Morgunblaðið - 14.08.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.08.1991, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991 Óróasamt í S-Afríku á síðustu dögum: Um 20 manns féllu í átökum blökkumanna Jóhannesarborg. Reuter. SEX menn féllu í fyrrinótt í sjálfstjórnarhéruðum blökkumanna í Suður-Afríku í átökum á milli blökkumannahreyfinga. Fjórtán menn féllu í átökum um helgina, en ofbeldið hefur nú sjatnað. Alls hafa 1.281 menn fallið í átökum blökkumanna á fyrstu sjö mánuðum þessa árs. Um helgina féllu tíu menn í sjálf- stjórnarhéraðinu Alexöndru í átök- um á milli liðsmanna Inkatha-frels- isflokks Zúlúmanna og Afríska þjóðarráðsins (ANC). Að sögn vitna gengu félagar í Inkatha um vopnað- ir öxum, hvössum eggjárnum og kylfum og réðust á fólk af handa- hófi. Auk hinna tíu sem létust særð- ust 41. Pjórir aðrir létust í átökum annars staðar. í gær fundust illa útleikin lík fjögurra blökkumanna í Alexandra- ■ DHAKA - Hossain Mo- hammad Ershad, fyrrverandi for- seti Bangladesh, hefur hótað að fremja sjálfsmorð ef ættingjar og vinir fá ekki að heimsækja hann í fangelsi. Opinbera fréttastofan BSS sagði að Ershad hefði látið þau orð falla við sérstaka yfirheyrslu fyrir rétti á sunnudag að á endanum myndi hann neyðast til að fremja sjálfsmorð. Hann fengi ekki að tala við nokkurn mann, ekki einu sinni lögfræðing sinn, og hann fengi að- eins eitt dagblað. Saksóknari segir að fangelsisyfirvöld hafí takmarkað réttindi Ershads eftir að hann reyndi að smygla bréfum með lög- fræðingi sínum, látið færa sér pen- inga inn í fangelsið á ólöglegan hátt og jafnvel reynt að ná fjármun- um úr banka. ■ WASHJNGTON - Nærri tvöfalt fleiri bandarískir hermenn féllu fyr- ir skotum frá samheijum í Persa- flóastríðinu en áður var talið. Sjó/i- varpsstöðvamar NBC og CBS greindu frá þessu á dögunum. í fréttum þeirra sagði að rannsókn á vegum bandaríska hersins hefði leitt í Ijós að bandarískir hermenn hefðu fellt 20 félaga sína af þeim 148 sem létu lífið í stríðinu í stað 11 eins og áður var talið. Af 458 særðum hermönnum var talið að 15 hefðu særst vegna skota frá öðrum bandarískum hermönnum en þeir reyndust vera fjórum sinnum fleiri eða 60. héraðinu og höfðu mennirnir verið höggnir og stungnir. Tveir létust einnig í átökum í héraðinu Naibini. Lögreglan í Suður-Afríku segir að á fyrstu sjö mánuðum þessa árs séu skráðar óeirðir 5.307 og að í þeim hafi 1.281 menn fallið. A sama tímabili í fyrra voru 10.056 óreirðir skráðar og dauðsföllin voru 980. Óeirðir í Suður-Afríku hafa kostað 10.000 manns lífið undanfarin fimm ár. Á föstudag féllu þrír nýnasistar í átökum við lögreglu og hafa stjórnvöld sagst munu taka hart á því máli og að nýnasistarnir eigi málsókn yfir höfði sér. Reuter Sandpokaburður fyrir sérsveitirnar Ungir ísraelskir hermenn bera hér 150 kílóa þunga sandpoka á börum. Er þetta liður í prófí sem allir þeir hermenn verða að ganga í gegnum sem vilja komast í fallhlífasérsveitir ísraelska hersins. Af svipbrigð- um mannanna að dæma er það ekki auðleikið að verða valinn í þann hóp. Formaður norska Hægriflokksins: Brundtland hefur gert grund- vallannistök í Evrópumálunum Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. EFTIR alla samstöðuna á fundi forsætisráðherra Norðurlanda í Reyíyavík biðu Gro Harlem Brundtland pólitísk skammaryrði þegar hún sneri heim á ný. Kaci Kullmann Five, formaður Hægriflokks- ins, gagnrýndi forsætisráðherrann harðlega í gær fyrir hvernig hún hefði haldið á Evrópumálunum. „Norðmenn hljóta nú að hafa lært að það getur farið illa ef menn treysta blint á mat Gro Harlem Brundtland á þróuninnni í Evrópu og að sambönd hennar og frum- kvæði nægi til þess að Evrópa dansi eftir pípu formanns Verkamanna- flokksins,“ sagði Kullmann Five á miðstjómarfundi í Hægriflokknum. Forsætisráðherrann hefði haldið alrangt á málunum, ekki bara varð- andi samningaviðræðumar um Evr- ópska efnahagssvæðið (EES) held- ur Evrópumálunum almennt. Nefndi Kullmann Five fjölmörg atriði þar sem hún taldi að Brundt- land hefði gert gmndvallarmistök. Hún hefði t.d. ranglega metið hvaða áhrif það hefði að Svíar ætluðu að ganga inn í Evrópubandalagið (EB), möguleikana á fríverslun með fisk og síðustu samtöl sín við Jacques Delors, formann framkvæmda- stjórnar EB, en að þeim loknum taldi norski forsætisráðherrann víst að hægt væri að greiða úr flækj- unni. Kullmann Five tók skýrt fram að Hægrifiokkurinn myndi áfram styðja tilraunir Norðmanna til að ná sem hagstæðustum EES-samn- ingum en sagði ljóst að flokkurinn teldi nú tímabært að gera úttekt á afleiðingum þess að sækja um aðild að EB. Loks gagnrýndi formaður Hægriflokksins hvernig ríkisstjóm- in hefði brugðist við atvinnuleysi í landinu. Um 150 þúsund Norðmenn em nú atvinnulausir en það er hæsta tala síðan fýrir stríð. Serbneskur skæruliðaforingi: Vopnahléið verður rofíð innan skamms Belgrad, París. Reuter. MILAN Martic, einn af yfir- mönnum serbneskra skæruliða Þýskaland: Egon Krenz hefur störf sem verðbréfamiðlari ÞAÐ virðist ekki vera alveg útilokað fyrir fólk úr austurhluta Þýskalands að detta niður á sniðug atvinnutækifæri jafnvel þó að fortíð þeirra og fyrri starfsreynsla sé með misjöfnum hætti. Að minnsta kosti hefur Egon Krenz, sem haustið 1989 skaut í skamman tíma upp á stjörnuhimin austur-þýskra stjórnmála, ver- ið ráðinn í háa stöðu lýá verðbréfamiðlarafyrirtæki í Berlín. Þessi ráðning hefur komið Varpi einstaka sinnum en fyrir mörgum á óvart ekki síst í ljósi fyrri starfa og menntunar Krenz en hann er m.a. einn af handhöf- um Karl Marx-orðunnar. Krenz var um árabil í miðstjóm austur- þýska kommúnistaflokksins (SED) og um nokkurra vikna skeið, í lok ársins 1989, æðsti maður Austur-Þýskalands. Fall Egons Krenz úr valdastóli var jafn hátt og fall austur-þýska kerfísins. Hann neyddist til að flytja úr glæsilegu húsi sínu í Wandlitz, þar sem allir æðstu menn Austur-Þýskalands áttu heima, og bók sem hann skrifaði með aðstoð annarra og bar nafnið „Er múrarnir falla" náði ekki nærri því jafn mikilli sölu og hann hafði vonast til. Hafði hann helst tekjur af því að koma fram í sjón- slíkar uppákomur, sem voru frem- ur sjaldgæfar, hlaut hann sem greiðslu allt að 500 mörk. Krenz, sem er skraddarasonur frá bænum Kolberg, hefur kenn- aramenntun og er sérhæfður í marx-lenínískum samfélagsfræð- um. Varla öðlaðist hann því mikla haldbæra þekkingu á hinu kapít- alíska kerfi á námsárum sínum. Enda virðist þekking hans og reynsla ekki vera ástæðan fyrir ráðningunni. Ástæðurnar virðast frekar vera af félagslegum rótum sprottnar og einhvers konar borg- aralegri vorkunnsemi forsvars- manna verðbréfafýrirtækisins í garð Krenz. Gerd Breuer, yfirmaður fyrir- tækisins sem réði Krenz til starfa, segir í samtali við þýska dagblað- ið Berliner Morgenpost að hann hafi litið á það sem „áskorun" að ráða Krenz. Menn megi ekki líta á sig sem sigurvegara og Krenz hafi átt í mikilli tilvistarkreppu. „Hann var of ungur til að fara á elliheimili og hann skammaðist sín of mikið til að geta farið og sótt atvinnuleysisbæturnar. Mér finnst það ekki drengilegt að greiða mönnum í slíkri aðstöðu náðarhöggið," sagði Breuer. Hann sagði að til að forðast allan misskilning vildi hann taka fram að Krenz myndi starfa að málum sem tengdust vesturhluta Þýskalands. Þetta væri með vilja gert þar sem hann vildi ekki að menn færu að velta vöngum yfír því hvort nota ætti tengsl komm- únistaleiðtogans fyrrverandi við gamla valdahópa. Þess má geta að það færist æ meir í vöxt í þýskum dagblöðum að tekið er fram þegar fyrirtæki auglýsa eftir starfsfólki að fortíð í kommúnistaflokknum sé engin fyrirstaða. Egon Krenz fyrrum leiðtogi Austur-Þýskalands er nú orð- inn verðbréfasali í Berlín. Hall- að hafði undan fæti hjá Krenz frá því að hann hrökklaðist frá völdum og seldist m.a. bók hans „Þegar múrarnir falla“ hrapal- lega illa. Myndin var tekin þeg- ar Krenz kynnti bókina á blaða- mannafundi fyrir rúmu ári. í Króatíu, sagðist í gær telja ljóst að vopnahléið milli Serba og Króata yrði rofið bráðlega. „Vopnahléið mun ekki endast lengi til viðbótar og stóri slagur- inn hefst innan skamms,“ sagði Martic í samtali við Reuters- fréttastofuna. Vopnahléi var komið á í síðustu viku af forsætisráði Júgóslavíu og hefur verið tiltölulega rólegt í land- inu síðan þó að fylkingar hinna stríðandi afla hafi af og til skipst á skotum. Fangaskipti sem samkomulag hafði náðst um, og áttu að eiga sér stað á mánudag, fóru út um þúfur. Sökuðu báðir aðilar hinn um að vilja skipta á venjulegum föngum og „hryðjuverkamönnum". Nefnd sem fýlgjast á með því að vopnahléið sé virt hefur lagt til að Króatar og Serbar sleppi einfald- lega öllum föngum úr haldi á mið- nætti 18. ágúst nk. Stjórnvöld í júgóslavneska lýð- veldinu Bosnia-Herzegovina sögðu í gær að haldin yrði atkvæða- greiðsla bráðlega í lýðveldinu um hvemig framtíðarskipulag Júgó- slavíu íbúar þess kysu helst. Bosn- ía liggur á milli Serbíu og Króatíu. Um 40% íbúa lýðveldisins eru múhameðstrúarmenn, um þriðj- ungur Serbar og um fímmtungur Króatar. Heimildir innan frönsku utanrík- isþjónustunnar hermdu í gær að Frakkar hefðu farið fram á það við öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna kæmi saman til fundar um Júgóslavíu og að Evrópubandalag- ið (EB) héldi alþjóðlega ráðstefnu um málefni landsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.