Morgunblaðið - 03.07.1991, Page 31

Morgunblaðið - 03.07.1991, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1991 31 Minning: Fríðsteinn (Stóni) Ást- valdur Fríðsteinsson í dag, 3. júlí 1991, er til grafar borinn afí okkar, Fríðsteinn Ást- valdur Fríðsteinsson, fvrrverandi sjómaður, á 92. aldursári. Hann var orðinn saddur lífdaga þegar hann lést enda farinn að heilsu og níu tugir ára að baki, þar af rúmlega fimm tugir til sjós. Fríðsteinn fæddist í Reykjavík 10. september 1899, á Grundarstíg, sonur Fríðsteins Jónssonar og Ástríðar Hannesdóttur, og átti hann átta systkini sem öll eru látin. Afi var lengst af sinni starfsævi far- maður á skipum Eimskipafélagsins, fyrst á Gullfossi en lengst á Selfossi. Hann fór víða um lönd og ein fyrsta minningin um afa frá Berg- staðastrætinu er þegar móðir félaga míns í götunni sagði mér að hann hefði verið kallaður appelsínuafi þegar hún var unglingsstúlka. Afí hefði komið úr siglingum með heilu kassana af appelsínum sem þá voru fágæt matvæli á íslandi og dreifði þeim meðal barnanna í götunni. Þar hafði hann byggt hús á Bergstaða- stræti lOc með móður sinni, Ástríði, og bjó hann þar upp frá því. Þann- ig man ég afa, öllum velviljandi. Hann var háseti á skipum Eim- skips en hugur hans hafði ætíð stað- ið til skipstjórnarmennsku. Sjón- galli hindraði hins vegar að sá draumur hans rættist. Fyrri kona afa var Þórdís Björns- dóttir, og eignuðust þau sex börn. Þórdís lést langt um aldur fram rétt fyrir jólin 1945 og stóð afi þá skyndilega í þeim sporum að sjá fyrir sex börnum, þar af fimm dætrum, Hólmfríði, Ástríði, Þórdísi, Sjöfn og Dagbjörtu Steinu, en einkasonurinn Björn fórst af slys- förum á ungum aldri. Árið 1947 giftist afí eftirlifandi eiginkonu sinni, Jósefínu Svanlaugu Jósefs- dóttur, en hún fluttist á Bergstaða- strætið sem ráðskona ásamt dóttur sinni Huldu 1946. Hún tók við dag- legri stjórn heimilisins og fórst það mæta vel úr hendi, enda þótt stjúpd- æturnar væru oft baldnar, og áður en varði var ljölskyldan sameinuð á ný og hafði bæst við ein systir á heimilið, dóttir Bínu, Hulda, sem nú býr í Bandaríkjunum. Þegar afí hætti á sjónum í kring- um 1975 hóf hann störf í pakkhús- um Eimskipafélagsins á Granda- garði. Þá áttum við heima á neðri hæðinni á Bergstaðastræti og mik- ill samgangur á milli hæða. Afi kenndi okkur systkinunum sund- tökin í gömlu sundlauginni í Laug- ardal og búum við ennþá að þeirri kennslu og ríkti mikill sundáhugi upp frá því meðal okkar. Nokkrum árum seinna vann ég á sumrin hjá Eimskipafélaginu og voru þar nokkrir gamlir skipsfélag- ar afa enn í vinnu. Þegar þeir vissu hverra manna ég var óx ég í áliti og allir vildu segja mér sögur af afa. Þá var hann farinn að heyra óg sjá illa en með því að brýna raustina var hægt að segja honum að gömlu félagarnir á Fossunum sendu honum kveðju. Þá hýrnaði yfír honum og ekki stóð á sögum af sjónum, sem margar hveijar voru óborganlegar. Síðustu sex árin bjuggu afi og amma á Hrafnistu í Hafnarfirði, sem afi kallaði jafnan Höllina sína. Fyrir ofan rúmið sitt hafði hann myndir af foreldrum sínum og systkinum og vildi alltaf fræða gesti um eitthvað sem tengdist sögu þeirra. Hann trúði því einlægt að hann ætti eftir að hitta alla ástvina sína fyrir handan og það var honum tilhlökkunarefni að hverfa til þeirra. Við þökkum afa fyrir allar stund- irnar og megi minningin um góðan mann lifa lengi. Guðjón Guðmundsson, Þórdís Guðmundsdóttir, Björn Guð- mundsson, Örn Guðmundsson. Halldóra Aðalsteins- dóttir - Minning Fædd 4. desember 1913 Dáin 25. júní 1991 Nú er Halldóra Aðalsteinsdóttir, amma okkar, horfin á aðra braut en ekki síðri vonandi, þar sem hún getur ræktað blómin sín allan ársins hring án þess að nokkur stoppi hana. Garðurinn hjá ömmu var alltaf til fyrirmyndar fyrir utan öll blómin sem hún ræktaði innandyra. Ef blómin hjá okkur systkinunum fóru að fölna, áttu þau alltaf góðan stað sem við gátum sent þau á, nokkurskonar spítala og bataein- kennin voru engu lík. Við minnumst þess að þegar við þurftum að taka stórar ákvarðanir var alltaf gott að fá skoðun ömmu á málinu, því það auðveldaði manni mjög svo að taka ákvörðun. Það var alltaf hægt að taka mark á því sem hún sagði, og það þýddi ekkert að rengja hana, því hún vissi betur. Það var ekki langt fyrir okkur að heimsækja ömmu síðustu árin sem hún lifði, aðeins næsta hús við hliðina og það var alltaf gott að vita af einhveijum sem maður gat treyst á svona nálægt manni því hún hafði alvegn óendanlegan tíma fyrir okkur. Amma hafði einnig mjög gaman að mála á postulín og það var mjög áhugavert að fylgjast með henni þegar hún var að mála á hluti. Halldóra Þórhalla Lilja Aðalsteins- dóttir var fædd á ísólfsstöðum á ömmu okkar fyrir allt sem hún hefur verið okkur og biðjum algóð- an guð að geyma hana. Elfar Jóhannes Eiríksson, Sigríður Eiríksdóttir, Halldóra Eiríksdóttir. Það var árla morguns á lengsta og bjartasta tíma ársins sem dauð- inn náði að yfirbuga hana Halldóru mágkonu mína. Oft virtist manni hin síðari ár að dauðinn hafi bank- að á dyr hjá henni, en þá sannað- ist, eins og svo oft áður, hin mikla rósemi og styrkur hennar þegar hún á undraverðan hátt vísaði dauðan- um jafnan frá. Með baráttu sinni og lífsorku sýndi hún okkur að það var dauðinn sem dó en lífið lifír. Halldóra giftist bróður mínum Sæmundi Sigurðssyni skipstjóra og eignuðust þau þijá syni, Viðar, Aðaistein og Sigurð. Dóttir hennar Hafdís Jóhannsdóttir kom með í heimilið og varð ekki síður en syn- irnir gæfubarn þeirra. Halldóra helgaði sigr fyrst og síðast sínu heimili. Ævinlega bar heimili henn- ar vott um mikla umhyggju, bú- sæld og gestrisni. Auk þess, eins og svo margar sjómannskonur þekkja, sá hún einnig um almennan rekstur heimilisins og jafnvel rekst- ur útgerðar eiginmannsins í landi. Var ljóst að hjá henni var aldrei neinn rekstur á gjaldþrota búi. Jafn- framt svo miklu og í raun annasömu starfí gat Halldóra einnig fundið tíma hjá sér til að sinna félagsstörf- um. Starfaði hún t.d. í mörg ár hjá Slysavarnafélagi Hafnarfjarðar. Nú þegar ég kveð hana mágkonu mína er mér ljúft að minnast náinna samskipta fjölskyldna okkar Hall- dóru í gegnum tíðina. Þau er ekki ófá skiptin sem við heimsóttum þau hjónin með tilhlökkun að Austur- götu og síðar Smyrlahrauni, eða áttum aðrar glaðar stundir saman í ferðalögum. Þó Halldóra hafí ver- ið rólynd að eðlisfari, þá var hún ætíð á þessum fundum okkar létt í skapi og alltaf fann maður hve mikilli lífsgleði hún bjó yfir. í dag kveð ég hana mágkonu mína með eftir sjá en veit að okkar fundum mun síðar bera saman. Ég og börn mín vottum bömum og barnabörnum Halldóru Aðalsteins- dóttur okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Hulda G. Sigurðardóttir Tjörnesi 4. desember 1913 og er dóttir hjónanna Ólínu Ólafsdóttur og Aðalsteins Halidórssonar og var hún næst elst af átta systkynum sem öll eru nú látin. Hún var gift Sæmundi Sigurðs- syni skipstjóra en hann lést árið 1978. Hún eignaðist fjögur börn, elst er Hafdís Jóhannsdóttir gift Eiríki Ólafssyni skipstjóra þau eiga þijú börn og tvö barnabörn, Viðar Sæmundsson skipstjóri, Aðalstein Sæmundsson fiskverkandi og Sig- urður Sæmundsson bóndi giftur Lísbeth Sæmundsson og eiga þau þijár dætur. Að endingu viljum við þakka t Innilegar þakkir sendum við ölíum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, INGÓLFS GUÐMUNDSSONAR (OllaáÁka), Hólavegi21, Sauðárkróki. Fjóla Þorleifsdóttir, Þorleifur Ingólfsson, Brynja Ólafsdóttir, Guðmundur Örn Ingólfsson, Sigriður Sigurjónsdóttir, Jóhann Helgi Ingólfsson, Hrönn Pétursdóttir, og barnabörn. Gullplata hjá Bubba og Rúnari Júlíussyni BUBBI Morthens og Rúnar Júlíusson hafa tekið höndum saman og gert hljómplötu með hljómsveit sinni GCD, en GCD er einnig nafnið á nýju plötunni þeirra. Hún hefur nú selst í yfir 3.000 eintökum og hefur af því tilefni hlotið gulldiskaviðurkenningu. Útgáfudagur plötunnar var 17. júní, en þá voru liðnir tveir mánuðir frá því að þeir félagar settust niður til að semja fyrstu lögin. í upphafi stóð til að Bubbi semdi nokkur lög og texta sem Rúnar ætlaði síðan að gefa út á sólóplötu sinni. En þegar þeir byijuðu að vinna að þessari hugmynd, féll þeim samstarfið svo vel að ákveðið var að gera þetta að sameiginlegu verkefni. Á aðeins 40 dögum luku þeir við að semja og hljóðrita 13 lög. Strax í upphafi var áhersla lögð á einfaldar grípandi rokkmelódíur í frísklegum búningi. Bubbi lék sjálfur alla rytmagítara á plötunni og Rúnar á bassann, en til liðs við sig fengu þeir Gunnlaug Briem trommuleikara Mezzoforte og sólógítarleikarann Bergþór Morthens, bróður Bubba. Bubbi og Rúnar skipta svo bróður- lega með sér lagasmíðum og söng á plötunni, sem og textagerð, nema hvað Berglind Gunnarsdóttir samdi textann „Rúnar Gunnarsson (In Me- moriam) í minningu bróður síns. Er platan tileinkuð minningu hans. Einn gestur kemur nokkuð við sögu í þremur laganna en það er Guðmundur Pétursson sem leikur á slide-gítar. Sérlegur aðstoðarmaður þeirra og ráðgjafi meðan á upptökum stóð var Óttar Felix Hauksson, sem starfaði í eina tíð með hljómsveitinni Pops. Upptökur fóru fram í Gijótnám- unni í maí 1991 og var það Óskar Páll Sveinsson sem sá um tæknimál- in, en einnig komu Nick Cathcart- Jones og Jóhann Ásmundsson lítil- lega við sögu. Örn Smári Gíslason hannaði umslagið samkvæmt hug- myndum Bubba, Rúnars og Óttars Felix, en Bragi Þ. Jósefsson tók ljós- myndimar. GCD með Bubba og Rúnari kom út á hljómplötu, kassettu og geisla- diski. Á kassettunni og plötunni em 12 lög, en geisladiskurinn inniheldur þrettánda lagið sem aukalag. Hljóm- sveitin GCD með Bubba og Rúnari í fararbroddi kom fyrst fram á Risa- rokkinu í Kaplakrika sunnudaginn 16. júní og hefur síðan haldið tón- leika víða. Mun sveitin gera víðreist í sumar og leika á dansleikjum og tónleikum um allt land. (Fréttatilkynning) Myndin er tekin við afliendingu gulldiskaviðurkenningarinnar, en hún fór fram í þætti Þorgeirs Ástvaldssonar á Rás 2. F.v. Rúnar Júliusson, Ottar Felix, Bubbi Morthens, Bergþór Mortliens og Kjart- an Guðbergsson frá Steinum. Gunnlaugur Briem var fjarverandi. + Alúðarþakkir fyrir vinsemd og hlýhug við andlát og útför MARSELÍU INGIBJARGAR BESSADÓTTUR frá Höskuldsstaðaseli, Breiðdal, Rjúpufelli 46, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Lúðvíks Ólafssonar læknis og starfsstúlkna heimilishjálpar, Margrétar Sigurmannsdóttur og Maríu Kristins- dóttur. Aðstandendur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför systur minnar, mágkonu og frænku okkar, DAGNÝJAR E. AUÐUNS, Ægisiðu 60, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar. Svava E. Mathiesen, Auður Auðuns og systkinabörn hinnar látnu. + Þökkum af alhug öllum, sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför GUÐMUNDAR KRISTJÁNSSONAR, Arnarbæli. Sérstakar þakkir færum við þeim, sem önnuðust hann í þungri sjúkdómslegu, og öllum, er vottuðu honum tryggð og vináttu með því að líta til hans meðan hann gat notið þess. Sigriður Árnadóttir, Elin Guðmundsdóttir, Jósef Skaftason, Krístín Erna Guðmundsdóttir, Guðrún Erna Guðmundsdóttir, Árni Guðmundsson, Kamilla Sigríður og Guðmundur Arnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.