Morgunblaðið - 14.08.1991, Síða 19

Morgunblaðið - 14.08.1991, Síða 19
 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991 19 Ofurbyssa Iraka brátt úr sögunni Lundúnum. Reuter. ÍRAKAR sýndu sérfræðingum á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) ofurbyssu sína um helgina. Byssan mun verða eyðilögð á næstunni og þar með verður þetta furðulega mál, sem allt eins gæti átt heima í reyfara, úr sögunni, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Byssan er geymd á leynistað í ijalllendi í norðurhluta íraks. Hlaup hennar er um 50 metra langt og Irakar játuðu að þeir hefðu haft í bígerð að smíða enn stærri byssu, með allt að 100 metra löngu hlaupi. Að sögn sérfræðinganna, sem eru í írak til að ganga úr skugga um að írakar virði vopnahlésskil- mála SÞ, var búið að setja byssuna saman, en hún var ekki nothæf. Smíði byssunnar var hluti af Financial Times: áætiun kanadíska vopnasérfræð- ingsins Gerald Bull. Hann var myrtur í íbúð sinni í Brussel á síð- asta ári. Bull var ýmist lýst sem bijáluðum uppfínningamanni eða vísindasnillingi. Morðingjar hans hafa ekki náðst en talið er að þeir hafi verið á vegum ísraelsku ieyni- þjónustunnar og morðið hafi verið hluti af áætlun hennar um að koma í veg fyrir að byssan yrði smíðuð. Stund saimleikans runnin upp í EB Financial Times. Evrópubandalagið (EB) á við slæmar meltingartruflanir að stríða og hefur ekki fundið lyf við sjúkdómnum ennþá, að sögn fréttaskýrandans Roberts Mauthners í breska dagblaðinu Fin- ancial Times. Astæðan sé einkum sú að fjölmörg torleyst við- fangsefni hafi verið á borðum bandalagsins að undanförnu; sameining Þýskalands, þróunin í samvinnu bandalagsríkjanna á sviði gjaldeyris, stjórn- og öryggismála, samskipti EB við Fríverslunarbandalag Evrópu (EFTA), Austur-Evrópulöndin og Sovétríkin og nú allra síðast Júgóslavíu. Mauthner segir þó að fjöldi vandamálanna sé ekki eina ástæðan fyrir vandkvæðum EB. Bandalagsrikin hafi ekki enn komið sér saman um stefnu varðandi stækkun þess. Mauthner segir ljóst að forseti framkvæmdastjórnar EB, Frakk- inn Jacques Delors, hafi viljað sporna við fjölgun aðildarríkj- anna, hann hafi viljað „dýpkun", að fyrst yrði lokið samningum um stóraukna samvinnu aðildarríkj- anna 12 í gjaldeyris- og stjórn- málum. Aðrir, þ. á m. Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætis- ráðherra Bretlands, hafi viljað „víkkun" þ.e. að ný ríki yrðu tek- in inn en síður lögð áhersla á aukið samstarf innan bandalags- ins. Tortryggni hafi ríkt á báða bóga. Lausnin varð sú að reyna að gera hvorttveggja í senn, seg- ir Mauthner. Hann álítur að hug- mynd Delors með Evrópska efna- hagssvæðinu (EES), er spanna skyldi lönd EB og EFTA, hafi verið að veita EFTA-löndum að- gang að sameiginlega markaðn- um en letja um leið þær EFTA- þjóðir er sýndu mestan áhuga á aðild að EB. Þetta hafi mistekist. „Mörg EFTA-ríkin hafa áttað sig á því að áhrif þeirra á ákvarðanir og sjálfstæði myndu skerðast enn meira við aðild að laustengdu EES en aðild að Evrópubandalaginu. Bandalagið myndi að vísu ráð- færa sig við þau í sambandi við nýja löggjöf EB en þau hefðu ekkert ákvörðunarvald sjálf ef EES yrði veruleiki." Höfundur telur ekki hægt að útiloka að samningarnir um EES fari út um þúfur. Mauthner segir að EB eigi að mestu sjálft sök á því hvemig farið hafi. Þótt það hafí verið merkisberi einingar álfunnar eftir stríð verði ekki sagt að það hafi viljað koma nægilega til móts við þjóðir sem hafi til að bera mjög sterkar og sjálfstæðar lýðræðis- hefðir. Mikilvæg málefni hafi drukknað í þrætum um fisk, deil- um um leyfi til aksturs vöruflutn- ingabíla um Austurríki og Sviss og loks sjóð til stuðnings fátækum svæðum í EES. Hann segir að þjóðir umræddra ríkja, einnig Svíar, Finnar og Norðmenn, geti ekki hugsað sér framtíð án náinna tengsla við EB; efnahagur þeirra sé svo samofinn efnahag banda- lagsins. Líklegt sé að viðræður um aðild þessara ríkja yrðu auð- veldari en EES-samningarnir vegna þess að ekki þyrfti að leysa vandann varðandi rétt EFTA til áhrifa á löggjöf EB. Takmörkuð aðild hlutlausra ríkja Mauthner segir að vísu að erf- itt gæti reynst að finna lausn á sumum málum, þ. á m. öryggis- málunum vegna hlutleysisstefnu nokkurra Evrópuþjóða. Lausnin gæti verið að þessi lönd fengju fulla aðild að því undanskildu að þau tækju ekki þátt í væntanlegu varnarsamstarfi bandalagsins. Með sama hætti væri hægt að veita A-Evrópuþjóðum eins konar aukaaðild en skilyrðið væri að EB leyfði innflutning á landbúnaðar- afurðum, vefnaðarvöru og stáli frá löndum þeirra. Fjarstæða sé að heimta af A-Evrópuríkjunum að þau taki upp fijálsan markaðs- búskap heima fyrir jafnframt því sem útflutningsvörur þeirra rekist á harðvítuga vemdarstefnu er- lendis. ■ PARÍS - Tveir íranir, sem grunaðir eru um aðild að morðinu á fyrrverandi forsætisráðherra ír- ans, Shapour Bakhtiar, í Frakkl- andi í síðustu viku hafa að sögn franskra lögreglumanna tyrknesk vegabréf. Svissneskir landamæra- verðir stöðvuðu mennina tvo á landamærum Sviss og Frakklands vegna gruns um að vegabréfsárit- anir þeirra væru falsaðar. Þeir voru látnir greiða sekt og því næst fengnir frönsku lögreglunni, sem hélt þeim í klukkustund áður en hún sleppti þeim. Þetta gerðist milli þess sem Bakhtiar var myrtur og lík hans fannst. Þriðji maður- inn, sem lögreglan reynir nú að hafa upp á, hefur búið í Frakkl- andi frá 1984. Mennirnir þrír heimsóttu Bakhtiar á þriðjudag í síðustu viku en hann fannst látinn á fímmtudagsmorgun. Bakhtiar, sem var 76 ára, flúði frá íran eft- ir byltinguna þar árið 1979. Mynd- um af mönnunum þremur var dreift á laugardag en lögreglan viðurkenndi að tilræðismenn Bakh- tiars hefðu hugsanlega komist úr landi en lík hans fannst ekki fyrr en 36 klukkustundum eftir að hann var myrtur. ■ KAUPMANNAHÖFN - Finnska flutningaskipið „Finn Pol- aris“ sökk á mánudagsmorgun við norðvesturströnd Grænlands. Skipið rakst á ísjaka á sunnudag, gat kom á það og sjór streymdi inn. Áhöfnin fór um borð í björgun- arbáta og var á sunnudagskvöld bjargað um borð í tankskip í eigu Grænlandsverslunar eftir sex klukkustunda dvöl í björgunarbát- um. Um 500 rúmmetrar af hráolíu voru í tönkum skipsins og var flug- vél send frá Syðri-Straumfirði í gærmorgun til að kanna hvort olía hefði lekið frá skipinu. Nýjar vörur gardeur dömufatnaður Haustlínan 1991 Stakir jakkar, einlitir, köflóttir Síðbuxur, margar gerðir Pils, einlit, munstruð, felld, 80 cm síð Pils, bein, 60 og 7 5 cm síð Hnébuxur, 62 cm síðar Uðumu verzlun v/Nesveg, Seltjarnarnesi. Opið daglega frá kl. 9-18, laugardagafrá kl. 10-14. Afkomandi Vilhjálms II: Vill þingbundna kon- ung’sstjóm í Þýskalandi LOUIS Ferdinand prins, barnabarn Vilhjálms II, siðasta keisara Þýskalands og erfingi að prússnesku krúnunni, lýsti yfir því í blaðaviðtali um helgina að þýska þjóðin ætti að skera úr um það hvort fjölskyldan settist í hásæti á nýjan leik. Louis Ferdinand kvaðst í við- tali, sem birtist í þýska vikublað- inu Bild am Sonntag um helgina, telja að svo gæti farið að kon- ungsveldi yrði komið á í Þýska- landi. „Það gæti til dæmis gerst með þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort koma skuli á konung- legu þingræði," sagði prinsinn í viðtalinu. Þegar blaðamaður spurði hve- nær tímabært væri að halda slíka atkvæðagreiðslu svaraði Christ- ian Sigismund, sonur Louis Ferdinands, að bragði: „Sá tími kemur þegar afleiðingar skipting- ar Þýskalands hafa verið yfirunn- ar.“ Vilhjálmur II. sagði af sér völd- um eftir að Þjóðveijar höfðu ver- ið sigraðir í fyrri heimsstyijöld. Hohenzollern-fjölskyldan afsalaði sér hins vegar aldrei rétti sínum til valda. Þessi mál hafa verið í brenni- depli undanfarna mánuði vegna þeirrar ákvörðunar að endurgrafa jarðneskar leifar Friðriks mikla í Potsdam, sem er skammt frá Berlín. Kista Friðriks verður flutt til hallar hans, Sanssouci, 17. ágúst. Helmut Kohi, kanslari Þýska- lands, hefur vísað á bug staðhæf- ingum vinstri sinnaðra stjórnmál- amanna um að athöfnin muni kynda undir þjóðernishyggju í Þýskalandi. Kohl hefur sagt að Friðrik mikli hafi verið málsvari umburðarlyndis. Friðrik mikli gerði Prússland að stórveldi í Evrópu. Hann hefur einnig verið kallaður menntaður einvaldur, sem lagði niður pynt- ingar, skaut skjólshúsi yfir flótta- menn, þar á meðal gyðinga og húgenotta, og var velgjörðarmað- ur skálda og listamanna. Friðrik mikli kvaðst i erfðaskrá sinni vilja verða lagður til hinstu hvílu í Sanssouci. Þegar hann lést árið 1876 var hann grafinn við herbúðakirkju í Potsdam. Meðan á heimsstyijöldinni síðari stóð var lík hans fært og eftir að hafa verið flutt til ýmissa staða í Þýskalandi var henni komið fyrir við kastala Hohenzollem-fjölskyl- dunnar í Hechingen í Baden- Wurttemberg. Þegar það gerðist var stríðinu lokið. Kista Friðriks mikla var ekki flutt aftur til Sanssouci fyrr en nú vegna þess að höllin og Potsdam voru í Aust- ur-Þýskalandi. Friðrik mikla verður ekki að þeirri ósk sinni að hljóta látlausa útför. Athöfn- inni 17. ágúst verður sjónvarpað beint og verður Kohl meðal við- staddra. »hummel SPORTBÚÐIN % 20- 50% afsláttur Ármúla 40 Sími 813555 VISA E hJ 5% staögreidsluulsiáftur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.