Morgunblaðið - 14.08.1991, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. AGUST 1991
13
Efling sveitarfélag-
anna - árangursrík-
asta byggðastefnan
eftir Jónas Egilsson
Á sama hátt og reynt er að
tryggja sjálfstæði í landinu verður
að tryggja sjálfstæði sveitarfélaga á
landinu, með fjárhagslegu sjálf-
stæði. Þannig verður lagður grunnur
að varanlegri byggðastefnu, byggð-
astefnu byggðri á sjálfstæði heima-
manna, en ekki með ríkisstyrkjum.
Ef á hinn bóginn ríkisvaldið
(þ.m.t. embættismannakerfið) heid-
ur áfram að safna valdi og fjármun-
um alls staðar af landinu á einn stað,
mun brátt frekar lítið fara fyrir sjálf-
stæði og frumkvæði heimamanna.
Allar leiðir munu þá liggja til
Reykjavíkur í leit að ákvörðunum á
sama hátt og leita varð til Kaup-
mannahafnar áður fyrr.
Það er mat undirritaðs að rétt sé
að færa aukin verkefni til sveitarfé-
laga frá ríkisvaldinu. Tilfærsla opin-
berra verkefna, frá ríkisvaldihu til
sveitarfélaga, leiðir til aukinnar
valddreifingar, eflingar sveitarfé-
laga og aukinnar ábyrgðar heima-
manna. Slík valddreifing er grund-
völlur að árangri í byggðamálum.
Breytingar þær sem gerðar voru
á lögum um verkefni og tekjustofna
sveitarfélaga og tóku gildi um ára-
mótin 1989-90 voru skref í rétta
átt. Með þessum breytingum var
reynt að sameina íjárhagslega
ábyrgð, ábyrgð á rekstri og á fram-
kvæmdum, þannig að sá bæri ábyrgð
á framkvæmdum sem tæki ákvarð-
anir um þær. Oft á tíðum ákvað rík-
isvaldið að sveitarfélögin skyldu sjá
um hina og þessa þjónustuþætti
og/eða framkvæmdir, án þess að þau
hefðu moguleika á að verða sér út
um tekjur á móti.
Hlutverk ríkisvaldsins á ekki að
vera að úthluta einstökum verkefn-
um út í héruðin, heldur að móta al-
menna stefnu. Það getur varla tal-
ist, svo dæmi sé tekið, í verkahring
þingmanna okkar, að ákveða hvaða
vegspotti skuli lagður bundnu slit-
lagi og hvaða vegkaflar skuli bíða.
Hlutverk ríkisvaldsins, og þ.m.t.
þingmanna, er að semja almennar
reglur og sjá til þess að farið sé
eftir þeim. Hlutverk ríkisvaldsins er
fyrst og fremst eftirlitsskylda með
framkvæmdum. Heimamenn eiga að
taka ákvarðanir um mál eins og það
sem nefnt er hér að ofan.
Oft á tíðum gætir óþolinmæði hjá
ráðamönnum gagnvart sveitarfé-
lögum. Ríkisvaldið treystir orðið
sjálfu sér einfaldlega best til
þess að sinna mörgum mál-
efnum sem sveitarfélögin
gætu sinnt og það líklega
réttilega, enda búið að
svipta heimamenn öllu
frumkvæði. Það er búið
að koma þeim upp á að
sækja allt í þingmenn,
ráðherra og embættis-
menn „suður“.
Dreifing á valdi —
ekki vanda
Viðleitni yfirvalda, m.a.
síðasta kjörtímabili, til þess
færa útibú einstakra stofnana út á
land, er ekki leið til árangurs. Árang-
urinn af því er eingöngu dreifing á
vandamálum, þ.e. bákninu en ekki
raunverulegu valdi og áhrifum.
Lagt er til hér að aukin verkefni'
verði færð til sveitarfélaga sem al-
mennt eru betur komin í höndum
heimamanna vegna þekkingar þeirra
á staðháttum, s.s. á sviði iöggæslu,
mennta-, félags-, trygginga- og heil-
brigðismála. Jafnframt verða sveit-
arfélögin að fá tekjustofna á móti
auknum framkvæmdum. Á síðasta
ári fóru alls um 60 milljarðar til
félagsmála hjá ríkisvaldinu. Stórum
hluta þessarar þjónustu, sem ríkis-
valdið veitir, geta sveitarfélögin (og
reyndar eiga) fullt eins sinnt.
Með auknum verkefnum er nauð-
synlegt að samstarf sveitarfélága
aukist, t.d. með stofnun byggðar-
samlaga eða héraðsnefnda. Ibúar
ættu sjálfir að taka ákvörðun um
sameiningu sveitarfélaga, en ekki
vera skikkaðir til þess af hálfu ríkis-
valdsins. Stækkun og þar af leiðandi
efling sveitarfélaga er nauðsynlegur
þáttur í framtíðaruppbyggingu
byggðarlaga, sérstaklega í hinum
dreifðu byggðum úti á landi. Ríkis-
valdið getur gert að skilyrði að sveit-
arfélögin sameinist um ýmsa þjón-
ustu, en ekki að þau sameinist.
Nauðsynlegt er fyrir sveitarfélögin
að vera fjárhagslega sjálfstæð og
óháð ríkisvaldinu og að þeim verði
ekki falin með lögum eða regiugerð-
um verkefni án þess að tekjustofnar
frá ríkisvaldinu komi á móti.
Með aukni valdi og áhrifum sveit-
arstjórna færist valdið ekki aðeins
frá ríkisvaldinu, heldur einnig nær
fólkinu sjálfu, því talsvert stjdtra
er á bæjarskrifstofurnar en í stjóm-
arráðið.
Raunveruleg byggðastefna
Ríkisvaldið tekur til sín u.þ.b.
fimm sinnum meira af sköttum en
öll sveitarfélög á landinu til samans.
Á síðasta ári tók ríkisvaldið til sín
um 92 milljarða af sameiginlegum
tekjum hins opinbera, eða um 80%,
en sveitarfélögin samtals um 22
milljarða, eða um 20% (sjá meðfylgj-
andi mynd). Raunveruleg og varan-
leg byggðastefna felst í því að færa
aukinn hluta af þessum tekjum, og
þar af leiðandi verkefni til sveitarfé-
laganna, frá ríkisvaldinu.
Aukið fjárhagslegt sjálfstæði
sveitarfélaga gefur þeim einnig
möguleika á að gefa kost á aukinni
þjónustu við fyr-
irtæki, en
Hlutfallsleg skipting tekna ríkis-
sjóðs og sveitarfélaganna 1990
Jónas Egilsson
„Árangursríkasta
dæmi um varanlega
uppbyggingu á lands-
byggðinni er flutningur
Sláturfélags Suður-
lands á Hvolsvöll. Þar
skapast um 150 ný og
varanleg atvinnutæki-
færi og það án ríkis-
styrkja.“
nýsköpun atvinnutækifæra og fjöl-
breyttara atvinnulíf eru frumfor-
sendur fyrir því að byggð dafni í
landinu. Árangursríkasta dæmi um
varanlega uppbyggingu á lands-
byggðinni er flutningur Sláturfélags
Suðurlands á Hvolsvöll. Þar skapast
um 150 ný og varanleg atvinnutæki-
færi og það án ríkisstyrkja. Ekki er
hér verið að hvetja fyrirtæki til þess
að flytja sig um set, heldur er bent
á þetta dæmi til þess að sýna fram á
í hveiju raunveruleg uppbygging á
landsbyggðinni felst.
Nýsköpun forsenda
framtí ðarbyggðar
Nú eru um níu þúsund íslendingar
við framhaldsnám, bæði hérlendis
og erlendis. Þessi hópur útskrifast á
næstu þremur til fjórum árum. Þetta
fólk fær ekki allt vinnu við fisk-
vinnslu og landbúnað, þó svo það
fegið vildi. Nýsköpun atvinnutæki-
færa verður að koma til. Gefa verð-
ur einkageiranum aukin tækifæri til
þess að spjara sig sjálfur. Með þeim
hætti verður ekki farið út í óraun-
hæfar framkvæmdir á „gæluverk-
efnum“ stjórnmálamanna s.s. fisk-
eldi, loðdýrarækt o.s.frv. sem síðan
enda með gjaldþroti eða skuldbreyt-
ingu með ríkisábyrgð.
Landið verður að vera byggt af
fólkinu, fyrir fólkið og fólksins
vegna, ekki fyrir embættis- eða
stjórnmálamenn.
Höfundur er formaður
undirbúningsnefndar fyrir
SUS-þing um byggða-,
sveitarsljórnar og samgöngumál.
Odýr reyrhúsgögn
Smiðjuvegi 6, Kópavogi,
sími 44544.
Blaðió sem þú vaknar vió!
SIEMENS
Þvottavél eins og þcer
gerast bestar!
WM 42
Áfangaþeytivinding, 1200 sn./mfn.,
fjölmörg þvottakerfi, sjálfvirk magn-
skynjun, nýtir vel vatn og þvottaefni.
SMfTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300