Morgunblaðið - 14.08.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.08.1991, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991 ATVINNU AUGL YSINGAR Sendill óskast Heilsuhraustur, sporléttur unglingur óskast allan daginn íveturá bókhald Morgunblaðsins. Upplýsingar ekki í síma. Álftanes Blaðbera vantar á Álftanes. Upplýsingar í síma 652880. P®isnr0íiittlbWíil» „Au pair“ - London Barngóð og áreiðanleg stúlka óskast á íslenskt heimili í London til að gæta fjögurra ára barns frá og og með 1. sept. Lágmarks- aldur umsækjenda er 18 ár. Má ekki reykja. Upplýsingar í síma 91-11619. Baðvarsla Laus er til umsóknar 70% staða baðvarðar við íþróttahús Lækjarskóla í Hafnarfirði. Staðan veitist frá og með 1. september nk. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf berist skólaskrifstofu Hafnarfjarðar Strandgötu 4, eigi síðar en 20. ágúst nk. Nánari upplýsingar um starfið fást á sama stað í síma 53444. ST.JÓSEFSSPfTAUSa HAFNARFIRÐI Hjúkrunarfræðingar athugið Lausar stöður Staða deildarstjóra við svæfingadeild spítalans er laus til umsóknar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 1991 eða eftir nánara samkomulagi. Mögu- leiki er á að tveir samhentir svæfingahjúkr- unarfræðingar geti sameinast um stöðuna. Boðið er uppá fjölbreytt starf hvað varðar uppbyggingu deildarinnar og starfsemi, nýjar svæfingavélar og góðan tækjabúnað. Staða hjúkrunarfræðings við skurðdeild spítalans. Um er að ræða fullt starf, en hluta- starf kemur til greina. Starfið er fjölbreytt og mikil breidd í tegund aðgerða. Boðið er uppá góða aðlögun og starfsaðstöðu. Skráning hjúkrunar „Perioperative" er til staðar. Sérmenntun áskilin. Staða hjúkrunarfræðings við lyflækninga- deild spítalans. Um er að ræða fullt starf, en hlutastarf kemur til greina. Deildin er 28 sjúkrarúm, starfsemi deildarinnar er fjöl- breytt, auk þess að vera með bráðamóttöku fyrir Hafnarfjörð og nágrenni. Endurbætur hafa verið gerðar á deildinni í tækjaútbúnaði og bættri starfsaðstöðu. Þró- un í hjúkrun er góð hvað varðar fræðslu til sjúklinga og skráningu hjúkrunar. Boðið er uppá góða aðlögun. Nánari upplýsingar um störfin veitir hjúkrun- arforstjóri, Gunnhildur Sigurðardóttir, í síma 54325 eða 50966. Hefilstjórar og gröfumenn Hagvirki - Klettur hf. óskar eftir að ráða nú þegar, í u.þ.b. 2 mánuði, vana menn á veg- hefil og beltagröfur. Vinnusvæði: Suðurfjöru- tangi, Hornafirði. Vaktavinna. Upplýsingar í síma 53999. § § HAGVIRKI Í1 KLETTUR Þvottahús ígamla miðbænum Okkur vantar starfskraft frá kl. 8-16.30 við afgreiðslu, flokkun og frágang. Þarf að geta unnið sjálfstætt. Einnig vantar fólk í fleiri störf. Vinnutími eftir samkomulagi. Góð laun fyrir gott fólk. Upplýsingar í síma 25847 og á staðnum. Þvottahús A. Smith hf., Bergstaðastræti 52. „Au pair“ - Þýskalandi „Au pair“ óskast til að gæta þriggja drengja, 8, 7 og 5 ára, í eitt ár eða lengur. Við erum staðsett í fallegum bæ við ána Rín, ca 60 km frá Frankfurt. Upplýsingar í síma 656388 (Kristján). Blönduós Leikskólastjóri Laus er til umsóknar staða leikskólastjóra við Barnabæ, Blönduósi. Um er að ræða fjöl- breytt, vel launað starf. Húsnæði fylgir. Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskóla- stjóri í síma 95-24530. Bæjarstjóri. Frá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkurumdæmis Kennarar óskast að grunnskóium Reykjavík- ur í handmennt, myndmennt, íþróttir og sér- kennslu. Einnig vantar sérkennara að nýstofnuðum dagdeildum við Melaskóla og Ölduselsskóla. Fræðslustjórirm íReykjavík Fóstrur - Kirkjuból Fóstrur eða starfsfólk með aðra uppeldis- menntun vantar á leikskólann Kirkjuból 1. september. Á leikskólanum verða nú 3 starfsmenn á deild. Góð vinnuaðstaða og góður starfsandi. Kynnið ykkur málið. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 656322. Vélstjóri - vélvirki - verkamenn Ós húseiningar hf. óska eftir að ráða í eftirfar- andi störf: 1. Vélstjóra/vélvirkja til viðhaldsstarfa. 2. Verkamenn í holplötuverksmiðju. 3. Verkamenn í röraverksmiðju. í boði er góð aðstaða starfsmanna og góð laun fyrir hæfa starfsmenn. Frekari upplýsingar eru veittar næstu daga í síma 651444 milli kl. 10.00 og 12.00 eða á staðnum í Suðurhrauni 2, Garðabæ. ST. JÓSEFSSPÍTALI LANDAKOTI Hafnarbúðir Hjúkrunardeild aldraðra í Hafnarbúðum vantar nú hjúkrunarfræðinga til starfa á næturvöktum. Lítill heimilislegur vinnustaður, þarsem góðurstarfsandi ríkir. Upplýsingar veitir Theodóra Reynisdóttir, hjúkrunarstjóri, í síma 14182. Lagermenn óskast Duglega lagermenn vantar strax í vörumót- töku. Framtíðarvinna. Upplýsingar í síma 678522 í dag, miðviku- dag, kl. 08.00-10.30. Thoro múrhúðun Múrarar - iðnverkamenn Okkur vantar nú þegar múrara eða menn, vana múrvinnu. Mikil vinna. Nánari upplýsingargefurÁsgeir Valdimarsson. ■■ Sl steinprýði Stangarhyl 7, simi: 672777. Augnlækningastofa Aðstoð óskast í fullt starf. Fjölbreytt vinna fyrirþann, sem erviljugurað læra nýja hluti. Skriflegar umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. sem fyrst merktar: „Augnlækninga- stofa - 24“. Skrifstofustarf Óskum að ráða sem fyrst lipran starfskraft til almennra skrifstofustarfa. Einhver kunn- átta á tölvu er nauðsynleg. Starfssvið: Toll- skýrslur, verðreikningar, bókhald o.fl. Upplýsingar um fyrri störf sendist auglýs- ingadeild Mbl. fyrir 17/8, merktar: „Talnaglögg - 3982“. mmnttmmmmmmamanmmmmmmtimmstmfímmmtmmmmmNHHtmmmmmmimmnBmmBtB irsrr.r mm&mm ■rris* v #*»•••«.'» rritftr r« r ».'r* m *• t-m 9 *. isjriurrjr wmm i'-m.rrrrrf *• »-*• mw

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.