru borin undir Láru, sagði hún að þessar tölur væru úr lausu lofti gripnar. Hún hefði aldrei lagt fram neina kostnaðaráætlun. Sér og Cuðmundi Bjarnasyni hefði komið saman um að hún myndi skoða að- stæður og leggja svo fram tillögur um ýmsa kosti, misdýra, sem tækju til mismunandi hópa geðsjúkra glæpamanna. Úr þessum kostum ættu stjómmálamenn síðan að velja. „Ég hef sent Sighvati þessar áætlan- ir þrisvar sinnum, en hann hefur greinilega ekki lesið þær,“ sagði Lára Halla í samtali við Morgunblað- ið. Sighvatur segir að þegar hann hafi tekið við embætti hafi dóms- málaráðherra gert sér grein fyrir að þrír ósakhæfir afbrotamenn hefðu verið dæmdir til vistunar á réttargeð- deild, og jafnframt að fjárveiting til slíkrar deildar á árinu væri 24 millj- ónir króna. Sighvatur segist hafa gert gangskör að því að finna hent- ugt húsnæði fyrir geðdeildina og hafi Sogn orðið fyrir valinu. Ríkisspítalar hafi jafnframt verið fengnir til að taka að sér reksturinn. Strax og þessu hafi verið lokið, hafi hann óskað samráðs við Láru Höllu, en hún ekki haft tíma til að hitta sig fyrr en í gær. Lára hafi komið til fundarins með tilbúið uppsagnarbréf og ljósrit af því til að afhenda ijöl- miðlum. Lára Halla segir að þrátt fyrir að þörfin fyrir réttargeðdeild sé brýn, þurfí slík starfsemi faglegs undirbún- ings við. Ákveða þurfi hvaða með- ferð eigi að veita og finna fagfólk til að framkvæma hana. Val á hús- næði sé seinast í röðinni. Heilbrigðisráðherra segir að þeir ósakhæfu afbrotamenn, sem nú eru hafðir í Síðumúlafangelsinu, séu fyrst og fremst þroskaheftir einstakl- ingar, sem séu að veslast upp í ein- angrunarfangelsi. Þetta fólk sé ekki hættulegt umhverfi sínu. Ráðherr- ann segir að þetta fólk yrði hægt að vista á Sogni, en hættulega glæpamenn verði að vista erlendis áfram. „Þetta er ekki húsnæði sem hentar til að taka upp stranga örygg- isgæzlu á stórhættulegum afbrota- mönnum,“ sagði ráðherra í gær. Lára Halla segir hins vegar að þroskaheft fólk geti verið mjög hættulegt umhverfi sínu og viti hún nú þegar um fjóra þroskahefta af- brotamenn, sem þannig sé ástatt um. Mat Sighvats á þessum málum sé alls ekki faglegt, heldur hlusti hann á það, sem hann vilji helzt heyra. Sighvatur Björgvinsson segir að áfram verði haldið að undirbúa stofn- un réttargeðdeildar og auglýst verði eftir nýjum yfírlækni. Bréf Láru Höllu Maack til heilbrigðisráðherra Hér fer á eftir í heild uppsagn- arbréf Láru Höllu Maack til heil- brigðisráðherra, þar sem hún seg- ir lausu starfi yfirlæknis réttar- geðdeildar: Ágæti ráðherra, Þakka bréf dagsett 27.6.’91, boðs- ent mér þ. 28.6.’91. Ég segi hér með lausu starfi yfir- læknis réttargeðdeildar, sem ég var skipuð í af fv. ráðherra. Ég mun því ekki heija störf þ. 1. sept. nk. Ástæður fyrir uppsögn minni eru eftirfarandi: 1) Augljóst er, að núverandi ráð- herra telur sig á engan hátt bundinn af samkomulagi mínu við fv. ráð- herra um undirbúning að stofnun réttargeðdeildar (bréf til ráðherra 19.2.’91 og 7.5.’91). Bréfum mínum hefur ekki verið svarað í ráðherratíð þinni og mér því ekki tilkynnt um nýjar áætlanir ráðherra. Þess má geta, að siðmenntaðar þjóðir fela 5 fagmönnum í 5 ár slíkt vandaverkefni _sem stofnun réttar- geðdeildar er. Ég ætlaði mér því 50 manna verk (á 6 mánuðum). Það er ekki von að ráðuneytinu líki slíkur slóðaskapur. 2) Nú síðast (28.6) hafa verið teknar ákvarðanir af leikmönnum ráðuneytisins, sem eru stefnumark- andi varðandi framtíð réttargeðdeild- ar. Um þær var aldrei rætt við mig, heldur tilkynnt orðin gjörð í símtali þ. 28.6. sl. þar sem undirrit- uð er eini fagmaðurinn á landinu í réttargeðlækningum, hefði átt að liggja beint við að leita til hennar á einhveiju stigi málsins. 3) Geðsjúkdómar geta verið lífshættulegir sjúkdómar. í réttar- geðlækningum er einmitt hættuleg- ustu sjúklingana að finna. Þeir deyða og meiða sjálfa sig og aðra. Ráðu- neytismenn gera sér ekki grein fyrir að um líf sjúklinga og starfsfólks er að tefla. Ábyrgðina á lífi þessa fólks verða ráðamenn nú að bera sjálfir. Ég tek ekki að mér að gulltryggjav víg sjúklinga og starfsfólks fyrir ráð- herra. 4) I bréfi ráðuneytisins frá 27.6.’91 kemur einnig fram að mér er ætlað að hefja störf fyrir 1. sept- ember. Ekki nóg með það heldur vera búin að öllu fyrir þann tíma, þar eð starfsemin eigi að hefjast þá! Ég verð því miður að viðurkenna, að slíkt er ekki á færi venjulegs rétt- argeðlæknis jafnvel ekki óvenjulegs eins og mín sbr. lið nr. 1. Ráðuneyt- inu var ljóst í janúar sl., að 3-4 mánuðir myndu líða frá skipan minni, þar til ég gæti tekið við störfum yfir- læknis réttargeðdeildar. Slíkt er eðli geðlækninga. Það er ekki hægt að hlaupa frá sjúklingum í meðferð. Ég var skipuð af fv. ráðherra 3 klst. áður en núverandi tók við, þ. 30. apríl sl. Að síðustu vil ég benda á, að rétt- argeðdeild er dýrt verkefni. Það er ekki við neina aðra að sakast en Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 22. apríl - 1. júlí, dollarar hvert tonn ráðamenn þessarar þjóðar (t.d. við fv. formann fjárveitingamefndar Al- þingis), hvernig málefni geðveikra SVARTOLÍA 200-------------- 175------------- 150------------- !25------------- 100------------- 75 m ii ii ^ i i 50-------------- 25-------------- .+—i—i—i—i—1—i—i—f-—i—e+ 26.A3M 10. 17. 24. 31. 7J 14. 21. 28. afbrotamanna hafa dankast hér á landi í þúsund ár. Með ofangreindum ákvörðunum ætla ráðuneytismenn að standa að verkefninu, eins og tíðkaðist á miðöldum, nefnilega með aftöku sjúklinganna. Stjórnmálamenn eru enn tvístígandi yfir hvort veija eigi fé til meðferðar geðveikra afbrotamanna og ráð fagmannsins virða þeir einsk- is. Það sýna og sanna ákvarðanir síðustu daga. Virðingarfyllst, Lára Halla Maack deildarlæknir 33-A, Landspítala

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.