Morgunblaðið - 14.08.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.08.1991, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991 „Grænu fjölskyldurnar" fengu sérstaka viðurkenningu frá umhverfisráði Kópa- vogs fyrir athyglisvert framtak í umhverfismálum bæjarins. Fjölbýlishúsin að HlíðarhjaUa 62-66 og 74-76 fengu viðurkenningu fyrir vandaða hönnun og frágang lóða. Kópavogur: Viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi Jóhanna Hauksdóttir og Eiríkur Viggósson í garðinum að Fögru- brekku 43. Ólafía K. Gísladóttir og Atli Már Árnason að Borgarholtsbraut 42. VIÐURKENNINGAR fyrir snyrtilegt umhverfi íbúðarhúsa í Kópavogi árið 1991 hafa verið afhentar. Einnig var „Grænum fjölskyldum" í Kópavogi veitt sérstök viðurkenning fyrir at- hyglisvert framtak í umhverfis- málum í Kópavogi. Fimm viðurkenningar voru veit- ar fyrir gott og snyrtilegt um- hverfi íbúðarhúsa. Haukur Hannes- son frá Kiwanisklúbbnum Eldey afhenti Jóhönnu Hauksdóttur og Eiríki Viggóssyni viðurkenningu fyrir garðinn að Fögrubrekku 43. Oddur Helgason frá Lionsklúbbi Kópavogs afhenti Hörpu Guð- mundsdóttur og Ragnari Sigur- jónssyni viðurkenningu fyrir garð- inn að Neðstutröð 4. Angantýr Vilhjálmsson frá Lionsklúbbinum Munin afhenti Ólafíu K. Gísladóttur og Atla Má Árnasyni viðurkenn- ingu fyrir garðinn að Borgarholts- braut 42. Kristján Ingimundarson frá Rotaryklúbbi Kópavogs afhenti Jóhönnu Stefánsdóttur og Guð- mundi Karlssyni viðurkenningu fyrir garðinn að Melgerði 9. Hauk- ur Ingibergsson afhenti viðurkenn- ingu frá umhverfisráði Kópavogs fyrir vandaða hönnun og frágang lóða við fjölbýlishús. Byggung hlaut þessa viðurkenningu fyrir fjölbýlishúsin Hlíðarhjalla 62-66 og 74-76. Það var Bragi Michaelsson, framkvæmdarstjóri, er tók við við- urkenningunni ásamt 4 fullrúum íbúa húsanna, þeim Önnu Höllu Emilsdóttur, Þorbjörgu Alberts- dóttur, Sólveigu Valgeirsdóttur og Ágústi Guðjónssyni. Að lokum af- henti Einar E. Sæmundsen, garð- yrkjustjóri Kópavogs, fulltrúum frá hinum átta „Grænu fjölskyldum" sérstaka viðurkenningu frá um- hverfisráði Kópavogs. Þau sem mætu fyrir hönd „Grænu fjöl- skyldnanna" voru: Ingibjörg Elías- dóttir, Árni Sigurðsson, Jóna Björk Jónsdóttir, Ingvi Þór Loftsson, Ólöf Guðmundsdóttir, Fjóla Finnsdóttir og Linda Björk Hlynsdóttir. Morganblaðið/Ámi Sæberg Harpa Guðmunsdóttir, íris Lilja Ragnarsdóttir og Ragnar Sigur- jónsson í garðinum að Neðstutröð 4. Jóhanna Stefánsdóttir og Guðmundur Karlsson að Melgerði 9. Hjartavænar pizzur eftirHeimiL. Fjeldsted Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta banameinið og heilsu- spillirinn meðal eldra fólks í heimin- um í dag og ýmislegt bendir til að aldurinn lækki sífellt hjá þeim sem þessi vágestur nær til. Hvernig verður brugðist við þessu heilbrigðisvandamáli frekar en þegar hefur verið gert sem hefur kostað þjóðina slíkar fúlgur fjár að með öjlu er ógerlegt að gera sér grein fyrir og á eftir að kosta. Talið er að áhættuþættimir séu einkum sjö eftirfarandi: 1. Reykingar. 2. Hár blóðþrýstingur. 3. Mikil blóðfita (kólesteról.) 4. Offita. 5. Þjálfunarleysi. 6. Sykursýki. 7. Erfðir. Að grípa til aðgerða gagnvart flestum þessara þátta er einfalt mál svo sem: Hætta reykingum, fá lyf við of háum blóðþrýstingi, breyta fæð- unni, fara í megrun og hreyfa sig. Að breyta fæðunni er kannski hægara sagt en gert en vissir þætt- ir í okkar daglegu fæðu eru æða- kerfínu hættulegir og ætti að va- rast þá fram í rauðan dauðann. Á ég þar einkum við dýrafítuna, en það er sú fíta sem harðnar við stofu- hita eins og flestum er kunnugt. Undirritaður hefur átt við of háa blóðfitu að stríða um margra ára skeið og engan veginn verið nægj- anlega vel á verði gagnvart fæð- unni og öðrum þeim þáttum sem áhrif hafa á æðakölkun og fylgi- kvilla hennar enda fengið rækilega „Einnig vil ég skora á Baulu að selja ostlíkið í venjulegura matvöru- verslunum svo við get- um notað það við venju- lega matargerð.“ áminningu. Áminningu sem að vísu er holl því að loksins opnast augu manns fyrir gildi þess að fara vel með sig og láta ekki allt ofaní sig þó niðurgreitt sé. í okkar nútímaþjóðfélagi fer fólk í æ ríkari mæli á matsölustaði þar sem boðið er upp á rétti sem bæði mikið og lítið er lagt í til að þjóna smekk og fjárhag sem flestra. Einn af mínum veikleikum var að fá mér pizzu, annaðhvort á veitingastað eða í næstu búð og taka með mér Heimir L. Fjeldsted heim. Þennan sið hef ég lagt af vegna þess að hefðbundinn ostur hentar mér ekki lengur vegna of hárrar blóðfitu. Ég er sannfærður um að svo er farið með fjölda manna og er ég í reynd undrandi á að pizzu- veitingastaðir og framleiðendur skuli ekki bjóða upp á ostlíkið frá Baulu sem kom á markaðinn sl. vetur. En þar er á ferðinni venjuleg- ur mozzarella-ostur nema hvað dýr- afitunni er skipt út fyrir jurtafítu sem ekki sest inn á æðar okkar. í raun getur það ekki verið ein- faldara fyrir pizzustaðina að spyrja viðskiptavininn hvora ostategund- ina hann vilji, þá hjartavænu eða hina. Einnig vil ég skora á Baulu að selja ostlíkið í venjulegum matvöru- verslunum svo við getum notað það við venjulega matargerð svo sem gratíneringu og fleira. Fyrrverandi landbúnaðarráð- herra gerði almenningi mikið ógagn með fávisku sinni þegar hann út- hrópaði ostlíkið sem eitthvert drasl. Vonandi veit núverandi landbúnað- arráðherra lengra nefí sínu í þessum málum. Höfundur er nyólkurfræðingur og félagi í Landssamtökum hjartasjúklinga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.