Morgunblaðið - 03.07.1991, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 03.07.1991, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JULI 1991 33 félk f fréttum AFREK Vilja endurvekja Drangeyjarsund rangeyjarsundskapparnir Pétur Eiríksson, Haukur Einarsson frá Miðdal, Eyjólfur Jónsson og Axel Kvaran tóku sig Drangeyjarkempur afhenda Sveini Björnssyni forseta ÍSÍ l.t.v. bikarinn. nýverið til og gáfu ÍSI bikar sem skal vera farandbikar og veittur þeim sem næstir synda Drangeyj- arsund. Svavar Gests útvarps- maður gefur hins vegar skildi sem festir eru á fótstall bikarsins og á þeim er eftirfarandi áletrun: Grettir Ásmundsson 1030, Erling- ur Pálsson 1927, Pétur Eiríksson KR 1936, Haukur Einarsson frá Mlðdal KR 1939, Eyjólfur Jóns- son Þrótti 1957 og 1959, Axel Kvaran KA 1961. Upp á þessu er bryddað í kjölfar- ið á útvarpsþættinum „Sunnu- dagsmorgun“ 20. janúar síðast liðinn er þeir Pétur, Haukur, Ey- jólfur og Áxel voru gestir Svavars og þá kom þetta fram sem til- laga. Fyrir nokkru voru bikarinn og skildirnir afhentir forseta ÍSÍ, Sveini Björnssyni til varðveislu uns einhver syndirtil Drangeyjar. Gefendur vonast til þess að bik- arinn muni glæða áhuga fyrir sjávarsundi og halda á lofti minn- ingum um frækin íþróttaafrek á borð við Drangeyjarsund. Morgunblaðið/Róbert Schmidt Bragi Gunnarsson þjálfari á Bíldudal með nokkrum hressum krökkum á leikjanámskeiði fyrir skömmu. BILDUDALUR Bíldudal. Mikill íþróttaáhugi er hjá börn- um á Bíldudal. Nú stendur yfir knattspyrnu- og frjálsíþrótta- þjál/un, og yngstu börnin fá að spreyta sig á leikjanámskeiði. Þjálfari er Bragi Gunnarsson. íþróttaaðstaða er með eindæmum góð á Bíldudal, en félagar úr Iþróttafélaginu gerðu grasvöll fyr- ir tveimur árum og búið er að fullgera hlaupabrautir í kringum völlinn ásamt langstökksbraut og aðstöðu fyrir kastgreinar. Héraðs- mót Hrafnaflóka er haldið hér í lok júlí og þess á milli eru ýmiss konar íþróttamót í gangi og er óhætt að segja að íþróttaáhugi sé mikill hjá ungu kynslóðinni, þökk sé góðu framtaki félagsmanna íþróttafélagsins við byggingu vall- arins, sem er án efa sá besti á Vestfjörðum. Nokkrir leikir hafa verið háðir í knattspyrnu meistaraflokks. Bílddælingar sigr- uðu Barðstrendinga á heimavelli 6-1, Patreksfirðingar sigruðu Barðstrendinga 11-3 og Bílddæl- ingar sigruðu Tálknfirðinga á Morgunblaðið/Atli Steinarsson Jóhannes Proppé (t.h.) undir Roy’s-pálmanum á Siesta Key-strönd- inni í Sarasota. Með honum eru hjónin Russ og Pat Clough, sem nú eru helstu merkisberar AA-hugsjónarinnar sem þar hefur varðveist í 30 ár. VENJUR AA-pálmatréð í Sarasota Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Mikill íþróttaáhugi hjá ungu kynslóðinni heimavelli 6-1. Fleiri leikir eru eftir og verður greint frá úrslitum síðar. R. Schmidt. Meðal margra pálmattjáa á Si- esta-Key-baðströndinni frægu í Sarasota í Flórída er eitt sem teng- ist AA-fólki um allan heim öðrum pálmatijám frekar — og þá einnig íslensku AA-fólki því oft hefur á AA-fundum á Islandi verið vitnað til þess sem gerist undir þessu tré. Það er einn af helstu talsmönnum AA- hreyfíngarinnar á íslandi, Jóhannes Proppé, sem _ gert hefur þetta tré nafntogað á íslandi. Jóhannes hefur sótt sér hressingu og sólbrúnku ■ til Sarasota á hveiju vori um langt árabil. Morguninn eft- ir að hann nær sínum áfangastað í Sarasota er hann kominn meðal AA-vina sinna frá ýmsum þjóðum, sem safnast saman við tréð á hveij- um morgni árið um kring — ár eftir ár. Fréttaritari greip því tækifærið er Jóhannes var þarna í vor að mæta honum við tréð klukkdn 9 til að sjá og fylgjast með því sem þar gerist. ltammgerður timburstigi liggur af bílastæðinu við Siesta Key-strönd- ina niður á sandinn og í krika við stigann er pálmatréð fræga. Það stendur þarna fremur lágvaxið og að engu leyti sérstætt meðal pálma- tijáa. En undir greinum þess safnast AÁ-félagar saman flesta eða alla daga ársins. Allir sem þekkja þessa strönd vita hvar AA-tréð er; strand- verðir, lögregla og margir aðrir. Þarna er enginn formlegur AA-fund- ur settur — eða slitið og því er trés- ins ekki getið í fundabók AA í Sara- sota. En i 30 ár hafa AA-félagar og þeir, sem eiga eða hafa átt í erfiðleik- um vegna áfengisneyslu, átt þarna athvarf og getað rætt sín vandamál við þjáningarbræður sína, þegið huggun og góð ráð, fundið skilning og hlýju sem hefur verið þeim meira virði en allt annað. Þess vegna er þetta tré svo traustur og mikilsverð- ur áningarstaður í hugum margra. Það var á árinu 1961 sem Roy Morris settist undir þetta tré með nokkrum AA-vinum og varð með því upphafsmaður að venju, sem haldið er uppi enn í dag og haft hefur áhrif á líf óteljandi fólks á ýmsan hátt. Einn af fastagestum við tréð ,líkti því sem þar gerist við „vináttu og tengsl sem skapast við eldhúsborðið — án eldhúsborðs". Eftir öðrum er haft að þarna hljóti þetta enn að vera eins og á frumdögum AA-hreyf- ingarinnar þegar allir þekktu alla og voru samvistum daglega. Fastagestir mæta þarna um kl. 8.30 og halda hópinn fram undir hádegið. Sumir fara í göngutúra, aðrir fá'sér sundsprett og enn aðrir liggja í sólbaði. Ef einhver þarfnast vinar til að tala við um vandamál sín eða erfiðleika þá er auðvelt að finna góðan viðmælanda, ráðgjafa eða hlu- standa. Sé fólk að leita að skemmti- legum samræðum og fijálsu hjali um . allt milli himins og jarðar þá eru þær til staðar. Félagsskapurinn er ftjáls og óþvingaður. Enginn veit hversu margt AA-fólk hefur komið saman undir þessu pál- matré, því allt fram í nóvember 1984 fór aldrei fram talning á fólki þar. En þá fór einn fastagesta að skrá fjöldann í minnisbók. Frá þeim tíma hefur komið þangað AA-fólk frá 34 ríkjum Bandaríkjanna og tíu öðrum löndum. Á 20 ára afmæli samsetu við þetta pálmatré á árinu 1981 var tekinn upp sá siður að afhenda gest- um lítinn áritaðan plastskjöld til minningar um komuna að trénu. Frá því í nóvember 1984 fram í desemb- er 1985 var 316 nýjum gestum af-" hent þetta „minnismerki" um kom- una. Það sem af er árinu 1991 hafa samtals yfir 4.000 minnisskildir verið afhentir nýjum gestum og fjöldi þeirra kemur aftur og aftur að trénu. Jóhannes Proppé er einn í þeim hópi, dvelur í námunda við tréð í 4-6 vikur á ári — en verður án efa hugsað til þess og vina sinna þar alla aðra daga ársins. VINSJELUSTU SUMARSKÓRNIRIEVR0PU Höföar til .fólks í öllum starfsgreinum! NU AISLANDI! ÓDÝRIRVERÐ ADEINS: 1.995 kr.- STÆRÐIR: 35 ■ 45 / MARGIR LITIR Skóverslunin Laugavegi74 Sími 17345^^ JCo-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.