Morgunblaðið - 03.07.1991, Síða 38

Morgunblaðið - 03.07.1991, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1991 HANDKNATTLEIKUR / 2. DEILD Gunnar Einarsson tekur við ÍR-ingum GUNNAR Einarsson, þjálfari U-21 árs landsliðs karla í handknattleik og fyrrum þjálf- ari Stjörnunnar, hefur verið ráðinn þjálfari 2. deildar liðs ÍRfyrir næsta keppnistímabil og var hann með fyrstu æf- inguna í gærkvöldi. Hann tek- ur við af Guðmundi Þórðar- syni, sem er genginn til liðs við Stjörnuna. Gunnar hættir með U-21 árs landsliðið að loknu heims- meistaramótinu í haust og sagði hann að þar sem ekkert væri framundan hjá liðinu eftir það væri ekki óeðlilegt að hann færi út í að þjálfa félagslið á ný. Hann hefði hins vegar hafnað þremur þjálfaratilboðum frá liðum í 1. deild, því hann hefði ekki nauð- synlegan tíma, en álagið væri minna í 2. deild og því hefði ÍR verið ágætur kostur í stöðunni. Hallgrímur Jónasson, mark- vörður, sem ætlaði í Val, er hætt- ur við að skipta og verðurÍR með sama lið og á síðasta tímabili nema hvað Guðmundur Þórðarson er farinn. Gunnar sagði að þetta væri góður mannskapur til að ljúka við dæmið í 2. deild, en ljóst væri að ef liðið færi upp á ný þyrfti að styrkja það. TENNIS / WIMBLEDONMOTIÐ Stefan Edberg átti ekki í erfiðleikum með John McEnroe. Reuter McEnroe tóksl ekkiaðstöðva Stefan Edberg STEFAN Edberg átti ekki í erfiðleikum með að komast íátta manna úrslit í einliðaleik karla á Wimbledonmótinu í tennis. Svfinn vann Bandaríkjamanninn John McEnroe 7-6 (7-4), 6-1 og 6-4 í gær og hefur Edberg, sem á titl að verja, ekki enn tapað lotu íkeppninni. Báðir léku undir getu, en McEnroe sætti sig við ósigur- inn. „Hann hafði mikla yfirburði og ég átti aldrei möguleika. Það er erfitt að stöðva hann og hæfileik- arnir koma berlega í ljós, þegar hann er yfir.“ Edberg sagði að McEnroe væri góður spilari, en langt frá því sem hann hefði verið og ætti ekki mögu- leika á að ógna þeim bestu. „Hann var á toppnum 1983 eða 1984, en nú er stöðugleikinn ekki sá sami go eins er hraðinn minni.“ Jim Courier hélt áfram á sigur- braut og vann Novacek frá Tékkó- slóvakíu 6-3, 6-4 og 6-2. Banda- ríkjamaðurinn, sem sigraði óvænt á Opna franska meistaramótinu, sagði að árangurinn kæmi sér á óvari.. „Ég er eins og Lendl á grasi — finn mig ekki, en næ mér stund- um á strik." Courier, sem er 20 ára, hefur leikið á velli 14 og því ekki verið í sviðsljósinu. „Mér er alveg sama. Ég leik á þeim velii, sem ég er sett- ur á. Hins vegar væri gaman að geta sagt barnabörnunum frá því að ég hefði leikið á aðalvellinum,“ sagði Bandaríkjamaðurinn, sem mætir Þjóðverjanum Michael Stich í næstu umferð. David Wheaton, sem vakti at- hygli fyrir að sigra Ivan Lendl, hélt áfram á sömu braut og vann Svíann Jan Gunnarsson 6-4, 6-3 og 6-1 í gær. Enn frestað Rigningin hefur leikið mótshald- ara grátt og um miðjan dag í gær eftir að stanslaust hafði rignt í þijá tíma, var frekari keppni frestað þar til í dag. Þar með hefur veðrið sett strik í reikninginn á átta dögum af níu. ÍHémR FOLX ■ GUÐRÚN Júlíusdóttir sigraði í einliðaleik a Eyjaleikunum sem fram fóru á Álandseyjum um helg- ina. Guðrún og Áslaug Jónsdóttir urðu í þriðja sæti í tvíliðaleik. ■ NORRKÖPING og Öster léku til úrslita í bikarkeppninni í Svíþjóð á fimmtudaginn. Lauk leiknum með 4-1 sigri Norrköping. Mánaðarhlé er nú í deildarkeppninni í Svíþjóð. ■ Hacken, lið Gunnars Gíslason- ar, er heldur að hressast eftir slæma byrjun í sænsku 1. deild- inni. Liðið er nú í 2.-3. sæti deildar- innar en virðist ekki eiga mikla möguleika á að komast upp í Alsvenskan. ■ MIKE Tyson sigraði Donovan „Razor“ Ruddock á stigum í þungavigt í hnefaleikum í Las Veg- as um helgina. Þeir mættust einnig í s.l. vor, en þá stöðvaði dómarinn leikinn. Ruddocks mótmælti kröft- uglega og heimtaði að þeir mættust aftur. Tyson er nú efstur á blaði áskorenda í þungavigt og mun væntalega mæta heimsmeistaran- um Evander Holyfield í haust. ■ JEAN-Philippe Durand, mið- vallarleikmaður Bordeaux í Frakklandi, hefur gengið til liðs við Marseille. Hann skrifaði undir tveggja ára samning. ■ ROBERTO Prosinecki, sem skrifaði undir fimm ára samning við Real Madrid í síðustu viku, fær ekki að leika með félaginu að sögn jugóslavneska knattspyrnusam- bandsins, sem sendi telex þess efn- is til Real Madrid í gær. Pros- inecki, sem er 22 ára, fær ekki að leika með erlendu liði fyrr en hann er orðinn 25 ára eins og segir í reglum júgóslavneska sambands- ins. Reiknað er með að Real Madrid fari fram á það við spænska knatt- spyrnusmabandið að það beiti sér í þessu máli hjá FIFÁ. í kvöld Knattspyrna kl. 20 3. deild: Neskaupstaðarvöllur Þróttur - KS Kópavogsvöllur ÍK - Skallagrímur ísaQarðarvöllur BÍ - Reynir Á. Dalvíkurvöllur Dalvík - Leiftur Húsavíkurvöllur Völsungur - Magni 4. deild: Laugalansvöllur UMDE b - Kormákur Laugavöllur HSÞ b - Neisti Blöndósvöllur Hvöt - SM EskiQarðarvöllur Austri - Sindri Fáskrúðsfjarðarv. Leiknir - Einheiji ReyðarQarðarv. Valur - Höttur Seyðisfjarðarv. Huginn - KSH KNATTSPYRNA Stúlknalandsliðið: Annað tap I slenska stúlknalandsliðið í knatt- ■ spyrnu tapaði í gærkvöldi sínum öðrum leik á Norðurlandamóti stúlkna sem fram fer í Finnlandi. íslensku stúlkurnar töpuðu 5:0 fyrir Hollandi í gærkvöldi. 1 dag leikur liðið við Danmörku, en Danir ^er hátt skrifaðir í kvennaknatt- spyrnu. Leiðrétting Úrslit í leik FH og KA í íslands- mótinu í knattspyrnu misrituðust í stöðutöflunni, sem birtist í gær. Hið rétta er að KA vann 2:0 og er beðist velvirðingar á mistökunum, en rétt staða í 1. deild karla er eftir- farandi: Fj. leikja U J T Mörk Stig KR 7 4 3 0 14: 3 15 BREIÐABLIK 7 4 2 1 13: 8 14 FRAM 7 4 1 2 11: 8 13 ÍBV 7 4 1 2 12: 10 13 VALUR 7 4 0 3 9: 7 12 KA 7 3 1 3 8: 8 10 VÍKINGUR 7 3 0 4 12: 15 9 FH 7 1 2 4 6: 10 5 STJARNAN 7 1 2 4 6: 12 5 VÍÐIR 7 0 2 5 5: 15 2 KNATTSPYRNA_______ Tapie býður 1,2 milljarða í Skuhravy BERNARD Tapie, forseti franska liðsins Marseille, hefur boðið 19,4 milljónir dollara eða um 1,2 milljarða ÍSK ítékkneska leik- manninn Tomas Skuhravy sem ieikur með Genoa á Ítalíu. Þetta er hæsta verð sem nokkru sinni hefur verið boðið í leikmann. Juventus keypti Roberto Baggio á síðasta ári frá Fiorentina fyrir 13 milljónir dollara og var það metupphæð. Skuhravy var keyptur til Genoa á Ítalíu frá Sparta Prag eftir frammistöðu hans í heimsmeistar- keppninni á Ítalíu í fyrra. Þá gerði hann þrjú mörk fyrir Tékkóslóvakíu gegn Kosta Ríka og tvö gegn Bandaríkjunum og var næst marka- hæstur — Schillaci gerði sex mörk fyrir Italíu. „Framkvæmdastjóri Genoa talaði við mig og sagðist vera með mjög svo girnilegt tilboð," sagði Sku- hravy. „Samningur minn við Genoa átti að endurskoðast í þessari viku og það er kannski þess vegna sem þeitp liggur svona á að ég skrifi undir. Ég er með góðan samning við Genoa, en á hinn bóginn er áhugi Tapie og Olympique Marseille að sjálfsögðu mjög spennandi,“ bætti miðheijinn marksækni við, sem náði ekki að skora í leikjunum gegn fslandi í undankeppni Evrópu- mótsins, sem nú stendur yfir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.