Morgunblaðið - 14.08.1991, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991
Minning:
Þórarínn Guðmundsson
menntaskólakennarí
Fæddur 4. maí 1936
Dáinn 6. ágúst 1991
Leiðir okkar Þórarins Guðmunds-
sonar lágu fyrst saman fyrir tutt-
ugu og fimm árum. Þá varð ég
nemandi hans og kynntist honum
á vettvangi þar sem hann naut sín
best. Þórarinn var afburða kennari
og kennslan alla tíð í hans augum
saklaus og uppbyggileg skemmtun
> ætluð kennaranum jafnt sem nem-
andanum — „einkum þó kennaran-
um,“ sagði hann mér síðar. Hann
hafði einstakt lag á að halda at-
hygli nemenda sívakandi. Hann var
ávallt glaðsinna, talaði aldrei niður
til nemenda og alltaf reiðubúinn að
hlusta á þá og læra af þeim. Þórar-
inn vissi nefnilega að góður kenn-
ari á ekki aðeins að hafa lipran
talanda og beita krítinni fimlega
heldur verður hann einnig að kunna
þá erfiðu list að hlusta. Flóknustu
atriði skýrði hann á greinarglöggan
hátt án þess nokkum tíma að falla
í þá freistni að einfalda þau um of.
Sífellt hafði hann á hraðbergi ein-
hver kátleg gamanyrði sem hann
^fléttaði meistaralega saman við við-
fangsefnið sem til umræðu var
hveiju sinni. Þannig átti nemandi,
sem ekki fylgdist vel með, á hættu
að missa af einhveijum óborganleg-
um brandara. Það vildi fáir og þann-
ig nýtti Þórarinn kímnigáfu sína til
að glæða áhuga nemenda og vera
þeim um leið skapbætir. Góðlátleg
glettni hans byggðist því á alvöru-
gefni en ekki ærslum. Sannur húm-
oristi er umfram allt alvörumaður
sem hefur næmt auga fyrir kátbros-
w. legum uppákomum hversdagslífsins
og getur haft gaman af þeim. Slík-
ur maður var Þórarinn.
Síðar kynntist ég Þórarni sem
starfsfélaga og vini en um leið and-
stæðingi við skákborðið. Þá lærðist
mér enn betur að meta mannkosti
hans. Hann hafði mikla unun af
hvers konar leik og keppni en hún
varð alltaf að vera drengileg og
kappið mátti aldrei bera menn ofuri-
iði. Sjálfsagt var þó að grípa til
allra hugsanlegra klækja að því til-
skildu að þeir rúmuðust innan leyfi-
legra og settra reglna. Um þetta
vorum við hjartanlega sammála og
bræðralagið oft flátt mjög meðan
leikurinn stóð sem hæst en að leik
loknum settist ljúfmennskan aftur
að völdum eins og ekkert hefði á
orðið með okkur. Þegar hann hafði
betur sagði hann stundum og hló
dátt: „Það er gott þú ert tapsár —
ég er það nefnilega líka ef þú hefur
ekki tekið eftir því.“
Á kennarastofunni var Þórarinn
hrókur alls fagnaðar. Ráðhollur og
traustur var hann ef til hans var
leitað með einhvers vandamál og
þá taldi hann tíma sinn ekki eftir
gæti hann orðið að iiði. Skarðið
eftir hann stendur „ófullt og opið“
en minningin um heilsteyptan og
góðan dreng lifir meðal samkennara
hans í Menntaskólanum í Reykja-
vík. Það eru forréttindi að hafa
'5 kynnst slíkum manni.
Um leið og ég þakka kærum vini
og félaga alltof stutta samfylgd í
þessu lífi sendi ég eftirlifandi eigin-
konu, Sigríði Steingrímsdóttur,
dætrum, móður og öðrum aðstand-
endum samúðarkveðjur.
Bragi Halldórsson
Ég hef líklega verið á fjói-ða ald-
ursári er ég kom inn af götunni og
hafði yfir einhver óprenthæf orð
sem ég apti eftir mér eldri leikfélög-
um.
Þá sagði Þórarinn bróðir minn:
Eddi minn, það er ljótt að bölva?
Ég var að sjálfsögðu engu nær
enda ófær um að leggja nokkurn
minnsta skilning í eigin orð. Þórar-
inn lagði sig þá í framkróka um
að skýra út fyrir mér muninn á
. góðu og illu með hliðsjón af tak-
mörkuðum vitsmunum mínum og
eftir alliangar þreifingar af minni
hálfu varð að samkomulagi að ég
léti þá þegar af öllu bölvi, en ef
allt um þryti og ég gæti með engu
móti hamið skap mitt, þá kæmi til
álita að segja „ansvítans vesen“.
Þetta eru mínar fyrstu minningar
um Þórarin bróður minn sem jafn-
framt kann þá að hafa stigið sín
fyrstu spor á kennslubrautinni sem
síðar varð hans ævistarf.
í röska hálfa öld hef ég tilheyrt
þröngum hópi sérréttindafólks sem
samanstendur af nánustu ættingj-
um Þórarins og hefur sú staða
ævinlega orðið mér mikill og óverð-
skuldaður vegsauki.
Það heyrir örugglega til örfárra
undantekninga að hafa átt bróður
sem aldrei hefur lagt til manns illt
orð, hvað þá tuktað mann til eins
og jafnan er venja milli bræðra.
Þórarinn ólst upp að nokkru leyti
hjá afa okkar og ömmu, alnafna
sínum Þórarni Guðmundssyni fiðlu-
leikara og tónskáldi og Önnu ívars-
dóttur og verður þeim kærleika
seint lýst sem var með þeim.
Þórarinn var í senn afskaplega
heilsteyptur og óvenjulegur maður.
Hann rækti skyldur sínar af meiri
samviskusemi en ég hef kynnst hjá
öðrum mönnum og vegna góðra
skipulagsgáfna sinna kom hann
gífurlega mikiu í verk á ævi sinni.
Jafnframt þessu þá hafði hann sinn
sérstaka stíl og viðmót sem skipaði
honum í öndvegi hvar sem hann
kom.
Þórarni var ákaflega annt um
minningu forfeðra sinna og frænd-
fólks. Er mér sérstaklega minnis-
stætt er hann reisti legstein yfir
afabróður okkar sem var ákaflega
sérsinna og tilheyrði tæpast þeim
hópi manna sem teljast til máttar-
stólpa þjóðfélagsns, svo ekki sé
dýpra í árinni tekið. Þórarni fannst
að afrek manna í jarðlífinu ættu
ekki að ráða um hvort þeim væri
reistur legsteinn eða ekki.
Ræktarsemi hans var einstök og
skipti þá ekki máli hvort í hlut áttu
nánir ættingjar eða vinir og kunn-
ingjar. Urðu því margir til að halla
sér að honum í tímabundnum eða
viðvarandi erfiðleikum. Hann var
einlægur mannvinur að upplagi og
þótti hvorttveggja gott að tala við
fólk eða „þegja með því“ eins og
hann sjálfur komst að orði. Vina-
hópur hans varð því ótrúlega stór
og sorg þeirra einlæg og sönn við
þessi vistaskipti.
Þórarinn kaus að mennta sig á
sviði raunvísinda og lauk meistara-
prófi í eðlisfræði frá ríkisháskólan-
um í Wisconsin í Bandaríkjunum
með afburða vitnisburði. Sjálfur
sagði hann mér fremur í gríni en
alvöru að hann hefði gjarnan viljað
vera prestur, það væri svo tilkomu-
mikið að verða kallaður „séra Þór-
arinn“. Ég dreg ekki í efa að hann
hefði orðið mikill kennimaður ef
hann hefði lagt fyrir sig prestsstarf-
ið og ekki hefði hann skort söfn-
uði, svo mikið er víst.
Sú fræðigrein sem lá þó best
fyrir honum að mínum dómi, var
sagnfræði. Á því sviði bjó hann
yfir víðtækri þekkingu og djúpum
skilningi. Hann gat í einni svipan
fært flókna heimssögulega viðburði
í einfalt og skiljanlegt samhengi.
Áhrif verkfæra á borð við „plóg-
inn“, manntjöldaþróun og hernað-
artækni urðu þá áhrifavaldar frem-
ur en einstakar persónur sögunnar.
Hann hafði mikinn áhuga á nútíma
sagnfræði og gat vegna þekkingar
sinnar skoðað nútímaatburði í ljósi
sögunnar út frá öðrum sjónarhól
en getur að líta í fjölmiðlum. Þegar
Þórarinn gekk undir mikinn upp-
skurð í desember síðastliðnum stóð
umræðan um Persaflóadeiluna hvað
hæst. Þegar hann vaknaði til með-
vitundar nærri sex vikum síðar þá
var það fyrsta sem hann sagði við
mig: Hvað er þetta eiginlega, mað-
ur má ekki halla sér smástund og
þá skellur á stríð.
Þórarinn var mjög ritfær maður
og liggja eftir hann margar bækur
bæði frumsamdar og þýddar. Má
þar nefna Spilabók AB og Spila-
kaplar AB sem báðar hafa selst í
stóru upplagi. í skóla fékk hann
ávallt hæstu einkunn í ritgerð og
gerði gjarnan að leik sínum að til-
kynna fyrirfram hvernig hann
myndi heija næstu ritgerð án þess
að hann vissi ritgerðarefnið. Eitt
sinn tilkynnti Jiann að upphafssetn-
ingin yrði: „Á litlum hól við hafið
sat maður". Ritgerðarefnið reyndist
vera um Völuspá og gerði Þórarinn
þennan mann að höfundi Völuspár.
Hlaut hann mikið lof fyrir ritgerð-
ina, einkum fyrir hina nýstárlegu
kenningu sína að Völuspá hefði
verið samin við sjávarsíðuna en
ekki upp til fjalla eins og áður hafði
verið talið. Lýsir þessi saga vel
frumleik Þórarins.
Allir þessir hæfileikar sem að
framan eru taldir nutu sín að fullu
í ævistarfi Þórarins, kennslunni og
skýra öðru fremur hve afburða far-
sæll hann var við sinn leist. Skólinn
var hans kirkja og nemendumir sá
söfnuður sem hann kaus sér.
Þórarinn var mikill heimilisfaðir
og var umhyggja hans fyrir ást-
kærri eiginkonu sinni Sigríði Stein-
grímsdóttur og börnum, Þuríði sem
hann missti árið 1980 eftir langvar-
andi vanheilsu, Kristínu, Öglu Huld
og Helgu Dröfn, föiskvalaus og var
ríkulega endurgoldin.
Hann unni foreldrum sínum og
okkur systkinum sem mest má
verða og stöndum við öll í mikilli
þakkarskuld við hann sem engin
orð fá lýst.
Banalega Þórarins var löng og
ströng, nærri átta mánuðir og véku
eiginkona hans, börn og ættingjar
aldrei frá honum allan þann tíma.
Hann andaðist þrotinn að kröftum
aðfaranótt þriðjudags 6. ágúst í
návistum við eiginkonu og böm.
Hann reyndist mér, eiginkonu
minni og börnum alla tíð sem besti
vinur. Við drúpum höfði í þakklæt-
isskyni fyrir samfylgdina.
Nokkrum dögum fyrir andlát
Þórarins var ég staddur í „Landinu
helga“ í starfserindum. Laugardag-
inn þriðja ágúst fór ég í ferð til
Jerúsalem og Betlehem þar sem ég
fékk tækifæri til að sjá bæði fæð-
ingarstað og gröf Krists og biðja
fyrir bróður mínum. Þótt Guð sæi
sér ekki fært að bjarga lífi hans
þá er ég viss um að hann mun leiða
hann til veglegs hlutverks í efra.
Guð blessi minningu Þórarins
Guðmundssonar.
Edgar Guðmundsson
Hinn 6. ágúst 1991 barst mér
sú fregn, að Þórarinn, vinur minn,
Guðmundsson væri látinn. Var
hann þá búinn að berjast við ill-
ræmdasta vágest mannkynsins,
sem stingur niður kollinum hvar
sem er, óháð verðskuldun og rétt-
læti.
Ég minnist þess nú, er ég mætti
Þórarni í haust um leið á förnum
vegi í Breiðholtinu og stakk hann
upp á því, að við gengjum nýjan
göngustíg meðfram Elliðaánum.
Það var kyrrt og fagurt veður og
septembersólin skein f heiði á gul
og rauð fallandi birkilaufin. Hafði
hann þá verið að gefa út bækur
um leiki ýmissa þjóða og var að
uppfræða mig um leyndardóma
þeirra sem ég reyndar þekkti ekki,
ekki einu sinni nöfnin. Fræddi hann
mig um, að japanski leikurinn kotra
væri enn voldugri en sjálf skákin.
Þetta var aðeins aukastarf Þórar-
ins. Aðalstarf hans var kennsla í
eðlisfræði í Menntaskólanum í
Reykjavík og fór orð af kennsluhæf-
ileikum hans. Að auki var Þórarinn
félagslega mjög virkur, tefldi skák,
spilaði brids og iðkaði göngur. Þór-
arinn komst yfir þetta allt saman
með sinni innbyggðu hagsýni. Þór-
arinn gekk reyndar ekki hratt, en
ekkert skref fór til ónýtis og hver
mínúta var fullnotuð.
Ég var þá reyndar á förum til
annars lands út í hinn stóra heim,
en ekki hvarflaði að mér, að Þórar-
inn væri á förum sömu leið og birki-
laufin. Til þess var veröldin of fög-
ur og lífsgleðin of mikil í bjartri
haustkyrrðinni.
Þórarin sá ég fyrst haustið 1951,
er við ientum í sama bekk í Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar í lands-
prófi. Þessum ljóshærða pilti veitti
ég fyrst athygli, þegar landafræði-
kennarinn spurði hann í þaula um
framandi slóðir. Öllum spurningun-
um svaraði hann um hæl af miklu
öryggi, en aðaláhugamál Þórarins
utan raungreinanna, sem hann
kenndi og skákarinnar sem hann
iðkaði, voru landafræði og saga,
enda meðal fróðustu manna í þeim
greinum. Þórarinn var einnig meðal
sterkustu hraðskákmanna. Oft hef-
ur mér verið hugsað til, hvílík and-
leg verðmæti, sem eru ofar öllum
veraldlegum verðmætum, fara for-
görðum, þegar slíkir menn kveðja
þennan heim.
Hvers vegna ég kynntist Þórarni
frekar en hinum í bekkrtUm get ég
ekki beinlínis svarað. Okkar kynni
tóku langan tíma, fyrstu skrefin
voru landfræðilegs eðlis. Ég bjó þá
í föðurhúsum á Bergþórugötunni,
en Þórarinn í afahúsum á Lauga-
veginum, sem er svolítið lengra í
burtu. Oft vorum við Þórarinn sam-
ferða ásamt öðrum að Bergþórugöt-
unni.
Næsta vetur lá leið okkar í
Menntaskólann í Reykjavík, þar
ægði saman ólíkustu mönnum úr
öllum áttum. Við héldum því hóp-
inn, sem lentu í sama bekk og komu
úr sama bekk. Einn þeirra var Þór-
arinn.
Fljótlega eftir að skóli hófst
hringdi ég niður á Laugaveg til
Þórarins út af bókfærslunni og
sagðist vera í algjörum vandræðum
með þetta Debet og Kredit. Þórar-
inn sagði, að ég skyldi koma strax,
því að þeir væru nokkrir að vinna
í þessu verkefni. Síðan var taflið
dregið fram og mönnunum raðað
upp, í þessu húsi byijaði ég að tefia,
en naut ekki þeirra fríðinda, að
segja hið þriggja stafa orð „Mát“.
Síðar varð mér oft gengið niður á
Laugaveginn og sagði stundum
„Skák“. Var gestkvæmt þarna og
gestrisni mikil og komu jafnvel hin-
ir ólíklegustu menn.
Kynni okkar Þórarins jukust
hægt, en jafnt og þétt. Næsta vetur
lásum við saman, en síðar skildu
leiðir okkar í bili. Þórarinn færði
sig að ML, en ég hélt áfram í MR.
Dag nokkurn að sumri 1966
mætti ég Þórarni í Bakarabrekk-
unni, og tjáði hann mér að það
væri laus staða fyrir stærðfræði-
kennara í Menntaskóianum að
Laugarvatni, og hvatti mig að
sækja um hana. Hafði hann þá
kennt tvo vetur þar og var að færa
sig í bæinn. Ég hafði í þá daga litla
reynslu í kennslu og engan orðstír
svo að mér fannst þetta vera bæði
heillandi og ógnvekjandi. Svo fór
að ég fékk stöðuna og átti eftir að
vera að Laugarvatni í 13 ár. Þar
að auki greiddi Þórarinn götur mín-
ar til sumarnámskeiða, þar sem
styrkur var veittur í Ameríku í
gegnum Islensk-ameríska félagið.
Þannig var Þórarinn ætíð jákvæður
örlagavaldur í mínu lífi.
Síðar færði ég mig til Reykjavík-
ur 1979, og urðum við Þórarinn
nágrannar í Breiðholtinu. Þórarinn
var þá í skákklúbbi, þar sem skák-
fræðin var í fyrirrúmi, í hvert skipti
var tekið ákveðið afbrigði í tiltek-
inni byijun, sem Þórarinn valdi. Um
síðir losnaði 6. sætið í klúbbnum
og Þórarinn hreinlega lék mér í
klúbbinn. Má segja, að þar hafi ég
fengið þá litlu skákmennt, sem ég
þó hef.
Þórarinn kom oft til okkar hjóna
á laugardagseftirmiðdögum. Spjöll-
uðum við saman yfir kaffibolla, en
aldrei stansaði Þórarinn lengi. Hann
var undantekningalaust að rétta úr
sér frá vinnu sinni, mínútufjöldinn
var fyrirfram ákveðinn.
Ég gæti sagt margt fleira um
Þórarin, en það er óþarfí, þar sem
allir hinir munu sjá um það.
Sagt er að kunningjarnir séu
margir, en vinirnir fáir. Þórarinn
var mér glöggt dæmi um sanna
vináttu. Svo sterk voru tryggða-
böndin, að ekkert vann á þeim.
Engin mannleg mistök gátu slitið
þau né heldur tíminn.
Nú er Þórarinn allur og vottum
við Gerður konu hans, Sigríði, dætr-
um hans þrem, móður hans, systk-
inum svo og öðrum ástvinum okkar
dýpstu samúð.
Egill Sigurðsson
Enn á ný hefur Guð kallað til
sín, langt um aldur fram, ágætan
vin okkar og tengdan fjölskyldu-
böndum. í þetta sinn var það Þórar-
inn Guðmundsson, menntaskóla-
kennari, sem kvæntur var frænku
minni Sigríði Steingrímsdóttur frá
Búðarhóli á Kleifum í Ólafsfírði.
Hans viljum við minnast í dag,
með virðingu og þökk fyrir vináttu
og gleðistundir.
Þórarinn var góður félagi og vin-
ur okkar, traustur til að leita, en
alltaf var stutt í glaðværð og glettni
í návist hans.
Hann var mikill grínisti og oft
var hlegið dátt er Þórarinn sagði
sögur, bæði af eigin reynslu og af
samferðamönnum, eða fór með kát-
legar vísur. Minntumst við þá oft
afa hans og alnafna, tónskáldsins,
sem gæddur var mikilli kímnigáfu
og yljaði mörgum með glettni sinni.
Við minnumst Þórarins í göngu-
ferðum sem við stunduðum um
skeið reglulega nokkur saman úr
fjölskyldunni. Var þá farið vítt og
breitt um nágrenni höfuðborgarinn-
ar og göngufólki glatt í sinni er
heim var komið og sest að kaffi-
borði.
Ég minnist hans fyrir geislandi
áhuga á hugðarefnum — hvort sem
það var nýiesin grein um stjörnu-
fræði í erlendu tímariti eða bók,
þýðingarverkefni sem hann var að
fást við, en að slíku vann hann
mikið síðustu árin, spilamennska,
einkum brids sem hann stundaði
af sívaxandi áhuga, eða skólastarf-
ið sem lét honum svo vel og aflaði
honum óteljandi aðdáenda og vina,
bæði úr hópi nemenda og samkenn-
ara.
En nú er komið að kveðjustund
að sinni.
Það er erfitt að sætta sig við þá
tilhugsun að hitta hann ekki með
gamanyrði á vör við spilaborðið, við
þýðingarstörf — eða á sunnudags-
morgni í gönguferð í glöðum hópi.
En við eigum minningu um góðan
dreng, sem yljar þótt erfitt sé að
skilja kall dauðans að þessu sinni.
Við sendum Siggu, dætrunum,
móður og öðrum ættingjum hans
öllum hugheilar samúðarkveðjur.
Megi góður Guð græða sár ykkar
og milda söknuðinn.
Katrín og Ingi Viðar
Sumarið sem nú er að líða verður
mörgum minnisstætt fyrir ýmissa
hluta sakir. Líklega munu fléstir
minnast veðurblíðunnar og gróðurs-
ins sem allt hefur vafið. Það sem
við dauðlegir streitumst við með
misjöfnum árangri, allt eftir elju-
semi og natni, gerir náttúran með
sjálfri sér og að því er virðist átaka-
laust. Og hvað svo sem okkur kann
að þykja eða sýnast, þá breytir feld-
ur náttúrunnar lit, það haustar að
og blómin sem bjartast brostu við
sólu falla fyrir haustveðrunum.
Nokkur okkar munu þó líklega
einkum minnast sumarsins fyrir það
hversu kalt — helkalt — það reynd-
ist mági mínum Þórarni. Þrátt fyrir
sigurvilja og þrotlitla baráttu allt
þetta ár féll Þórarinn fyrir vágestin-
um að morgni 6. ágúst, í stöðu sem
þurft hefði kraftaverk til að halda
jöfnu í hvað þá að ná þar sigri. Ég