Morgunblaðið - 03.07.1991, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1991
Grýtubakkahreppur:
Hugað að efldri ferða-
þjónustu 1 hreppnum
Ibúð til leigu fyrir ferðamenn
„VIÐ TELJUM að hér sé margt sem forvitnilegt sé að skoða fyrir
ferðamenn, en straumurinn hefur ekki legið hingað fram til þessa,
enda erum við ekki í þjóðbraut,“ sagði Guðný Sverrisdóttir sveitar-
'stjóri í Grýtubakkahreppi.
A vegum hreppsins verður í sum-
ar leigð út íbúð til ferðafólks viku
í senn, en það má segja fyrsta skref-
ið í þá átt að laða að ferðamenn
til Grenivíkur og í næsta nágrenni.
Guðný sagðist telja að meira væri
hægt að gera til að fá ferðafólk á
staðinn, en ef gera ætti verulegt
átak þyrfti að ráða til starfsins sér-
Tvær kaup-
leiguíbúð-
ir byggðar
Grýtubakkahreppur:
stakan aðila til að hafa umsjón með
því verkefni.
Á Grenivík er ný og góð sund-
laug, þar er veitingasala og tjald-
stæði er skammt frá barnaskólan-
um. Þá er í hreppnum starfrækt
hestaleiga, Pólarhestar, sem m.a.
býður upp á ferðir í Fjörður. Þá
nefndi Guðný að fjölmargar göngu-
leiðir væru í nágrenninu, stutt væri
að fara í Fjörður, í Flateyjardal og
einnig væri góð gönguleið frá
Grenivík út á Látraströnd. Hvað
styttri gönguleiðir varðaði má nefna
ferð umhverfis Höfðann. „Mig
dreymir um að láta gera gönguleið
héðan og upp á Höfða og koma þar
fyrir útsýnisskífu, en þaðan er út-
sýni afar fagurt um Eyjafjörðinn,“
sagði Guðný.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Líflegt við Leirutjörn
Þessu unga fólki þótti gott að skella sér í Leirutjörnina, baða sig þar í svölu vatninu þegar hitinn var
næstum orðinn óþægilega mikill. Ekki er vitað hvort ungviðið hafi orðið vart silunga sem svamla nú einnig
í tjörninni, en fyrir nokkru stóðu forráðamenn Ferðaskrifstofu Akureyrar að því að setja um 300 bleikjur
þar ofan í og geta þeir sem áhuga hafa keypt sér veiðileyfi og rennt fyrir bleikju. Þeir sem önnur áhuga-
mál hafa geta svamlað þar að vild endurgjaldslaust.
Grýtubakkahreppur fékk út-
hlutað byggingu tveggja kaup-
leiguíbúða, en sótt var um bygg-
ingu fjögurra íbúða.
Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri
sagði að trúlega yrði byggt parhús
Á staðnum, en þau væru nokkuð
vinsæl. Áður hafa verið byggð tvö
slík hús sem auðvelt var að selja,
að sögn Guðnýjar og átti hún von
á að sú yrði einnig raunin varðandi
væntanlega nýbyggingu.
Fullyrt að miklum fiski sé hent fyrir borð:
Fyrsta skrefið að viðurkenna
að um vandamái er að ræða
- segir Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra á fundi á Akureyri
OTTÓ Jakobsson útgerðarmaður á Dalvík sagði á fundi Útvegs-
mannafélags Norðurlands á sunnudag, að allra stærsta málið varð-
andi endurskoðun á fiskveiðilöggjöfinni væri að koma í veg fyrir
að svo miklu magni af fiski væri hent fyrir borð sem raun bæri
vitni. Fleiri fundarmenn tóku í sama streng og Ottó og sagði
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra það valda áhyggjum
hversu miklu væri hent af fiski, en fyrsta skrefið til lagfæringar
væri að viðurkenna að um vaudamál væri að ræða.
„Það hefur lítið verið byggt hér
á undanförnum árum, en það er
okkar reynsla að ef húsnæði er fyr-
ir hendi vill fólk gjarnan flytja hing-
að,“ sagði Guðný.
Samkvæmt könnun Fjórðungs-
sambands Norðlendinga á íbúa-
fjölgun í kaupstöðum og bæjum á
árunum 1980-1990 fækkaði um 40
íbúa í Grýtubakkahreppi á þessu tíu
ára tímabili. íbúar í hreppnum voru
459 árið 1980 en voru 419 á síðasta
'ári. Á milli áranna 1989 og 1990
fækkaði um 3 íbúa í hreppnum.
„Við hefðum auðvitað heldur viljað
hafa þetta á hinn veginn, en það
er erfitt við þetta að eiga,“ sagði
Guðný.
Heiðar Baldursson opnaði um-
ræðuna og sagði það staðreynd
sem allir vissu um, að miklu magni
af fiski væri henti í sjóinn. Þetta
þyrfti að laga, „við verðum að
nýta þann fisk sem við fáum í
netin, við verðum að finna leið
þannig að þessi fiskur komi að
Iandi,“ sagði Heiðar.
Ottó Jakobsson sagði að stærsta
málið við endurskoðun á því kerfi
sem nú væri við stjórnun fískveiða
væri að gera það manneskjulegra,
„gera það þannig úr garði að við
þurfum ekki að bijóta lög upp á
hvern einasta dag,“ sagði Ottó.
Hann sagðist geta fullyrt, bæði
sem sjómaður fyrr á tíð og sem
útgerðarmaður, að mikið af fiski
væri hent í sjóinn nú og hefði þar
gjörbreyting orðið á. Áður hefði
afla ekki verið hent þó hann hefði
ekki beinlínis þótt nýtilegur, en
annað væri uppi á teningnum nú.
Mepn vildu ekki missa veiðileyfi
með því að koma með ólöglegan
afla að landi.
„Það hefur ekki mátt minnast
á þessi mál,“ sagði Ottó og nefndi
að Kristinn Pétursson alþingis-
maður hefði haft frumkvæði að
gerð könnunar vegna þessa máls,
„en maður hefur á tilfinningunni
að reynt hafi verið að kveða hann
í kútinn er hann opnaði málið. Það
eru ekki síst samtök útvegs- og
sjómanna sem hafa viljað þagga
málið niður, það er troðið upp í
þá sem vilja tala um þetta og
mönnum jafnvel sagt að taka pok-
ann sinn,“ sagði Ottó.
Ottó lagði til að hlutlausum
aðila yrði falið að gera lokaða
könnun á umfangi þessa, en full-
yrti sjálfur á fundinum að þúsund-
um tonna af dauðblóðguðum fiski
væri hent fyrir borð. „Við verðum
að vera menn til að viðurkenna
þetta, það er verr gengið um þessa
auðlind okkar nú en áður, eftir
því sem fleiri tegundir koma inn
í kvótana. Ef við viðurkennum
þetta ekki sjálfir verður aldrei
neitt gert til að laga þetta.“
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði að könnun sú er
Kristinn Pétursson hefði kynnt
hefði gefið ákveðnar vísbending-
Allmiklar viðræður hafa farið
fram innan Sjálfstæðisflokksins
síðan þetta gerðist og mun niður-
staðan hafa orðið sú, að allir fjór-
ir bæjarfulltrúarnir hafa afráðið
að taka sér umhugsunarfrest til
áramóta áður en endanleg ákvörð-
un verður tekin í málinu. Til að
greiða fyrir því að starfhæfur
meirihluti sé í bæjarstjórninni
meðan umhugsunarfresturinn
líður, ætla bæjarfulltrúarriir þrír
sem víkja vildu bæjarstjóra að taka
sér leyfi frá störfum.
Ætlunin var að varafulltrúar
úr 8., 9. og 14. sæti framboðslist-
ans tækju sæti þeirra, en ástæðan
ar.„Ég hef sterklega á tilfinning-
unni að fiski sé í of ríkum mæli
hent í í sjóinn,“ sagði hann og
kvað það áhyggjuefni, en ekki
væri til einfalt svar við því hvern-
ig koma ætti í veg fyrir að slíkt
væri gert. Fyrsta skrefið væri að
viðurkenna að um vandamál væri
að ræða, sem stemma þyrfti stigu
við. Þorsteinn sagði koma til álita
að láta gera óvilhalla könnun á
þessu, eins og Ottó lagði til.
var reynsla þessa fólks af sveitar-
stjórnarmálum. Meirihlutinn leit-
aði álits félagsmálaráðuneytisins á
þessari ráðstöfun og er úrskurður
ráðuneytisins á þá leið að bæjar-
fulltrúunum sé heimilt að taka
leyfið, en fara verði eftir númera-
röð á framboðslistanum og verður
það gert.
Sjálfstæðisflokkurinn mun því
áfram fara með hreinan meirihluta
í bæjarstjórn Ólafsfjarðar, en eftir
stendur að deila aðalfulltrúanna
um störf bæjarstjóra er enn óleyst,
en öðrum ágreiningsmálum mun
ekki til að dreifa innan meirihlut-
ans.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
*
A hlutaveltu
Þetta unga fólk gerði sér til dundurs í góða veðrinu að setja upp
hlutaveltu úti undir berum himni. Ágóðann ætluðu þau að gefa barna-
deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Á myndinni eru frá vinstri:
Kristín Ingimarsdóttir, Valdimar Baldvinsson og Dagný Davíðsdóttir.
Ólafsfjörður:
Þrír bæjarfulltrúar
fá leyfi frá störfum
'Á FUNDI bæjarstjórnar Ólafsfjarðar sem haldinn verður í dag,
miðvikudag, munu þrír bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska
eftir leyfi frá störfum. Ástæðan er ágreiningur innan meirihluta
Sjálfstæðisflokksins um störf bæjarstjórans, Bjarna Kr. Grímsson-
ar, en þremenningarnir lögðu til á síðasta bæjarsljórnarfundi að
honum yrði sagt upp störfum. Oddviti sjálfstæðismanna í bæjar-
stjórninni, Óskar Þór Sigurbjörnsson, greiddi atkvæði gegn tillög-
unni og rauf þannig samstarfið í meirihlutanum. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur haft hreinan meirihluta í bæjarsljórn Ólafsfjarðar.